Morgunblaðið - 01.08.2003, Blaðsíða 19
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. ÁGÚST 2003 19
Um verslunarmannahelgina held-
ur hljómsveitin Mór tvenna tónleika
á Akureyri. Þeir verða á laugardags-
og sunnudagskvöld og hefjast kl. 21 í
Hlöðunni við Litla-Garð. Hljóm-
sveitina skipa Þórhildur Örvars-
dóttir söngkona, Kristján Edelstein
á gítar, Stefán Ingólfsson á bassa og
Halldór Gunnlaugur Hauksson á
trommur. Á tónleikunum flytja þau
efnisskrá með íslenskum þjóðlögum
í frumlegum popp-djassútsetn-
ingum.
Á NÆSTUNNI
Þórunn Ósk Marinósdóttir víólu-
leikari heldur tónleika í Ketilhús-
inu í hádeginu í dag, föstudaginn 1.
ágúst kl. 12. Á efnisskránni eru
verk eftir Áskel Másson, J.S. Bach
og Paul Hindemith.
Í dag kl. 18–20 verður uppákoma
á Akureyri sem hefst á torginu við
verslunina Frúin í Hamborg og
mun berast á vinnustofu Aðal-
heiðar S. Eysteinsdóttur í listagili.
Þetta verður síðasta sýningin af 40
sem Aðalheiður hefur staðið fyrir
víða um heim undanfarna 39 daga.
Þema uppákomunar er tregi og
hefst með brúðkjólasýningu frá
Frúnni í hamborg. Hjálmar Brynj-
ólfsson leikur á harmónikku og
leiðir dömurnar með brúðarmars-
inum á vinnustofu Aðalheiðar. Þar
mun Arnbjörg Valsdóttir syngja
dægurlög og Þórunn Ólafsdóttir
flytja tregaljóð. Á vinnustofunni
verða til sýnis verk sem Aðalheiður
hefur unnið að undanförnu. Að-
alheiður hvetur sem flesta að taka
þátt í treganum og mæta stundvís-
lega kl.18.00 á torgið.
Í DAG
NÚ þegar mesta ferðahelgi ársins,
verslunarmannahelgin, er að ganga
í garð eru ökumenn minntir sér-
staklega á það að horfa fram á veg-
inn og standa saman gegn umferð-
arslysum. Jón Oddgeir Guðmunds-
son á Akureyri hefur gefið bíla-
bænina út í rúm 30 ár og hana er að
finna í þúsundum ökutækja.
Jón Oddgeir sagði það vel við
hæfi á þessum tímamótum að
minna ökumenn á orð bílabænar-
innar. „Orð hennar hafa talað til
margra sem hafa viljað aka of greitt
og þeim er einnig ætlað að minna
bílstjóra á ábyrgð þeirra í umferð-
inni. Við skulum vona að menn aki
varlega og að helgin verði slysa-
laus.“
Jón Oddgeir hefur einnig gefið út
öskju með „orði guðs til þín“ og
dagatal með ritningargreinum fyrir
alla daga ársins. Þá stendur hann
fyrir Orði dagsins þar sem fólk get-
ur hringt í símsvara, 462 1840, og
hlustað á kristilega hugleiðingu.
Bílabænin í þúsundum
ökutækja
Bílstjórar
minntir á
ábyrgð sína
BRESKA skemmtiferðaskipið Adonia lagðist að
Oddeyrarbryggju snemma í gærmorgun. Skipið
er engin smásmíði, eða rúmlega 232 metra langt,
um 32 metra breitt og 77.500 brúttótonn. Þetta
er jafnframt stærsta skip sem lagst hefur að
bryggju á Akureyri. Með skipinu eru tæplega
2.000 farþegar, flestir frá Bretlandi og í áhöfn
eru um 870 manns. Flestir farþeganna stigu upp
í hópferðabíla og héldu í skoðunarferðir austur
fyrir Akureyri. Á milli 1.300 og 1.400 farþegar
fóru í bíltúr á 26 stórum hópferðabílum. Helm-
ingurinn fór í Mývatnssveit en aðrir að Goðafossi
og í Laufás.
Aðeins tvisvar áður hafa skip af svipaðri stærð
komið til Akureyrar en þau lágu bæði við festar
á Pollinum. Adonia kom til frá Reykjavík en hélt
frá Akureyri til Þrándheims í Noregi um miðjan
daginn. Morgunblaðið/Kristján
Risaskip við bryggju
Dagana 14. til 17. ágúst nk. verður
í 4. sinn haldið söngnámskeið að
Rimum í Svarfaðardal undir heitinu
Söngur í Svarfaðardal 2003. Dóra
Reyndal söngkennari við Söngskól-
ann í Reykjavík og Dario Vagliengo
frá Mozarteum-tónlistarháskólanum
í Salzburg verða aðalkennarar en
þau eru mörgum ungum, íslenskum
söngvurum og söngnemendum að
góðu kunn. Námskeiðið verður sem
fyrr á masterklassformi og og fer
kennslan fram í hóp- og einkatímum.
Unnið verður með söngtækni og
túlkun jöfnum höndum og lýkur með
tónleikum í Dalvíkurkirkju. Gist
verður að Skeiði í Svarfaðardal og
fer skráning fram þar hjá Myriam
Dalstein í síma 466 1636.
Á NÆSTUNNI
N
O
N
N
I
O
G
M
A
N
N
I
I Y
D
D
A
•
1
0
0
0
0
•
s
ia
.is
Nánari upplýsingar á www.lv.is og í síma 515 9000.
Ferðamenn velkomnir!
Virkjunarsvæði eru kjörin fyrir ferðamennsku og útivist.
Ímynd Íslands er hreint land og náttúrulegt.
Umhverfisvæn og sjálfbær orkuvinnsla er einn af
hornsteinum þeirrar ímyndar.
„Hvað er með Ásum?“
S‡ning í Laxárstö› í A›aldal.
Höggmyndir og fró›leikur um
go›in og heimsmynd fleirra.
Opi› alla eftirmi›daga.
Verið einnig
velkomin í Kröflu,
Blöndu, Búrfell
og Hrauneyjafoss!
Fáðu orð í eyra – leggðu orð í belg!
Umræ›an um virkjanir og umhverfismál
á s‡ningu í Ljósafossstö› vi› Sog.
Opi› alla eftirmi›daga.
Kynnist Kárahnjúkaframkvæmdunum
og náttúrunni norðan Vatnajökuls
Uppl‡singami›stö› í félagsheimilinu Végar›i
í Fljótsdal.
Opi› alla daga í sumar frá kl. 10-16.
Kórsöngur í Laxárstöð!
Laugardaginn 2. ágúst kl. 14.00 mun stúlknakór frá Neustadt í fi‡skalandi
syngja fyrir gesti. Stö›in er opin alla helgina frá kl. 13.00 til 18.00.
A›gangur ókeypis – veri› velkomin.