Morgunblaðið - 31.07.2003, Qupperneq 36

Morgunblaðið - 31.07.2003, Qupperneq 36
MINNINGAR 36 FIMMTUDAGUR 31. JÚLÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ ✝ Halldór Jón Han-sen barnalæknir fæddist í Reykjavík 12. júní 1927. Hann lést á líknardeild Landspítala – há- skólasjúkrahúss á Landakoti 21. júlí síðastliðinn. Foreldrar Hall- dórs voru Halldór Hansen læknir, f. að Miðengi á Álftanesi 25.1. 1889, d. 1975, og Ólafía Vilborg Þórðardóttir, f. að Ráðagerði á Seltjarn- arnesi 1.11. 1888, d. 1961. Halldór var yngsta barn foreldra sinna. Systkini hans voru 1) Sigrún Þór- unn, f. 8.7. 1911, gift Sigbirni Þórðarsyni, f. 1915; 2) Jón, f. 28.5. 1917; og 3) Rebekka (Ebba), f. 21.8. 1924, og eru þau öll látin. Jón bróðir hans átti dótturina Joan, f. 1943, sem lést 1946, en systur Halldórs voru báðar barn- lausar. Uppeldissystir Halldórs var María Helgadóttir, f. í Kaup- mannahöfn 10.4. 1909. Hún giftist Bjarna Jóhannessyni og eignuð- ust þau tvö börn, Halldór, f. 1932, sem er látinn, og Ólafíu, f. 1934, og er maður hennar Pálmi Krist- inn Jóhannsson, f. 1933. Halldór var sjálfur ókvæntur og barnlaus. Að loknu embættisprófi í lækn- isfræði við Háskóla Íslands hélt Halldór til New York í kandidats- nám þar sem hann sérmenntaði sig síðan í barnalækningum og barnageðlækning- um. Eftir heimkom- una frá Bandaríkj- unum 1960 starfaði hann sem héraðs- læknir á Egilsstöð- um í sex mánuði. Hann fluttist síðan til Reykjavíkur þar sem hann starfaði á Geðverndardeild barna á Heilsu- verndarstöð Reykja- víkur og tók við yf- irlæknisstöðu ung- barnaeftirlitsins þar 1. júlí 1961, en þeirri stöðu gegndi hann þar til hann hætti fyrir aldurs sakir. Halldór var um skeið formaður Félags ís- lenskra barnalækna og stjórnar- maður í Félagi norrænna barna- lækna og var gerður heiðurs- félagi í ýmsum læknasamtökum. Halldór hafði ætíð mikinn áhuga á tónlist, einkum sönglist, og átti stórt hljómplötusafn með klass- ískri tónlist. Hann skrifaði mikið um söng og tónlistarmál jafnt í dagblöð sem tímarit. Hann kenndi við Söngskólann í Reykjavík um langt árabil og var mikilvægur listrænn ráðgjafi Tónlistarfélags- ins í Reykjavík og Íslensku óper- unnar, auk þess sem íslenskir söngvarar nutu stuðnings hans ætíð í ríkum mæli og sóttu til hans hollráð. Útför Halldórs fer fram frá Dómkirkjunni í Reykjavík í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. Elsku Halli minn. Nú er þinni síð- ustu banalegu lokið. Þrátt fyrir þennan langa aðdrag- anda átti ég alveg eins von á að þú stæðir þessa hrinu af þér eins og svo oft áður. Fleiri „banalegur“ en þú hefur legið held ég að fáir hafi lifað af. Þitt fyrsta krabbamein var nýrnakrabbamein, síðan tóku við ristilkrabbamein og dæminu lokað- irðu með eitlakrabbameini. Dr. Sig- urður Björnsson krabbameins- læknir reyndist þér vel í öllu og á þakkir skildar. Frá barnæsku varstu kvillasæk- inn og rúmliggjandi og sendur utan til hresssingar ásamt yngri systur þinni, Ebbu. Jón var næstelstur ykkar systkina, og eignaðist hann dótturina Joan 1943 í Bandaríkjun- um. Hann fórst í seinna stríði þegar skipi hans var sökkt af þýskum kaf- báti. Faðir þinn sótti Joan þangað fljótlega eftir stríð, en hún lést að- eins nokkrum mánuðum eftir kom- una til Íslands í bílslysi. Á heimilinu bjó Kristín Þorsteins- dóttir, „Stína“, sem var stoð og stytta heimilisins áratugum saman. Þú varst í miklu uppáhaldi hjá henni, og þegar heilsu hennar hrak- aði fyrir aldurs sakir annaðistu hana sem besti sonur. Uppi á lofti var töfraheimur fyrir okkur krakkana. Stína stjórnaði því hverjum var „vogandi“ að hleypa þangað upp. Okkur var leyft eftir aldri og vinsældum hjá Stínu að skoða háaloftið og „dótið“ þar. Mér er persónulega minnistætt leikhúsið þitt Halli minn, allar persónur og leiktjöld lituð með „crayola“ litum í réttum hutföllum og hreyfanleg. Þú varst mikill heimilisvinur hjá okkur Stebba og „aðalsprautari“ strákanna okkar. Þar sem ég var einbirni var kunnátta mín í um- önnun ungbarns „aum“ í byrjun. Ungbörn gráta víst en það hafði ég ekki hugsað út í. Það var því alltaf um „líf og dauða“ að tefla þegar þú varst kallaður til. „Komdu strax, Halli!“ Þú komst og læknaðir mig kannski meira en barnið. Eftir „lækninguna“ áttum við ótal margar ánægjustundir við eldhús- borðið. Takk fyrir allt og allt. Þín frænka, Agla Marta. Genginn er mætur maður, Hall- dór Hansen, frændi minn og besti vinur. Ólafía, móðir Halldórs, og Halldóra, móðuramma mín, voru systur, yngstar af Ráðagerðissyst- kinunum, börnum Þórðar útvegs- bónda og Þórunnar húsfreyju í Ráðagerði á Seltjarnarnesi. Kært var á milli systranna og því sam- gangur allnokkur milli heimilanna á Laufásvegi 24 og Smiðjustíg 11. Minnisstæð eru jólaboðin á Laufás- vegi 24 þangað sem stór hópur frændsystkina var ávallt boðinn ár- lega. Glatt var á hjalla og hlökk- uðum við krakkarnir alltaf mikið til þessara boða. Á gamlárskvöld kom fjölskyldan, Halldór Hansen eldri, Ólafía, Sigrún, Rebekka og Halldór yngri, á Smiðjustíginn og héldum við þar saman upp á áramótin. Á náms- árum Halla á Íslandi stoppaði hann stutt við á Smiðjustígnum um ára- mót því skólafélagarnir hittust líka en alltaf man ég eftir því sem lítil stelpa hvað mér fannst þessi frændi minn bæði fallegur og góður. Halldór (Halli) var einstakur mað- ur sem hafði samkiptahæfileika sem fáum eru gefnir. Hann lét sig allt varða og hafði einlægan áhuga á líf- inu og öllum þátttakendum þess. Tónlistarunnandi var hann í sér- flokki og hafði ómæld og ómeðvituð áhrif á samferðafólk sitt á ýmsum aldri. Fyrir stuttu átti ég að skila til Halla frá Þorvarði syni mínum, sem búsettur er í Bandaríkjunum, að hann hefði haldið að hann væri „bólusettur“ fyrir óperuáhuga en nú væri svo komið fyrir honum að hann væri ólæknandi orðinn og ætti margar óperur í pöntun. Halli hló við og hafði gaman af. Halli og faðir minn, Þorvarður R. Jónsson, voru mjög góðir vinir og áttu þar sam- eiginlegt áhugamál í tónlistinni. Halli fylgdist vel með framgangi hálfsystra minna, Steinunnar og Ólafar, í tónlistarnámi þeirra en báðar eru þær tónlistarmenn. Gott var að leita til Halla með margs kon- ar fyrirspurnir um lífsins gang og ævinlega fór maður af hans fundi skilningsríkari og fróðari um lífið og tilgang þess. Halli hélt yngsta syni mínum, sem skírður er Halldór í höfuðið á hon- um, undir skírn og er hann einnig kallaður Halli. Mér er minnisstætt þegar guttinn var fimm ára og spurði mig: „Mamma, heiti ég Han- sen líka?“ Mér er einnig minnisstætt þegar Kristín, fóstra Halla, fórnaði höndum yfir því að hann ætti að halda barni undir skírn, almáttugur, það gæti hann ekki. Við hlógum að því heima að barnalæknirinn væri ekki fær um að halda barni undir skírn en ég held að Kristín hafi verið að hugsa um hvernig skírnarkjóllinn og umgjörðin í athöfninni tæki sig út fyrst og fremst. Halli lét sér mjög annt um skyldmenni sín og þegar börnin voru lítil var hann undireins kominn til að aðstoða ef eitthvert þeirra veiktist eða eitthvað bjátaði á. Komið var að leiðarlokum, það vissi hann og einnig við öll sem elsk- uðum hann. Friðsælt andlát fékk hann mánudagskvöldið 21. júlí á líknardeild LSH á Landakotsspítala þar sem honum þótti mjög gott að vera. Sagði hann mér að það væri ekki hægt að hugsa sér að vera á betri stað. Rigning hafði verið um daginn en stytt upp og kvöldsólin ljómaði þegar Halli kvaddi þennan heim. Þegar ég gekk inn á sjúkra- stofuna þar sem hann lá friðsæll í rúmi sínu varð mér litið út um gluggann og ég sá kvöldsólina koparrauða umvefja turn Landa- kotskirkju geislum sínum. Fann ég fyrir djúpri og ólýsanlegri snertingu hins æðra. Far þú í friði, elsku frændi minn. Þín Edda. Allt er þá þrennt er. Halldór frændi minn og vinur hafði ekki „þriðju banalegu sína“ af, eins og hann komst sjálfur glettnislega að orði um legu sína á líknardeild Landspítalans í Landakoti. Hann var lengi búinn að þjást af krabba- meini og njóta góðrar umönnunar starfssystkina sinna úr læknastétt og annarra starfsmanna heilbrigðis- kerfisins og hafði haft sigur fram að þessu. Þegar ég heimsótti hann fyrir skömmu sýndist mér ljóst að hverju stefndi og kvöldið áður en ég frétti af andláti hans hugðist ég líta til hans áður en ég færi í stutta ferð norður í land, en því miður varð ég of seinn. Það var einstaklega gaman að ræða við frænda minn Halldór. Þrátt fyrir veikindi sín var hann vel með á nótunum og sérstaklega minnugur á liðna tíð. Ættfræðin kom ávallt við sögu þegar við hitt- umst og mér fannst ég kynnast Guð- ríði ömmu minni Þórðardóttur í Ráðagerði dálítið í gegnum Halldór, en hún var löngu látin áður en ég fæddist. Ólafía Vilborg, móðir Hall- dórs, var ömmusystir mín og Ráða- gerðisfólkið því oft umræðuefni okk- ar. Við ræddum einnig um fleiri mál, og naut ég meðal annars af ein- stökum viskubrunni hans um tónlist og tónlistamenn. Á síðasta fundi okkar spurði ég hann um afstöðu hans til dauðans og hvort hann hræddist hann. Spunnust af þessu miklar umræður og Halldór sann- færði mig um að hann óttaðist ekki að deyja, en lítið fékk ég út úr hon- um um hvers hann vænti við þessi óhjákvæmilegu tímamót sem við öll stöndum einhvern tímann frammi fyrir. Heimsmaðurinn Halldór Hansen er allur. Þökk sé öllum þeim er annt þótti um hann og vörðuðu lífsleið hans. Bestu þakkir til starfsfólksins á líknardeilinni í Landakoti fyrir umönnun alla og hlýlegt viðmót. Við minntumst einmitt föður Halldórs síðast þegar við hittumst, en sá heiðursmaður Halldór Hansen eldri var yfirlæknir á Landakoti á árun- um 1948 til 1959. Far í friði, kæri vinur. Óli H. Þórðarson. Halldór Hansen er sérstakur vel- gjörðarmaður Listaháskóla Íslands. Hann ánafnaði skólanum 11. desem- ber 2001 tónlistarsafn sitt, og um leið var með hans framlagi stofnaður styrktarsjóður sem ber nafn hans. Sjóðurinn hefur það mikilvæga hlut- verk að styðja við uppbyggingu tón- listarbókasafns skólans og verð- launa nemendur fyrir framúrskarandi árangur. Halldór sýndi með þessu hvaða hug hann hafði til uppbyggingar hins nýja skóla og hvernig hann taldi að jarðneskar eigur hans gætu nýst sem best fyrir æsku landsins. Tón- HALLDÓR HANSEN Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir og afi, PÁLL SVERRIR GUÐMUNDSSON, Skúlagötu 40, áður Freyjugötu 5, lést á Landspítala Fossvogi, deild A-7, að morgni sunnudagsins 27. júlí. Útförin fer fram frá Fossvogskirkju fimmtu- daginn 31. júlí kl. 13.30 Björgheiður Eiríksdóttir, Sigríður Sverrisdóttir, Hlöðver Örn Rafnsson, Eiríkur Egill Sverrisson, Sigrún Arnarsdóttir, Erla Sverrisdóttir, Eggert Helgason, Svanhvít Sverrisdóttir, Albert Klemenzson, Ástrós Sverrisdóttir, Sigfús Bjarnason og barnabörn. Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengda- móðir, amma og systir, JÓNA KRISTÍN BJARNADÓTTIR, Fálkagötu 1, Reykjavík, sem lést á líknardeild Landspítala Landakoti miðvikudaginn 23. júlí verður jarðsungin frá Háteigskirkju föstudaginn 1. ágúst kl. 13.30. Hannes Þorkelsson, Ástríður Ingibjörg Hannesdóttir, Helga Hannesdóttir, Bjarndís Hannesdóttir, Gunnlaug Hannesdóttir, Hlynur B. Gunnarsson, Anna Kristín Hannesdóttir, Helgi Helgason, barnabörn, Þorbjörn Bjarnason og Þorsteinn Bjarnason. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, afi og langafi, ÞORVALDUR ÁSGEIRSSON frá Blönduósi, lést á heimili sínu, Hraunbúðum, Vestmanna- eyjum, þriðjudaginn 29. júlí. Jarðarförin verður auglýst síðar. Sigurborg Gísladóttir, Ásgeir Þorvaldsson, Guðfinna Sveinsdóttir, Hrefna Þorvaldsdóttir, Valgeir Benediktsson, Olgeir Þorvaldsson, Sigríður Óskarsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Áskær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir og afi, GUNNAR FRIÐRIKSSON, Hafnartúni 12, Siglufirði, lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri þriðjudaginn 29. júlí. Útför hans verður gerð frá Siglufjarðarkirkju miðvikudaginn 6. ágúst kl. 14.00. Kristrún Sigurbjörnsdóttir, Jóhanna Hrefna Gunnarsdóttir, Sævaldur Jens Gunnarsson, Sigurður Jón Gunnarsson, Silja Arnarsdóttir, Dagur Gunnarsson, Hanna Viðarsdóttir, Hanna Kristjana Gunnarsdóttir, Guðjón Betúelsson og barnabörn. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir og afi, BENJAMÍN S. ANTONSSON skipstjóri, Snægili 9, Akureyri, lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri mánu- daginn 28. júlí. Margrét Ásgrímsdóttir, Anton Benjamínsson, Björg Konráðsdóttir, Bryndís Benjamínsdóttir, Haraldur Krüger, Ásgrímur Þór Benjamínsson, Sigrún Brynjólfsdóttir og barnabörn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.