Morgunblaðið - 31.07.2003, Side 22

Morgunblaðið - 31.07.2003, Side 22
LANDIÐ 22 FIMMTUDAGUR 31. JÚLÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ NEYTENDUR HÓLMVÍKINGURINN Kolbeinn Skagfjörð Jósteinsson var í vor kos- inn efnilegasti leikmaður Keflavíkur- liðsins í körfubolta. Kolbeinn er fædd- ur árið 1986 og verður því 17 ára á þessu ári, en hann hefur leikið körfu- bolta frá 4 eða 5 ára aldri og æft skipulega frá 7 ára aldri. Kolbeinn segir að sig minni að fyrstu keppnisferðirnar hafi „ekki gengið neitt sérstaklega vel,“ enda er hann hógværðin uppmáluð. Það lá því beinast við að spyrja hvort viðurkenn- ingin hefði komið honum á óvart. „Jú, auðvitað kemur þetta manni á óvart,“ svaraði hann að bragði. Aðspurður sagðist Kolbeinn þakka þennan góða árangur móður sinni, Sigrúnu Maríu Kolbeinsdóttur, og Kristjáni Sigurðs- syni sem hefur þjálfað körfubolta fyr- ir UMF Geislann á Hólmavík síðustu þrjú ár. „Þau komu mér á æfingar hjá stóru liðunum þegar ég var í 9. bekk og Kristján hefur undirbúið mann vel undir átökin fyrir sunnan.“ Kolbeinn þurfti ekki að hugsa sig um þegar hann var inntur eftir því hver væri hans uppáhaldsleikmaður eða fyrirmynd í körfuboltanum: „Anna María Sveinsdóttir. Hún er örugglega besta körfuknattleikskona Íslands frá upphafi.“ Kolbeinn er 177 cm á hæð sem þyk- ir ekki mjög hávaxinn leikmaður á mælikvarða körfuboltans, og spilar því sem driplari eða skotbakvörður. Í sumar vinnur hann við vegagerð á Kletthálsi ásamt föður sínum, Jó- steini Guðmundssyni, í vinnuflokki verktakafyrirtækisins Fyllingar. Þar er vissulega ekki hægt að leika körfu- bolta innanhúss en Kolbeinn segist halda sér í líkamlegu formi með vinnunni ásamt því að skokka og skjóta á körfu þegar færi gefst. Tækniþjálfuninni reynir hann svo að sinna þegar heim kemur þó helgar- fríin séu fá yfir sumarið. Það hefur vakið athygli á Hólmavík að úr svo fámennum bæ skuli koma efnilegasti leikmaðurinn í Keflavík, sem margir vilja meina að sé eins konar „mekka“ körfuboltans. En Kol- beinn er ekki alveg ókunnugur Kefla- vík því þar búa móðurforeldrar hans og hjá þeim dvaldi hann síðastliðinn vetur. Hann hyggst halda áfram námi á íþróttabraut í Fjölbrautaskóla Suðurnesja næsta vetur. Framtíðar- áformin eru þau að halda áfram í bolt- anum og gera betur. „Auðvitað væri draumurinn að komast í NBA,“ sagði Kolbeinn að lokum. Ungur Hólmvíkingur efni- legastur í Keflavíkurliðinu Hólmavík Kolbeinn S. Jósteinsson AÐSTANDENDUR hátíðarinnar á Góðri stund í Grundarfirði eru ánægðir með hversu vel tókst til með framkvæmdina. Fjölmenni var og er áætlað að 4–5 þúsund manns hafi verið á hátíðinni þegar flest var. Veður var gott alla dagana, en þó sérstaklega á laugardag og seinnipart sunnudagsins. Fjölmargir gistu á tjaldsvæðum sem hafði verið fjölgað vegna hátíð- arinnar og gestir voru nánast í hverju húsi hjá ættingjum og vin- um. Auglýstir dagskrárliðir voru vel sóttir og ánægja með það sem í boði var. Að sögn Hrafnhildar Jónu Jónasdóttur, framkvæmdastjóra hátíðarinnar, urðu engin óhöpp eða leiðindi. „Það voru greinilega allir komnir hingað til að eiga góða og glaða stund,“ sagði Hrafnhildur. Afhenti muni frá fjölskyldunni Hátíðin hófst á föstudegi með at- höfn í bókasafni Grundarfjarðar þar sem Svanhildur Gunnarsdóttir afhenti muni frá fjölskyldu sinni sem komnir eru búi séra Jens Hjaltalín, sem fóstraði ömmu Svan- hildar og lést hjá henni í hárri elli. Grillveisla var um miðjan dag hjá Versluninni Tanga. Sögumiðstöð var opnuð um kvöldið og fram fór söngskemmtun með þátttöku 18 söngvara og 9 manna hljómsveitar í Samkomuhúsinu. Um hádegi á laugardag stóð Ungmennafélag Grundarfjarðar fyrir víðavangs- hlaupi. Formleg setning hátíðar- innar fór síðan fram á hátíðarsvæð- inu við Grundarfjarðarhöfn með ávarpi Pálínu Gísladóttur sem bú- sett hefur verið í Grundarfirði frá því að byggð fór að myndast þar fyrir 60 árum. Síðan tóku við skemmtiatriði þar sem m.a. Halli og Laddi skemmtu. Sölutjöld voru á svæðinu og leiktæki fyrir börnin. Um kvöldið var síðan söng- skemmtun unga fólksins þar sem ungir söngvarar úr Grundarfirði sungu. Síðan var bryggjuball og stórdansleikur með Írafár í Sam- komuhúsinu. Á sunnudeginum var boðið upp á gönguferðir og fram fór dorgveiðikeppni á litlu bryggju með mikilli þátttöku. Þyngsta fisk- inn veiddi Atli Geir Jóhannsson 2 kg þorsk. Á veitingahúsunum Krákunni og Kaffi 59 var verulegur gestagangur alla helgina en þau buðu upp á dansleiki flest kvöld helgarinnar þá hélt söngsveitin Sex í sveit tvenna tónleika á Krákunni á föstudags- kvöld og laugardag og var húsfyllir báða daga. Gleði og gaman á „Góðri stund“ Grundarfjörður Morgunblaðið/Gunnar Kristjánsson Fjölmenni var á hafnarsvæðinu þar sem hátíðardagskrá fór fram. Hér fylgjast hátíðargestir með Halla og Ladda. ÞAÐ var aldeilis uppi fótur og fit hjá krökkunum á Ár- brautinni á Blönduósi fyrir skömmu er þau rákust á þessa fiðruðu kúlu uppi í lerkitré. Töldu þau víst að hér væri um uglu að ræða miðað við vaxtarlag og hlupu inn til ömmu sinnar sem átti lerkitréð og sögðu henni tíð- indin. Amma sem er veraldarvön sagði börnunum að segja fréttaritara Morgunblaðsins umsvifalaust frá þessu hvað og þau gerðu. Þegar þetta undarlega fyrir- brigði var skoðað kom í ljós að hér var um sofandi skógarþröst að ræða. Og svo sofandi var hann að hann rumskaði ekki þrátt fyrir töluverðan skarkala barna og ljósmyndara. Þrátt fyrir að uglan yrði að skógarþresti þá eru uglur ekki langt undan því sjá má branduglupar í móunum rétt fyrir ofan Blönduós þar sem hitaveitu- leiðslan fer yfir Laxá á Ásum. Skógarþröstur í fastasvefni Blönduós Morgunblaðið/Jón Sigurðsson                                      ! "  #$  %  &  '   '() *'   +  ,  -   + -    " *          # # . /!    0$     /    +          *1  #$    #$$- $      0$         +              &      2    !!                                  345 365 365 375 365 375 375 375 365 345 855 855 365 365 375 379 375 365 345 345 345 375 365 375 365 365 365  59                            3:5 3;5 395 395 395 399 395 395 395 395 399 395 3;5 395 395 395 3:9 395 395 395 395 3:9 395 3:5 3:9 3;9 395 $ $*                         375 375 3;5 365 349 345 349 855 8<5 365 855 365 8<5 835 835 3:5 365 375 335 365 889 *                          7:5 785 755 685 735 ;65 7<5 7:5 7<5 ;:5 9<5 995 769 ;:5 649 649 695 795 ;55 785  ( *                           375 355 385 395 375 385 355 3;5 3<5 395 855 855 855 395 395 355 +$ 395 855 855 855 +$ 855 +$ 75 8<9 375 MESTA ferðahelgi ársins er að skella á og má búast við því að margir leggi land undir fót. Á langri bílferð getur verið nauðsyn- legt að taka sér matarhlé. Sumir eru forsjálir, útbúa sér nesti fyrir bílferðina og þegar hungrið sverf- ur að setjast þeir út í guðsgræna náttúruna með nestispakkann sinn. Líklegt er þó að vegasjoppurnar verði fyrir valinu hjá mörgum, enda ágætt að stoppa við sjoppu, teygja aðeins úr sér, taka bensín á bílinn, innbyrða eina pylsu eða svo og halda síðan áfram för. Neytendasíðan gerði verðkönn- un á hinum dæmigerðu „vega- sjoppuveitingum“ í 27 sjoppum víðsvegar um landið. Veitingarnar sem um ræðir eru pylsa með öllu, kók í ½ lítra plastflösku, stór ís í brauðformi, hamborgari með sósu og frönskum og að síðustu kaffi- bolli. Sjoppurnar standa í flestum tilfellum við þjóðveg 1 en þó er gerð undantekning þegar vega- lengdir milli sjoppa við þjóðveginn eru orðnar langar. Þannig eru Fjalladýrð í Möðrudal og Söluskáli Olís á Höfn í Hornafirði tekin með þó taka þurfi eilítinn krók út af þjóðveginum til þess að nálgast þær. Minnstur verðmunur á pylsu og kók Samkvæmt könnuninni er minnstur verðmunur á pylsu og kók en meiru fer að muna þegar farið er út í veitingar eins og ís, hamborgara og kaffisopa. Pylsan er ódýrust seld á 170 krónur en átta sjoppur selja hana á því verði. Dýrust er hún á 200 krónur í Foss- hóli við Goðafoss og á Mývatni ehf. Munurinn nemur tæpum 18 pró- sentustigum. Kókflaskan kostar minnst 140 krónur í Hyrnunni í Borgarnesi og í Fossnesti á Sel- fossi en mest kostar hún 165 krón- ur í Eden í Hveragerði. Munurinn er þar einnig 18%. Hægt er að fá hamborgara með sósu og franskar kartöflur fyrir 530 krónur í Mý- vatni ehf. Í Skaftárskála og Víkur- skála kostar slík máltíð hins vegar 895 krónur. Munurinn er 69%. Mestur verðmunur á ís og kaffi Stór ís í brauðformi er dýrastur í Esso Nesti á Akureyri og í Skóg- arnesti á Egilsstöðum, kostar þar 230 krónur. Ódýrastur er hann í Fossnesti á Selfossi, kostar þar 110 krónur. Munurinn nemur 110%. Það getur þó verið erfitt að bera saman verðið á stórum ís því enginn mælikvarði er til á stærð- ina nema sá sem sjoppurnar setja sjálfar. Mjög misjafnt er hvað þarf að láta út fyrir kaffisopann. Í sölu- skálum Olís á Hellu og á Höfn fæst hann frítt, einnig í Fossnesti á Sel- fossi en dýrastur er hann í Eden í Hveragerði, kostar þar 235 krónur. Pylsa og kók ódýrust í Fossnesti Þeir sem hugsa sér að kaupa máltíð sem samanstendur af pylsu, kók og ís í eftirrétt borga minnst fyrir þann rétt í Fossnesti á Sel- fossi, eða 420 krónur en mest í Eden í Hveragerði, eða 570 krón- ur. Munurinn er 35%. Ef máltíðin stendur hins vegar saman af ham- borgara, frönskum, kókflösku og kaffibolla er hagstæðast að stoppa í Shellskálanum á Selfossi þar sem slík máltíð fæst fyrir 815 krónur en dýrust er hún í Skaftárskála og Víkurskála á 1.245 krónur. Þar munar 53 prósentustigum. Mestur verðmun- ur á ís og kaffi Morgunblaðið/Einar Falur Á ferðalögum er gott að teygja úr sér og fá sér bita.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.