Morgunblaðið - 01.08.2003, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 01.08.2003, Blaðsíða 9
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. ÁGÚST 2003 9 Bankastræti 14, sími 552 1555 Fallegar peysur og silkipeysur frá Síðustu dagar útsölunnar Lokað á morgun, laugardag Eddufelli 2 Bæjarlind 6 s. 557 1730 s. 554 7030 Opið mán.—fös. frá kl. 10—18 Opið virka daga frá kl. 10.00–18.00, laugardaga frá kl. 10.00–16.00. 50% afsláttur Glæsilegur ferðafatnaður á hálfvirði Engjateigi 5, sími 581 2141. http://www.micasa.is Spænskt húsgagnaúrval Túnfisksteikur 1.500 kr. kg. Harðfiskur, barinn og óbarinn mikið úrval Getum vacumpakkað fyrir útileguna Mikið úrval af grillfiski sem auðvelt er að taka með í ferðalagið Stór Hornafjarðarhumar 3.600 kr. kg. Fiskkóngurinn mælir með í útileguna Fiskbúðin Vör Höfðabakka 1 • sími 587 5070 Öll verð pr/kg Ný sending Daniel Hechter bolir Mikið úrval Póló- og rúllukragabolir kr. 2.500 Laugavegi 34, sími 551 4301 ÞJÓÐARÁTAK Vátryggingarfélags Íslands gegn umferðarslysum hefur staðið yfir undanfarnar vikur og lýkur því nú í ágúst. Aðrar áherslur hafa verið í átakinu nú en áður og sjónum beint að afleiðingum slysa og þeim sem koma að slysum en birst hafa auglýsingar með fólki sem komið hefur að umferðaslysum, t.d slökkviliðsmanni að klippa í sundur ónýtan bíl og bílstjóra sem dregur burt bíla sem lent hafa í árekstri. Að sögn Ragnheiðar Davíðsdótt- ur, forvarnarfulltrúa hjá Vátrygg- ingarfélagi Íslands, voru aðrar leiðir farnar í auglýsingum nú en áður, leitað var til fagmanna sem koma að umferðarslysum með einum eða öðrum hætti og hafa því aðra sýn á umferðarslys. „Við vildum vekja at- hygli á því hve margir koma að bíl- slysi og sýna að bílslys er ekki bara einkamál þess sem slasast heldur snertir þetta vini hans og ættingja og marga aðra. Þetta er þriðja árið sem við stöndum fyrir þjóðarátaki VÍS og hingað til höfum við leitað til þjóðþekktra einstaklinga en við ákváðum að fara aðra leið að þessu sinni.“ Ragnheiður segir að auglýs- ingarnar, sem birst hafa í blöðum undanfarnar vikur, hafi vakið sterk viðbrögð og að auglýsingarnar hafi jafnvel komið óþægilega við fólk. VÍS hefur einnig staðið fyrir aug- lýsingum í sjónvarpi að undanförnu um ungan mann. Honum gengur allt í haginn þar til hann ekur drukkinn, kemst einn lífs af og er lamaður það sem eftir er ævinnar. Auglýsingin er í kaldhæðnislegum tón, t.a.m. er talað um hvað strákurinn er hepp- inn að geta setið og horft út um gluggann það sem eftir er ævinnar. Í lok auglýsingarinnar segir svo að taka verði heppnina úr umferð. Hefur vakið sterk viðbrögð „Þessi auglýsing hefur einnig vakið sterk viðbrögð,“ segir Ragn- heiður. „Það er alltaf spurning hvernig eigi að ná til ungs fólks. Við ákváðum að setja upp ákveðinn raunveruleika og sýna fram á að stundum geta slysin breytt lífi fólks ótrúlega mikið. Ég þekki það af eig- in raun frá ungu fólki að örkuml og lömun er það versta sem ungt fólk getur hugsað sér, í hugum margra er það verra en dauðinn. Viðbrögðin sem við fengum voru sterk, enda hefðum við ekki verið ánægð með neitt annað, einhliða lof eða engin viðbrögð hefðu til dæmis verið von- brigði fyrir okkur,“ segir Ragnheið- ur. Þjóðarátak VÍS gegn umferðarslysum stendur yfir Horft til afleiðinga slysa meir en áður Morgunblaðið/Halldór Kolbeins Anton Ársæll Gunnarsson dregur burt ónýta bíla af slysstað. Hann er einn þeirra sem komið hafa fram í auglýsingum tengdum þjóðarátaki VÍS. NÝJA Þjórsárbrúin er óðum að taka á sig mynd, en svona leit hún út séð úr lofti á dögunum þegar Guðmundur Viðarsson ljósmyndari og Elíeser Jónsson flugmaður áttu leið þar hjá. Elíeser rekur Flugstöð- ina ehf. og hafa þeir félagar tekið myndir í frístundum af hinum ýmsu framkvæmdasvæðum til að fylgjast með þróun þeirra en það gefur skemmtilegt yfirlit yfir sögu fram- kvæmdanna þegar fram líða stund- ir. „Við höfum verið meira til gam- ans að fylgjast með framkvæmdum úr lofti. Myndirnar eru teknar beint niður, þetta eru ekki kortagerðar- myndir, heldur almennar ljós- myndir,“ segir Guðmundur. Hann segir að þeir fari með stutt- um fyrirvara og taki myndir af því helsta sem sé að gerast og fari jafn- framt aftur að nokkrum tíma liðn- um. Þeir hafa tekið svona myndir í fjögur ár. „Landmælingar voru mikið í þessu hér áður fyrr en eru hættir því og kaupa þetta annars staðar frá. Við höfum til dæmis hug á að fara aftur og taka myndir af Þjórsárbrú.“ Ljósmynd/Guðmundur Viðarsson Fylgst með fram- kvæmdum úr lofti BERGÞÓR Ólason hefur verið ráðinn aðstoðarmaður Sturlu Böðvarssonar samgönguráðherra. Bergþór er 28 ára gamall, fædd- ur á Akranesi en ólst upp í Borgar- nesi. Bergþór er að ljúka viðskipta- fræðinámi frá Há- skóla Íslands. Bergþór hefur starfað sem ráð- gjafi hjá Lýsingu hf. og þar á undan hjá Heklu hf. sam- hliða námi. Berg- þór hefur setið í stjórn Sambands ungra sjálfstæðismanna (SUS) síðan 1999 og var formaður Egils, félags ungra sjálfstæðismanna í Borgarnesi, 1997-1999. Bergþór var formaður Ís- landsdeildar NESU (samtök nor- rænna viðskipta- og hagfræðinema) 1999-2000 og í stjórn Mágusar, félags viðskiptafræðinema, 1999-2000. Jakob Falur Garðarsson, sem gegnt hefur starfi aðstoðarmanns Sturlu, er að hefja störf fyrir sam- gönguráðuneytið í sendiráði Íslands í Brussel. Nýr aðstoðar- maður sam- gönguráðherra Bergþór Ólason að- stoðarmaður sam- gönguráðherra. UMRÆÐA um lyf og lyfjanotkunn beinist allt of oft að háum lyfjakostn- aði en sjaldan hugsað út í að með réttri notkun lyfja sé verið að spara mikla peninga í framtíðinni, að mati nýstofnaðs áhugahóps um lyfjahag- fræði sem ætlar að berjast fyrir já- kvæðari umfjöllun um lyfjamál. „Sú umræða sem á sér stað í þjóð- félaginu um lyfjamál yfirleitt er mjög einsleit,“ segir Davíð Ingason, lyfjafræðingur og formaður áhuga- hóps um lyfjahagfræði. „Hún virðist ganga algerlega út á það að lyf séu af hinu illa. Við lyfjafræðingar upplif- um það þannig. Einnig að lyf séu ekkert annað en kostnaður.“ Davíð segir að auðvelt sé að sjá ná- kvæmlega lyfjakostnað svo það sé auðvelt að nota háar tölur í því sam- hengi sem skýringar á miklum kostnaði: „Ég hef á tilfinningunni að stundum þurfi að finna einhvern blóraböggul þegar rætt er um mik- inn kostnað við heilbrigðiskerfið.“ Jákvæðar hliðar lyfjanotkunar vilja gjarnan gleymast, að sögn Dav- íðs: „Það sem við viljum tala um líka er að þarna er mikinn hagnað að sækja. Það er engin tilviljun að upp- skurðir vegna magasára eru nánast horfnir í dag. Þetta voru mjög al- gengar skurðaðgerðir og kostuðu þjóðfélagið mikla peninga. Þessar aðgerðir eru nánast horfnar, og er það árangur réttrar lyfjanotkunar.“ Davíð segir að það sama eigi við um sumar tegundir hjartaáfalla, sem hefur fækkað mikið eftir að farið var að nota háþrýstilyf á réttan hátt. Áhugahópurinn mun meðal ann- ars standa fyrir fræðslufundum inn- an Lyfjafræðingafélagsins, fjalla um rannsóknir sem sýna fram á áhrif réttrar lyfjanotkunar. Áhugahópur um lyfjahagfræði vill jákvæða umræðu Segir umræðuna of einsleita ATVINNA mbl.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.