Morgunblaðið - 31.07.2003, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 31.07.2003, Qupperneq 10
FRÉTTIR 10 FIMMTUDAGUR 31. JÚLÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ RÍKISLÖGREGLUSTJÓRI átti fund með for- svarsmönnum Samkeppnisstonunar fyrr í vik- unni, þar sem rætt var með hvaða hætti Sam- keppnisstofnun ætti að vísa rannsókn á málefnum olíufélaganna til lögreglu ef tilefni væri til þess. Fram kemur á minnisblaði Ríkis- lögreglustjóraembættisins eftir fundinn að af hálfu Samkeppnisstofnunar hafi verið bent á að í gildandi lögum um stofnunina og starfsemi hennar sé ekki kveðið á um með hvaða hætti stofnunin eigi að gera lögreglu grein fyrir því sem stofnunin verður áskynja í athugunum sínum og kann að varða einstak- linga og/eða lögaðila refsiábyrgð. Þá hafi heldur ekki myndast hefð eða verklag um framsend- ingu mála frá Samkeppnisstofnun. Af hálfu saksóknara efnahagsbrotadeildar ríkilslögreglustjóra var bent á að rétt sé að taka mið af starfsaðferðum og löggjöf annarra stofn- ana sem líkt og Samkeppnisstofnun gegna eftir- litshlutverki á sérstökum sviðum og hafa til þess rúmar lagaheimildir líkt og skattayfirvöld og Fjármálaeftirlitið. „Mál frá skattayfirvöldum berast með kæru, en samkvæmt lögum um Fjármálaeftirlitið er gert ráð fyrir að stofnunin tilkynni um þá hátt- semi sem hún hefur orðið áskynja um og talin er refsiverð. Þótt sá eðlismunur sé á að skatta- yfirvöld kæri en Fjármálaeftirlitið tilkynni um háttsemi er í báðum tilvikum gerð grein fyrir kæru eða tilkynningu í skriflegum erindum og með greinargerð sem fjallar um hina ætluðu refsiverðu háttsemi og þau gögn sem fylgja og talin eru styðja mat á þeim atvikum sem um ræðir og erindið varða,“ sagði á minnisblaðinu. Skattrannsóknarstjóri getur af sjálfsdáðum hafið refsimeðferð Ekki er að finna sambærileg ákvæði í sam- keppnislögum eða reglum um málsmeðferð samkeppnisyfirvalda um að stofnunin geti vísað málum sem til rannsóknar eru og leiða í ljós meinta refsiverða háttsemi til lögreglu. Mælt er fyrir um það í 35. grein reglugerðar um starfsemi skattrannsóknarstjóra ríkisins að skattrannsóknarstjóri geti af sjálfsdáðum ákveðið að hefja refsimeðferð annaðhvort með því að vísa máli til opinberrar rannsóknar og venjulegrar sakamálameðferðar eða með því að vísa því til sektarmeðferðar fyrir yfirskatta- nefnd og annast hann þá kröfugerð af hálfu hins opinbera fyrir nefndinni. Ákvörðun skattrann- sóknarstjóra um upphaf refsimeðferðar er óháð því hvort málsmeðferð fyrir ríkisskattstjóra eða eftir atvikum yfirskattanefnd er lokið eða ekki. Í 38. grein reglugerðarinnar er talið upp í hvaða tilvikum skattrannsóknarstjóri getur vís- að máli til opinberrar rannsóknar. Þar segir: „Skattrannsóknarstjóri ríkisins getur vísað máli til opinberrar rannsóknar í eftirfarandi til- vikum: 1. Ef líkur eru á að ætlað undanskot nemi veru- legum fjárhæðum og varði við 262. gr. al- mennra hegningarlaga nr. 19/1940, með áorðnum breytingum. 2. Ef rökstuddur grunur er um að verknaður hafi verið framinn með sérstaklega vítaverð- um hætti eða við aðstæður sem auka mjög saknæmi brotsins. 3. Samkvæmt ósk skattaðila ef skattaðili vill ekki hlíta því að mál hans verði afgreitt af yf- irskattanefnd, sbr. 35. gr. og 37. gr. 4. Ef upplýsingaskyldu er ekki gegnt, hvort sem um er að ræða skattaðila sjálfan eða ann- an aðila sem ekki gegnir upplýsingaskyldu, sbr. 94. gr. laga nr. 75/1981, 38. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt og 25. gr. laga nr. 45/1987, um staðgreiðslu opinberra gjalda. 5. Ef skattaðili hefur áður orðið uppvís að skatt- svikum með dómi eða sætt sektum yfir- skattanefndar, enda hafi það brot verið fram- ið innan síðustu fimm ára. 6. Ef rökstuddur grunur er um að háttsemi geti talist meiri háttar brot gegn lögum nr. 145/ 1994, um bókhald og lögum nr. 144/1994, um ársreikninga, og 262. gr. almennra hegning- arlaga nr. 19/1940. Við mat skattrannsóknarstjóra ríkisins á því hvort máli skuli vísað til opinberrar rannsóknar og sakamálameðferðar getur hann, auk þess sem í 1. mgr. er talið, tekið mið af því hvort um hefur verið að ræða skipulega eða langvarandi brotastarfsemi, harðan brotavilja, eða brot af öðrum ástæðum er svo alvarlegt að eðlilegt sé að mati skattrannsóknarstjóra ríkisins að vísa málinu til opinberrar rannsóknar hjá lögreglu. Skattrannsóknarstjóri ríkisins getur vísað máli til opinberrar rannsóknar á hvaða stigi rannsóknar sem er. Ef háttsemi er talin varða við 262. gr. almennra hegningarlaga skal vísa máli til opinberrar rannsóknar svo fljótt sem kostur er.“ Í lögum og reglum um starfsemi Fjármála- eftirlitsins er einnig að finna skýr lagaákvæði sem kveða á um í hvaða tilvikum eftirlitsstofn- unin getur vísað málum sem til athugunar eru til lögreglu ef grunur vaknar um refsiverða háttsemi. Skv. 9. grein laga um opinbert eftirlit með fjármálastarfsemi nr 87/1998 skal Fjármálaeft- irlitið athuga rekstur eftirlitsskyldra aðila svo oft sem þurfa þykir. „Þeim er skylt að veita Fjármálaeftirlitinu aðgang að öllu bókhaldi sínu, fundargerðum, skjölum og öðrum gögnum í vörslu þeirra er varða starfsemina sem Fjár- málaeftirlitið telur nauðsynlegan. Vegna starf- semi sinnar getur Fjármálaeftirlitið gert vett- vangskannanir eða óskað upplýsinga á þann hátt og svo oft sem það telur þörf á,“ segir þar. Í 12. gr. laganna segir síðan: „Ef brot eru al- varleg og hinn eftirlitsskyldi aðili hefur að mati Fjármálaeftirlitsins með refsiverðum hætti gerst brotlegur við lög ber Fjármálaeftirlitinu að greina ríkislögreglustjóra frá þeim. Kröfur, athugasemdir og fyrirhugaðar aðgerðir Fjár- málaeftirlitsins skv. 4. mgr. 9. gr., 11. gr. og 1. mgr. þessarar greinar skulu þegar í stað til- kynntar viðskiptaráðherra, þeim ráðherra sem annars fer með viðkomandi málaflokk og stjórn hins eftirlitsskylda aðila eða viðkomandi aðila ef stjórn er ekki til að dreifa.“ Til samanburðar eru svo lagaákvæði og regl- ur sem kveða á um undir hvaða kringumstæð- um efnahagsbrotadeild Ríkislögreglustjóra hef- ur að eigin frumkvæði rannsókn á meintum sakamálum. Í reglugerð nr. 406/1997 um rann- sókn og saksókn efnahagsbrota segir að efna- hagsbrotadeild ríkislögreglustjóra annist rann- sókn efnahagsbrota og saksókn þeirra í héraði. „Deildin getur tekið við málum á sínu sviði frá staðarlögreglu, en einnig hafið rannsókn að eig- in frumkvæði. Í fyrirsvari deildarinnar er saksóknari, sem annast meðferð mála í umboði ríkislögreglu- stjóra. Ríkissaksóknari getur gefið saksóknara fyr- irmæli um einstök mál, kveðið á um rannsókn máls, mælt fyrir um framkvæmd rannsóknar og fylgst með henni,“ segir þar. Í reglugerðinni er einnig kveðið á um að efna- hagsbrotadeildin geti hafið rannsókn máls að eigin frumkvæði. Deildin skal, ef þess er kostur, gera viðkomandi lögreglustjóra viðvart um rannsókn áður en hún hefst. Deildin getur einn- ig ákveðið að taka í sínar hendur rannsókn sem hafin er hjá lögreglustjóra. Ekki ákvæði um skyldu Póst- og fjarskiptastofnunar Póst- og fjarskiptastofnun hefur m.a. með höndum eftirlit með starfsemi fjarskiptafyrir- tækja og póstrekenda, þar með talið fjárhags- stöðu þeirra, og skal fylgjast með því að starf- semi þeirra sé í samræmi við lög og aðrar reglur. Ný lög um starfsemi stofnunarinnar tóku gildi 25. þessa mánaðar (l. nr. 69/2003) og er þar fjallað um eftirlitsúrræði stofnunarinnar og viðurlög ef lög eru brotin. Ekki er hins vegar að finna sérstök ákvæði í þeim lögum eða reglu- gerðum um hvort og þá með hvaða hætti stofn- unin skal gera lögregluyfirvöldum viðvart um meinta refsiverða háttsemi. Í ákvæðum hinna nýju laga um eftirlitsúr- ræði stofnunarinnar kemur fram að Póst- og fjarskiptastofnun geti við rannsókn máls gert nauðsynlegar athuganir á starfsstað fjarskipta- fyrirtækja sem úthlutað hefur verið réttindum eða hjá rekstrarleyfishafa í póstþjónustu og lagt hald á gögn þegar ríkar ástæður eru til að ætla að brotið hafi verið gegn lögunum, lögum um fjarskipti, lögum um póstþjónustu eða reglum eða ákvörðunum stofnunarinnar. Við þessar aðgerðir skal fylgja ákvæðum laga um meðferð opinberra mála um leit og hald á mun- um,“ segir í 5. grein laganna. Lögreglurannsókn á niðurstöðum mála hjá eftirlitsstofnunum getur hafist með ýmsum hætti Ólíkar reglur um tilkynningar til lögreglu Ekki er kveðið á um það í lögum eða reglum um starf- semi Samkeppnisstofnunar með hvaða hætti stofnun á að vísa málum til lögreglu. Skýr ákvæði eru hins vegar um hvernig standa skuli að slíku í lögum og reglugerð- um um eftirlit og rannsóknir á vegum Skattrannsókn- arstjóra ríkisins og Fjármálaeftirlitsins. BINDIDISFÉLAG ökumanna stóð í gær fyrir kynningu á umferðar- öryggisverkefni sem félagið stend- ur fyrir um verslunarmannahelg- ina. Kynning á verkefninu fór fram á athafnasvæði Flytjanda við Klettagarða og var þar til sýnis bíll sem lent hafði í veltu á um 90 km hraða auk þess sem gestum var boðið að upplifa bílveltu af eigin raun í veltibíl félagsins. Einnig var hægt að setja upp „ölv- unargleraugu“ en sá sem setur þau upp upplifir umhverfið eins og maður með 1,5 prómill af áfengi í blóðinu. Markmið Bindindisfélags öku- manna með verkefninu er að vekja athygli ökumanna á mikilvægi þess að hafa fulla athygli við akst- urinn. Flest umferðarslys má rekja til mistaka ökumanna, t.d. hraða- eða ölvunaraksturs, að- gæsluleysis eða að akstri sé ekki hagað eftir aðstæðum. Félagið leggur mikla áherslu á að ökumenn aki hvorki undir áhrifum áfengis né eftir langa vöku eins og oft vill gerast um verslunarmannahelgi og leggur sérstaka áherslu á að ökumenn á aldrinum 17–25 ára keyri varlega og hafi hugann við aksturinn. Morgunblaðið/Golli Skemmtikraftarnir í Smaladrengjum fengu að upplifa bílveltu í veltibíl Bindindisfélags íslenskra ökumanna í gær. Bindindisfélag íslenskra ökumanna hvetur ökumenn til að sýna árvekni SAMTÖK verslunar og þjónustu og Rás 2 standa fyrir vali á verslunar- manni helgarinnar um næstu helgi líkt og undanfarnar tvær verslunar- mannahelgar. Að mati Verzlunar- mannafélags Reykjavíkur er val á verslunarmanni helgarinnar, út frá því hvernig menn vinna á frídegi verslunarmanna, alger öfugmæli. Samtök verslunar og þjónustu vísa þeirrri gagnrýni á bug. Í tilkynningu frá SVÞ segir að hlustendur Rásar 2 geti tekið þátt í valinu með því að hringja inn og velja þann verslunarmann sem þeir telja að eigi skilið að njóta heiðursins. Verslunarmenn gegni lykilhlutverki um verslunarmannahelgina, mestu fríhelgi ársins, og að mikið reyni á góða þjónustu þeirra til að ferðamenn fái notið frísins eins og best verði á kosið. Verslunarmaður helgarinnar hlýtur í verðlaun innanlandsferð fyrir tvo með Flugfélagi Íslands og gist- ingu í tvær nætur auk kvöldverðar á einhverju Foss-hótelanna. Að auki sæmir SVÞ viðkomandi verslunar- mann viðurkenningarspjaldi sem hengt er upp í versluninni. Verzlunarmannafélag Reykjavík- ur lýsir á heimasíðu samtakanna furðu sinni á vali á verslunarmanni helgarinnar. Tilurð frídags verslun- armanna megi rekja til ársins 1894 þegar kaupmenn og verslunarstjórar buðust til að gefa starfsmönnum frí- dag og tók VR að sér að skipuleggja daginn með hátíðarhöldum. Val Rík- isútvarpsins og samtaka atvinnurek- enda í verslun á verslunarmanni árs- ins, út frá hvernig menn vinna á frídegi verslunarmanna, séu því alger öfugmæli. Sigurður Jónsson, framkvæmda- stjóri SVÞ, segir að með framtakinu sé fyrst og fremst verið að sýna fram á þýðingu verslunar og verslunar- manna á Íslandi. „Ímynd verslunar og verslunarmanna er ekki góð í þjóðfélaginu. […] Okkur finnst að þegar athyglin beinist að verslunar- mönnum á þessari helgi, sé rakið að reyna að undirstrika þýðingu þeirra með því að draga fram einstaklinga sem fólki finnst standa sig vel.“ Sigurður minnir á að í kjarasamn- ingum við VR sé gert ráð fyrir að fólk vinni þessa helgi og fái álag ofan á kaup þann dag eins og gildi um aðra hátíðisdaga. Verslunarmaður helgarinnar valinn á Rás 2 „Alger öfugmæli“ að mati Verzlunar- mannafélags Reykjavíkur

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.