Morgunblaðið - 01.08.2003, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 01.08.2003, Blaðsíða 45
ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. ÁGÚST 2003 45 BRASILÍUMAÐURINN Ronald- inho átti mjög góðan leik með Barcelona þegar liðið vann AC Mil- an í Bandaríkjunum, 2:0. Ronald- inho, sem skoraði mark í víta- spyrnukeppni gegn Juventus á dögunum, skoraði gegn AC Milan og lagði upp hitt markið. „Hann stóð sig mjög vel og átti margar frábærar sendingar. Það er mikill kraftur í honum,“ sagði Frank Rijkaard, þjálfari Barcelona, og Brasilíumaðurinn var einnig ánægður: „Mér gekk vel og ég er ánægður.“ Carlos Ancelotti, þjálfari AC Mil- an, sagði að Ronaldinho væri einn besti alhliða leikmaður í heimi og ætti eftir að stórbæta leik Barce- lona. Landi hans, Cafu, sem AC Mil- an keypti frá Roma, lék vel, en hann og aðrir leikmenn ítalska liðs- ins áttu í miklum erfiðleikum með hið sprettharða sóknartríó Barce- lona, Quaresma, Javier Saviola og Marc Overmars. Reuters Ronaldinho með knöttinn. Ronaldinho kominn á ferðina KÖRFUKNATTLEIKSLIÐ Snæfells í Stykk- ishólmi hefur gengið frá samningum við tvo Bandaríkjamenn fyrir komandi átök í úrvals- deildinni í vetur. Það eru þeir Corey Dickerson, sem lék með Grindvíkingum að hluta sl. keppn- istímabil og Joe Ransome. Auk þeirra hefur lið- ið fengið Sigurð Þorvaldsson frá ÍR, Hafþór Guðmundsson frá Skallagrími og Jón Þór Ey- þórsson frá Breiðabliki og þá hefur Bjarne Nielsen snúið heim frá Bandaríkjunum. Í sam- tali við Morgunblaðið sagði Gissur Tryggvason, formaður körfuknattleiksdeildar Snæfells, að markmið Snæfellinga væru skýr fyrir veturinn, liðið ætlar í úrslitakeppnina. Tveir Banda- ríkjamenn til Snæfells KVENNALIÐ Hauka í handknattleik hefur fengið mikinnliðsstyrk fyrir komandi átök í vetur. Liðið hefur fengið tvoleikmenn frá Litháen, þær Ramune Pekarskyte, sem er rétthent skytta og leikur með landsliði Litháa, og Kristinu Matuzeviéiute, sem er markvörður og lék með unglinga- landsliði Litháa. Þær eru báðar 23 ára gamlar. Margir leikmenn farnir frá Haukum Haukar hafa orðið fyrir mikilli blóðtöku frá því á síðustu leiktíð. Brynja Dögg Steinsen er gengin til liðs við Val, Nína K. Björnsdóttir er farin til Eyja og leikur með ÍBV í vetur og þær Inga Fríða Tryggvadóttir og Hanna G. Stef- ánsdóttir eru farnar til Danmerkur og leika með Team Tvis Holstebro. Ragnar Hermannsson, þjálfari Hauka, sagði í samtali við Morgunblaðið í gær, að Haukar væru ekki að leita logandi ljósi að leikmönnum og það væri stefna liðsins að vinna með þann hóp sem fyrir er hjá félaginu. Tvær stúlkur frá Litháen til Hauka Vanda Sigurgeirsdóttir, þjálfariKR, var að vonum kampakát í leikslok en þvertók fyrir að þær væru búnar að vinna Íslandsmeist- aratitilinn ár: „Það versta sem maður gerir í fótbolta er að fagna of snemma því þá fara leikmenn að vanmeta andstæðinga sína. En vissulega er ekki hægt að þræta fyrir það að við erum komn- ar í mjög vænlega stöðu. Varðandi leikinn, er ég mjög ánægð með mitt lið. Mér fannst við betra liðið og eiga sigur skilinn“ sagði Vanda að leikslokum. KR-stúlkur byrjuðu leikinn vel og komust yfir á 14. mínútu er Ást- hildur Helgadóttir færði sér í nyt varnarmistök Blika. Þórunn Helga Jónsdóttir tvöfaldaði síðan forystu vesturbæjarliðsins þrem mínútum síðar með góðu skoti utan víta- teigs. Erna B. Sigurðardóttir minnkaði hinsvegar muninn fyrir gestina á 43. mínútu er hún skor- aði eftir hornspyrnu. Á 59. mínútu kom Hrefna Jó- hannesdóttir KR-ingum í 3:1 en Margrét Ólafsdóttir minnkaði muninn fyrir Breiðablik í næstu sókn með stórglæsilegu skoti og staðan orðin 3:2 og leikurinn gal- opinn. En í liði KR er Ásthildur Helgadóttir sem ber höfuð og herðar yfir aðra leikmenn á Íslandi nú á dögum. Þegar sigur KR-liðs- ins virtist í hættu birtist hún og innsigldi sigur þeirra röndóttu með tveimur mörkum á síðustu 10 mínútum leiksins. Sigur KR var ekki eins og öruggur og tölurnar gefa til kynna. En eins og áður segir var mun- urinn á liðunum einfaldlega Ást- hildur Helgadóttir. KR tefldi í gær fram tveimur bandarískum leik- mönnum, þeim Linduliz Arauz og Kelly Kulsrud, sem léku vel í vörn- inni. Annars var það öflug liðsheild og einstaklingsframtak Ásthildar sem skóp sigurinn. Hjá Blikum stóðu þær Erna B. Sigurðardóttir og Margrét Ólafsdóttir upp úr og sýndu að þær eiga landsliðssæti sín svo sannarlega skilin. Leikurinn var vel spilaður og skemmtilegur fyrir þá áhorfendur sem lögðu leið sína í Frostaskjólið í gær. Til hamingju, KR Ólafur Þór Guðbjörnsson, þjálf- ari Breiðabliks, sagði eftir leik að óhætt væri að óska KR-ingum til hamingju með Íslandsmeistaratit- ilinn í ár: „Ég er mjög fúll því munurinn á liðunum í kvöld var ekki jafnmikill og tölurnar gefa til kynna. Það var ætlan okkar að sjálfsögðu að vinna hér í kvöld og halda spennu í mótinu. En því mið- ur er mótið búið í ár.“ KR með aðra hönd á titilinn KR sigraði Breiðablik á KR-vellinum í gær, 5:2, í fyrsta leik 10. um- ferðar efstu deildar kvenna. Með sigrinum eru KR-stúlkur komnar með 8 stiga forskot á toppi deildarinnar og eiga Íslandsmeistaratit- ilinn nánast vísan. Ásthildur Helgadóttir, í liði KR gerði þrennu í gær og óhætt að segja að frammistaða hennar hafi riðið baggamuninn. KR er nú komið með 8 stiga forskot á toppi deildarinnar en liðin fyr- ir neðan eiga þó leiki til góða. Hjörvar Hafliðason skrifar Morgunblaðið/Kristinn KR-ingar fagna marki Þórunnar Helgu Jónsdóttur gegn Breiðabliki í gærkvöldi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.