Morgunblaðið - 01.08.2003, Blaðsíða 49

Morgunblaðið - 01.08.2003, Blaðsíða 49
FÓLK Í FRÉTTUM MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. ÁGÚST 2003 49 bílar ALLTAF Á MIÐVIKUDÖGUM SMÁAUGLÝSING AÐEINS 995 KR.* Áskrifendum Morgunblaðsins býðst smáauglýsing fyrir aðeins 995 kr.* Pantanafrestur er til kl. 12 á þriðjudögum. * 4 línur og mynd. HAFÐU SAMBAND! Auglýsingadeild Morgunblaðsins sími 569 1111 eða augl@mbl.is Á FIMMTUDAGINNALLTAF Á MIÐVIKUDÖGUM Nói albínói Frumleg og vel gerð mynd í alla staði. Magn- að byrjandaverk. Nú sýnd með enskum texta. (S.V.) Háskólabíó. Andardráttur (Respiro) Mynd sem er sterk, falleg, tilgerðarlaus. (H.L.) Háskólabíó. Símaklefinn (Phone Booth) Óvenjuleg spennumynd. Fjallar undir niðri um falska öryggiskennd og næfurþunna grímu yfirborðsmennskunnar. (S.V.)  Smárabíó, Regnboginn. Tortímandinn 3 (Terminator 3) Skopskynið er horfið en átökin eru jafn- hressileg sem fyrr. (S.V.)  Regnboginn, Smárabíó, Laugarásbíó, Borgarbíó. Dökkblár (Dark Blue) Spilling í lögregluliði Los Angeles-borgar er slitið efni. (S.V.) ½ Háskólabíó. Grundvallaratriði (Basic) Kvikmyndin er ekki sá dæmigerði hernaðar- tryllir sem hún lítur út fyrir að vera, heldur nokkurs konar ráðgáta. (H.J.) ½ Háskólabíó, Sambíóin. Matrix endurhlaðið (The Matrix Reloaded) Á heildina litið er Matrix endurhlaðið langt frá því að vera jafnheilsteypt, -öguð og -hug- vekjandi og forverinn. (H.J.)  Sambíóin. Töfrabúðingurinn Byggð á gömlu áströlsku ævintýri. Ekkert stórkostlegt listaverk, hún er lítil og bara ansi lífleg og hjartnæm teiknimynd. (H.L.)  Smárabíó. Ussss Raunveruleikinn fær langt nef frá ungu og óreyndu en oft fyndnu og drífandi íslensku kvikmyndagerðarfólki. (S.V.)  ½ Háskólabíó. Hollywood endir (Hollywood Ending) Þunnur þrettándi. Auðvitað bráðfyndin af og til, en oft og tíðum illa leikin.(H.L.) Háskólabíó. Hulk Útlitslega er Hulk vel útfærður en það vantar í hann þyngdartilfinninguna.(H.J.) Sambíóin, Háskólabíó. Kengúru-Kalli (Kangaroo Jack) Eins brandara, fjölskylduvæn Bruckheimer- mynd um þjófótta kengúru og tvo hrakfalla- bálka. Fyrir smáfólkið. (S.V.) Sambíóin. Lizzie McGuire (The Lizzie McGuire Movie) Afskaplega stöðluð, klippt og skorin ung- lingamynd. Leikkonan Duff býr þó yfir næg- um sjarma til að halda myndinni uppi. (H.J.) Sambíóin. Reiðistjórnun (Anger Management) Sandler kominn í gamla, góða formið. Gamli, góði Nicholson hins vegar víðsfjarri í hugmyndasnauðri en ágætis dægrastyttingu. (H.L.) Regnboginn. Tengdaforeldrarnir (The In-Laws) Tengdafeður sem aldrei hafa hist (Douglas og Brooks), eru líflitlir í slakri endurgerð gam- anmyndar frá áttunda áratugnum. (H.J.) Laugarásbíó, Regnboginn. Það sem stúlka þarfnast ((What A Girl Wants) Í það heila tekið lagleg fjölskyldumynd sem fær draumaverksmiðjuna til að standa undir nafni. (S.V.) Sambíóin Álfabakka, Kringlunni og á Ak- ureyri Englar Kalla gefa í botn (Charlie’s Angels: Full Throttle) Kvenhetjur sem virðast ekki vera annars megnugar en að geta sparkað hátt. (H.J.) Smárabíó, Laugarásbíó, Regnboginn, Borgarbíó Akureyri. Of fljót og fífldjörf (2 Fast 2 Furious) Eftir situr pirringur í garð þeirrar vanvitalegu ranghugmyndar sem liggur myndinni til grundvallar, þ.e. að bílar séu leikföng. (H.J.) Sambíóin. BÍÓIN Í BORGINNI Sæbjörn Valdimarsson/Hildur Loftsdóttir/Heiða Jóhannsdóttir  Meistaraverk  Ómissandi  Miðjumoð  Tímasóun 0 Botninn Amanda Bynes fer með aðalhlutverkið í myndinni Það sem stúlka þarfnast. ÉG HELD það sé óhætt að segja að Blood and Fire sé jafn- besta plötuútgáfa Bretlands- eyja og þó víðar væri leitað; nærfellt allar plötur sem fyrir- tækið hefur gef- ið út eru skot- held snilld en það sérhæfir sig einmitt í að gefa út gamalt reggí. Með nýjum plötum frá Blood and Fire er In The Dub Zone sem skrifuð er á Ja-Man Allstars en þar eru saman komnar tvær goðsagna- kenndar dub-skífur úr smiðju Manzie „Ja-Man“ Swaby, Ja-Man Dub og King’s Dub, með aukalögum. Mannskapurinn á skífunni er frábær, nokkrir af bestu tón- listarmönnum þess tíma á Jamaíka. Ef eitthvað er út á plötuna að setja þá er það að ekki hafi verið til nema örfá brot af söng; sjá til að mynda hve sá litli söngur sem heyrist lyftir „Weak Heart Drop“.  Tónlist Skot- held snilld Ja-Man Allstars In The Dub Zone Blood and Fire Tvær goðsagnakenndar dub-skífur eftir Manzie „Ja-Man“ Swaby endurútgefnar. Árni Matthíasson Reuters/Petr Josek Mick Jagger sést hér veifa til aðdáenda í Prag en kappinn var á leið í sex- tugsafmæli sitt sem haldið var í tónlistarklúbbi í miðborginni síðastliðið sunnudagskvöld. Með honum er ný kærasta hans, L’Wren Scott.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.