Morgunblaðið - 23.07.2003, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 23.07.2003, Blaðsíða 44
ÍÞRÓTTIR 44 MIÐVIKUDAGUR 23. JÚLÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ FORRÁÐAMENN Golfklúbbs Akureyrar hafa óskað eftir því við Golfsamband Íslands, GSÍ, að stigamót á Toyota-mótaröðinni sem fram átti að fara á velli GA, Jaðarsvelli, 9.-10. ágúst nk. fari fram á öðrum golfvelli. Ástæðan er sú að margar flatir Jaðarsvallar eru í slæmu ásigkomulagi og á heimsíðu GSÍ, golf.is, er sagt að mat heimamanna hafi verið á þá leið, að best væri að annar völlur yrði notaður að þessu sinni. Forráðamenn Golfklúbbs Reykjavíkur brugðust fljótt við og verða gestgjafar mótsins að þessu sinni og fer Mastercard-mótið því fram á Grafarholtsvelli dag- ana 9.-10. ágúst og klúbburinn hefur tekið að sér að halda fimmta og jafnframt næstsíðasta stigamót ársins og verður það haldið á Grafarholtsvelli. Fyrsta stiga- mótið fór fram á Korpúlfsstöðum, það næsta var á Leir- unni, það þriðja á Garðavelli á Akranesi og fjórða stigamótið er jafnfram Íslandsmótið í höggleik. Sjötta og síðasta stigamót ársins fer fram á Hvaleyrarvelli. Stigamót GSÍ flutt frá Jaðarsvelli VALSMENN fengu í gær liðsstyrk frá Danmörku, er Thomas Maale, 28 ára sóknarmaður, gekk í raðir þeirra. Hann lék áður með Fremad Amager. Jón S. Helgason, formaður knattspyrnudeildar Vals, sagði í samtali við Morgunblaðið að tekist hefðu samningar við Danann um miðjan dag og hann yrði væntanlega í leikmannahópi Vals sem heldur til Vestmannaeyja á morgun til leiks við ÍBV. Maale er annar leikmaðurinn sem Valsmenn fá í vikunni því Skagamaðurinn Ellert Jón Björnsson gekk einnig til við þá á dögunum. Ellert Jón er sókndjarfur útherji og ljóst er að þessir tveir leikmenn munu styrkja Hlíðarendaliðið fyrir loka- átökin í deildinni. Valur hefur gert 13 mörk í sumar og er í 8. sæti deildarinnar með tólf stig, aðeins stigi frá fallsæti. Fyrrverandi félagi Maale hjá Fremad Amager, Kristian Gade Jörgensen, gekk til liðs við Skagamenn fyrr í vikunni. Daninn Thomas Maale til Vals Þorvaldur telur að það sé góðþróun að undanúrslitaleikirn- ir séu spilaðir á þjóðarleikvang- inum í Laugardal. „Eina sem hægt er að gagnrýna er að leikirnir verða spilaðir í miðri viku en það hefði verið mun auðveldara fyrir stuðningsmenn KA að koma til Reykjavíkur um helgi,“ sagði Þor- valdur Örlygsson. Gunnlaugur Jónsson, fyrirliði ÍA, telur að sigur í bikarkeppninni sé eini möguleiki Skagamanna á titli á tímabilinu. „Staða okkar Skagamanna í deildinni er ekki glæsileg og því er kærkomið að við séum í undanúrslitunum. Akranes er mikið bikarlið og áhorfendur okkar hafa oft náð upp góðri stemningu á Laugardalsvellinum og það verður gaman að kljást við KA-menn. KA hefur staðið sig vel í bikarkeppninni undanfarin ár og liðið er verðugur andstæðingur. Sigur í bikarkeppninni er líklega eini möguleiki okkar á titli í sumar en við þurfum hins vegar að taka okkur saman í andlitinu á Íslands- mótinu áður en við förum að hugsa um bikarleikinn,“ sagði Gunnlaug- ur Jónsson. Liðið sem fagnar sigri í Bik- arkeppni KSÍ, VISA-bikarkeppni karla mun fá að launum eina og hálfa milljón króna og liðið sem lendir í öðru sæti fær fimm hundr- uð þúsund krónum minna. Liðin í þriðja og fjórða sæti fá 800.000 krónur, liðin í fimmta til áttunda sæti fá 500.000 og félögin í níunda til sextánda sæti fá 300.000 krón- ur. ÍBV eða Valur fær 300.000 krón- ur en þau mætast í úrslitum bik- arkeppni kvenna. Liðið sem lendir í öðru sæti fær 150.000 og liðin í þriðja og fjórða sæti fá 100.000 krónur. Ekkert verra að mæta ÍA „ÞAÐ er ekkert verra að mæta ÍA en FH eða KR. Í raun skiptir það engu máli hvaða lið við hefðum fengið því öll þessi lið eru sterk. ÍA er sjálfsagt það lið sem hefur glæsilegustu bikarsöguna en okkur hefur gengið ágætlega hingað til í undanúrslitunum,“ sagði Þor- valdur Örlygsson, þjálfari og leikmaður Akureyrarliðsins KA, sem mætir ÍA í undanúrslitum bikarkeppninnar á Laugardalsvellinum þriðjudaginn 9. september, en daginn eftir leika þar FH og KR.  ÞRÍR leikmenn úr efstu deild karla voru úrskurðaðir í gær í eins leiks bann vegna fjögurra gulra spjalda. Sinisa Kekic, Grindavík, Slobodan Milicic, KA, og Sigurður Sæberg, Val, fara allir í bann næsta föstudag og geta því leikið með liðum sínum á morgun.  ÚR 1. deildinni voru þeir Davíð Logi Gunnarsson, Haukum, og Haukur Úlfarsson, Víkingi, úr- skurðaðir í eins leiks bann vegna fjögurra gulra spjalda.  REAL Madrid hefur ákveðið að hætta við að kaupa argentíska varn- armanninn Gabriel Milito frá CA Independiente í Argentínu. Milito meiddist illa fyrir tveimur árum og forráðamenn Madrid telja að of miklar líkur séu á því að hann meið- ist illa aftur.  ENSKA 1. deildarliðið Preston North End vonast til að geta selt gamla varamannbekkinn sem David Beckham sat á fyrir á aðra milljón ísl. króna. Beckham sem gekk til liðs við Real Madrid frá Manchester United fyrr í sumar lék með Preston fyrir tæpum tíu árum og gerði þar sitt fyrsta deildarmark. Talsmaður frá Preston segir að bekkurinn sé til- valinn í bakgarðinn.  FULHAM hefur fengið hinn 44 ára gamla markvörð, Dave Beasant, til reynslu og mun kappinn fara með liðinu í æfingaferð til Austurríkis. Beasant hefur leikið með fjölda liða í Englandi á löngum ferli m.a. Wimbledon, Chelsea, Nottingham Forrest og Brighton nú síðast.  HANNAH Stockbauer frá Þýska- landi varð heimsmeistari í 1.500 metra skriðsundi kvenna í gær í Barcelona er hún kom fyrst í mark á tímanum 16.00,18 mínútum sem er mótsmet en heimsmetið á Janet Ev- ans 15.52,10 mín. Hayley Peirsol frá Bandaríkjunum varð önnur á 16.09,64 mín. og Jana Henke landi sigurvegarans varð þriðja á 16.10,13 mín.  IAN Thorpe frá Ástralíu var nokkuð frá heimsmeti sínu er hann kom fyrstur í mark í úrslitum í 200 metra skriðsundi en Thorpe synti á 1.45,14 mín en heimsmetið er 1.44,06 mín. Pieter Van Den Hoogenband frá Hollandi varð annar á 1.46,85 mín og Grant Hackett frá Ástralíu fékk bronsverðlaun en hann synti á 1.46,85. Thorpe og Hoogenband hafa verið sigursælustu sundmenn síðustu ára og eiga eftir að mætast í fleiri keppnisgreinum á HM.  XUEJUAN Luo sigraði í 100 metra bringusundi í gær á HM í Barcelona er hún synti á 1.06,80 mín. Heimsmetið er 1.06,37 mín. en það er í eigu Leisel Jones frá Ástr- alíu en hún varð þriðja í sundinu á 1.07,47 mín. Silfrið fékk Amanda Beard frá Bandaríkjunum sem synti á 1.07,42 mín. FÓLK Morgunblaðið ræddi við WillumÞór í gær um möguleika KR á að komast áfram í Evrópukeppn- inni. „Mér líst ágætlega á leikinn á morgun og ég er hæfilega bjartsýnn. Við vitum hvað þeir geta og nú þýðir ekkert annað en að sigra þá, það er á hreinu.“ Hvernig ætlarðu að leggja leik- inn upp? „Við þurfum að leika mjög skyn- samlega því Pyunik er sterkt lið. Við þurfum að vera tilbúnir að pressa þá en um leið þurfum við að passa okkur að opna okkur ekki í vörninni. Ef við fáum mark á okkur þurfum við að skora þrjú mörk til að komast áfram og það yrði ekki létt verk.“ Hefurðu trú á því að Pyunik muni sækja stíft eða sitja til baka? „Ég er ekki viss um að það henti þeim að sitja til baka. Þeir eru van- ir því heima fyrir að sækja mjög stíft og þeim hefur gengið mjög vel þegar þeir hafa spilað öflugan sóknarbolta. Leikmenn Pyunik leika mjög skemmtilegan fótbolta en þeir eru teknískir og kraftmikl- ir. Þeir sækja mjög hægt í upphafi sóknar og halda boltanum mjög vel og leika þá 5-3-2 leikkerfi. Þegar þeir eru komnir í góða sendinga- stöðu keyra þeir hratt og af mikl- um krafti upp vængina og skilja þá bara eftir þrjá leikmenn í vörninni. Báðir kantmennirnir æða upp völl- inn og miðjumennirnir stinga sér inn fyrir vörnina og það getur ver- ið mjög erfitt að verjast því. Þetta er ekkert ósvipað og að horfa á lið frá Brasilíu og Argentínu en það hefur sína veikleika eins og önnur lið.“ Hvar liggja helstu sóknarmögu- leikar KR-inga? „Í fyrri leiknum fengum ágætis marktækifæri þegar Pyunik missti boltann þegar þeir reyndu að sækja hratt að okkur. Þegar það gerðist voru þeir aðeins þrír eftir í vörninni og við verðum að nýta okkur það þegar þetta gerist.“ Vonastu eftir köldu veðri á Laugardalsvellinum á morgun? „Ég vona að það verði kalt í veðri og það væri fínt ef það yrði sterkur vindur á annað markið. Leikmenn Pyunik eru mjög óvanir því að leika í veðri eins og er á Ís- landi en þeir spila oft í 35 til 40 stiga hita í Armeníu.“ Eru ekki allir Íslendingar KR- ingar á morgun? „Ég held að á morgun munu allir Íslendingar styðja KR og ég geng út frá því. Ég vona að áhorfendur fjölmenni á Laugardalsvöllinn. Það verður engin svikinn af því að horfa á armenska liðið og ég held að þetta verði mjög fjörugur leik- ur,“ sagði Willum Þór. Willum Þór Þórsson, þjálfari KR, ræðir um möguleika KR gegn Pyunik Jerevan Þurfum að leika skyn- samlega „VIÐ þurfum að leika mjög skynsamlega gegn Pyunik en það er raunhæfur möguleiki fyrir okkur að sigra Armenana,“ sagði Willum Þór Þórsson, þjálfari KR, í samtali við Morgunblaðið. KR-ingar mæta armenska félaginu Pyunik Jerevan í síðari leik liðanna í for- keppni Meistaradeildar Evrópu á Laugardalsvelli í kvöld klukkan 20:00. Fyrri leiknum lauk með 1:0 sigri Pyunik í Armeníu og því eru möguleikar KR á að komast áfram bærilegir. Þetta er í fyrsta sinn sem armenskt félagslið leikur gegn íslensku félagsliði í Evrópu- keppni í knattspyrnu. Willum Þór Þórsson Eftir Atla Sævarsson Morgunblaðið/Kristinn Matthías Guðmundsson, leikmaður Vals, sækir að marki FH í bikarleiknum í Kaplakrika á mánudaginn. Hafnfirðingurinn Daði Lárusson og danskur samherji hans Tommy Nielsen eru til varnar, en þeir eiga næst við KR-inga í undanúrslitum. Báðir leikirnir í undanúrslitum fara fram á Laugardalsvelli.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.