Morgunblaðið - 31.07.2003, Síða 42

Morgunblaðið - 31.07.2003, Síða 42
DAGBÓK 42 FIMMTUDAGUR 31. JÚLÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍM- AR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, aug- lýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið. Skipin Reykjavíkurhöfn: Nordica Hav, Mána- foss, Seven Seas Navigator, Halifax og Stella Polux koma í dag. Eldborg og Detti- foss fara í dag. Hafnarfjarðarhöfn: Ingrid Maria og Stella Polux koma í dag. Mannamót Árskógar 4. Kl. 9–12 bað. Smíðastofan er lokuð til 11. ágúst. Handavinnustofan er lokuð vegna sumar- leyfa. Kl. 9.45–10 helgistund, kl. 10.15 leikfimi, kl. 11 boccia. Kl. 13.30 lengri ganga. Púttvöllur opinn mánudag til föstudags kl. 9–16.30. Bólstaðarhlíð 43. Kl. 8–16 hárgreiðsla, kl. 8.30–14.30 bað, kl. 9– 16 handavinna, kl. 9– 17 fótaaðgerð. Þórs- mörk, farið verður inn í Bása í Goðalandi, fimmtudaginn 14. ágúst. Hafa með sér nesti, stoppað verður í Eden og við Selja- landsfoss, síðan farið á Hestakrána þar sem kvöldverður er snædd- ur. Félagsstarfið Dal- braut 27. Kl. 8–16 opin handavinnustofan, kl. 9–12 íkonagerð, kl. 10– 13, verslunin opin, kl. 13–16 spilað. Félagsstarfið Dal- braut 18–20. Kl. 9 að- stoð við böðun, hár- greiðslustofan opin. Félagsstarfið, Hæðar- garði 31. Kl. 9–12 bað, kl. 9–16 opin vinnu- stofa, kl. 13.30 söng- tími. Félagsstarfið, Löngu- hlíð 3. Kl. 8 bað, kl. 9 fótaaðgerð, kl. 10 hár- greiðsla, kl. 13 föndur og handavinna. Félag eldri borgara, Hafnarfirði, Hraunseli, Flatahrauni 3. Félags- heimilið Hraunsel verður lokað til 10. ágúst. Félag eldri borgara Reykjavík, Ásgarði, Glæsibæ. Landmanna- laugar 7. ágúst. Þeir sem hafa pantað far vinsamlegast gangið frá farmiða ekki seinna en á hádegi þriðjudag 5. ágúst. Skrifstofa fé- lagsins er í Faxafeni 12, opin frá kl. 10–16 s. 588 2111. Gerðuberg, félags- starf. Lokað vegna sumarleyfa til 12. ágúst. Gjábakki, Fannborg 8. Handavinnustofan op- in, leiðbeinandi á staðnum kl. 9.30–16. Gullsmári, Gullsmára 13. Lokað vegna sum- arleyfa til 5. ágúst. Hárgreiðuslustofan og fótaaðgerðarstofan verða opnar. Hraunbær 105. Kl. 9 hjúkrunarfræðingur á staðnum, kl. 10 boccia, kl. 14 félagsvist. Hvassaleiti 56–58. Kl. 10 boccia, kl. 13.30 fé- lagsvist. Hársnyrting og fótaaðgerðir. Norðurbrún 1. Vinnu- stofa lokuð vegna sum- arleyfa frá 3. júlí til 5. ágúst. Kl. 10–11 ganga. Fótaaðgerða- stofan er lokuð frá 21. júlí til 5. ágúst. Hár- greiðslustofan er lokuð frá 15. júlí til 12. ágúst Vesturgata. Kl. 9–16 fótaaðgerð og hár- greiðsla, kl. 9.15–12 bað, kl. 9.15–15.30, handavinna, kl. 10–11 boccia. Vitatorg. Kl. 9 hár- greiðsla, kl. 9.30 morg- unstund, kl. 10 fótaað- gerð og boccia-æfing, kl. 13 frjáls spil. Minningarkort Minningarkort Ás- kirkju eru seld á eftir- töldum stöðum: Kirkjushúsinu Lauga- vegi 31, þjónustu- íbúðum aldraðra við Dalbraut, Norðurbrún 1, Apótekinu Glæsibæ og Áskirkju, Vestur- brún 30. Sími 588 8870. KFUM og KFUK og Samband íslenskra kristniboða. Minning- arkort félaganna eru afgreidd á skrif- stofunni, Holtavegi 28 í s. 588 8899 milli kl. 10 og 17 alla virka daga. Gíró- og kredidkorta- þjónusta. Minningarkort Hjartaverndar, fást á eftirtöldum stöðum í Reykjavík: Skrifstofu Hjartaverndar, Holta- smára 1, 201 Kópa- vogi, s. 535 1825. Gíró og greiðslukort. Dvalarheimili aldraðra Lönguhlíð, Garðs Apó- teki, Sogavegi 108, Árbæjar Apóteki, Hraunbæ 102a, Bókbæ í Glæsibæ, Álfheimum 74, Kirkjuhúsinu, Laugavegi 31, Bóka- búðinni Grímsbæ, v/ Bústaðaveg, Bókabúð- inni Emblu, Völvufelli 21, Bókabúð Grafar- vogs, Hverafold 1–3. Minningarkort Hjartaverndar fást á eftirtöldum stöðum á Reykjanesi: Kópavog- ur: Kópavogs Apótek, Hamraborg 11. Hafn- arfjörður: Lyfja, Set- bergi. Sparisjóðurinn, Strandgata 8–10, Keflavík: Apótek Keflavíkur, Suðurgötu 2, Landsbankinn Hafnargötu 55–57. Í dag er fimmtudagur 31. júlí, 212. dagur ársins 2003. Orð dagsins: Þegar sál mín örmagnaðist í mér, þá minntist ég Drottins, og bæn mín kom til þín, í þitt heilaga musteri. (Jónas 2, 8.)     Á frelsi.is velta mennfyrir sér framboðs- málum í Kalíforníu. Höf- undur veltir fyrir sér hvort Tortímandinn sjálfur, Arnold Schwarzenegger, muni feta í fótspor annars góðkunns leikara, Ron- alds Reagans, og bjóða sig fram til ríkisstjóra Kalíforníu.     HasarmyndahetjanArnold Schwarze- negger hefur tekið fyrir allar fréttir um að hann hafi ákveðið að bjóða sig ekki fram í forvali fyrir næstu ríkisstjórnarkosn- ingar í Kalíforníufylki.     Kvikmyndastjarnan,sem þessa dagana baðar sig í sviðsljósinu vegna velgengni nýjustu myndar sinnar, The Terminator 3: Rise of Machines, svarar þannig sögusögnum um að hann og eiginkona hans, fréttakonan Maria Shriv- er, hefðu komist að nið- urstöðu um framtíðar- starfsvettvang stjörnunnar.     Í yfirlýsingu frá póli-tískum ráðgjafa Schwarzenegger segir „Fjölmiðlar hafa greint frá því að Arnold Schwarzenegger hafi af- ráðið að bjóða sig ekki fram í forvali fyrir ríkis- stjórakosningarnar í Kalíforníu. Þessar fréttir eru rangar. Arnold hug- leiddi framboðsmál mik- ið um liðna helgi. Hann hefur ekki komist að nið- urstöðu enn sem komið er. Hann mun halda áfram að vega og meta kosti og galla mögulegs framboðs ásamt fjöl- skyldu sinni og mun áfram sækjast eftir ráð- leggingum frá stuðn- ingsmönnum og fé- lögum.“     Arnold Schwarzenegg-er er ekki fyrsti Hollywoodleikarinn sem sýnt hefur ríkisstjóra- stöðunni í Kalíforníu áhuga. Ronald Reagan, fyrrverandi Bandaríkja- forseti, á 53 kvikmyndir að baki. Hann var kjör- inn ríkisstjóri í Kalíforníu árið 1966 og endurkjörinn árið 1970. Árið 1980 náði hann svo kjöri í embætti forseta Bandaríkjanna.     Það verður spennandiað fylgjast með framgangi mála hjá Tor- tímandanum, en hvernig sem fer með ríkis- stjórastöðuna eru hverf- andi líkur á að Arnold muni ná sama árangri í stjórnmálum og Reagan kollegi hans, því ólíkt Reagan er Schwarzenegger fæddur og uppalinn í Austurríki.     Það útilokar mögu-leika hans á fram- boði til embættis forseta Bandaríkjanna, aðdáend- um hans til mikillar von- brigða,“ segir á frelsi.is. STAKSTEINAR Nær Tortímandinn sama frama og Ronald Reagan í stjórnmálum? Víkverji skrifar... VÍKVERJI hefur stundað nýstár-legan veiðiskap í sumar, al- gjörlega umhverfisvænan, ódýran og hörkuspennandi í þokkabót. Þessi veiðiskapur krefst þess að veiðimanni sé vel við köngullær, þessar stóru og feitu sem stundum hafa sést á síðum dagblaðanna. Þetta eru meðal annars kross- köngullær, sem spinna stóra vefi svo unun er á að horfa. Nóg um það. Geitungar hafa verið talsverð plága í sumar, sögðu ekki fréttir að fara þyrfti aftur til ársins 1975 til að finna annað eins? Víkverji gerðist gæslumaður fasteignar í austurborginni í sumar, aðgætti blóm og fældi burtu inn- brotsþjófa í fjarveru húseigend- anna. Í garðinum reyndist geit- ungabú og voru þessir hvimleiðu gestir hinum ábyrgðarfulla gæslu- manni til mikils ama. Ekki bætti úr skák að húseigendunum er ennþá verr við hina röndóttu, óboðnu gesti. Tók nú Víkverji til sinna ráða, sameinaði köngullær allra horna hússins og munstraði 6 þeirra í mikilvægt verkefni. Þetta var tilraunastarfsemi sem fólst í því að fjarlægja köngullærnar frá útidyrahurðinni og fleiri stöðum og setja þær varlega í garðshornið þar sem geitungarnir voru alltaf á sveimi. Eftir tvo daga voru komnir stærðar vefir í hornið og síðan varð mokveiði. Köngullærnar tóku 1 til 3 geitunga í vefina sína og réðu auð- veldlega við svo stóra bráð. Köng- ullærnar fitnuðu og flugumferð geitunganna snarminnkaði. Þessu til viðbótar setti Víkverji geitunga- gildru (rautt plastglas sem fæst í garðvöruverslunum) í hornið. Í glasið hellti hann smávatni og tómatsósu. Þegar þessi orð eru rit- uð hafa um 20 geitungar endað líf sitt í glasinu og ekki sér fyrir end- ann á veiðinni. Því er þetta nefnt að sumir eitra fyrir geitungunum eða kalla til meindýraeyði. Að sjálfsögðu þarf að meta hvert tilvik fyrir sig ef geitungar setjast að í görðum, en Víkverji mátti til með að deila þessari reynslu með lesendum. Það virðist sem þessi tvíþætta og ofur- einfalda aðferð hafi dugað vel að þessu sinni. x x x VÍKVERJI heyrði kostulega söguúr viðskiptalífinu fyrir skömmu. Maður nokkur er að kaupa tölvur og raftæki í verslun og raðar hlut- unum á færibandið hjá afgreiðslu- manni. Hver hlutur stimplaður inn og upphæðin er litlar 220 þúsund krónur. Það var við því að búast þótt ekki sé á hverjum degi sem verslað er fyrir aðrar eins upp- hæðir bara sisona. En síðan segir afgreiðslumaður: viltu poka? Jú, þökk, er svarað. Stimplað inn í kassann: það gera 10 krónur, takk. Aldrei hafa 10 krónur fyrir einn poka virst eins óþarfarukkun eins og í þessu samhengi. En rétt skal vera rétt. Skárra væri það nú ef viðskiptavinir kæmust upp með að borga ekki tíkall fyrir poka – þótt verslað hafi verið fyrir 200 þúsund kall. Morgunblaðið/Árni Sæberg Myndarlegt geitungabú. Áskorun til bænda ÉG SKORA á bændastétt- ina á Íslandi að standa þétt saman gegn þeirri ætlun stjórnvalda að fækka slátur- húsum sem uppfylla ekki skilyrði til að fá vottorð með útflutningi á lambakjöti. Hvað skyldi það kosta skatt- greiðendur margar milljón- ir að borga þann útflutning? Á að stuðla að enn meiri byggðaröskun en fyrir er nú þegar? Hvað skyldi svo allur flutningur á sauðfé kosta bændur? Ég var einu sinni starfsmaður á sláturtíð á Kirkjubæjarklaustri og veit að sláturtíð skiptir gríðar- lega miklu máli fyrir hag sveitarinnar. Væri ekki at- hugandi að byggðastofnun kæmi að þessum málum bænda? Virðingarfyllst, Gunnar Halldórsson. Vinsamleg ábending ELDRI KONA hafði sam- band við Velvakanda og vildi koma því á framfæri að ekki allir ættu þess kost að koma í Skálholt. Prestur einn sagði að allir væru vel- komnir í Skálholt. Það er ekki rétt því að sumir eiga erfitt með gang og hafa ekki getað farið þangað frá upp- hafi því að þar er svo mikið um tröppur. Góð þjónusta hjá Kjarnafæði ÉG KEYPTI fyrir skömmu hangikjöt frá Kjarnafæði. Kjötið var feitt og nánast óætt. Ég hringdi til þeirra og fékk sent annað stykki með flugi, úrvalsvöru, innan fjögurra tíma. Þetta er góð þjónusta og hana ber að lofa. Katrín. Biblíumynd í ramma óskast INGA ÓSK hafði samband við Velvakanda og óskaði eftir biblíumynd í ramma. Best væri ef myndin væri saumuð en hún má vera eft- irprentun. Aðalatriðið er að hún sé í ramma. Þeir sem vita hvar hægt er að nálgast slíka mynd eru beðnir að hafa samband í síma 551 8727 eða 891 8727. Verkið kjötið eins og í gamla daga VIKTOR hafði samband við Velvakanda og vildi koma því á framfæri til kjöt- iðnaðarmanna að þeir mættu saga kjötið öðruvísi. Fólk notar ekki þunnar sneiðar í kjötsúpu eða ofn- steik. Ekki á að saga þær eins og þeir gera – leggirnir eru jafnvel sagaðir langsum, en það er ekki boðlegt. Tapað/fundið Filma tapaðist ÁTEKIN filma tapaðist neðarlega á Hverfisgötunni, nr. 4–6, mánudaginn 21. júlí sl. Ef einhver hefur fundið hana er sá hinn sami vin- samlegast beðinn að hafa samband í síma 895 6378. Sími tapaðist HVÍTUR Nokia farsími tapaðist á mótum Arnar- bakka og Prestabakka kl. 15:30 þann 28. júlí sl. Finn- andi vinsamlegast hafi sam- band í síma 847 5152 eða 848 0418. Sundtaska tapaðist GRÁ sundtaska tapaðist þann 26. júlí sl. fyrir utan Skeljung á Seltjarnarnesi. Finnandi vinsamlegast hafi samband í síma 868 7409. GSM-sími tapaðist SONY Ericsson T68i, tap- aðist í Tívolíinu við Smára- lind fimmtudaginn 17. júlí. sl. Finnandi er vinsamlegast beðinn að hafa samband í síma 567 2587 eða 863 0832. Fundarlaun í boði. Dýrahald Kettlingar fást gefins KETTLINGAR fást gefins á góð heimili. Þeir eru kassavanir og segir sagan að þeir séu gullfallegir. Upplýsingar í síma 698 6402. VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15  Netfang velvakandi@mbl.is Morgunblaðið/Arnaldur LÁRÉTT 1 tilviljunar, 8 regnýra, 9 verða laus, 10 grátur, 11 ganga saman, 13 rýja, 15 karldýr, 18 sundfæri, 21 ætt, 22 sefaði, 23 hafni, 24 guðsríki. LÓÐRÉTT 2 hundrað ára, 3 raka, 4 heilnæmt, 5 klasturs, 6 mynni, 7 drepa, 12 tangi, 14 ótta, 15 för, 16 rengdi, 17 húð, 18 elskaðir, 19 hrekk, 20 vond. LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU Lárétt: 1 stokk, 4 gígja, 7 eyðir, 8 ljótt, 9 ref, 11 karp, 13 kann, 14 offur, 15 höst, 17 álfs, 20 æra, 22 lýtur, 23 gefin, 24 súrar, 25 síður. Lóðrétt: 1 smekk, 2 orður, 3 korr, 4 golf, 5 gjóta, 6 aftan, 10 elfur, 12 pot, 13 krá, 15 hólfs, 16 sætir, 18 lyfið, 19 sonur, 20 ærir, 21 agns. Krossgáta 6 8 11 15 22 1 24 12 3 10 17 21 4 9 13 18 23 14 5 19 7 20 2 16

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.