Morgunblaðið - 31.07.2003, Síða 4
FRÉTTIR
4 FIMMTUDAGUR 31. JÚLÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Stokkhólmur
www.icelandair.is/stokkholmur
Ganga um gamla bæinn – í Gamla Stan er margt
forvitnilegt að sjá. Byggingar, styttur, söfn og
veitingahús.
Í Stokkhólmi þarftu að:
á mann í tvíbýli í 2 nætur. Innifalið: flug, gisting á Birger
Jarl, morgunverður, flugvallarskattar og þjónustu gjöld.
Brottfarir 18. okt. og 20. feb.
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
I
C
E
21
70
5
0
7/
20
03
Central
Station
Sergels
Torg
Gustov
Adolfs Torg
Karl XII's
Torg
Skeppsholmen
Riddarholmen
Stadsholmen
Karl Johans
Torg
Vasagatan
Kun
gsga
tan
Kungsgatan
Kun
gste
nsga
tan
Radisson SA
S
Royal Vikin
g
Birger Jarl
Hamngatan
Skeppsbron
G
otgatan
Sveavägen
Birger Jarisgatan
Tule gatan
Normalm
Södermalm
Gamla
Stan
D
D
rottninggatan
Skansen
Karlaplan
Ju
ng
fr
ug
at
an
St
ur
eg
at
an
G
re
v
Tu
re
ga
ta
En
ge
lb
re
kt
s-
ga
ta
n
Karlavägen
Biblioteksgatan
Valhallavägen
Verð frá 34.900 kr.
VR orlofsávísun
Munið ferða-
ávísunina
www.icelandair.is
SLÁTURLEYFISHAFAR eru
orðnir þreyttir á bið eftir ákvörðun
ríkisstjórnarinnar um fækkun og
úreldingu sláturhúsa en vonast enn
til að áform um úreldingu nái fram
að ganga í haust.
Ákvörðun um málið má ekki
koma mikið seinna en um miðjan
mánuðinn ef hún á ekki að koma of
seint til að hægt verði að úrelda áð-
ur en slátrun hefst í haust, segir
Jón Helgi Björnsson, formaður
Landssamtaka sláturleyfishafa.
„Þetta er komið á síðasta séns,“
segir hann. „Ég held að það skipti
öllu máli að þetta gerist sem hrað-
ast. Menn eru að sóa miklu fé með
því að slátra í svo mörgum húsum.
Ég held að þetta sé tækifæri sem
menn þurfa að nýta til að ná fram
langþráðri hagræðingu í þessum
geira.“
Aðeins 6 af 17 sláturhúsum þar
sem sauðfé var slátrað í fyrra upp-
fylla kröfur Evrópusambandsins
um útflutning. Í niðurstöðum
skýrslu sláturhúsanefndarinnar
kemur fram að miklum sparnaði
megi ná fram með því að slátra
sauðfé á færri stöðum á landinu.
Talsvert fjármagn þarf til úreld-
ingar sláturhúsa, og nefndin leggur
til að samtals verði varið 220 millj-
ónum króna í úreldingu á tveimur
árum.
„Að komast á síðasta snúning“
„Ef þetta á að nást í haust er
þetta að komast á síðasta snúning,“
segir Guðni Ágústsson landbúnað-
arráðherra. „Hvað haustið varðar
þá þarf að klára þetta sem fyrst
eigi það að hafa áhrif í haust.“
Guðni vildi ekki tjá sig um hvort af
þessu yrði, en sagðist vonast til að
málið verði afgreitt í ríkisstjórn
sem fyrst. Aðspurður af hverju mál-
ið hafi dregist svo lengi segir Guðni
þetta er mál stórt og flókið. Hann
segir þó að engin loforð hafi verið
gefin til sláturleyfishafa um að af
þessu verði í haust. „Ef þeir hafa
miklar væntingar til málsins, getur
þetta komið sér illa fyrir þá, en þeir
hafa ekki fengið nein fyrirheit um
að þetta gerist í ár. Þeir verða að
vinna eftir sínum áherslum.“
Jón Helgi segir að hann viti til
þess að að minnsta kosti fimm slát-
urhús hafi sýnt mögulegri úreld-
ingu áhuga. Hann segir að einnig sé
verið að herða reglur og að út sé
komin reglugerð þar sem er þrengt
mjög að þeim sláturhúsum sem
ekki hafa hangandi fláningslínu.
Borgnesingar bíða
ákvörðunar ráðuneytisins
Axel Ólafsson, framkvæmdastjóri
Borgarnes kjötvara, segir það
slæmt hversu mikið ákvörðun um
úreldingu hefur dregist: „Þetta er
mikið óöryggi, það að geta ekki
svarað bændum.“ Axel segir að ekki
hafi verið tekin ákvörðun um slátr-
un á sauðfé í Borgarnesi í haust, og
segir að það verði ekki gert fyrr en
hugmyndir ráðuneytisins um úreld-
ingu liggi fyrir.
Sláturhúsin bíða enn ákvörðunar um úreldingu sláturhúsa
Óljóst um úreldingu
í greininni í haust
Landbúnaðar-
ráðherra segir
málið stórt
og flókið
UTANRÍKISRÁÐHERRA hefur
ákveðið að gera ýmsar breytingar á
skipan sendiherra í utanríkisþjón-
ustunni sem tengjast sumar því að
Þorsteinn Ingólfsson sendiherra,
sem hefur verið fastafulltrúi Íslands
hjá SÞ frá árinu 1998, tekur við starfi
aðalfulltrúa kjördæmis Norðurlanda
og Eystrasaltsríkja í stjórn Alþjóða-
bankans jafnframt því að vera yfir-
maður skrifstofu landanna í höfuð-
stöðvum bankans í Washington.
Hjálmar W. Hannesson, sem verið
hefur sendiherra Íslands í Ottawa
frá 2001, tekur við starfi fastafull-
trúa Íslands hjá SÞ. Guðmundur Ei-
ríksson sendiherra, sem var dómari
við Hafréttardómstól SÞ, tekur við
starfi sendiherra Íslands í Ottawa.
Kristinn F. Árnason, sem verið
hefur sendiherra í Osló, tekur við
starfi skrifstofustjóra varnarmála-
skrifstofu. Stefán Skjaldarson sendi-
herra, sem hefur verið skrifstofu-
stjóri alþjóðaskrifstofu, tekur við
starfi sendiherra Íslands í Osló.
Sturla Sigurjónsson sendiherra, sem
verið hefur skrifstofustjóri varnar-
málaskrifstofu, tekur við starfi skrif-
stofustjóra alþjóðaskrifstofu.
Breytingar
á skipan
sendiherra
FULLTRÚAR hljómsveitanna Í
svörtum fötum, Land og synir og
Sálin hans Jóns míns tóku við svif-
diskum frá karlahópi Femínista-
félags Íslands í gær. Á svifdiskunum
stendur „Nauðgar vinur þinn?“ en
það er eitt af slagorðum Femínista-
félagsins í baráttunni gegn nauðg-
unum.
Að því er fram kemur í frétta-
tilkynningu frá félaginu eru nauðg-
anir ekki algengari um verslunar-
mannahelgi en hverja aðra helgi en
hins vegar hafi umræðan þróast í þá
átt að nauðganir hafa verið taldar
eðililegur fórnarkostnaður útihá-
tíða. Gegn þessu vill félagið sporna
en þá er mikilvægt að karlar taki af-
stöðu til ofbeldisins þar sem 96–99%
kynferðisofbeldismanna eru karlar.
Að sögn Guðmundar Jónssonar, í
Sálinni hans Jóns míns, mun hljóm-
sveitin kasta svifdiskunum út til
gesta á Þjóðhátíð í Eyjum og leggja
þannig baráttunni gegn nauðgunum
lið. „Við viljum vekja athygli á
hversu ljótt og viðurstyggilegt þetta
er. Við vonum að fólk gangi hægt
um gleðinnar dyr og skemmti sér
saman í sátt og samlyndi,“ segir
Guðmundur.
Hreimur Örn Heimisson, í Landi
og sonum, og Jón Jósep Snæbjörns-
son, í hljómsveitinni Í svörtum föt-
um, segja mikilvægt að taka afstöðu
gegn nauðgunum.„Við ætlum að
halda þessum diskum á lofti þar sem
við spilum um helgina og taka þann-
ig þátt í baráttunni,“ segir Hreimur
Örn. „Það er óumflýjanleg stað-
reynd að nauðganir hafa fylgt
útihátíðum og við viljum svo sann-
arlega taka afstöðu gegn þeim. All-
ar háværar raddir hafa áhrif,“ segir
Jón Jósep en þeir eru báðir sam-
mála um að hlutverk þeirra sem fyr-
irmyndir sé mjög mikilvægt. Að
sögn Arnars Gíslasonar, sem er í
karlahópi Femínistafélagsins, er
þetta samstarfsverkefni karlahóps
og ofbeldisvarnarhóps. „Við strák-
arnir í hópnum viljum snúa okkur
að hinum strákunum í landinu því
að við lítum á nauðganir sem sam-
félagslegt vandamál. Slagorðið
„Nauðgar vinur þinn?“ vísar til þess
hvað hver og einn getur gert til að
koma í veg fyrir fleiri nauðganir.
Við viljum beina fókusnum á strák-
ana. Ekki bara þannig að stelpur
eigi að passa sig heldur að strákar
passi upp á vini sína.“
Að sögn Arnars tóku meðlimir
hljómsveitanna mjög vel í það að
taka þátt í baráttunni. „Þetta eru
fyrirmyndir og það er frábært að
þeir vilja sýna að þeim standi ekki á
sama um nauðganir.“
Meðlimir karlahópsins munu vera
á BSÍ og á Reykjavíkurflugvelli á
morgun, föstudag, og spjalla við
unga stráka sem eru á leið á útihá-
tíðir. „Við viljum heyra þeirra skoð-
anir á nauðgunum. Ef okkur tekst
að virkja strákana geta þeir lyft
grettistaki í þessari baráttu,“ segir
Arnar.
Nokkrir karlmenn ætla að taka þátt í baráttunni gegn nauðgunum
Mikilvægt
að karlar
taki
afstöðu
Morgunblaðið/Arnaldur
Arnar Gíslason og Hjálmar Sigmarsson afhentu í gær Jónsa, Hreimi og Guðjóni svifdiskana.
íusdóttir að frávísunarkrafan
byggðist fyrst á fremst á því að
rannsóknin hafi tekið ógnarlangan
tíma og dregist óhæfilega. Auk þess
hafi áður verið ákært vegna þriggja
málverka þrátt fyrir að rannsókn
málsins hafi greinilega ekki verið
lokið. Hæstiréttur dæmdi Pétur Þór
í sex mánaða fangelsi vegna mynd-
anna þriggja árið 1999 og dæmdi
BÁÐIR sakborningarnir í stóra
málverkafölsunarmálinu hafa nú
áfrýjað dómunum sem þeir hlutu í
Héraðsdómi Reykjavíkur til Hæsta-
réttar. Sigríður Rut Júlíusdóttir
héraðsdómslögmaður, sem varði
Pétur Þór Gunnarsson í héraði, seg-
ir að þess sé aðallega krafist að mál-
inu verði vísað frá Héraðsdómi
Reykjavíkur en til vara að skjól-
stæðingur hennar verði sýknaður.
Pétur Þór var dæmdur í sex mánaða
skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa
vísvitandi selt fjögur fölsuð málverk
og var dæmdur til að greiða 1⁄8 hluta
af málsvarnarlaunum og málskostn-
aði. Hann var ákærður vegna sölu á
93 myndum, þar af einni í félagi við
Jónas Freydal Þorsteinsson. Í sam-
tali við Morgunblaðið sagði Rut Júl-
hann til að greiða háar sektir. Ragn-
ar Aðalsteinsson hæstaréttarlög-
maður verður verjandi Péturs Þórs
fyrir Hæstarétti.
Eins og greint var frá í Morgun-
blaðinu í gær hefur Jónas Freydal
Þorsteinsson áfrýjað dómnum fyrir
sitt leyti.
Fastlega má búast við því að
ríkissaksóknari gagnáfrýi.
Báðir sakborningar í málverkafölsunarmálinu ætla að áfrýja til Hæstaréttar
Krefst frávísunar frá dómi
BÚIN hefur verið til sérstök útgáfa
af vefjum mbl.is sem ætluð er blind-
um og sjónskertum. Á þessum vefj-
um er letur stærra en venjulegt er
og notendur geta valið um þrjár mis-
munandi leturstærðir ásamt því að
geta valið um fjóra mismunandi bak-
grunnsliti. Til þess að breyta um let-
urstærð og bakgrunnsliti þarf að
smella á tengilinn Stillingar.
Hægt er að tengjast vefnum með
því að smella á tengilinn Auðlesinn
mbl.is undir hausnum Efni á forsíðu
mbl.is. Sama tengil verður einnig að
finna fyrst um sinn undir hausnum
Nýtt á mbl.is sem einnig er á forsíðu
mbl.is. Þá má einnig tengjast vefn-
um með slóðinni: http://www.mbl.is/
mm/greinilegur
Sérútgáfa
vefja mbl.is
fyrir blinda og
sjónskerta
♦ ♦ ♦