Morgunblaðið - 01.08.2003, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. ÁGÚST 2003 43
DAGBÓK
Súlumót frá formaco
● úr pappa
● einföld og þægileg í notkun
● fæst í mörgum lengdum
og breiddum
Gylfaflöt 24-30 • 112 Reykjavík
Sími 577 2050 • Fax 577 2055
formaco@formaco.is • www.formaco.is
STJÖRNUSPÁ
Frances Drake
LJÓN
Afmælisbörn dagsins:
Þú býrð yfir mikilli orku
og hefur forgangsröðun þína
á hreinu. Eiginleiki þinn
til þess að sameina ímynd-
unarafl þitt og hæfileika
kemur sér vel.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Þú þarft að fá eilítið næði
heimafyrir. Þú skalt forðast
samræður um stjórnmál eins
og heitan eldinn í dag.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Félagslíf þitt er í miklum
blóma þessa stundina. Nú
færð þú tækifæri til þess að
sjá hve mikill kærleikur er í
þínu lífi dags daglega.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Þú þarft að sýna mikla þol-
inmæði í samskiptum þínum
við vini og kunningja í dag.
Tilfinningarnar eiga það til að
hlaupa með þig í gönur.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Lífið brosir við þér í dag! Það
er ekki öllu lokið, eins og þú
hélst. Þú berð þig vel og því er
tilvalið að versla ný föt.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Allt sem viðkemur þínu and-
lega lífi er í brennidepli þessa
stundina. Það mun reynast
þér auðveldara en ella að sýna
öðrum væntumþykju í dag.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Þú finnur fyrir auknum vin-
sældum. Það væri ekki úr
vegi að bjóða vinum heim og
halda veislu. Mundu að það
þarf ekki allt að vera full-
komið.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Það skiptir engu máli hvaða
starfi þú gegnir, listir munu
skipa aukinn sess í þínu lífi
upp frá þessum degi.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Þú laðast að óvenjulegu fólki
og óvenjulegri menningu. Í
dag væri því kjörið að fara á
óvenjulega tónleika eða upp-
lifa óvenjulega list.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Nú mega peningarnir byrja
að koma í kassann. Næstu
vikurnar er tilvalið að sækja
um lán eða styrki.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Þú átt auðvelt með að hlusta á
aðra í dag. Aðrir eru einnig
tilbúnir til þess að hlusta á
þig. Nú væri kjörið að tjá til-
finningar sínar í garð nákom-
inna.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Miklar kröfur eru gerðar til
þín í vinnunni. Til allrar ham-
ingju er samband þitt við
samstarfsfólk og viðskiptavini
mjög gott.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Þú skalt forðast það í lengstu
lög að viðra þær skoðanir þín-
ar sem kunna að stangast á
við stefnu yfirmanna þinna.
Gættu þín.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
Morgunblaðið/Ómar
Í VORÞEYNUM
Á meðan brimið þvær hin skreipu sker
og skýjaflotar sigla yfir lönd,
þá spyrja dægrin: Hvers vegna ertu hér,
hafrekið sprek á annarlegri strönd?
Það krækilyng, sem eitt sinn óx við klett
og átti að vinum gamburmosa og stein,
er illa rætt og undarlega sett
hjá aldintré með þunga og frjóa grein.
Hinn rammi safi rennur frjáls í gegn
um rót, er stóð í sinni moldu kyr,
en öðrum finnst sig vanta vaxtarmegn,
þótt vorið fljúgi í lofti hraðan byr.
Drýpur af hússins upsum erlent regn,
ókunnir vindar kveina þar við dyr.
---
Jón Helgason
LJÓÐABROT
ÁRNAÐ HEILLA
60 ÁRA afmæli. JónínaH. Jónsdóttir leik-
kona og sjúkraliði verður
sextug á morgun, laug-
ardaginn 2. ágúst. Eigin-
maður Jónínu, Jónas Guð-
mundsson, rithöfundur og
listmálari, lést 9. júní 1985.
Jónína tekur á móti gestum
á afmælisdaginn í Skipholti
70 kl. 15.
80 ÁRA afmæli. Ámorgun, laugardag-
inn 2. ágúst, verður átt-
ræður Ágúst Guðjónsson
múrarameistari. Af því
tilefni tekur hann og eigin-
kona hans, Svanhvít Giss-
urardóttir, á móti ætt-
ingjum og vinum í Blómasal
Loftleiða kl. 15 á afmæl-
isdaginn.
SEIÐUR dagsins var
bruggaður í spilaklúbbi í
Kína af Fu nokkrum
Zhong, sem talinn er með
þeim betri þar í landi.
Austur gefur; NS á
hættu.
Norður
♠ K106
♥ --
♦ K1097654
♣D64
Vestur Austur
♠ D542 ♠ 93
♥ KG62 ♥ Á10953
♦ D ♦ ÁG832
♣8753 ♣K
Suður
♠ ÁG87
♥ D874
♦ --
♣ÁG1092
Vestur Norður Austur Suður
-- -- 1 hjarta 2 lauf
4 hjörtu 4 grönd Pass 5 lauf
Dobl Allir pass
Ekki er fullkomlega ljóst
hvað norður vildi sagt hafa
með fjórum gröndum, en
annað hvort var hann að
gefa makker undir fótinn
með slemmu, eða sýna tíg-
ul til hliðar við þrílit í laufi.
Hvað sem því líður, varð
Fu sagnhafi í fimm laufum
dobluðum.
Vestur lyfti hjartakóngi
í útspilinu til að „kíkja á
blindan“ og lagði þar með
grunninn að fádæmasjald-
gæfri endastöðu. Fu
trompaði í borði, stakk tíg-
ul heim og hjarta í borði.
Spilaði svo laufdrottningu
og tók öll trompin þegar
kóngurinn kom blankur.
Fu taldi víst að tígul-
drottningin væri heið-
arlegt einspil og reiknaði
með að skipting vesturs
væri 4-4-1-4. Hann lagði
því af stað með spaðagosa
og lét hann fara þegar
vestur dúkkaði (vestur má
ekki leggja á, því nían fell-
ur í austur). Svo kom spaði
á tíuna og kóngurinn í
þessari stöðu:
Norður
♠ K
♥ --
♦ K109
♣ --
Vestur Austur
♠ D5 ♠ --
♥ G6 ♥ Á10
♦ -- ♦ ÁG
♣ -- ♣ --
Suður
♠ Á8
♥ D8
♦ --
♣ --
Spaðakóngurinn setur
magnaðan þrýsting á aust-
ur. Ef hann hendir tíg-
ulgosa, verður honum spil-
að inn á blankan tígulás og
þá fær suður slag á hjarta-
drottningu. Hendi austur
hins vegar hjartatíu, er
spaðakóngurinn yfirtekinn
og hjarta spilað. Í því af-
brigði fær blindur síðasta
slaginn á tígulkóng.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman í Keflavíkurkirkju
12. apríl sl. af sr. Sigfúsi
Baldvini Ingvasyni Margrét
Ólína Gunnarsdóttir og Jós-
ef Matthías Jökulsson. Með
þeim á myndinni er dóttir
þeirra, Ísabella Rún Jós-
efsdóttir. Heimili þeirra er á
Austurgötu 17, Keflavík.
1. d4 Rf6 2. c4 e6 3. Rc3
Bb4 4. f3 d5 5. a3 Bxc3+
6. bxc3 0–0 7. cxd5 exd5 8.
e3 c5 9. Bd3 b6 10. Re2
Ba6 11. Bxa6 Rxa6 12. 0–0
Rc7 13. Rg3 Re6
14. Bb2 Hc8 15.
e4 cxd4 16. cxd4
g6 17. Dd3 Rf4
18. Dd2 R6h5
19. Rxh5 Rxh5
20. Hae1 Dd7
21. f4 Da4 22.
exd5 Hc2 23.
Dd1 Dc4 24. Ba1
Da2 25. Df3 Rf6
26. d6 Dd5 27.
Dxd5 Rxd5 28.
He5 Rf6 29. f5
g5 30. He7 Hd8
Staðan kom
upp í A-flokki
skákhátíðarinnar
í Pardubice í Tékklandi.
Gennady Gutman (2.513)
hafði hvítt gegn Peter Acs
(2.604). 31. d5! Rxd5 31.
...Hxd6 32. Be5 og hvítur
vinnur. 32. f6 Hc6 32.
...Rxe7 33. fxe7 og hvítur
vinnur. 33. Hfe1 Kf8 34.
d7 Rc7 35. Be5 Re6 36.
Hd1 og svartur gafst upp.
SKÁK
Umsjón Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
KIRKJUSTARF
Grafarvogskirkja. AL-ANON-fundur í kvöld
kl. 20. AA-hópur hittist kl. 11 á morgun,
laugardag.
Landakirkja. Kl. 14 guðsþjónusta við
klettinn í Herjólfsdal við setningu Þjóðhá-
tíðar. Kór Landakirkju syngur og félagar úr
Lúðrasveit Vestmannaeyja spila undir
stjórn Stefáns Sigurjónssonar, prestur sr.
Þorvaldur Víðisson.
Boðunarkirkjan, Hlíðarsmára 9. Samkom-
ur alla laugardaga kl. 11. Bænastund alla
þriðjudaga kl. 20. Biblíufræðsla allan sól-
arhringinn á Útvarpi Boðun, FM 105,5. All-
ir alltaf velkomnir.
Fríkirkjan KEFAS. Sunnudaginn 3. ágúst
fellur samkoma niður vegna verslunar-
mannahelgar.
Safnaðarstarf