Morgunblaðið - 01.08.2003, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 01.08.2003, Blaðsíða 4
LEIÐIN að gullverðlaunum heims- meistaramótsins ætlar ekki að verða þrautalaus fyrir Íslendinga í þetta skiptið. Hvorki Sigurði V. Matthías- syni né Vigni Jónassyni tókst að ná fyrsta sætinu í forkeppni fimmgangs, Vignir er í þriðja sæti á Klakki frá Bú- landi með 7,17 en Sigurður í því fjórða á Fálka frá Sauðárkróki með 7,07. Eigi að síður má segja að fimmgangs- keppnin hafi verið keppni Íslendinga því tveir Íslendingar verma tvö fyrstu sætin, Sigfús B. Sigfússon á Hrafn- faxa frá Vestra-Geldingaholti í því fyrsta með 7,40 en hann keppir fyrir Svíþjóð. Gunnar Hafdal keppir hins vegar fyrir Danmörku á Ljósvaka frá Akureyri og eru þeir í öðru sæti með 7,30. Það er vissulega huggun harmi Heimsmeistaramótið í hestaíþróttum í Herning Harðsótt leið í sigursætin Morgunblaðið/Vakri Vignir Jónasson og hesturinn Klakkur frá Búlandi náðu þriðja sætinu í forkeppni í fimmgangi. gegn að þetta skulu þó vera Íslend- ingar sem skákuðu liðsmönnum ís- lenska liðsins en ljóst má vera að hart verður barist í úrslitunum á sunnu- dag, sannkallaður Íslendingaslagur. Gleðitíðindin eru hins vegar þau að Eyjólfur Þorsteinsson hefur með góðri frammistöðu í dag í fimmgangn- um tryggt sér heimsmeistaratitil ung- menna á hryssunni Súlu frá Hóli og gott betur en það því þau eru í sjö- unda sæti og munu því keppa í B-úr- slitum á laugardag og er ekki annað að sjá en þau eigi alla möguleika á að tryggja sér sæti í A-úrslitum. Guð- mundur Björgvinsson sem keppir fyrir Danmörku hafnaði í sjöunda sæti ásamt Eyjólfi á Hlyni frá Kjarn- holtum. Fyrir ofan þá í sjötta sæti með 6,83 er þýska stúlkan Katja Kleer á Skaura vom Wiesenhof. Önn- ur þýsk dama, Nina Heller, er svo í næsta sæti fyrir neðan þá félaga með 6,77 á Hrönn frá Godemoor. Í kynbótadómum í morgun varð Sjóli frá Dalbæ efstur í flokki stóð- hesta sex vetra og eldri með 8,61 í að- aleinkunn en ekki er langt í næsta hest, Ask från Håkansgården, sem er nýbakaður heimsmeistari í gæðinga- skeiði en hann er með 8,59. Knapi á Sjóla er Daníel Jónsson en Johan Häggberg frá Svíþjóð sýndi Ask. Annar hestur frá Íslandi sem sýndur er í þessum flokki varð þriðji en það er Góður-Greifi frá Stóra-Hofi sem Johannes Hoyos frá Austurríki sýndi en hann hlaut í einkunn 8,40. Öll frekari úrslit og umfjöllun má sjá á mbl.is. Herning. Morgunblaðið. FRÉTTIR 4 FÖSTUDAGUR 1. ÁGÚST 2003 MORGUNBLAÐIÐ SAMANLÖGÐ álagning tekjuskatts og útsvars fyrir árið 2003 nemur 121,6 milljörðum kr. og hækkar um 7% í heild milli ára, rúmlega 6½% á hvern skattgreiðanda. Álagningin nam 113,7 milljörðum kr. árið 2002, en til samanburðar nam hún 98 milljörðum kr. árið 2001. Álagningin árið 2003 skiptist eins og síðustu ár því sem næst jafnt milli ríkis og sveitarfélaga. Álagðir tekjuskattar einstaklinga, þ.e. tekjuskattur, sérstakur tekju- skattur og fjármagnstekjuskattur, nema 61,6 milljörðum kr. en álagt út- svar til sveitarfélaga nemur 60 millj- örðum kr. Heildarfjöldi framteljenda við álagningu 2003 var 226.462 og fjölgaði um 0,7% milli ára. Er það minni fjölgun en verið hefur undan- farin ár. Þessar upplýsingar koma fram í fréttatilkynningu frá fjármálaráðu- neytinu um álagningu skatta. Álagn- ingarseðlar hafa verið póstlagðir en á þeim koma fram upplýsingar um álögð gjöld vegna síðasta árs; þær bætur sem framteljendur eiga rétt á, vangreidd gjöld og endurgreiðslur vegna ofgreiddrar staðgreiðslu á árinu 2002. Tekjuskatts- og útsvarsstofn landsmanna var 461 milljarður kr. ár- ið 2002 og hækkaði því um 6,2% frá árinu 2001 eða um 5,6% að meðaltali á hvern framteljanda með tekjur. Framtalin laun og aðrar tekjur hækk- uðu um 7,4% milli áranna 2001 og 2002 og námu 452,7 milljörðum síðara árið. Hækkunin á hvern einstakling sem hafði laun nam 6,1%. Skv. frétta- tilkynningu ráðuneytisins hækkaði launavísitala um 7,1% á sama tíma. Kemur þar fram að minni hækkun tekjuskattsstofns en launavísitölu eigi sér skýringar í minni atvinnuþátt- töku, auknu atvinnuleysi og minni vinnutíma árið 2002 en árið 2001. Álagt útsvar hækkar meira Svk. upplýsingum frá ráðuneytinu hækka álagðir tekjuskattar til ríkis- sjóðs um 6,8% milli ára, en þar af hækkar álagning almenns tekju- skatts, þ.e. án sérstakra tekjuskatta og fjármagnstekjuskatts, um 5,5% á hvern framteljanda. Hækkunin er þó talsvert undir launavísitölu, sem var um 7,1% eins og áður sagði, en skv. ráðuneytinu stafar það af lækkun tekjuskattshlutfalls um 0,33% eða úr 26,08% í 25,75%. Álagt útsvar hækkar um 7% milli ára eða um 6,7% en bent er á að vegið meðaltal útsvarsprósentunnar hafi á tímabilinu hækkað um 0,11% eða úr 12,68% í 12,79%. Samanlögð álagning tekjuskatts og útsvars Hækkar um 7% FRAMTALDAR skuldir heimil- anna jukust um 7,1% frá árslokum 2001 til ársloka 2002, en það er skv. upplýsingum frá fjármála- ráðuneytinu helmingi minni skuldaaukning en varð milli ár- anna 2000 og 2001. Framtaldar skuldir heimilanna námu um 586,5 milljörðum kr. í árslok 2002, en þar af er 401 milljarður talinn vegna íbúðakaupa. Til samanburðar voru framtald- ar skuldir heimilanna um 547 millj- arðar í árslok 2001 og um 477 milljarðar í árslok 2000. Eigendum fasteigna fjölgar Framtaldar eignir heimilanna námu, skv. ráðuneytinu, um 1.500 milljörðum kr. í lok síðasta árs, en þær höfðu verið um 1.400 millj- arðar kr. í árslok 2001. Nemur hækkunin 6,5%. Skv. upplýsingum ráðuneytisins munar þarna mestu um eignaaukningu í fasteignum heimilanna. Þær eru 2⁄3 af öllum eignum og verðmæti þeirra óx um 7,3%. Þá fjölgaði fjölskyldum og einstaklingum sem eiga fasteignir um 1,4% á árinu 2002. Eignaskattar lækka um meira en helming Eignarskattur var lækkaður um helming árið 2002 og sérstakur eignarskattur felldur niður. Vegna þess lækka álagðir eignarskattar, skv. fjármálaráðuneytinu, um meira en helming milli ára eða úr 3,8 milljörðum kr. fyrir árið 2001 í 1,8 milljarða kr. fyrir árið 2002. Á sama tímabili fjölgaði hins vegar framteljendum eignarskatts um 3,5%. Minni skulda- aukning heimilanna GREIÐSLUR ríkissjóðs vegna vaxta- og barnabóta nema 10,4 milljörðum kr. á þessu ári, þar af kemur 5,1 milljarður til útborg- unar um mánaðamótin. Bætur hækka samtals um 12,8% frá því í fyrra. Þetta kemur fram í frétta- tilkynningu fjármálaráðuneytisins um álagningu skatta. Fram kemur að vaxtabætur nemi tæplega 5,4 milljörðum kr. og hækki um 13,5% frá því í fyrra og að barnabætur nemi um 5 milljörðum kr. í ár og hækki um rúmlega 500 milljónir kr. frá því í fyrra eða um 12%. Þeim sem fá vaxtabætur fjölgar um 5,6% milla ára og þeim sem fá barna- bætur fjölgar um 6,3%. Skv. upplýsingum fjár- málaráðuneytisins má einkum rekja fjölgun barnabótaþega til þess að nú er kominn til fram- kvæmda þriðji og síðasti áfangi sérstakra breytinga á barnabóta- kerfinu sem samþykktar voru ár- ið 2000. Í þeim fólst m.a. að dreg- ið yrði úr tekjutengingu bótanna auk þess sem þær voru hækk- aðar. Vaxta- og barna- bætur hækka ÓMERKT pilla sem innihélt gervi- blóð var greind sem e-pilla í skyndi- greiningu lögreglunnar í sumar og olli miklu uppnámi hjá fjölskyldu í Reykjavík, þar til hið sanna kom í ljós við frekari efnagreiningu. Pillur af þessari tegund eru seldar sem leikföng í verslunum og eina slíka fann móðir 10 ára stúlku í herbergi dóttur sinnar á meðan hún var í sumarfríi og gat ekki leitað skýr- inga hjá dóttur sinni fyrr en síðar. Móðirin vissi ekki hvernig pillan barst inn á heimilið og hjá lögregl- unni fékk hún að vita að pillur svip- aðar þeirri sem hún fann líktust þeim e-pillum sem eru í umferð um þessar mundir. Við skyndigreiningu lögreglunnar voru vísbendingar um að um e-pillu eða morfín væri að ræða en þegar hún var efnagreind hjá rannsóknastofu HÍ í lyfjafræði kom í ljós að ekki var um eiturlyf að ræða. Á meðan niðurstöðu efna- greiningar var beðið þjakaði óvissan móðurina og segist hún ekki fella sig við að slík leikföng séu í ómerkt- um umbúðum. Á boxi utan um pill- urnar er innihaldslýsing en ekki á pillunum sjálfum. „Ég hefði viljað sjá svona leikfang í öðru formi en pilluformi,“ segir móðirin. „Þar sem mikið er um eiturlyf í umferð og brögð að því að verið sé að plata þau inn á börn og unglinga, vekur það vissulega ótta hjá foreldrum að finna svona pillu í fórum barna sinna. Þetta er líka spurning um hvort löglegt sé að hafa svo mikil lit- arefni í leikföngum, ekki síst í ljósi þess að það er nýbúið að taka svo- kallaða Hulk-frostpinna af markaði vegna of mikils magns af litarefn- um. Þegar ég fann pilluna var mér ekki stætt á því að kveða upp þann úrskurð á staðnum að þetta væri bara leikfang og varð að eyða óviss- unni með því að láta lögregluna fá hana. Ég fékk mjög góða þjónustu hjá lögreglunni og henni var ekki síður brugðið þegar pillan greindist sem eiturlyf. Auk þess er öll sú fyr- irhöfn sem af þessu hlaust vissulega íþyngjandi fyrir foreldra og lögregl- una.“ Ómerktar pillur vekja ugg hjá foreldrum Morgunblaðið/Jim Smart Blóðpillurnar eru látnar renna í munni og þegar þær blandast munnvatninu verður útkoman sú að þær líkjast blóði. BAUGUR hefur nú yfir að ráða 82,3% hlutafjár í bresku leikfanga- versluninni Hamleys og hefur fram- lengt yfirtökutilboð sitt um sjö daga. Þetta kemur fram í tilkynningu sem birt var í gærkvöldi í kauphöllinni í London. Baugur hefur í félagi við stjórn- endur hjá Hamleys gert yfirtökutil- boð í allt hlutafé Hamleys. Tilboðið hljóðar upp á 254 pens á hlut, sem er 101% yfir verði bréfanna eins og það var um miðjan mars, eða áður en til- kynnt var um væntanlegt yfirtöku- tilboð. Heildarverð allra hlutabréfa Hamleys er á þessu verði um 58,7 milljónir punda, um 7,3 milljarðar króna. Baugur með 82,3% í Hamleys
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.