Morgunblaðið - 01.08.2003, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 01.08.2003, Blaðsíða 6
LÖGREGLA um allt land eykur um- ferðareftirlit verulega um verslunar- mannahelgina og starfa embættin ná- ið saman. Umferðardeild ríkislög- reglustjóra mun aðstoða lögregluna á landsbyggðinni við eftirlit og þá verð- ur fíkniefnalöggæsla hert verulega. Einnig verða fjölmenn lögreglulið þar sem útisamkomur verða haldnar og fjöldi fíkniefnaleitarhunda verður að störfum. Umferðardeildin verður aðallega með eftirlit á vegum á Suður- og Norðurlandi og einnig á Vestfjörðum, allt eftir því hvar umferð er mest. Notaðir verða ómerktir og merktir lögreglubílar og lögreglubíll með áfengismæli verður einnig til taks vegna eftirlits með ölvunarakstri. Tjaldvagnar og fellihýsi undir eftirliti Lögreglan í Reykjavík verður með eftirlit á vegum út úr borginni í sam- vinnu við lögreglulið úr nærsveitum. Samskonar samstarf er milli lög- regluembættanna á Suðurlandi, Vest- urlandi, Vestfjörðum og Norðurlandi auk hefðbundinnar samvinnu lög- regluembættanna á Austurlandi. Fylgst verður sérstaklega með hrað- akstri, ölvunarakstri og einnig öku- tækjum með tjaldvagna og fellihýsi. Lögreglan á Vestfjörðum og Norð- vesturlandi fylgist sérstaklega vel með þjóðvegunum sem liggja til Ísa- fjarðar en þar verður unglingalands- mót UMFÍ haldið um helgina og er búist við að margir komi akandi. Sýslumenn sem Morgunblaðið ræddi við í gær lögðu áherslu á að um- ferðin gengi óhjákvæmilega hægar um verslunarmannahelgi en um aðrar helgar enda umferðin mun þyngri. Framúrakstur væri því til lítils og auk þess víða stórvarasamur. Hert umferðar- og fíkniefnaeftirlit lögreglu um allt land um verslunarmannahelgina Hraðakstur og búnaður bíla undir smásjánni FRÉTTIR 6 FÖSTUDAGUR 1. ÁGÚST 2003 MORGUNBLAÐIÐ INGIBJÖRG Júlíana Guðlaugsdóttir hélt upp á áttræð- isafmælið sitt á miðvikudaginn en hún á 103 afkom- endur; 13 börn, 46 barnabörn og 44 barnabarnabörn. Afkomendurnir hafa hreiðrað um sig víða um heiminn en þeir sem vettlingi gátu valdið samglöddust ættmóð- urinni á afmælisdaginn. Ingibjörg er fædd og uppalin í Svarfaðardal á Dalvík en bjó lengst af á Selfossi. Nú býr hún á hjúkrunar- heimilinu Sólvangi og er að sögn þeirra sem til þekkja hraust til heilsunnar. Ingibjörg segir það ekki vand- kvæðum bundið að halda tölu á afkomendunum þó margir séu því að talan hækki bara þegar nýtt nafn bætist við. Hún segist þó ekki muna alla afmælisdagana enda er líklegt að þriðja hvern dag eigi einhver afkom- enda hennar afmæli. Þeir heimsóttu hana margir á af- mælisdaginn, eins og sjá má á myndinni. Morgunblaðið/Jón Svavarsson Hefur eignast 103 afkomendur FYRIRTÆKIÐ NýOrka hefur hafið samstarf við bandaríska fyrirtækið Millennium Cell Inc. um rannsóknir á mögulegri vinnslu natríumbórhydríðs á Íslandi. Millennium Cell hefur þró- að möguleika á notkun natríum- bórhydríðs til vetnisflutnings, en að- eins þarf að blanda efnið í vatn til að leysa vetnið úr læðingi. Að sögn Hjalta Páls Ingólfssonar, verkefnisstjóra hjá Iðntæknistofnun, hefur natríumbórhydríð verið hugsað sem eldsneyti allt frá upphafi geim- ferða, en ekki hentað á þeim vett- vangi. „Við aukna umræðu um vetni sem eldsneyti fór Millennium Cell að þróa notkun þess til vetnisflutninga. Með þessu fæst mjög þægilegt flutn- ingsform vetnis, í föstu formi, líku salti,“ sagði Hjalti í samtali við Morg- unblaðið. „Eftir að vetnið hefur verið leyst úr bóraxinu er hægt að endur- nýta efnið til flutnings vetnis, svo að ekki þarf sífellt nýtt bórax til vetn- isflutninga,“ bætti Hjalti við. Rannsaka nýtt flutningsform Nú er til rannsóknar hvort hag- kvæmt sé að framleiða natríum- bórhýdríð úr bóraxi á Íslandi, en til þess þarf raforku. Bóraxið yrði flutt til landsins til vinnslu. „Verkefnið snýst um að rannsaka hvaða aðferðir hægt er að nota til framleiðslu efnis- ins, og hvort hagkvæmar aðstæður séu fyrir hendi á Íslandi,“ útskýrir Hjalti. Auk NýOrku og Millennium Cell koma Iðntæknistofnun og Há- skóli Íslands að verkefninu. Rannís styrkir verkefnið. Rannsóknir munu leiða í ljós hvort hagkvæmara sé að flytja vetni í formi natríumbórhýdríðs eða í fljótandi formi líkt og nú tíðkast. Kæling og geymsla vetnis í fljótandi formi er kostnaðarsöm og vandasöm. Einnig er natríumbórhydríð í föstu formi ekki eldfimt, að sögn Hjalta, og af þeim sökum öruggt til flutnings. Nýjungar á sviði vetnisflutninga Kanna vinnslu bórax á Íslandi BÓRAX er efnasamband natr- íums, bórs, súrefnis og vatns, og ein af náttúrulegum uppsprett- um frumefnisins bórs. Bórax er notað í glerung og sem mýkir við lóðningu. Sömuleiðis er það notað í áburð fyrir til dæmis kál- tegundir, rófur og gulrætur. Frumefnið bór (B), sem er svart- ur málmleysingi, er einnig notað í augnskolunarvökva, í sápu, til sótthreinsunar og til lyfjagerð- ar. Helsta uppspretta bórax er kernit, steinefni sem unnið er úr námum í Suður-Kaliforníu í Bandaríkjunum. Bórax NIÐURSTÖÐUR nýrrar rannsókn- ar undir stjórn vísindamanna við Berkeley-háskólann sýna töluvert mismunandi erfðaeiginleika í örver- um sem búa við svipuð skilyrði en á mismunandi stöðum, að því er kemur fram á vefsíðu Science Daily. Þessi niðurstaða fékkst með því að taka sýnishorn af hitakærri örveru í Aust- ur-Rússlandi og í Norður-Ameríku. Örveran dregur nafn sitt af Íslandi og kallast Sulfolobus Islandicus en hún getur þrifist við mjög hátt hita- og sýrustig. Hún fannst fyrst hér á landi af þýska vísindamanninum Karl Stetter fyrir um 10 til 15 árum. Sú kenning hefur lengi verið uppi að umhverfisskilyrði á hverjum stað skýrðu breytileika örvera en ekki landfræðileg staðsetning. Rann- sóknin á Sulfolobus Islandicus leiddi aftur á móti í ljós að töluverður erfðafræðilegur munur var á örver- unum þótt umhverfisskilyrðin væru mjög svipuð. Jakob K. Kristjánsson, lífefna- fræðingur og forstjóri líftæknifyrir- tækisins Prokaria, segir rannsóknir af þessu tagi þegar hafa verið stund- aðar hér á landi. Sýni héðan og er- lendis frá hafi verið borin saman og komið í ljós breytileiki milli örver- anna, þrátt fyrir svipuð umhverfis- skilyrði. „Hins vegar verður að hafa mjög marga þætti í huga þegar um- hverfisskilyrði eru borin saman,“ benti Jakob á í samtali við Morgun- blaðið. Styrkir rannsóknir hér á landi Jakob segir niðurstöður þessarar rannsóknar fagnaðarefni. Þær ýti stoðum undir rannsóknir á örverum hér á landi og auki verðmæti þeirra. „Fjölbreytileiki örvera er mjög mik- ill og staðfesting á að landfræðilegur breytileiki sé fyrir hendi styrkir rannsóknir hér á landi og gerir þær sérstæðari en ella. Það eykur verð- mæti rannsóknanna að vita til þess að erfðaefni örvera hér á landi þarf alls ekki að vera eins og annars stað- ar við svipuð umhverfisskilyrði. Nið- urstöðurnar eru hvetjandi og styrkja stöðu auðlindarinnar,“ sagði Jakob að lokum. Nýjar niðurstöður auka verðmæti örveraRÍKISÚTVARPIÐ hefur stað-ið að svæðisútvarpssendingum á Suðurlandi í samvinnu við Út- varp Suðurlands á Selfossi und- anfarin fjögur ár. Útvarp Suð- urlands hætti starfsemi í maí sl. en hefur áfram séð um svæð- isútvarp fyrir Ríkisútvarpið. Í undirbúningi er að setja upp starfsstöð Útvarpsins í húsinu Miðgarði við Austurveg á Selfossi og unnið er að ráðn- ingu frétta- og dagskrárgerð- armanns. Hlé verður því gert á svæðisútvarpi fyrir Suðurland frá og með deginum í dag, föstudeginum 1. ágúst. RÚV undirbýr starfsstöð á Selfossi ÞJÓNUSTUVAKT Félags íslenskra bifreiðaeigenda (FÍB) verður í gangi alla helgina og miðast þjón- ustan við að aðstoða bíleigendur á ferðalagi sem þurfa á þjónustu bíla- verkstæðis að halda eða vantar varahlut í bílinn. Samtals verða 12 bílar á vegum FÍB á ferðinni um helgina, að sögn Stefáns Ásgrímssonar hjá FÍB. Þjónustan er bæði fyrir félagsmenn FÍB og aðra ferðamenn. Ef menn lenda í vandræðum geta þeir hringt í skrifstofu FÍB í síma 562-9999. Þegar ekki er vakt á skrifstofunni svarar FÍB aðstoð í síma 5-112-112. Ókeypis skoðun á fellihýsum Vátryggingafélag Íslands og Frumherji bjóða upp á ókeypis út- tekt á fellihýsum, hjólhýsum og tjaldvögnum í skoðunarstöð Frum- herja við Hestháls í Reykjavík í dag kl. 8 til 22. Er eigendum gefinn kostur á að ganga úr skugga um hvort allur búnaður sé í lagi. Morgunblaðið/Kristinn Starfsmenn Frumherja athuga hvort fellihýsi sé ekki í fullkomnu lagi. FÍB með hjálparþjón- ustu um helgina Herða stórlega leit að fíkniefnum FÍKNIEFNAEFTIRLIT verður hert verulega um helgina. Lögreglu- lið víða um land hafa fíkniefnaleitarhunda í sínum röðum og eru þeir á annan tug á landsvísu. Samkvæmt upplýsingum frá ríkislögreglu- stjóra stýrir embættið m.a. í samvinnu við tollstjórann í Reykjavík, fíkniefnaeftirliti um þessa helgi og hefur lagt til teymi fíkniefna- lögreglumanna og leitarhunda sem aðstoða lögreglu á landsbyggð- inni. Því til viðbótar hefur ríkislögreglustjóri, með stuðningi dóms- málaráðuneytisins, komið upp hópum sérþjálfaðra lögreglumanna úr fíkniefnadeild lögreglunnar í Reykjavík og frá lögreglunni í Hafnar- firði. Þeir munu skipta með sér verkum og fara um landið og vera lög- reglu á hverjum stað til aðstoðar. Sérstaklega verður fylgst með útisamkomum um land allt og stöð- um þar sem fólk safnast saman til að ferðast með flugvélum eða rút- um á samkomustaðina, s.s. Þorlákshöfn og Bakkaflugvelli.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.