Morgunblaðið - 23.07.2003, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 23.07.2003, Blaðsíða 26
26 MIÐVIKUDAGUR 23. JÚLÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ Hallgrímur B. Geirsson. Styrmir Gunnarsson. Framkvæmdastjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjórar: Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. AÐ MINNSTA kosti 12manns særðust er tværsprengjur sprungu í hót-elum í spænsku sumar- leyfisbæjunum Benidorm og Alic- ante í gærmorgun, en talið er að ETA, aðskilnaðarsamtök Baska, hafi staðið fyrir þeim. Fyrri sprengjan sprakk á hóteli í miðbæ Alicante og særðust átta manns, þar af tveir alvarlega. Flest- ir eru þeir erlendir ferðamenn úr spænskuskóla í nágrenninu. Nokkr- um mínútum síðar sprakk sprengja á Hótel Nadal á Benidorm og særð- ust þar fjórir lögreglumenn sem voru að girða bygginguna af. Spænskar sjónvarpsstöðvar sýndu lögreglumenn hjálpa blóðugu fólki í sjúkrabíla. Rétt fyrir sprengingarnar hafði dagblaðinu Gara í Baskalandi borist símtal þar sem ónafngreindur mað- ur sem sagðist tilheyra ETA til- kynnti um sprengjurnar. Því var búið að rýma hótelin er þær sprungu, hálftíma fyrr en tilkynnt hafði verið. Sprengingin í Alicante varð í her- bergi á fyrstu hæð hótelsins en sam- kvæmt netútgáfu El Mundo segir lögreglan að drengur um tvítugt sem hafði meðferðis græna tösku hafi komið á hótelið og pantað gist- ingu til tveggja nátta. Hann hafi því næst farið upp á herbergi og skilið eftir töskuna með sprengjunni í og haft sig svo á brott. Sprengjan á Benidorm var einnig skilin eftir í tösku í einu herbergi hótelsins. Í gær hóf Batasuna, hinn bannaði stjórnmálarmur ETA, að dreifa bæklingum á fjórum tungumálum til að kynna málstað aðskilnaðarsinna meðal erlendra ferðamanna. Öryggisgæsla verði hert Spænsk stjórnvöld segja að þeir sem beri ábyrgð á sprengjutilræð- unum á Benidorm og Alicante verði eltir uppi og þeim refsað þess fullviss að við munum þá, sem standa á bak við burði, í fangelsi,“ sagði Jo Aznar, forsætisráðherra Sp Angel Acebes, innan herra Spánar, sagði að gæsla á ferðamannastöð hert til muna í kjölfar á Kvaðst hann ætla að fe svæðisins til að skoða af sprenginganna. Juan Cost málaráðherra Spánar, s Spánn væri öruggt land fy menn og fordæmdi ETA ógna öryggi Spánar, s þegna og erlendra ferðama Spænski Sósíalistaflo stærsti stjórnarandstöð Spánar, sendi frá sér yfirlý sem ríkisstjórninni var heit við að berjast gegn ofbeld um. Þá fordæmdi flokkur fyrir að halda fast við ste engu myndi skila. Er óttast að hafin sé ný s herferð ETA sem hefur beint spjótum sínum að fe ustu, helstu gjaldeyris Spánverja. Á síðasta ár bílsprengja í sumarleyf Santa Pola, stutt frá Alican létust sex ára gömul stúlka ur á sextugsaldri Tólf sárir eftir sprengingar í Alicante og á Benidor Óttast nýja sprengjuherfer Madrid. AFP. Fjölmargir Íslendingar dveljast á þessum slóðum en sluppu allir ómeiddir. Þó mátti litlu muna, enda sumir þeirra mjög nálægt hótelunum sem voru sprengd. Eyðileggingin blasir við eftir sprenginguna í Nadal-hótelinu á Benidorm í gærmorgun. SPRENGINGIN á Hótel Nad-al á Benidorm í gærmorgunheyrðist vel upp á annað hótel í nágrenninu þar sem 40 Íslendingar dvelja á vegum ferðaskrifstofunnar Sumarferða. Aðeins er um 10 mín- útna gangur á milli hótelanna tveggja og varð Íslendingunum hverft við er þeir sáu hinn mikla við- búnað lögreglunnar. Fjórir lög- reglumenn særðust í sprengingunni sem kom strax í kjölfar annarrar sprengingar í spænsku hafnarborg- inni Alicante, sem er í 30 mínútna akstursfjarlægð frá Benidorm. Þar særðust átta manns. Einvarður Jóhannsson fararstjóri hjá Sumarferðum ók framhjá Hótel Nadal aðeins 2 mínútum áður en sprengingin sprakk um kl. 10 að ís- lenskum tíma. „Ég átti erindi niður á strönd til að ná í dót og um það leyti lokaði lögreglan götum í kring,“ segir hann. Eftir að viðvörun frá hryðju- verkamönnunum um sprengjuna barst lögreglu var hafist handa við að rýma hótelið og nærliggjandi göt- ur og mun sprengjan hafa sprungið 30 mínútum fyrr en sagt hafði verið. „Sprengingin heyrðist vel inn á hótelið okkar og hálftíma síðar var búið að innsigla vettvanginn og lög- regluþyrlur og -bílar hvarvetna. Mér skilist að anddyri hótelsins og neðsta hæð þess hafi skemmst og að nokkrir lögreglumenn hafi við að leita að sprengjunni e lægja hana.“ Íslenskur fararstjóri ók framhjá sprengistaðnum Sprengingin heyrðist vel upp á Íslendingahótel SYNIR SADDAMS ALLIR Það eru mikil tíðindi ef rétt reyn-ist, að synir Saddams Huss-eins, þeir Uday og Qusay, hafi fallið í skotbardaga við bandaríska hermenn í borginni Mosul í gærmorg- un. Herforinginn Ricardo Sanchez skýrði frá því í gærkvöld að Banda- ríkjastjórn væri sannfærð um að lík er fundust að bardaganum loknum væru í raun af sonum Saddams. Það var töluvert áfall fyrir Banda- ríkjamenn að ná ekki að handsama Saddam og syni hans meðan á Íraks- stríðinu stóð eða strax að því loknu. Raunar má segja að það sama gildi um leiðtoga talibana og Al-Qaida-samtak- anna í Afganistan. Þrátt fyrir að tekist hafi með skjótum hætti að koma ógn- arstjórnunum í Kabul og Bagdad frá völdum vofir enn yfir sú staðreynd að helstu leiðtogar þessara stjórna, ann- ars vegar Saddam Hussein og synir hans og hins vegar Mohammad Omar, skuli enn leika lausum hala, að ekki sé minnst á Osama Bin Laden, sem einn- ig tókst að komast undan hersveitum í Afganistan. Þeir Uday og Qusay báru ekki síður ábyrgð en faðir þeirra á ógnarstjórn- inni í Írak. Lýsingar þær sem borist hafa á framferði þeirra í gegnum árin eru hreinlega viðurstyggilegar. Talið er að þeir beri persónulega ábyrgð á pyndingum og fjölda morða auk þess sem Uday var yfirmaður Fedayeen- sveitanna er notaðar voru til að berja niður andstöðu í landinu. Fall þeirra mun væntanlega eiga ríkan þátt í að rjúfa hið andlega tangarhald er ógn- arstjórnir á borð við þær í Írak hafa ávallt á þegnum sínum. Líklegt má telja að þann skæru- hernað, er háður hefur verið gegn her- liði Bandaríkjanna í Írak síðastliðnar vikur, megi að miklu leyti rekja til stuðningsmanna Saddams, sem reiðu- búnir eru að berjast í þeirri vissu að fyrrum leiðtogi þeirra sé enn á lífi. Ef- laust eru fyrrum liðsmenn Fedayeen og annarra sérsveita Íraksstjórnar- innar fyrrverandi fjölmennir í hópi þeirra er staðið hafa að baki síendur- teknum árásum á hermenn. Fall þeirra Uday og Qusay hlýtur að vera reiðarslag fyrir þennan hóp að ekki sé minnst á Saddam sjálfan sé raunin sú að hann sé enn á lífi, líkt og margt bendir til. Smátt og smátt þrengist hringurinn utan um leifar ógnarstjórnarinnar og varla annað en tímaspursmál áður en hún verður að öllu leyti horfin. Það er forvitnilegt að í nýlegri breskri skoðanakönnun meðal íbúa í Írak kom fram að meirihluti þeirra var hlynntur veru bandaríska innrás- arliðsins í landinu. Óánægja íbúanna beindist að óörygginu og ógnaröldinni í landinu. Forsenda þess að hægt verði að binda enda á það ástand er ríkt hef- ur að undanförnu er að stöðva skæru- hernað stuðningsmanna Saddams. Takist það verða Bandaríkjamenn að sýna að þeim hafi verið alvara er þeir lýstu því yfir að þeir hygðust koma á réttlæti og stöðugleika í Írak. Þegar stríðið í Írak verður metið í framtíð- inni verður ekki síst horft til þess, hvernig staðið var að uppbyggingu í landinu. Þar verða önnur ríki heims einnig að leggja sitt af mörkum, ekki síst þau er lýstu yfir stuðningi við aðgerðirnar gegn stjórn Saddams. Stöðugleiki í Írak er forsenda þess að hægt verði að koma á stöðugleika í þessum heims- hluta, þar með talið samkomulag í ára- tugalöngum deilum Ísraela og araba. SPRENGJUR Á SÓLARSTRÖND Sprengjutilræði ETA, hryðjuverka-samtaka baskneskra aðskilnaðar- sinna, á sólarströndum Spánar í gær eru enn eitt dæmi þess hversu langt samviskulausir einstaklingar eru reiðubúnir að ganga til að vekja at- hygli á málstað sínum. Tvær sprengj- ur sprungu með skömmu millibili á hótelum á vinsælum ferðamannastöð- um, annars vegar í borginni Alicante og hins vegar á Benidorm. Á annan tug slasaðist í tilræðunum tveimur, þar af ferðamenn frá Svíþjóð, Rússlandi, Þýskalandi og Hollandi auk Spánverja. Ungur Hollendingur liggur í dái eftir sprenginguna á Alic- ante. Markmið tilræða af þessu tagi er að valda óhug og skelfingu. Með því að ráðast að saklausum ferðamönnum, sem eru deilum Baska með öllu óvið- komandi, er verið að reyna að koma höggi á efnahag Spánar. Tilgangurinn er að hræða fólk frá því að sækja land- ið heim. Samtökin hafa síðastliðið ár staðið fyrir nokkrum tilræðum á vin- sælum ferðamannastöðum, m.a. á Alicante og í Pamplona. Svipuðum aðferðum hefur verið beitt af öðrum samtökum víðs vegar um Evrópu, s.s. Írska lýðveldishern- um á Bretlandseyjum. Á níunda ára- tugnum efndu hryðjuverkasamtök til herferðar í Frakklandi sem beindist meðal annars að fjölförnum og vinsæl- um stöðum í París. Sprengjutilræðin á Benidorm og Alicante snerta marga Íslendinga. Hundruð Íslendinga ferðast á þessar slóðir í hverri viku yfir sumarið og urðu margir þeirra varir við afleiðing- ar sprengingarinnar í gær. Það að ís- lensk stúlka skuli hafa verið í húsi áföstu því er sprengjan sprakk í í Alic- ante sýnir jafnframt fram á að hættan af hryðjuverkum beinist gegn Íslend- ingum ekki síður en öðrum þjóðum heims. Fréttir sem þessar vekja ótta í brjósti þeirra sem heima sitja og vita af ættmennum sínum á svæðinu. Það er einmitt markmið samtaka á borð við ETA. Þau nærast á skelfingunni sem grípur um sig vegna voðaverk- anna. Hryðjuverk eru hins vegar aldr- ei réttlætanleg. Sprengjutilræðin á Costa Blanca auka ekki skilning á og samúð með málstað Baska. Þvert á móti. Þeir sem beita aðferðum sem þess- um eiga ekkert erindi í siðuðum sam- félögum. Spænsk yfirvöld hafa heitið því að taka á málinu af fyllstu hörku og handsama þá er stóðu að tilræðunum. Tilræði sem þessi minnar okkur á hvílík meinsemd hryðjuverk eru, hvort sem þeir sem að þeim standa kenna sig við Al-Qaida, ETA eða önn- ur samtök. Baráttan gegn þessari meinsemd er eitthvert mikilvægasta verkefni heimsbyggðarinnar á sviði öryggismála.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.