Morgunblaðið - 01.08.2003, Side 1

Morgunblaðið - 01.08.2003, Side 1
STOFNAÐ 1913 206. TBL. 91. ÁRG. FÖSTUDAGUR 1. ÁGÚST 2003 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is Á vettvangi styrjalda John Benes — upptökumaður á átakasvæðum Daglegt líf 4 Austurlensk ævintýri Sarah Brightman leitar til Austur- landa í tónlistinni Fólk 50 Sló í gegn í Galway Helenu Jónsdóttur boðið að semja stórt dansverk 29 TÍMARITIÐ The Economist hefur sent Silvio Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu, opið bréf þar sem skorað er á hann að svara spurningum varð- andi ýmislegt á viðskipta- og stjórnmálaferli hans sem blaðið telur vafasamt. Ritið hyggst birta ítarlega umfjöllun um forsætisráðherrann í sex hlutum þar sem spurningum verður beint til hans og hann hvattur til að svara. Bréfið er undirritað af ritstjóra blaðsins, Bill Emmot, sem segist vilja svör sem hann telji al- menning eiga rétt á. „Þar sem slíkt getur ekki lengur farið fram fyrir ítölskum dómstólum, eiga spurningarnar að vera settar fram og svar- að á opinberum vettvangi,“ segir í bréfinu en þar vísar hann til nýrra laga sem veita forsætisráð- herranum friðhelgi fyrir dómstólum á Ítalíu. Bréfið birtist á heimasíðu tímaritsins. Telja Berlusconi óhæfan Blaðið segist hafa sönnunargögn upp á 8.000 síður um meintar misgjörðir Berlusconis. Meðal þess sem fjallað er um er svokallað SME-mál, þar sem Berlusconi er sakaður um að hafa mútað dómurum til að stöðva sölu ríkisfyrirtækis til eins keppinauta hans. The Economist hefur áður stað- hæft að Berlusconi sé óhæfur til að vera forsætis- ráðherra í umfjöllun um hann í apríl 2001. Skora á Berlusconi Reuters STJÓRNVÖLD í Norður-Kóreu hafa samþykkt kröfur Bandaríkjamanna um að S-Kóreumenn, Japanar, Kínverjar og Rússar taki einnig þátt í fyrirhuguðum viðræðum um lausn á deilum um kjarnorkuvopn norðanmanna. Júrí Fedotov, aðstoðarutanríkisráðherra Rúss- lands, skýrði frá þessu í Moskvu í gær eftir fund með sendiherra N-Kóreu í Rússlandi. Stjórnin í N-Kóreu hefur fram til þessa neitað að ræða við Bandaríkjamenn um deilumál ríkjanna nema í tví- hliða viðræðum og hefur auk þess krafist þess að Bandaríkin geri griðasamning þar sem þeir heiti að gera ekki árás á landið. N-Kóreustjórn rak í fyrra burt eftirlitsmenn á vegum Sameinuðu þjóð- anna sem áttu að fylgjast með hvort ríkið bryti al- þjóðasamninga gegn útbreiðslu kjarnorkuvopna. N-Kóreumenn fallast á viðræður  Fyrir/14 Moskvu. AFP. STJÓRNVÖLD í Ísrael buðu í gær út réttinn til að byggja 22 nýjar húsbyggingar á landtöku- svæðum gyðinga á Gaza. Þar með ganga þau gegn hinum svokall- aða Vegvísi til friðar en í honum er kveðið á um að stöðva verði byggingarframkvæmdir á land- tökusvæðunum. Þá tilkynnti Ísr- aelsstjórn að búið væri að byggja fyrsta hluta múrs sem á að skilja á milli palestínskra og ísraelskra bæja. Óttast margir afleiðingar þessara ákvarðana á friðarferlið í Mið-Austurlöndum. Auglýsing þar sem lýst er eftir tilboðum í réttinn til að byggja 22 byggingar á Gazasvæðinu birtist í dagblaði en þetta er í fyrsta skipti í tvö ár sem útboð til bygg- inga á svæðinu er auglýst. Pal- estínumenn og samtök ísraelskra friðarsinna fordæmdu fram- kvæmdirnar og sögðu þær stefna friðarsamkomulaginu í hættu. „Þetta er afar hættulegt skref hjá ísraelsku ríkisstjórninni,“ sagði Nabil Abu Rdeneh, aðstoð- armaður Yassers Arafat, leiðtoga Palestínumanna. Ísraelsstjórn samþykkti vegvísinn til friðar í maí en þó með fyrirvara um kafl- ann um stöðvun framkvæmda á landtökubyggðunum. Þá mótmæltu hundruð Palest- ínumanna í borginni Qalqiliya á norðanverðum Vesturbakkanum eftir að Ísraelsstjórn tilkynnti að byggingu fyrsta hluta múrs, sem ætlaður er til að girða á milli pal- estínskra og ísraelskra byggða, væri lokið. Múrinn sem er átta metra hár liggur í kringum borg- ina og lokar hana af. Mótmæl- endur köstuðu blöðrum á múrinn fylltum af málningu í fánalitum Palestínu, rauðum, grænum, svörtum og hvítum og héldu á borðum sem á stóð „aðskilnaðar- stefnumúr“. Ísraelar segja múr- inn hins vegar nauðsynlegan til að halda hryðjuverkamönnum frá bæjum sínum. Ísraelar hyggjast reisa nýjar byggingar á Gaza Jerúsalem. AP. Reuters MÓTMÆLANDI í borginni Qalqiliya skrifar orðið „bylting“ á átta metra háan steyptan múr sem skilur Ísrael frá Vesturbakkanum. Palestínumenn og útlendingar mótmæltu við múrinn í gær og kröfðust þess að hann yrði rifinn niður en hann hefur valdið mikilli ólgu meðal Palestínumanna. Ísraelar segja hins vegar að hann sé nauðsynlegur til að halda hryðjuverkamönnum frá þeirra svæðum. Búið að byggja fyrsta hluta um- deilds múrs Múrnum mótmæltHAGVÖXTUR í Bandaríkjunum á öðrum ársfjórð- ungi var mun meiri en spáð var, eða 2,4%. Var hann 1,4% á fyrsta fjórðungi og talið, að hann yrði 1,5% í apríl til júní. Þessi aukni hagvöxtur er einkum rak- inn til mestu aukningar í útgjöldum til hermála í 52 ár, til mikillar einkaneyslu, umsvifa á fasteigna- markaði og aukinnar fjárfestinga fyrirtækja. Útgjöld til varnarmála hækkuðu um 44,1%, sem er það mesta frá 1951, og því jukust útgjöld alrík- isstjórnarinnar um 25,1%, sem er mesta hækkun síðan 1967. Viðskiptin við útlönd voru Bandaríkj- unum óhagstæð. Á tímabilinu minnkaði útflutning- ur um 3,1% en innflutningur jókst um 9,2%. Aukinn hag- vöxtur vestra Washington. AFP. ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ BOGI Nilsson ríkissaksóknari álítur það fara þvert gegn markmiðum um skilvirkni og hagkvæmni í rannsóknum á meintum brotum á samkeppnislögum, að tveir aðilar, lögregla og samkeppnisyfirvöld, rannsaki sama málið samhliða. „Mál hafa þróast á þann veg að und- anförnu að heimildir eftirlitsaðila á borð við Samkeppnisstofnun og Fjármálaeftirlit til að beita stjórnvaldssektum hafa verið auknar. Ástæðan er öðrum þræði sú að eft- irlit og meðferð brotamála á sérsviðum þykir verða skilvirkari og hagkvæmari við að sérhæfður eftirlitsaðili rannsaki mál og beiti síðan stjórnvaldssektum,“ segir Bogi aðspurður í tilefni af rannsókn Samkeppn- isstofnunar á meintu samráði olíufélag- anna. „Með því að fela eftirlitsaðila að beita stjórnvaldssektum vegna brota á lögum sem hann hefur eftirlit með er verið að færa verkefni frá lögreglu og ákværuvaldi, jafnvel dómstólum, til þessara aðila. Okkur sem störfum á vettvangi ákæruvalds og lögreglu er þetta fullljóst. Samkeppnis- stofnun annast eftirlit með framkvæmd samkeppnislaga, rannsakar ætluð brot á lögunum og mál hafa verið að fullu af- greidd frá samkeppnisráði með stjórn- valdssektum. Samkvæmt samkeppnislögum virðist ekkert því til fyrirstöðu að lögregla hefji rannsókn samhliða rannsókn Samkeppnis- stofnunar og rannsókn lögreglu gæti hugs- anlega leitt til málssóknar. Tilgangurinn sem helgar ákvæði samkeppnislaga um að eftirlitsaðilinn rannsaki mál og beiti sekt- um, er að auka skilvirkni og draga úr kostnaði við rannsóknir eins og áður sagði,“ segir Bogi. „Hefji lögregla og ákæruvald rannsókn á sama sakarefni og þegar er til meðferðar hjá Samkeppnisstofnun tel ég að það fari þvert á þennan tilgang laganna. Í sam- keppnislögum eru engin ákvæði sem beina málum á eina braut eða eina akrein, heldur virðist ekkert því til fyrirstöðu að sama sakarefnið sæti rannsókn á tveimur stöðum í einu, sé á tveimur akreinum. Að mínu mati væri skynsamlegt að innleiða ákvæði í lögin þess efnis að meðferð máls væri í höndum Samkeppnisstofnunar og hún gæti eða henni bæri eftir atvikum að beina mál- inu til ákæruvalds eða lögreglu ef stofnunin teldi málið þess eðlis að viðurlagaheimildir samkeppnisráðs væru ekki fullnægjandi lok máls. Þótt slíkt ákvæði sé ekki að finna í lögunum núna væri ef til vill unnt að haga framkvæmd mála með þessum hætti.“ Ríkissaksóknari segir skilvirkni markmið sérhæfðs eftirlits samkeppnismála Ekki fylgjandi samhliða rannsókn tveggja aðila Telur skynsamlegt að breyta lögum

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.