Morgunblaðið - 23.07.2003, Síða 48
AÐDÁENDUR Elvis eru fjölmargir og er nýtt
fjögurra diska safnbox, sem kom út í mán-
uðinum vel til fallið til þess að gleðja þá.
Á Elvis Close Up er hver diskur tileink-
aður ákveðnu skeiði á ferli rokkkóngs-
ins en alls inniheldur safnið 89 lög, sem
ekki hafa verið gefin út áður. Þar sker
safnboxið sig úr því mikið hefur verið
gefið út af tónlist Presleys að und-
anförnu en þá hefur ekki síst verið um
að ræða endurútgefið efni.
Fyrsti diskurinn inniheldur steríó-
upptökur frá sjötta áratugnum en á
sínum tíma komu lögin út í mónó. Þar
má heyra „I Beg Of You“, „That’s
When Your Heartache Begins“ og
þrjár útgáfur af „Young And
Beautiful“. Margir eiga eftir að hafa
gaman af að heyra 19. töku fyrstu
útgáfunnar af „Treat Me Nice“, sem
er mjög ólík kvikmyndaútgáfunni,
en hún var tekin upp 30. apríl 1957.
Á öðrum disknum má heyra lög úr
fjórum kvikmyndum kappans, G.I. Blues,
Wild In The Country, Blue Hawaii og
Flaming Star. Upptökurnar hafa ekki
verið gefnar út opinberlega áður en þar
má helst nefna töku sex af laginu „Slicin’
Sand“ frá 21. mars 1961. Upptakan þykir
rokkuð og skemmtileg.
Þriðji diskurinn er síðan tileinkaður
upptökum í Nashville frá árunum 1960
til 1966 og fjórði diskurinn inniheldur
upptöku frá tónleikum Presleys í Texas
árið 1972. Víst er að aðdáendur eiga
ekki síst eftir að hafa gaman af þessum
fjórða diski því hann inniheldur tón-
leikana í heild sinni í steríó-
hljómi. Þess er vert að geta að
með diskunum fjórum fylgir
vegleg 47 blaðsíðna bók, sem inni-
heldur fjölmargar myndir og upp-
lýsingar um þá hluta ferils rokk-
kóngsins ódauðlega, sem teknir eru
fyrir í safnboxinu.
nýju efni rokkkóngsins gefið út
Fjögurra diska safnbox með
Nærmynd
af Elvis
Safnboxið Elvis Close Up
er komið út en það inni-
heldur 89 áður óútgefnar
upptökur.
Rokkkóng-
urinn Elvis
er ekki
þagnaður.
48 MIÐVIKUDAGUR 23. JÚLÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Sýnd kl. 8.
Sýnd kl. 5.40 og 7. B i. 12Sýnd kl. 6, 8 og 10.
with english subtitles
Sýnd kl. 6. Ensk. texti
Fyndnasta Woody
Allen myndin til
þessa.
Sjáið hvernig
meistarinn leikstýrir
stórmynd frá
Hollywood blindandi.
Mike Clark/
USA TODAY
Peter Travers
ROLLING STONE
i l
I
Sýnd kl. 10. B.i. 12
YFIR 42.000 GESTIR!
GH
KVIKMYNDIR.COM
"Besta hasarmynd
sumarsins það
sem af er"
t r
r i
f r"
„Líklegast best heppnasta
ofurhetjumynd allra tíma!
Sá græni rokkar.“
B.Ö.S. Fréttablaðið
í l
j ll í !
i .
. . . l i
KVIKMYNDIR.IS
SG. DV
Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.15. B i. 12
X-IÐ 97.7
DVKVIKMYNDIR.COM
KVIKMYNDIR.IS
ÓHT Rás 2
HL MBL
SG DVRoger Ebert
Miðaverð kr. 800.
Sýnd kl. 5.50. Bi.14.
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 4 og 6.
KRINGLAN
Sýnd kl. 8.
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 8.
SG. DV
B.i. 12 ára
KRINGLAN
Sýnd kl. 10.10
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.10
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 10. B.i. 12.
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 4. Ísl. tal.
KRINGLAN
Sýnd kl. 6, 8 og 10.
YFIR 42.000 GESTIR!
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 4, 6, og 8
KRINGLAN
Sýnd kl. 6.
GEIRMUNDUR VALTÝSSON –
ORT Í SANDINN
Ort í sandinn er
skemmtileg viðbót í
útgáfuflóru hins
eina og sanna
sveiflukóngs og þeg-
ar öllu er á botninn
hvolft hin ljúfasta upplifun. (AET)
KK OG MAGNÚS EIRÍKSSON –
22 FERÐALÖG
Maður er þakklátur
fyrir að fá þetta
tækifæri til að læra
að meta þessar
lummur að nýju og
heyra hvað það var
upphaflega sem gerði þær að þeim
Íslandslögum sem þær eru. (SG)
KANG, JENSSON, SVERRISSON,
HEMSTOCK – NAPOLI 23
Þetta er bara góð
tónlist. Og í raun
bara spurning um að
sperra upp eyrun og
hlusta. Svo einfalt
getur það – bless-
unarlega – verið stundum. (AET)
SPAÐAR – SKIPT UM PERU
Eitt helsta „költ“-
band landsins er því
komið upp á yf-
irborð jarðar!
Arrgh! En það þýðir
ekki að armæðast
yfir því. Þannig fer fyrir mönnum
sem aulast til að gera svona helv...
góða tónlist! (AET)
MAUS – MUSICK
Frábær plata, sem enginn unnandi
góðrar tónlistar ætti að láta framhjá
sér fara. Vonandi
skilja útlendingar
það líka og gera
Maus-menn fræga
og ríka. Þeir eiga
það skilið. Fjórar og
hálf af fimm mögulegum. (ÍPJ)
MÍNUS – HALLDÓR LAXNESS
Á eftir að teljast til
merkari platna í ís-
lenskri rokksögu.
Verðugur fyrsti
handhafi rokknób-
elsverðlaunanna. Ís-
landsklukka íslenska rokksins. (SG)
RADIOHEAD – HAIL TO THE THIEF
Markvissari tilraunamennska, ag-
aðri og þar af leiðandi meira gefandi.
Örugglega ein af bestu plötum árs-
ins. (SG) METALLICA – ST. ANGER
Krafturinn endurheimtur eftir 10
ára ládeyðu. Ætti að gleðja alla
gamla aðdáendur, sem og ná í fjöl-
marga nýja. (SG) BEYONCÉ –
DANGEROUSLY IN LOVE
Tekst ætlunarverkið, að sanna að
hún sé meira en sæt stelpa sem bæði
kann að syngja og dansa. (SG)
THE MARS VOLTA – DE-LOUSED
IN THE COMATORIUM
Brjálaður kraftur, takmarkalaus
sköpunargleði, jafnvel þótt þeir fyrr-
um At The Drive-In félagar æði
stundum framúr sér. (SG)
GÓÐAR HLJÓMPLÖTUR
THE EXPLODING Hearts vöktu
verðskuldaða eftirtekt á síðasta ári
vegna frumburðar síns, Guitar Rom-
antic. Tónlistin hrátt og melódískt
pönkrokk, í anda Clash og skyldra
sveita. Hafnaði platan því á mörgum
topplistum gagnrýnenda í fyrra og
sveitin var á miklu róli í ár en hún á
rætur að rekja til norðvesturstrandar
Bandaríkjanna.
Hinn hörmulegi atburður gerðist
hins vegar á mánudaginn að þrír með-
lima hennar létust í bílslysi, þeir
Matthew „Matt Lock“ Fitzgerald,
Adam „Baby“ Cox og Jeremy „Kid
Killer“. Bíll sveitarinnar valt nálægt
bænum Eugene í Oregon og komust
aðeins umboðskona sveitarinnar,
Ratch Aronica, og gítarleikarinn
Terry Six af. Sluppu þau með minni-
háttar meiðsl.
„Ég veit ekki af hverju við kom-
umst af,“ segir Ratch. „Við vorum sof-
andi en Matt var að keyra. Ég vakn-
aði við það að Adam var öskrandi
„stopp, stopp!“. Ég opnaði augun og
þá var bíllinn reikandi til og frá á veg-
inum. Matt reyndi hvað hann gat að
koma bílnum aftur inn á veginn. En
svo tók hann kollsteypu út af...“
Þrír meðlima Exploding
Hearts látast í bílslysi
Liars
They Threw Us All in a
Trench and Stuck a
Monument On Top
Mute
Stórkostleg frumraun frá bandarísku
síðpönksveitinni Liars.
FÁAR hljómsveitir hafa vakið
aðra eins athygli á síðustu árum
og bandaríska rokksveitin Liars
sem sendi frá sér fyrstu breiðskíf-
una, They Threw
Us All in a
Trench and
Stuck a Monu-
ment On Top, á
síðasta ári. Tón-
listin er kraft-
mikil pönkuð nýbylgja byggð að
nokkru á tölvugerðum töktum og
skreytt með allskyns óvenjulegum
hljóðum og hljómum.
Þessi frumraun Liars er æv-
intýralega tilraunakennd á
köflum, myljandi stuð og stemmn-
ing. Platan er uppfull með gríp-
andi laglínum og skemmtilegum
sem eru um leið beittar og sker-
andi.
Aðra eins frumraun hef ég ekki
heyrt síðan Clinic sendi frá sér
sína fyrstu skífu fyrir fjórum ár-
um. Frábær plata.
Árni Matthíasson
Erlend tónlist
Hrátt og
harkalegt