Morgunblaðið - 23.07.2003, Side 16

Morgunblaðið - 23.07.2003, Side 16
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ 16 MIÐVIKUDAGUR 23. JÚLÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ LEIKSKÓLINN Hagaborg við Fornhaga er eini leikskólinn á veg- um Reykjavíkurborgar sem verður opinn í allt sumar. Sem kunnugt er var sú ákvörðun tekin í leik- skólaráði fyrr á þessu ári að öllum leikskólum borgarinnar yrði lokað í fjórar vikur yfir sumartímann og hefur það nú verið gert með þessari einu undantekningu. Hagaborg er einn af stærstu leik- skólunum í Reykjavík, en þar dvelja að jafnaði 98 börn. Þegar Sigríður Sigurðardóttir, leikskólastjóri á Hagaborg, er spurð hvers vegna hún hafi tekið ákvörðun um að hafa opið allt sumarið segir hún að könn- un sem gerð var í vetur á því hve- nær foreldrar óskuðu eftir sum- arleyfi hafi haft mikið að segja. „Þar kom í ljós að að sumarleyfi barnanna hér dreifðust álíka mikið og undanfarin ár. Auk þess voru margir foreldrar sáróánægðir með fyrirhugaða lokum. Sem betur fer fékkst leyfi til að hafa opið með sama hætti og venjulega því að öðr- um kosti hefðu börn og foreldrar í mörgum tilvikum ekki getað verið samtímis í sumarfríi en allmargir foreldrar geta ekki valið sér sum- arfrí þegar leikskólum hentar.“ Sigríður segist trúa því að sum- aropnunin þjóni hagsmunum allra, ekki síst barnanna. „Mér finnst miklu fjölskylduvænna að hafa þennan háttinn á. Það er mjög leið- inlegt til þess að vita að fjölskyldur geti ekki átt sumarleyfi saman vegna þess að leikskólinn setur þeim stólinn fyrir dyrnar. Börnin eru jafnvel sett á gæsluvöll eða í pössun hjá börnum eða unglingum þegar þau eiga sumarfrí og það finnst mér ekki nógu gott.“ Í júlímánuði er barnahópurinn á Hagaborg fámennastur en þá dvelja þar 57 börn að meðaltali. Sigríður segir að faglegt starf falli ekki niður á þessum tíma. „Ég tók strax ákvörðun um að ef leikskólinn yrði opinn í allt sumar myndu allar deildir verða opnar. Það hefur gengið vel og við teljum okkur hafa haldið uppi faglegu og skemmti- legu starfi í sumar einsog und- anfarin ár. Foreldrar hafa verið sáttir og ég met álit þeirra mikils,“ segir Sigríður. Hún segir það vissulega kosta vinnu að hafa skólann opinn allt sumarið en hingað til hafi það gengið mjög vel. Starfsfólk hafi einnig verið jákvætt, því finnist þægilegt að geta valið sér sum- arleyfistíma auk þess sem nokkrir starfsmenn séu á leið í nám í haust og kjósi því að taka ekki sum- arleyfi. Hún segist ekki hafa átt í vandræðum með að finna starfsfólk í afleysingar. „Það hefur gengið ágætlega að leysa sumarleyfi starfsmanna en þó heldur verr í sumar en áður vegna lokana hjá leikskólum sem börn starfsmanna eru á. En það er eigi að síður nóg af góðu starfsfólki í júlí. Sama fólkið kemur ár eftir ár í sumarstarf og er oft í tímavinnu hjá okkur á veturna líka, þannig að börnin þekkja þetta fólk vel,“ segir Sigríður. Löng hefð fyrir sumaropnun Sigríður segir langa hefð fyrir sumaropnun á Hagaborg. „Fyrir um það bil fimmtán árum byrjuðum við á þessu vegna óska frá for- eldrum sem voru í meirihluta náms- fólk í þá daga. Þeir þurftu oft og tíðum að vinna á sumrin og það hentaði því afar illa að leikskólinn lokaði á þeim tíma sem foreldrar gátu helst fengið vinnu. Þess vegna var sótt um leyfi til að gera tilraun með þetta og gekk hún mjög vel. Síðan hefur aðeins þurft að loka leikskólanum tvisvar og þá vegna mikilla framkvæmda og endurbóta á húsi og leiksvæði. Foreldrar og starfsfólk hafa því getað gengið að þessu fyrirkomulagi vísu þar til í vetur, að nýkjörinn borgarstjórn tók upp nýja stefnu í þessum mál- um, sem reyndar var ekki boðuð í kosningabaráttunni,“ segir Sigríð- ur. Auðveldar aðlögun Sigríður segir einn kostinn við að hafa opið allt sumarið vera þann, að með því skapist svigrúm til þess að byrja snemma að taka inn ný börn á leikskólann. „Sem stjórnandi finnst mér það ekki sísti kosturinn. Um leið og einhvert barnanna fer í sum- arfrí getum við tekið inn nýtt barn og þannig verða færri börn í einu í aðlögun. Að öðrum kosti væru þau öll að byrja á svipuðum tíma í ágúst. Í ár hefur þetta gengið mjög vel upp og það lítur út fyrir að öll þau þrjátíu börn sem eru að hefja leik- skólavist hér verði komin hingað fyrir fyrstu vikuna í september. Foreldrum hefur þótt sumarið góð- ur tími fyrir börnin að byrja í leik- skólanum þegar veður er gott og þeir hafa góðan tíma til að vera með þeim í aðlögun,“ segir Sigríður. Stefanía Sæmundsdóttir, formað- ur foreldrafélagsins á Hagaborg, segir foreldra almennt mjög ánægða með sumaropnunina. „Þeir kunna mjög vel að meta þessa þjón- ustu enda kemur hún sér vel fyrir marga. Ég hef einnig heyrt það á foreldrum að þeir eru ánægðir með það starf sem fer fram á sumrin. Mér finnst Sigríður eiga mikið hrós skilið fyrir það að stuðla að því að hægt sé að hafa leikskólann opinn yfir sumartímann,“ segir Stefanía. Leikskólinn Hagaborg opinn allt sumarið Þjónar hagsmunum allra Morgunblaðið/Jim Smart Sigríður Sigurðardóttir, leikskólastjóri á Hagaborg, ásamt fríðum hópi leikskólabarna. Vesturbær Eigandi Grandhótels og Hótels Reykjavíkur Tekur á leigu nýtt hótel í Aðalstræti 16 ÓLAFUR Torfason, eigandi Hótels Reykjavíkur og Grandhótels, hefur tekið á leigu rekstur hótels sem fyr- irhugað er að rísi við Aðalstræti 16 og ljúka á við í apríl 2005. Framkvæmd- araðili og eigandi hótelsins er eign- arhaldsfélagið Innréttingarnar, sem að standa Minjavernd og fasteigna- félagið Stoðir. Nafn hins nýja hótels verður Hótel Reykjavík - Aðalstræti og gildir leigu- samningurinn, sem í er kaupréttar- ákvæði, til 15 ára. Að sögn Ólafs mun hann fyrst um sinn áfram gegna starfi hótelstjóra á Grandhóteli en reiknar með að snúa sér alfarið að rekstri nýja hótelsins þegar fram í sækir. Hann verður þó ekki hótelstjóri þess. Ólafur hefur starfað í hótelrekstri um ellefu ára skeið og gegnt starfi hótelstjóra á Grandhóteli frá árinu 2001. Stefnt er að því að hefjast handa við jarðvinnu í tengslum við hótelfram- kvæmdirnar í Aðalstræti í næsta mánuði og á þeirri vinnu að ljúka í desember en þá verður hafist handa við uppsteypun hússins. Að sögn Ólafs má reikna með að 25–30 manns starfi á Hóteli Reykjavík - Aðalstræti. ÚTBOÐI á byggingarrétti í fyrsta áfanga Norðlingaholts er lokið, en í fyrsta áfanga voru boðnar út 22 einbýlishúsalóðir, 6 fjölbýlishúsa- lóðir og 2 lóðir fyrir samtengd tví- býlishús. Ágúst Jónsson, skrif- stofustjóri hjá borgarverkfræðingi, segir að verið sé að vinna úr tilboð- unum en þó nokkur hafi borist. Hann bætir við að öllum hafi verið heimilt að bjóða í lóðirnar, jafnt einstaklingum sem félögum. „Við höfum aldrei verið með beinlínis uppboð á lóðum þótt menn hafi kallað þetta ýmsum nöfnum. Eini munurinn á Grafarholti og út- boðinu nú er sá að í Grafarholti var sett fast verð á byggingarrétt fyrir einbýlishús og einstaklingar og fjölskyldur gátu sótt um einbýlis- húsalóð en ekki lögaðilar. Síðan dró sýslumaður úr þessum innsendu umsóknum og ef menn stóðust greiðslumat fengu þeir að velja sér lóð í þeirri röð sem umsóknirnar voru dregnar út,“ útskýrir hann. Í Norðlingaholti voru allar lóð- irnar boðnar út og síðan var unnið út frá tilboði hæstbjóðanda. Ágúst bendir á að einbýlishúsalóðirnar í Norðlingaholti séu því að jafnaði dýrari heldur en í Grafarholti. „Hér eru það umsækjendurnir sjálfir sem verðleggja, ef svo má segja, og því er ekki að neita að þarna koma boð sem eru talsvert hærri heldur en við var miðað í Grafarholti.“ Hann leggur áherslu á að tölu- verð breidd hafi verið í tilboðunum. Gengið var út frá lágmarksboði í byggingarrétt einbýlishúsalóða og segir hann að boð hafi borist alveg niður undir lágmarksverð, sem var 3.610.000 krónur. Þegar hann er spurður um lóðaverð í Grafarholti segir hann að erfitt sé að bera verðið saman því lengra sé síðan lóðum var úthlutað í Grafarholti. „Við fengum umsóknir um 6 lóðir í Grafarholtinu nýlega. Ef miðað er við vísitöluna í apríl hafa lóðirnar verið á bilinu frá 3,2 milljónum króna upp í 3,9 milljónir, þetta fer aðeins eftir lóðum. Lágmarksboð í Norðlingaholti er 3.610.000 svo þetta er á svipuðu róli. Tilboðin sem við fengum fóru samt yfir 5 milljónir króna í nokkrum tilvikum, en flest hljóðuðu upp á 4,5 milljónir til 5 milljóna króna,“ segir Ágúst. Hann segir það skipta máli í þessu sambandi að Reykjavíkur- borg standi ekki ein að útboðunum í Norðlingaholti, heldur sé sala byggingarréttarins samstarfsverk- efni borgarinnar og Rauðhóls ehf. „Það samdist þannig á milli borg- arinnar og þessa fyrirtækis að bjóða út allar lóðirnar. Það má í sjálfu sér halda því fram ef maður horfir á þessar tölur að borgin hafi verið að láta þessar lóðir í Graf- arholti undir markaðsverði. Þetta einkafyrirtæki, sem er í samstarfi við borgina með byggingarréttinn, er kannski ekki tilbúið í svoleiðis. Það er ef til vill meginmunurinn.“ 22 aðilar buðu í fjölbýlishúsalóð- irnar í Norðlingaholti og lóðir fyrir samtengdu tvíbýlishúsin, alls 97 til- boð í 8 lóðir. 34 aðilar buðu í einbýlishúsalóð- irnar, alls 278 tilboð í 22 lóðir. Greinilegt er að mikill áhugi er fyr- ir lóðum með útsýni yfir Bugðu (Móvað 15–35) því bæði bárust í þær lóðir fleiri tilboð og hærri. Útboð lóða í Norðlingaholti Hátt verð á ein- býlishúsalóðum Norðlingaholt – Grafarholt BÓKASAFN Seltjarnarness var opnað í nýju húsnæði á Eiðistorgi hinn 17. júní síðastlið- inn. Á einum mánuði hefur aðsókn að safn- inu stóraukist. „Á þessum rúma mánuði sem við höfum haft opið á Eiðistorgi hafa yfir 140 manns orðið nýir safnfélagar og það er nátt- úrlega mjög mikið á einum mánuði,“ segir Elsa Hartmannsdóttir bókasafnsfræðingur. Hún segir að fólk komi alls staðar að á safnið, meðal annars sé stutt fyrir Vest- urbæinga að sækja safnið á Eiðistorgi. Safn- ið kaupi mikið af enskum vasabrotsbókum sem séu mjög vinsælar og margir komi lang- ar leiðir til að verða sér úti um þær. „Það er pínulítil sérstaða hjá okkur að við kaupum mikið af þeim. Það eru alls konar bækur, bæði spennusögur, ástarsögur og hvað eina.“ Að sögn Elsu var bókasafnið lokað í þrjár vikur er flutningurinn var undirbúinn. „Safnið var áður til húsa í sama húsi og Heilsugæslustöðin á Seltjarnarnesi og Tón- listarskólinn. Nýja húsnæðið er um 1.000 fer- metrar og þetta er alveg geysilega mikill munur því þetta er um helmings stækkun. Á gamla staðnum höfðum við bækur í geymslu en nú komum við öllu fyrir,“ leggur hún áherslu á. Hún bætir jafnframt við að not- endatölvunum hafi verið fjölgað úr tveimur í átta og það sé mjög mikill munur. Á Bókasafni Seltjarnarness starfa sex starfsmenn og einn sumarstarfsmaður. Opn- unartíminn á nýja safninu er hinn sami og áður. Elsa segir að mest sé að gera á mánu- dögum en þá er opið lengst eða til kl. 22. „Ég veit ekki af hverju það er mest að gera á mánudögum, það hefur bara alltaf verið þannig,“ segir hún. Aðsókn að bókasafninu hefur stóraukist á einum mánuði Morgunblaðið/Arnaldur Öll aðstaða Bókasafns Seltjarnarness hefur batnað til muna eftir flutninginn. Seltjarnarnes

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.