Morgunblaðið - 01.08.2003, Side 18
AKUREYRI
18 FÖSTUDAGUR 1. ÁGÚST 2003 MORGUNBLAÐIÐ
www.islandia.is/~heilsuhorn
SENDUM Í PÓSTKRÖFU
Glucosamine (870 mg
Glucosamine í hverjum belg)
ásamt engifer og turmeric
Fyrir vöðva og liðamót
Glerártorgi, Akureyri, sími 462 1889
Fæst m.a. í Lífsins lind í Hagkaupum,
Árnesapóteki, Selfossi og
Yggdrasil, Kárastíg 1.
MÖRG af stærri sveitarfélögum
landsins hafa nýtt sér heimildar-
ákvæði í lögum þar sem aflétt var
kaupskyldu og forkaupsrétti af fé-
lagslegum eignaríbúðum og tekur
heimildin til allra félagslegra eignar-
íbúða í viðkomandi sveitarfélagi.
Sveitarfélög sem hafa nýtt sér heim-
ildina eru Akraneskaupstaður, Borg-
arfjarðarsveit, Garðabær, Grinda-
víkurkaupstaður, Hafnarfjarðarbær,
Kópavogsbær, Mosfellsbær, Reykja-
nesbær, Reykjavíkurborg, Seltjarn-
arnesbær og Stykkishólmsbær. At-
hygli vekur að Akureyrarkaupstaður
er ekki á meðal þessara sveitarfé-
laga.
Óskar Páll Óskarsson, starfsmað-
ur félagsmálaráðuneytisins, svaraði
bréfi Akureyrings sem lagði inn fyr-
irspurn til ráðuneytisins um mál
þetta, á þá leið að samkvæmt lögun-
um væri um heimildarákvæði að
ræða. Einnig kemur fram að „það er
því eingöngu ákvörðun bæjarstjórn-
ar Akureyrar sem ræður. Ráðuneyt-
ið getur ekki krafist þess af sveitarfé-
laginu þó nær öll stóru sveitarfélögin
hafi nýtt sér þessa heimild. En eins
og þú segir er um sanngirnismál að
ræða og flest stærri sveitarfélög hafa
fallist á þessa heimild.“
Jakob Björnsson, formaður bæjar-
ráðs Akureyrarbæjar sagði við
Morgunblaðið að þetta mál hefði ver-
ið skoðað rækilega. „Það er búinn að
vera töluverður þrýstingur frá fólki
sem hefur áhuga á því að fallið verði
frá forkaupsréttinum eins og gert
hefur verið víða. Þegar málið var
skoðað kom strax í ljós að margir
íbúðaeigendur hefðu hagnast, en
margir hefðu einnig tapað á þessari
breytingu. Þrátt fyrir hagstæðar
markaðsaðstæður nú, þá er þessi
staða önnur hér á Akureyri en á höf-
uðborgarsvæðinu þar sem markaðs-
verð er það hátt, að ekki er um tap að
ræða við sölu á almennum markaði.
Enda eru öll þau sveitarfélög sem
fellt hafa kaupskylduna niður á því
svæði. Þar geta allir selt á jafn háu
eða hærra verði en sem nemur inn-
lausnarverði í kerfinu. Sú staða er
ekki fyrir hendi hér þar sem á tugum
íbúða hefði verið um tap að ræða. Við
munum hins vegar fylgjast vel með
þróun þessara mála og endurmeta
stöðuna í ljósi hennar.“
Fólk hefur fengið íbúðir
í félagslega kerfinu
á sérstökum kjörum
Jakob sagði það skoðun bæjarráðs
að ekki sé verið að hafa neitt af fólki
með þeirri ákvörðun að fella ekki nið-
ur kaupskylduna. „Það verður að
hafa í huga að fólk sem fengið hefur
úthlutað íbúðum í félagslega kerfinu
á hverjum tíma hefur fengið þær á
sérstökum kjörum þ.e. lán með hag-
stæðum vöxtum miðað við almenna
markaðinn en það þýðir lægri
greiðslubyrði sem léttir undir með
þeim sem þess njóta. Annar mikil-
vægur þáttur sem skipti máli við
þessa ákvörðun er sá skortur á leigu-
húsnæði sem er hér á Akureyri. Ak-
ureyrarbær hefur verið að fjölga
verulega leiguíbúðum á undanförn-
um árum og á nú um 230 íbúðir. Þörf-
in er mikil og margir á biðlista eftir
leiguhúsnæði. Það að falla frá for-
kaupsréttinum og geta ekki leyst til
sín, eins og heimilt er, hentugar íbúð-
ir á hagstæðu verði með lágum vöxt-
um hefði hækkað kostnað sveitarfé-
lagsins til muna við að fjölga
leiguíbúðum. Það var ákveðið að
stytta forkaupsréttinn um fimm ár
og er hann nú 15 ár. Einnig var
ákveðið að skoða málið aftur eftir tvö
ár eða árið 2005, en þá fellur niður
kaupskylda á mörgum íbúðum. Þá
liggja vonandi einnig fyrir hverjar
boðaðar aðgerðir ríkisstjórnarinnar
varðandi fjölgun leiguíbúða verða og
hvert hlutverk sveitarfélaga hugsan-
lega verður,“ sagði Jakob.
„Eins verður að hafa í huga að
mikilvægt er að gera greinarmun á
kaupskyldu og forkaupsrétti. Þar
sem kaupskylda er runnin út hjá, en
forkaupsréttur er enn í gildi yrðu
menn að sitja uppi með tap ef um er
að ræða sölutap. Akureyrarbær
myndi einungis leysa til sín íbúðir
sem eru enn á kaupskyldutíma ef eig-
andi myndi óska eftir því. Sem auð-
vitað eru allar líkur á ef innlausnar-
verð er hærra en markaðsverð.
Íbúðir þar sem enn væri forkaups-
réttur á, nú algengast fimm ár eftir
tíu ára kaupskyldu, og íbúðir sem
komnar eru úr forkaupsrétti, getur
íbúðareigandi selt á frjálsum mark-
aði gegn því að greiða upp áhvílandi
lán. Hagnaður eða tap viðkomandi
ræðst síðan af því hvort innlausnar-
verð sé hærra eða lægra en markaðs-
verð viðkomandi íbúðar. Miðað við
núverandi aðstæður eru að minnsta
kosti 25 íbúðir sem þannig er ástatt
um á Akureyri. Lítilsháttar breyting
til hins verra á húsnæðismarkaði eða
húsbréfamarkaði hefði mjög fljótt
áhrif til verulegrar aukningar á
fjölda íbúða sem tap væri á,“ sagði
Jakob.
Ekki sátt um sölu félagslegra eignaríbúða á Akureyri
Kaupskyldu og for-
kaupsrétti ekki afléttJAKOB Björnsson, formaður bæj-
arráðs Akureyrar, sagði við Morg-
unblaðið að ljóst væri að það hefði
verið ákveðinn losarabragur á
meðferð fjármuna hjá leikfélaginu.
Sigmundur Ernir Rúnarsson, for-
maður leikhúsráðs, sagði í Morg-
unblaðinu í gær að verið væri að
taka hressilega á fjárreiðum fé-
lagsins því reikningar hefðu ekki
verið færðir með eðlilegum hætti
áður en núverandi leikhússtjóri
tók við.
Jakob sagði að bókhald hefði
ekki verið fært eins og eðlilegt
gæti talist. „En hvort um eitthvað
umfram það er að ræða skal ég
ekki segja. Það er samt alveg ljóst
að það verður að vera tryggt að
slíkt gerist ekki aftur, áður en
gengið er frá samningum til fram-
tíðar. Þarna er verið að fara með
opinbert fé, bæði frá ríki og sveit-
arfélaginu og það er óásættanlegt
að öllu sé ekki til haldið á eðlileg-
an máta. Við munum krefjast þess
að þeir sem nú eru í forsvari fyrir
leikhúsið og leikfélagið, hafi svör á
reiðum höndum um hvernig þeir
ætli að koma í veg fyrir að slíkt
gerist aftur. Það er alveg á
hreinu,“ sagði Björn.
Valgerður H. Bjarnadóttir, fyrr-
verandi formaður leikhúsráðs, vildi
ekki tjá sig um málið á þessu stigi.
Formaður bæjarráðs um fjárreiður LA
Losarabragur verið
á meðferð fjármuna
UNDIRBÚNINGUR fyrir fjöl-
skylduhátíðina „Ein með öllu“ á
Akureyri hefur gengið vel og
stefnir í fjölbreytta og skemmti-
lega hátíð, þar sem fólk á öllum
aldri getur skemmt sér saman, að
sögn Haraldar Ingólfssonar hjá
Fremi kynningarþjónustu. Har-
aldur sagði ómögulegt að segja til
um hversu margir gestir komi til
bæjarins.
„Við sættum okkur við að fá
hingað 8–10 þúsund manns til við-
bótar við þá bæjarbúa sem ætla að
vera heima. Við erum alltaf bjart-
sýnir á gott veður og ekki hefur
bjartsýnin minnkað eftir að veð-
urspá Veðurklúbbsins á Dalvík um
helgarveðrið lá fyrir,“ sagði Har-
aldur.
Björn Jósef Arnviðarson, sýslu-
maður á Akureyri, sagðist eiga
von á góðri helgi. „Við erum við
því búnir að hér verði margt fólk
og ánægt og vonumst til þess að
lítið verði um vandræði.“ Björn
Jósef sagði að líkt og undanfarnar
verslunarmannahelgar yrði fjölgað
verulega í lögregluliðinu. „Hátíðin
í fyrra gekk mjög vel og ef þetta
verður svipað í ár er allt í góðu
lagi.“
Í spá Veðurklúbbsins kemur
m.a. fram, að heilt yfir verði
hvergi vont veður eða einhver ill-
indi. Það verði nokkuð sanngjörn
skipting á þessu en í heildina best
norðan- og austanlands, þ.e. hlýj-
ast og mest af blessaðri sólinni en
menn verði þó ekki lausir við
rigninguna.
Boðið verður upp á fjölbreytta
dagskrá alla helgina, fyrir fólk á
öllum aldri, þar sem þekktar
hljómsveitir og aðrir skemmti-
kraftar koma við sögu. Skipulag
hátíðarinnar hefur verið unnið í
samráði við ýmsar stofnanir sem
að öryggismálum koma. Á slysa-
deild FSA er rekin neyðarmóttaka
fyrir fórnarlömb nauðgana, sem
alltaf er opin. Skipuleggjendur
vilja jafnframt leggja sérstaka
áherslu á gott samstarf við Aflið,
systursamtök Stígamóta á Norður-
landi, en fulltrúar Aflsins verða á
vakt alla helgina og hafa aðstöðu í
Kompaníinu í Hafnarstræti 73.
Fjölskylduhátíðin „Ein með öllu“ á Akureyri
Morgunblaðið/Kristján
Hápunktur fjölskylduhátíðarinnar um helgina verður á Akureyrarvelli á sunnudagskvöld. Þeir Bragi Bergmann frá
Fremi og bróðir hans Heimir heilsuðu upp á starfsmenn vallarins og skoðuðu aðstæður þar. F.v. Heimir Bergmann,
Bragi Bergmann, Aðalsteinn Sigurgeirsson forstöðumaður Akureyrarvallar og Björn Arason starfsmaður vallarins.
„Sættum
okkur við
8–10 þús-
und manns“
RÁÐGERT er að hefja framkvæmdir
við lagningu Dalsbrautar frá Borgar-
braut að Þingvallastræti nú í haust og
ljúka verkinu snemma næsta sumar.
Guðmundur Guðlaugsson, deildar-
stjóri framkvæmdadeildar Akureyr-
arbæjar, sagði að verkið yrði trúlega
boðið út í september nk. Vegurinn
verður lagður í gilinu vestan Hamra-
gerðis.
Guðmundur sagði að þessi veg-
tenging yrði mikil samgöngubót en
hann sagði það þó sína skoðun að
Dalsbrautin ætti að liggja áfram til
suður frá Þingvallastræti. Ákvörðun
um framhaldið liggur ekki fyrir og
ekki eru allir á eitt sáttir við þá hug-
mynd að gatan liggi áfram til suðurs.
„Umferðarmál á þessu svæði eru til
skoðunar, þar sem m.a. er verið að
reyna að meta umferðarspá og um-
ferðarþunga, samkvæmt mismunandi
hugmyndum.“ Fyrir liggur að tengja
Dalsbrautina Þingvallastræti og til
skoðunar er að halda áfram suður að
Skógarlundi eða Miðhúsavegi.
Framkvæmdir
við Dalsbraut
hefjast í haust
Morgunblaðið/Kristján
Dalsbrautin mun liggja um gilið
vestan Hamragerðis og tengja sam-
an Borgarbraut og Þingvallastræti.
Fimmtu og síðustu tónleikar í röð-
inni Sumartónleikar í Akureyrar-
kirkju verða haldnir sunnudaginn
3. ágúst kl. 17. Flytjendur eru:
Magnea Tómasdóttur sópran og
Guðmundur Sigurðsson orgelleik-
ari og munu þau flytja íslensk
þjóðlög við Passíusálma Hallgríms
Péturssonar og við ljóð annarra
höfunda í útsetningum Smára Óla-
sonar. Einnig verða fluttir sálm-
forleikir eftir J. S. Bach og org-
elverk eftir Nicolas de Grigny.
Tónleikarnir standa í klukkustund
án hlés og er aðgangur ókeypis og
allir velkomnir.
Guðmundur og Magnea munu
einnig leika og syngja í messu í
Akureyrarkirkju kl. 11 árdegis
sunnudaginn 3. ágúst.
Á NÆSTUNNI
Sunnudaginn 3. ágúst verður
markaðsdagur í Laufási milli kl. 14
og 16. Boðið verður upp á fjöl-
breyttan varning í skemmtilegri
umgjörð gamla bæjarins í Laufási.
Á markaðnum verður margt hægt
að finna, hvort sem fegra á um-
hverfið með blómum og runnum frá
Réttarhóli, fjölærum blómum úr
Fornhaga eða hressa upp á ytri
umgjörð með Gaia-snyrtivörum frá
Pharmarctica eða húðvörum unnum
úr íslenskum jurtum frá Urtasmiðj-
unni. Einnig verður prjónles og
föndurvörur af ýmsum toga á
svæðinu. Til sölu verða nýjar kart-
öflur og gulrætur ásamt öðru
grænmeti frá bæjunum í kring,
harðfiskur frá Darra á Grenivík og
reyktur silungur. Starfsfólkið í
Laufási bakar fjallagrasabrauð og
rúgbrauð og býður upp á heimalag-
aðar sultur.
Til þess að fullkomna markaðs-
stemninguna framkalla Einar og
Haukur ljúfa tóna á harmóniku og
trommu. Kaffiveitingar verða í
gamla prestshúsinu og gamli bær-
inn og veitingastofan verða opin
milli kl. 10 og 18.
Á NÆSTUNNI