Morgunblaðið - 01.08.2003, Page 20
SUÐURNES
20 FÖSTUDAGUR 1. ÁGÚST 2003 MORGUNBLAÐIÐ
AUSTURLAND
LJÓSANÓTT sem haldin verður í
Reykjanesbæ fyrstu helgina í sept-
ember verður með svipuðu sniði og á
síðasta ári. Þó verður lögð áhersla á
að hápunktar verði í dagskránni alla
dagana, ekki einungis á laugardeg-
inum sem þó verður áfram aðalhátíð-
ardagurinn.
Ljósanótt er menningar- og fjöl-
skylduhátíð í Reykjanesbæ. Hún
verður haldin í fjórða sinn dagana 4.
til 7. september næstkomandi. Stein-
þór Jónsson, formaður undirbún-
ingsnefndar, segir að starfið gangi
vel og dagskráin sé að taka á sig
mynd.
„Við vorum ánægð með Ljósanótt í
fyrra. Dagskráin kom fólki á óvart og
við vorum ánægð með hversu margir
gestir komu. Það er ekki markmið
okkar að gera hátíðina í ár viðameiri
eða fá fleira fólk heldur frekar að
halda stöðunni. Ýmis ný atriði verða
á dagskránni og mörg af þeim sem
verið hafa á fyrri hátíðum fá nýjan
blæ. Þannig vonumst við til að geta
komið fólki áfram á óvart,“ segir
Steinþór.
Setning á hnefaleikakeppni
Ljósanótt stóð síðast frá fimmtu-
degi og fram á sunnudag. Svo verður
einnig nú. Steinþór segir hins vegar
stefnt að því að hafa hápunkta í dag-
skránni alla dagana. Þannig verður
hnefaleikakeppni í Stapa á fimmtu-
dagskvöldið þar sem danskir og ef til
vill fleiri norrænir boxarar keppa við
þekkta hnefaleikakappa úr Reykja-
nesbæ. Sett verður upp dagskrá í
tengslum við þennan atburð sem
verður eins konar opnunarathöfn
Ljósanætur.
Á föstudagskvöldið verður ljósa-
lagið valið á skemmtun í Stapanum.
Valið verður úr tíu lögum sem kom-
ust í úrslit en þau verða kynnt á
næstunni þegar geisladiskur með
þeim verður gefinn út.
Á sunnudaginn verður hápunktur-
inn leikur Njarðvíkinga og Keflvík-
inga í fyrstu deild í knattspyrnu.
Þetta er dagskráratriði sem Ljós-
anæturnefnd stendur ekki fyrir en
hún hefur sett leikinn inn á dag-
skrána sem nokkurs konar lokaatriði
Ljósanætur og mun aðstoða við að
hafa umgjörð leiksins og kynningu
með þeim hætti að þarna verði slegið
aðsóknarmet á knattspyrnuleik í
bænum.
Laugardagurinn verður eftir sem
áður aðalhátíðardagurinn. Þétt dag-
skrá fyrir alla fjölskylduna verður
frá morgni til kvölds, að sögn Stein-
þórs, og lýkur með kvölddagskrá á
grasbakkanum við Hafnargötu. Þar
hefur verið unnið að uppfyllingu svo
hátíðarsvæðið hefur stækkað. Meðal
þeirra sem koma fram eru Hljómar
úr Keflavík en í byrjun október eru
40 ár liðin frá því að hljómsveitin lék
fyrst opinberlega. Formlegri dag-
skrá um kvöldið lýkur að venju með
því að kveikt verður á lýsingu Bergs-
ins og flugeldum skotið á loft.
Ýmsir listviðburðir og sýningar
verða á Ljósanótt. Meðal annars
verður opnuð ný sýning í Listasafni
Reykjanesbæjar í Duushúsum, Stef-
án Geir Karlsson sýnir þar skúlptúra
og fleiri myndverk. Meðal hugmynda
sem komið hafa upp er að setja leik-
ritið Ferðir Guðríðar upp í víkinga-
skipinu Íslendingi.
Í tengslum við Ljósanótt verða
ýmsar framkvæmdir vígðar. Verið er
að endurgera nyrðri hluta Hafnar-
götu og verður sú framkvæmd form-
lega tekin í notkun á Ljósanótt.
Standmynd Erlings Jónssonar af
Keflavíkurmerkinu sem Helgi S.
Jónsson hannaði verður flutt úr garði
Ráðhúss Reykjanesbæjar við Tjarn-
argötu og sett upp á Ósnefi neðan við
sundhöllina. Merkið verður vígt á
nýjum stað á Ljósanótt og kveikt á
lýsingu. Sömuleiðis aflabáturinn
Baldur sem komið verður upp og
lýstur í nágrenni Duushúsa.
„Klárum það dæmi“
Íbúar Reykjanesbæjar hafa hing-
að til verið heppnir með veður á
Ljósanótt og Steinþór segist vera
byrjaður að undirbúa það einnig nú.
Hann hafi fengið vilyrði fyrir góðu
veðri, að minnsta kosti tvo af þessum
fjórum dögum, og vonist til að það
verði á laugardag og sunnudag. „Við
klárum það dæmi,“ segir hann.
Drög að dagskránni og ýmsar upp-
lýsingar um Ljósanótt er að finna á
vef hátíðarinnar, www.ljosanott.is.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Unga fólkið skemmti sér vel á Ljósanótt á síðasta ári. Talið er að 20–25
þúsund manns hafi verið á kvölddagskránni í miðbænum þegar flest var.
Dagskrá Ljósanæturhátíðarinnar er að taka á sig mynd
Hápunktar fyrirhugað-
aðir alla fjóra dagana
Reykjanesbær
POPPMINJASAFN Íslands í Bítla-
bænum Keflavík fékk í gær afhenta
gjöf. Skúli Helgason útvarpsmaður
gaf safninu nærri því þrjú þúsund
hljómplötur.
Skúli byrjaði að safna plötum í lok
áttunda áratugarins. Mest safnaðist
þó að honum eftir að hann byrjaði á
Rás 2 þar sem hann var í hópi fyrstu
dagskrárgerðarmanna þegar rásin
hóf útsendingar fyrir tæpum tutt-
ugu árum. Hann segir að flestar
plöturnar séu frá níunda áratugn-
um, hann hafa viðað þeim að sér í
tengslum við vinnu sína í útvarpinu.
Skúli segir að plöturnar spanni
nokkuð rokksöguna á þessu tíma-
bili.
Skúli er að flytja til Bandaríkj-
anna þar sem hann er að hefja fram-
haldsnám og segir að þess vegna
hafi hann ákveðið að gefa megin-
hluta safnsins núna. Hann hafði
áhuga á að plötusafnið nýttist við
rannsóknir og heimildavinnu og
fannst tveir staðir einkum koma til
greina þegar hann var að íhuga
hvað hann ætti að gera við plöt-
urnar, Útvarpið eða Poppminjasafn
Íslands í Reykjanesbæ. Hann segist
hafa talið að Útvarpið ætti megin-
hlutann af þessu efni og því ákveðið
að styðja við framtak Rúnars Júl-
íussonar og félaga sem staðið hafi að
stofnun Poppminjasafns Íslands
með því að gefa plöturnar þangað.
Vonast hann til að ungt fólk fái að-
stöðu til að hlusta á plöturnar og
nota þær við heimildarvinnu og jafn-
vel gerð útvarpsþátta, á svipaðan
hátt og hann sjálfur á sínum tíma.
Viðurkennir Skúli að það sé eins
og að slíta úr sér hjartað að láta
gömlu plöturnar frá sér. Hins vegar
segist hann hafa haldið eftir hluta
safnsins til að afhenda síðar og því
megi segja að hann haldi eftir tægj-
um af hjartanu enn um sinn.
Poppminjasafn Íslands á lítið af
hljómplötum og segir Sigrún Ásta
Jónsdóttir, forstöðumaður Byggða-
safns Reykjanesbæjar, að það sé því
mikill fengur fyrir safnið að fá
plötugjöf Skúla. Það verði ágæt
uppistaða í hljómlist safnsins.
Gefur Poppminjasafninu
gömlu plöturnar sínar
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Skúli Helgason vill að fólk hafi að-
gang að plötusafninu til rannsókna.
Reykjanesbær
NÝR hátíðarfáni Reykjanesbæjar verður tekinn í notkun á
Ljósanótt. Hann verður notaður til kynningar á hátíðinni auk
þess sem stjórnendur fyrirtækja og íbúar bæjarins verða hvattir
til að kaupa fána og flagga á Ljósanótt.
Steinþór Jónsson, formaður undirbúningsnefndar Ljósa-
nætur, hefur látið hanna fána Ljósanætur sem síðan er ætlunin
að nota í framtíðinni sem hátíðarfána Reykjanesbæjar. Fáninn
verður strengdur á ljósastaura við Hafnargötu, við innkeyrsluna
í bæinn og víðar. Jafnframt er fyrirhugað að framleiða fána sem
fyrirtæki og einstaklingar geta keypt og flaggað með við hátíð-
leg tækifæri. Steinþór segir að bæjarbúar verði hvattir til að
flagga sem víðast á Ljósanótt, það auki á stemninguna í bænum.
Hugmyndin er að fánarnir verði notaðir við hátíðleg tækifæri í
Reykjanesbæ í framtíðinni og þá með mismunandi áletrunum
eftir atburðum og stöðum. Einnig verði hægt að nota þá við inn-
gang í söfn og jafnvel fyrirtæki til þess að vekja athygli á starf-
seminni.
Nýr hátíðarfáni bæjarins
MIKIL hátíðarhöld voru á Seyðis-
firði í gær þegar nýju hafnarmann-
virkin þar voru formlega tekin í
notkun. Höfnin er sérstaklega hönn-
uð með farþegaferjuna Norrænu í
huga, en mun einnig nýtast vel til
farþega- og vöruflutninga annarra
skipa.
Sturla Böðvarsson samgönguráð-
herra opnaði formlega nýju hafnar-
mannvirkin við hátíðlega athöfn.
Ráðherra sagði að aðkoma ríkisins
að framkvæmdinni væri nýlunda
með því að koma á einni verkefna-
stjórn undir forystu Gísla Viggós-
sonar, verkfræðings Siglingamála-
stofnunar. Þannig náðist gott
samstarf við Vegagerð, heimamenn,
hönnuði og verktaka. Sturla undir-
strikaði að samstarf við heimamenn
hafi verið sérstaklega gott og til-
kynnti síðan heiti hafnarbakkanna á
nýja hafnarsvæðinu. Nýja ferjulæg-
ið heitir nú Strandarbakki en gamli
hafnarbakkinn Bjólfsbakki.
Eftir opnun hafnarinnar var hald-
ið út að Wathnestorfu þar sem gestir
skoðuðu sýningar í húsum Tækni-
minjasafns Austurlands og fylgdust
með fallbyssuskoti úr fallbyssu bæj-
arins framan við bæjarskrifstofurn-
ar. Að því loknu var boðið til dag-
langra veisluhalda með skemmti-
atriðum, risagrillveislu, varðeldi,
flugeldasýningu og dansleik fram á
nótt.
Sérhönnuð ferjuhöfn innan
kostnaðarramma
Formleg ákvörðun um gerð ferju-
hafnar á Seyðisfirði fyrir nýja Nor-
rænu var tekin 18. desember 2001 og
í janúar 2003 skipaði samgönguráð-
herra vinnuhóp sem skyldi hafa um-
sjón með verkinu. Tilhögun hafnar-
innar réðist að mestu af eiginleikum
Norrænu. Hún er 164 metra löng, 30
metra breið og 36.000 brúttótonn að
stærð. Ferjan getur flutt um 1500
farþega í einu og 800 bifreiðir auk
vörufragtar. Nýja hafnarsvæðið er
með 170 metra löngum viðlegukanti
með minnst tíu metra dýpi og sjálft
hafnarsvæðið er með samtals 5.700
fermetra þekju. Þúsund fermetra
þjónustuhús er á svæðinu. Þar er
brottfararsalur farþega, aðstaða til
tollgæslu og hafnarvörslu auk upp-
lýsingamiðstöðvar og veitingasölu.
Landgangur er við þjónustuhúsið í
um 15 metra hæð yfir sjávarmáli.
Tilheyrandi gatnagerð er 930 metrar
auk 15.000 fermetra bílastæða. Ný
tvíbreið brú með göngubraut yfir
Fjarðará er á svæðinu. Hún er 28
metra löng og tengir nýja hafnar-
svæðið saman við gömlu ferjuhöfn-
ina. Kostnaður við framkvæmdirnar
virðist ekki fara fram úr þeim áætl-
unum sem gerðar voru í upphafi upp
á 600–700 milljónir.
Morgunblaðið/Pétur Kristjánsson
Þjónustuhúsið á Strandarbakka. Nýja brúin yfir Fjarðará er í forgrunni.
Ný hafnarmannvirki
vígð á Seyðisfirði
Seyðisfjörður
Morgunblaðið/Pétur Kristjánsson
Sturla Böðvarsson samgöngu-
ráðherra opnaði nýju höfnina.
Neskaupstaður: Neistaflug 2003,
fjölskylduhátíð. 1.– 3. ágúst.
Borgarfjörður eystri: Álfaborg-
arséns, fjölskylduhátíð. 1.– 3. ágúst.
Hótel Svartiskógur Jökulsárhlíð:
Sumarhátíð Harmónikkufélags Hér-
aðsbúa og Hótels Svartaskógar.
1.–3. ágúst.
Skriðuklaustur í Fljótsdal: Sýn-
ingin Álfar og huldar vættir opnuð.
1. ágúst kl. 20.
Café Nielsen Egilsstöðum: Sam-
lagið Listhús opnar myndlistarsýn-
ingu. 1.– 24. ágúst á afgreiðslutíma
veitingahússins.
Blúskjallarinn Neskaupstað: Dav-
íð Sigurðsson flytur frumsamda tón-
list. 1. ágúst kl. 21.
Blúskjallarinn Neskaupstað:
Guitar Islancio og Kristjana Stef-
ánsdóttir. 2. ágúst kl. 21.
Bláa kirkjan Seyðisfirði: Gítar-
tónleikar Lauru Verdugo del Rey. 6.
ágúst kl. 20.30.
Egilsstaðir: Ferðafélag Fljótsdals-
héraðs býður til kvöldgöngu um ná-
grenni Egilsstaða. Hefst á tjald-
svæði. 6. ágúst kl. 20.
Skriðuklaustur í Fljótsdal: Pjetur
Stefánsson myndlistarmaður flytur
erindið Kjarval í stofu. 6. ágúst kl.
20.30.
Minjasafn Austurlands á Egils-
stöðum: Eldsmíði, kennsla. 7. ágúst
kl. 13–17.
Á NÆSTUNNI
FÉLAGSMIÐSTÖÐIN Ný-Ung á
Egilsstöðum tekur nú þátt í Evr-
ópuverkefni í Coimbra í Portúgal.
10 austfirsk ungmenni á aldrinum
17 til 20 ára fara út til Lissabon í
dag og hitta ungt fólk frá Eistlandi,
Slóvakíu, Belgíu og Portúgal. Verk-
efnið er leiklistartengt og snýst um
að hver þjóð setur á svið ævintýri
frá sínu heimalandi. Verður eitt
kvöld tileinkað hverju landi, með
sýningu og annarri umfjöllun. Að
þeirri yfirferð lokinni verður unga
fólkinu skipt í fimm blandaða hópa
og býr þá hver þeirra til nýtt æv-
intýr, sem jafnframt verður sýnt á
sviði. Alls taka yfir 50 ungmenni
þátt í verkefninu.
Unglingar frá Ný-
Ung til Lissabon
Egilsstaðir