Morgunblaðið - 31.07.2003, Side 6
Nú standa öll spjót á Berglindi Ragnarsdóttur og Bassa frá Möðruvöllum
en þau eru í þriðja sæti í fjórgangi og verður það þeirra verk að sækja gull.
lengra. Daníel Ingi Smárason varð í
ellefta sæti á Tyson frá Búlandi enn
hann er jafnframt efstur ungmenna
og fær því væntanlega gullverðlaun
og telst því með réttu heimsmeistari
ungmenna í fjórgangi en þau eru
verðlaunuð sérstaklega fyrir árang-
ur í forkeppninni.
En það voru Svíar sem fyrstir
unnu til gullverðlauna á mótinu er
Johan Haggberg sigraði með tals-
verðum yfirburðum í gæðingaskeiði
á stóðhestinum Aski frá Hakans-
garden. Hlutu þeir 9,08 sem mjög
líklega er met í þessari grein. Magn-
ús Skúlason, sem keppir fyrir Sví-
þjóð, varð annar á Mjölni frá Dalbæ
með 8,50.
Sigurður Sæmundsson landsliðs-
einvaldur sagðist ánægður með dag-
inn og fyrsta gullið sem vannst. Um
gæðingaskeiðið sagði hann að þetta
hafi nú bara verið aukagrein þar
sem ljóst var fyrirfram að möguleik-
arnir væru engir á sigri, í mesta lagi
að komast í verðlaunasæti sem ekki
tókst. Hvað fjórgangnum viðkæmi
sagði hann að við mættum vel við
una, þetta hefði verið gríðarleg
sterk keppni og sagðist hann aldrei
hafa horft á eins sterka keppni fjór-
gangshesta. Hann taldi að Berglind
og Bassi ættu alveg möguleika á
sigri og benti á að hann hefði nánast
aldrei tapað í úrslitum.
Í FYRSTA skipti eygja Norðmenn
von á gulli í fjórgangi á Heimsmeist-
aramótinu í hestaíþróttum í Herning
þegar Stian Pedersen skaust í fyrsta
sætið á gæðingnum Jarli frá Mið-
krika með stórglæsilegri sýningu og
8,13 í einkunn. Eftir því sem næst
verður komist er hér um met-
einkunn að ræða. Hestur þessi vakti
verulega athygli fyrir tveimur árum
á HM í Austurríki þá aðeins sex
vetra gamall og nú kemur hann
fram eins og útsprungin rós í sínum
fegursta búningi. Gamla kempan
Andreas Trappe kemur næstur á
Svarti vom Hochwald sem er sonur
Týs frá Rappenhof sem Trappe
gerði garðinn frægan á á HM 1991.
Berglind Ragnarsdóttir er í þriðja
sæti á Bassa frá Möðruvöllum með
7,70 en sá rauði var mun betri en
hann hefur verið undanfarið og lík-
lega betri en nokkru sinni fyrr. Í
fjórða sæti er svo Karly Zingsheim,
Þýskalandi, á Dökkva frá Mosfelli
með 7,60 og Eric Andersen, Noregi,
tryggði sér síðasta örugga A-úrslita
sætið á Trú von Wetsinge með 7,47.
Jóhann R. Skúlason er í sjötta sæti
á Snarpi frá Kjartansstöðum með
7,43 og Styrmir Árnason á Hamri
frá Þúfu er í níunda sæti með 7,30 en
miklar vonir voru bundnar við þá
síðasttöldu í fjórgangi og því nokkur
vonbrigði að þeir skuli ekki hafa náð
Heimsmeistaramótið í hestaíþróttum
Morgunblaðið/Valdimar Kristinsson
Daníel og Tyson unnu
fyrsta gull Íslendinga
Herning. Morgunblaðið.
FRÉTTIR
6 FIMMTUDAGUR 31. JÚLÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Skógarhlíð 18, sími 595 1000. www.heimsferdir.is
Heimsferðir bjóða nú síðustu sætin
til Verona, einnar fegurstu borgar
Ítalíu á hreint ótrúlegum kjörum.
Þú bókar 2 sæti, en greiðir bara
fyrir 1, og kemst til einnar fegurstu
borgar Ítalíu á hlægilegu verði. Að
auki getur þú valið um úrval hótela
í hjarta Verona og bílaleigubíla frá
Avis á einstaklega hagstæðu verði.
Munið Mastercard
ferðaávísunina
Ítalía
6. ágúst
frá kr. 19.950
5 eða 12 dagar
Verð kr. 19.950
M.v. 2 fyrir 1.
Fargjald kr. 32.200 / 2 = 16.100.-
Skattar kr. 3.850.-
Samtals kr. 19.950.- pr. mann.
Gildir út 6. ágúst, heim 11./18. ágúst
Almennt verð kr. 20.950.-
Úrval hótela í boði.
Lægsta verð á bílaleigubílum.
Síðustu sætin
SÍÐDEGIS í gær var haldinn fundur
hjá sýslumannsembættinu í Vest-
mannaeyjum þar sem farið var yfir
alla helstu þætti er varða öryggismál
á þjóðhátíð.
Karl Gauti Hjaltason, sýslumaður í
Vestmannaeyjum, sagði að allur und-
irbúningur gengi mjög vel. Á loka-
fundinum í gær voru fulltrúar frá lög-
reglu, kirkju, heilbrigðisstéttum,
félagsþjónustunni, flugmálayfirvöld-
um, gæslunnar á þjóðhátíð og þjóðhá-
tíðarnefnd. Fleiri sátu fundinm þ.á m.
bæjarstjórinn í Vestmannaeyjum.
Allir þessir aðilar hafa hlutverki að
gegna við hátíðarhöldin og segir Karl
Gauti að samstarfið hafi gengið vel
hingað til og telur að allir aðilar séu
vel búnir undir að takast á við þau
mál sem upp kunna að koma á
þjóðhátíð.
Ágreiningur um
löggæslukostnað
Karl Gauti segir að alltaf komi upp
ágreiningsmál um einstaka atriði en á
fundinum afhenti sýslumaður fulltrú-
um þjóðhátíðarnefndar rökstuðning
fyrir kostnaði við löggæslu um
þjóðhátíð. Þjóðhátíðarnefnd hefur
gert ágreining um kostnaðinn og
íhugar að kæra úrskurð sýslumanns
til æðra úrskurðarvalds. Líklegt er að
sýslumaður og þjóðhátíðarnefnd
gangi frá samkomulagi um löggæslu
en að þjóðhátíðarnefnd geri fyrirvara
um kostnaðartölur.
Flugmálastjórn hefur gefið út regl-
ur um tilhögun flugs til og frá Vest-
mannaeyjum um verslunarmanna-
helgina. Áætlað er að umferðarþungi
á Vestmannaeyjaflugvelli verði mjög
mikill á mánudag en á síðustu árum
hafa á bilinu sex til átta hundruð flug-
tök og lendingar átt sér stað á flug-
vellinum á mánudegi eftir þjóðhátíð.
Þessi mikli umferðarþungi, auk
mikilla mannaferða í kringum flug-
vallarsvæðið, kallar á aukin viðbúnað
flugumferðarstjóra og eins þeirra
sem sjá um að gæta almenns öryggis
á flugvellinum.
„Það er verið að ítreka þær reglur
sem eru í gildi og benda flugmönnum
eins hreyfils flugvéla á að velja sér
viðeigandi hæð. Þá er verið að segja
frá breytingum á stjórnun á flug-
hlaðinu [svæðin við flugstöð] í Eyjum.
Þetta er mun meiri umferð en venju-
lega á flugvellinum; bæði í Vest-
mannaeyjum og á Bakka,“ segir Sig-
urleifur Kristjánsson hjá
Flugmálastjórn.
Búist er við að um fjórtán hundruð
farþegar komi frá flugvellinum á
Bakka en svo virðist sem minna hafi
verið um bókanir með Íslandsflugi og
Flugfélagi Íslands en síðustu ár.
Árni Birgisson, öryggismálastjóri
á Vestmannaeyjaflugvelli, segir að
mikið sé gert til að tryggja öryggi á
flugvellinum þá daga sem hátíðin
stendur yfir. „Okkar viðbúnaður lýt-
ur að því að tryggja öryggi á flughlaði
bæði í Vestmannaeyjum og á Bakka-
flugvelli. Þetta er þríþætt verkefni. Í
fyrsta lagi þarf að tryggja að fólk fari
sér ekki að voða á flughlaðinu við
komu og brottför. Í öðru lagi þarf að
hafa viðbúnað á flugstöðvunum þar
sem stundum hefur myndast mikill
troðningur þar. Í þriðja lagi erum við
vitaskuld með viðbúnað ef eitthvað
fer úrskeiðis í flugi,“ segir Árni.
Mikill undirbúningur vegna öryggis á þjóðhátíð í Eyjum
Sérstakar reglur vegna
umferðar á flugvelli
Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson
Sýslumaður í Vestmannaeyjum hélt í gær fund þar sem farið var yfir ör-
yggismál á þjóðhátíð. Á þriðja tug manna voru á fundinum þar sem farið
var yfir ráðstafanir sem gerðar hafa verið til að tryggja öryggi gesta.
áætluðum mannafla á vinnumarkaði.
Í júní sl. var 5.081 að meðaltali á at-
vinnuleysisskrá í mánuðinum eða
3,2% af áætluðum mannafla á vinnu-
markaði.
Tveir milljarðar í
atvinnuleysisbætur
Samkvæmt upplýsingum frá
Vinnumálastofnun námu greiðslur
atvinnuleysisbóta fyrstu sex mánuði
þessa árs 2.005 m.kr., en voru á sama
tímabili í fyrra 1.202 m.kr. sem er
rétt rúmlega 800 m.kr. aukning milli
ára. Árið 2002 námu greiðslur at-
vinnuleysisbóta samtals 2.608 m.kr.
Í ljósi þess að atvinnuleysi eykst
venjulega á haustmánuðum gerir
Vinnumálastofnun nú ráð fyrir að
heildargreiðslur atvinnuleysisbóta á
árinu 2003 verði á bilinu 3.700–3.900
milljónir. Sú fjárhæð er langt um-
fram þá upphæð sem gert var ráð
5.035 voru skráðir atvinnulausir á
landinu öllu í gær samkvæmt tölum
Vinnumálastofnunar. Til saman-
burðar voru 5.313 manns á atvinnu-
leysisskrá í lok júnímánaðar, 2.381
karl og 2.932 konur. Miðað við þess-
ar forsendur mælist atvinnuleysi
5,2% minna á landsvísu um þessi
mánaðamót borið saman við síðustu
mánaðamót. Samkvæmt tölum gær-
dagsins voru konur á atvinnuleysis-
skrá 2.875 og karlar 2.160.
Frank Friðrik Friðriksson, deild-
arsérfræðingur hjá Vinnumálastofn-
un, segir breytinguna milli mánaða
óverulega og viðbúið að atvinnu-
ástandið batni yfir sumarið, m.a. í
ljósi árstíðarsveiflu. Hins vegar séu
mun fleiri konur atvinnulausar eða
4% af vinnuafli í júnímánuði miðað
við 2,7% karla.
Alls voru 3.530 að meðaltali at-
vinnulausir í júlí 2002 eða 2,3% af
fyrir í fjárlögum fyrir árið 2003 sem
var 2.472 milljónir króna.
Ingunn S. Þorsteinsdóttir, hag-
fræðingur hjá ASÍ, segir líklegt að í
ljósi aukinna umsvifa hjá verktök-
um, t.d. í tengslum við vegafram-
kvæmdir á höfuðborgarsvæðinu
næstu misseri, muni tengd þjónusta
aukast og þar með framboð á vinnu.
Samkvæmt upplýsingum frá Efl-
ingu og VR hefur dregið úr umsókn-
um um atvinnuleysisbætur undan-
farna mánuði. Ingunn segir að svo
virðist sem botninum hafi verið náð.
„Menn eiga von á að sjá [atvinnu-
leysis]tölurnar lækka töluvert þegar
skólarnir hefjast aftur og það dragi
úr atvinnuleysi sem því nemur.“
Hún bendir á að lítið sé um ný-
ráðningar í júlí og fram í ágúst vegna
sumarleyfa. Hins vegar sé fjölgun í
tímabundnum störfum t.d. hjá veit-
ingahúsum og hótelum.
5.035 manns skráðir atvinnulausir hjá Vinnumálastofnun í gær
Ekki dró mikið úr at-
vinnuleysi í júlímánuði
GÍSLI Sigurðsson, flugvéla- og svif-
flugusmiður, var jarðsettur frá Stóra-
Ási í Hálsasveit í gær. Kista hans var
borin í flugvél Íslandsflugs á Reykja-
víkurflugvelli um hádegisbil í gær,
sem flutti hana að Húsafelli.
Kistuna báru (f.v.) Andrés Sigurðs-
son, yfirmaður smíðaverkstæðis
Flugmálastjórnar, Þorbjörn Einars-
son, trésmiður hjá Flugmálastjórn,
Kristján Sveinbjörnsson, formaður
Svifflugsfélags Íslands, Stefán Sig-
urðsson, varaformaður Svifflugs-
félagsins, og Einar Trúmann Einars-
son, vinnuvélastjóri hjá
Flugmálastjórn (í hvarfi á myndinni).Morgunblaðið/Golli
Útför Gísla
Sigurðssonar