Morgunblaðið - 01.08.2003, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 01.08.2003, Blaðsíða 21
AUSTURLAND MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. ÁGÚST 2003 21 SÍÐASTA STOPPIÐ FYRIR FERÐINA F í t o n / S Í A F I 0 0 7 2 2 7 ÍBÚAR í Hallormsstað una nú hag sínum illa vegna stóraukinnar um- ferðar um Upphéraðsveg gegnum skóginn, m.a. þungaflutningafarar- tækja á leið til og frá Fljótsdals- heiði og virkjanasvæðinu við Kára- hnjúka. Hafa menn ekki síst áhyggjur af umferðarhraða, því ekki er óalgengt að ekið sé á 80 til 90 km hraða við þéttbýlið og Atla- víkurafleggjarann. Umferð um Upphéraðsveg á eftir að fara mjög vaxandi eftir því sem framkvæmdaþungi við Kárahnjúka- virkjun eykst. Svo aðeins séu nefnd tvö dæmi bíða nú á höfninni á Reyðarfirði um 600 farmar til flutnings inn í Kára- hnjúka og flytja á um 7.000 tonn af steypustyrktarstáli í meginstíflu virkjunarinnar. Allt fer þetta um Egilsstaði og Velli, gegnum Hall- ormsstað, yfir brúna á Jökulsá og um Fljótsdalsheiði inn að virkjun. Um fimmtíu manns búa að stað- aldri í skóginum ofan Upphéraðs- vegar og eru foreldrar mjög áhyggjufullir vegna barna sinna, sem leita bæði í að leika sér í skóg- inum neðan vegar og í verslunina Laufið, sem einnig stendur neðan Upphéraðsvegar. Menn hlíti reglum um hámarkshraða Í þriðju grein auglýsingar um umferð á Austur-Héraði sem sam- þykkt var af Lögreglustjóranum á Seyðisfirði 10. október 2002, segir um ökuhraða í þéttbýli að á Upp- héraðsvegi við vegamót við Atlavík og 300 m norðan við tengingu að Hallormsstaðarskóla, skuli ökuhraði að jafnaði vera 50 km/klst. Jón Guðmundsson, íbúi í Hall- ormsstað, segist margoft hafa orðið var við að ekið sé á ofsahraða gegn- um skóginn. „Ég þekki dæmi þess að ekið hafi verið á 130 km hraða hér inni í skóginum og um daginn sá ég flutningabíl með vörubíl ofan á og stóran malarflutningabíl fara í gegn á rúmlega 90 km hraða. Þetta eru gígantískir flutningar sem allir fara um Hallormsstað,“ segir Jón. „Það sem við íbúarnir myndum vilja er að þeir sem standa í þessum flutningum og aðrir sem fara hér um svæðið, svo sem eins og ferða- menn og heimamenn, hlíti reglum um hámarkshraða í gegnum staðinn svo maður sé sæmilega öruggur um sig og fjölskyldu sína. Börnin okkar eru að hlaupa í sjoppuna og vilja hjóla yfir veginn, sem er auðvitað útilokað mál og manni er alls ekki sama. Við höldum börnunum okkar vísvitandi frá veginum.“ Jón segir lögreglu af og til við mælingar í skóginum en hann myndi gjarnan vilja sjá hana meira á svæðinu. „Lögreglan mun eitt- hvað hafa rætt við þá sem sjá um flutningana hér í gegn og mér finnst eins og margir þeirra hafi nú slegið af síðan,“ segir Jón. „Við vilj- um sjá eitthvað gerast í því að hrað- anum sé haldið niðri.“ Veigra sér við að vera með börn í skóginum „Ég hef verið við Trjásafnið og verslunina Laufið að hraðamæla,“ segir Reynir Arnórsson, umferðar- fulltrúi Austurlands. „Hraðinn á sumum er skuggalegur, allt að því 90 km/klst. fram hjá versluninni. Ég á sjálfur sex börn og hef undanfarin ár verið af og til í Atlavík með þau. Mér finnst þetta ægilegt og ég skil fólkið sem á heima fyrir ofan veginn afskaplega vel. Í samtölum mínum við ferðafólk hefur komið fram að það veigri sér við að vera með börn í skóginum við þessar aðstæður. Hallormsstaðarskógur og Atlavík eru paradís landsmanna og við þurfum að virða það og ná niður umferðarhraðanum,“ segir Reynir. Umferðarfulltrúinn vill færa 50 km hraðatakmörkin inn fyrir Atla- vík og segir hraðann í útmörkum skógarins ekki eiga að vera hærri en 70. „Það er 90 km hraði eftir að þú kemur fram hjá Trjásafninu og þar með hjá afleggjaranum niður í Atlavík og ekki biðskylda upp úr Atlavík. Ég er búinn að senda Vegagerðinni álit frá mér og íbúum um að þarna vanti biðskyldu og að lækka þurfi hraðann.“ Samkvæmt hraðamælingum sem umferðarfulltrúinn gerði í Hall- ormsstað á tímabilinu 11. júní til 19. júlí sl., virðist sem 33% ökumanna aki á 50 km hraða eða minna, 51% aka á hraðanum 50 til 70 km/klst., 15,5% á milli 70 og 90 km hraða og 0,5% ökumanna á yfir 90 km/klst. í gegnum skóginn. Lögregla hefur einnig hraðamælt á svæðinu en ekki orðið sérstaklega vör við hraðakst- ur. Byrjað að huga að mótvægisaðgerðum Í úrskurði skipulagsstjóra, sem staðfestur var af umhverfisráð- herra, um mótvægisaðgerðir vegna virkjunarframkvæmdanna við Kárahnjúka, segir að Vegagerð skuli í samráði við Skógrækt rík- isins og Landsvirkjun standa að mótvægisaðgerðum vegna umferðar um Hallormsstaðarskóg. Þór Þorfinnsson, skógarvörður í Hallormsstað, segir mótvægisað- gerðirnar muni einkum felast í að leggja göngustíg meðfram veginum frá Atlavík út að versluninni og einnig standi til að setja gangbraut- ar- og hraðamerkingar. Þór segir ekki ljóst hvenær verður farið í framkvæmdir, en vonast til að sjá þær hefjast sem allra fyrst. „Við Hallormsstaðarbúar höfum undanfarið verið að átta okkur á þessari miklu aukningu á umferð og þeim mikla hraða sem er í gegn. Þetta snýst þó ekki einvörðungu um okkur, heldur einnig um ferðafólkið sem dvelur í skóginum á sumrin og skiptir tugþúsundum,“ segir Þór. Hann segist jafnframt undrast að ferðafólk nýti sér ekki gönguleið með Lagarfljóti milli Atlavíkur og verslunarinnar Laufsins, heldur hneigist menn til að ganga eftir Upphéraðsvegi á milli. En það eru fleiri sem líða fyrir umferðarþungann, því fugladauði er mikill á veginum í gegnum skóginn. Fleiri hundruð fuglar drepast á veginum og liggur slóðin af fugls- hræjum frá Hallormsstað og út alla Velli. Einkum er það þrösturinn sem situr í lúpínunni, sem vex með- fram veginum gegnum skóginn og flýgur upp þegar ekið er hjá, sem verður umferðinni að bráð. Þungaflutningar í gegnum Hallormsstaðarskóg hafa aukist mjög vegna framkvæmda við Kárahnjúkavirkjun Íbúar og ferðamenn hræddir um börnin sín Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir Íbúar í Hallormsstaðarskógi kalla eftir mótvægisaðgerðum vegna ört vax- andi umferðar og ökuhraða gegnum skóginn. Hallormsstaður ÞEIR Kristján Már Magnússon og Ólafur Gauti Sigurðsson vinna fyrir Mylluna hf. við að sprengja grjót í veginn við Grenisöldu. Þeir vinna á nóttunni og voru undir hádegið að búa sig í háttinn. Aðeins að raka sig og fægja byssuna fyrir hrein- dýraskytteríið áður en skriðið væri í koju. Ólafur Gauti sagðist hafa séð tvö hundruð hreindýr skammt frá og því full ástæða til að gera sig kláran. Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir Skriðið í koju undir hádegi Kárahnjúkavirkjun
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.