Morgunblaðið - 01.08.2003, Side 42
DAGBÓK
42 FÖSTUDAGUR 1. ÁGÚST 2003 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍM-
AR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111.
Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329,
fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, aug-
lýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115.
NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100
kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Skipin
Reykjavíkurhöfn:
Stella Pollux, Hali-
fax, Nordica, Seven
Seas, Navigator og
Keilir koma í dag.
Eldborg og Dettifoss
fara í dag.
Hafnarfjarðarhöfn:
Green Arctic kemur í
dag. Gemini og Vik-
ing fara í dag.
Mannamót
Aflagrandi 40. Bingó
í dag kl. 14.
Árskógar 4. Smíða-
stofan er lokuð til 11.
ágúst. Handa-
vinnustofan er lokuð
vegna sumarleyfa.
Púttvöllur opinn
mánudag til föstudags
kl. 9–16.30.
Bólstaðarhlíð 43. Kl.
8–16 hárgreiðsla, kl.
8.30–12.30 bað, kl. 9–
16 handavinna, kl. 9–
17 fótaaðgerð, kl. 13–
16 frjálst að spila í sal.
Félagsstarfið, Dal-
braut 18–20. Kl. 9 að-
stoð við böðun, hár-
greiðslustofan opin.
Félagsstarfið Dal-
braut 27. Kl. 8–16 op-
in handavinnustofan,
kl. 9–12 applikering,
kl. 10–13 opin versl-
unin.
Félagsstarfið Hæð-
argarði 31. Kl. 9.30
gönguhópur, allir vel-
komnir, kl. 9–12 bað,
kl. 9–16 opin vinnu-
stofa. Púttvöllurinn
opinn frá kl. 14.
Félagsstarfið, Löngu-
hlíð 3. Kl. 8 bað, kl. 10
hárgreiðsla, kl. 10–12
verslunin opin, kl. 11
leikfimi, kl. 13 „opið
hús“, spilað á spil.
Félag eldri borgara í
Kópavogi. Félagsvist
spiluð í Fannborg 8
(Gjábakka) kl. 20.30.
Skrifstofan er lokuð
frá og með 30. júní til
6. ágúst. Viðvera í
Gjábakka fellur niður
á sama tíma.
Félag eldri borgara,
Hafnarfirði, Hraun-
seli, Flatahrauni 3.
Innanfélagspútt-
keppni á Hrafn-
istuvelli.
Mæting kl. 13.
Gerðuberg, fé-
lagsstarf. Lokað
vegna sumarleyfa til
12. ágúst.
Gjábakki, Fannborg
8. Handavinnustofan
opin, leiðbeinandi á
staðnum kl. 9.30–16.
Kl. 13.15 brids, kl.
20.30 félagsvist.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði
Glæsibæ. Þeir sem
ætla að fara í ferðina
Austur-og Norðaust-
urland 18.–25. ágúst
og eiga eftir að stað-
festa geri það fyrir 8.
ágúst. Dagsferð 13.
ágúst Fjallabaksleið
syðri, eigum laus sæti.
Skrifstofa félagsins í
Faxafeni 12 opin frá
kl. 10–16. S. 588 2111.
Gullsmári, Gullsmára
13. Lokað vegna sum-
arleyfa til 5. ágúst.
Hárgreiðuslustofan
og fótaaðgerðastofan
verða opnar.
Hraunbær 105. Kl. 9
baðþjónusta, fótaað-
gerð og hárgreiðsla,
kl. 10 pútt. Bingó kl.
14. Allir velkomnir.
Kaffiveitingar.
Norðurbrún 1. Fóta-
aðgerðastofan er lok-
uð frá 21. júlí til 5.
ágúst. Hárgreiðslu-
stofan er lokuð frá 15.
júlí til 12. ágúst.
Vesturgata 7. Kl. 9–
16 fótaaðgerð og hár-
greiðsla, kl. 9.15–
14.30 handavinna, kl.
13.30–14.30 sungið við
flygilinn, kl. 14.30–16
dansað í kaffitímanum
við lagaval Halldóru,
gott með kaffinu, allir
velkomnir.
Vitatorg. Kl. 9 hár-
greiðsla, kl. 9.30
morgunstund, kl. 10
fótaaðgerð, kl. 13.30
bingó.
Félagsstarfið Furu-
gerði 1. Í dag kl. 14
kemur Anna Þrúður
Þorkelsdóttir í heim-
sókn og segir frá veru
sinni í Afríku sl. ár.
Kaffiveitingar kl. 15.
Allir velkomnir.
FEBK. Brids spilað
kl. 13.15 í Gjábakka.
Hana-nú, Kópavogi.
Laugardagsgangan á
morgun.
Lagt af stað frá Gjá-
bakka kl. 10.
Gott fólk, gott rölt.
Gengið frá Gullsmára
13, kl. 10 á laug-
ardögum.
Minningarkort
Minningarkort
Hjartaverndar fást á
eftirtöldum stöðum á
Vesturlandi: Akranes:
Hagræði hf., Borg-
arnes: Dalbrún, Brák-
arbraut 3. Grund-
arfjörður:
Hrannarbúð sf.,
Hrannarstíg 5. Stykk-
ishólmur: Hjá Sess-
elju Pálsd., Silfurgötu
36. Ísafjörður: Póstur
og sími, Aðalstræti 18.
Strandasýsla: Ásdís
Guðmundsd. Laug-
arholti, Brú.
Minningarkort
Hjartaverndar fást á
eftirtöldum stöðum á
Austurlandi: Egils-
staðir: Gallery Ugla,
Miðvangi 5. Eskifjörð-
ur: Póstur og s.,
Strandgötu 55. Höfn:
Vilborg Einarsdóttir,
Hafnarbraut 37.
Í dag er föstudagur 1. ágúst,
213. dagur ársins 2003, bandadag-
ur. Orð dagsins: En ég mun sakir
réttlætisins skoða auglit þitt, þá
er ég vakna, mun ég mettast af
mynd þinni.
(Sálm. 17, 15.)
Fyrir skemmstu var til-kynnt að kartöflu-
uppskera væri óvenju-
lega snemma á ferðinni
þetta árið. Við það tilefni
hélt landbúnaðarráð-
herra blaðamannafund
og sagði að dagurinn
væri mikill gleðidagur
fyrir íslenska neytendur.
Á Deiglunni.com fjallar
Bolli Skúlason Thorodd-
sen um þennan viðburð.
Hann dregur í efa að ís-
lenskir neytendur hafi yf-
ir miklu að gleðjast þegar
kartöflur eru annars veg-
ar.
Landbúnaðarráðherrasem er einkar lagið að
skemmta landsmönnum
með fornu tungutaki og
framburði var að sjálf-
sögðu ekki spurður af
hverju það teldist frétt-
næmt að íslenskir neyt-
endur hefðu aðgang að
jafn sjálfsögðum hlut og
nýjum kartöflum á tímum
alþjóðvæðingar í við-
skiptum. En eins og menn
vita eru kartöflur fram-
leiddar út um allan heim
og uppskerutímar árið
um kring. Þær eru því til
í öllum stærðum, gerðum
og gæðaflokkum á er-
lendum mörkuðum,“ seg-
ir Bolli.
Hann segir að þótt auð-velt sé að nálgast nýj-
ar og góðar kartöflur á
heimsmarkað árið um
kring hafi íslenskir neyt-
endur ekki enn fengið að
njóta góðs af því og segir:
„Hér á landi hafa stjórn-
völd hins vegar komið því
þannig fyrir að Íslend-
ingar skulu éta gamlar
kartöflur meðan eitthvað
er til af innlendu fram-
leiðslunni. Og ekki lækk-
ar verðið þótt líði á árið
og varan versni.“
Bolli segir að vegnahafta á innflutningi
dragi neytendur úr kart-
öfluneyslu og þurfi frek-
ar að borða óhollari fæðu
eins og pasta og fransk-
brauð.
Bolli telur að þetta sýni
að annarleg sjónarmið
ráði ferðinni í landbún-
aðarmálum: „Þetta er
grátbroslegt dæmi úr ís-
lenskri landbúnaðar-
stefnu sem fyrst og
fremst tekur mið af hags-
munum framleiðenda en
ekki neytenda. Í kosn-
ingabaráttunni s.l. vor
var varla minnst á ís-
lenskan landbúnað eða þá
staðreynd að hann kostar
ríkissjóð tæpa tíu millj-
arða árlega í ýmsar
stuðningsaðgerðir. Allir
flokkar, meira að segja
Sjálfstæðisflokkurinn,
sem vill vera í far-
arbroddi frjálsra við-
skipta og markaðslausna,
virðast hafa gefist upp
fyrir hagsmunagæslu
landbúnaðarins.“
Að lokum segir Bolli:„En landbúnaðar-
ráðherrann fer ekki alltaf
troðnar slóðir. Hver veit
nema hann geri sérhvern
dag að gleðidegi fyrir ís-
lenska neytendur með því
að gefa frjálsan innflutn-
ing á kartöflum.“
STAKSTEINAR
Gleðidagur hjá
íslenskum neytendum –
eða hvað?
Víkverji skrifar...
VÍKVERJI hefur ferðazt talsvertum landið í sumar með fjölskyldu
sinni. Sami háttur er hafður á og þeg-
ar Víkverji var sjálfur í aftursætinu í
bíl foreldra sinna fyrir margt löngu;
það hjónanna sem ekki þarf að sinna
akstrinum, situr með kort og Vega-
handbókina og veitir öðrum fjöl-
skyldumeðlimum upplýsingar um
það, sem fyrir augu ber við þjóðveg-
inn.
Útgáfa Vegahandbókarinnar var
auðvitað merkilegt framtak á sínum
tíma og gott starf hefur verið unnið
við að endurbæta hana með reglulegu
millibili. Með fullri virðingu fyrir
vönduðum frumtexta Steindórs
Steindórssonar frá Hlöðum finnst
Víkverja þó að Vegahandbókin sé
fullsagnfræðileg og ekki alveg í takt
við tímann lengur. Mun meira rými
fer í að rekja að hinn eða þessi
merkispresturinn hafi fæðzt á til-
teknum bæ eða drukknað í nálægri á
en að veita ferðalöngum upplýsingar
um ýmis áhugamál nútímamannsins,
til dæmis hvar séu skemmtilegar
gönguleiðir nálægt þjóðveginum,
hægt að kaupa veiðileyfi, kíkja inn á
athyglisvert kaffihús, kaupa hand-
verk úr héraðinu o.s.frv.
Víkverji leyfir sér að leggja til að
við næstu útgáfu fari fram gagnger
endurskoðun á texta Vegahandbók-
arinnar.
Víkverja finnst skemmtilegt að
kynnast menningu hvers héraðs fyrir
sig; eins og áður segir að koma í
handverkshúsin, fá kaffi og heima-
bakað meðlæti á sveitakaffihúsum og
síðast en ekki sízt að kaupa afurðir
héraðsins, t.d. kjöt, fisk og mjólkur-
vörur. Á ferð sinni um Ísafjarðardjúp
á dögunum datt Víkverja í hug að
hann yrði endilega að kaupa harðfisk,
fyrst hann væri staddur í þessum
landshluta sem væri frægur fyrir
harðfiskverkun. Á Súðavík var áð á
litlu veitingahúsi, þar sem enginn
harðfiskur var á matseðlinum, heldur
fitustorknir hamborgarar, samlokur
og franskar. Úr veitingahúsinu var
hins vegar innangengt í stórmarkað
og þangað inn vatt Víkverji sér og
bað um vestfirzkan harðfisk. Hann
var ekki til nema gaddfreðinn í fryst-
inum. Hins vegar blöstu við heilu
hillumetrarnir af útlendu snakki. Vík-
verja var öllum lokið.
x x x
VÍKVERJI hefur áður haft orð áþví hvað tjaldvagna- og fellihýsa-
æðið á landsmönnum sé hvimleitt.
Þegar hann staldraði við í borginni í
fáeina daga varð hann vitni að vand-
ræðum fjölskyldu, sem hafði fyrst
hengt tjaldvagninn aftan í jeppann og
ákveðið að fara svo og verzla í Kringl-
unni. Eftir heilmikið hringsól um
bílastæðin , sem eru alla jafna ásetin,
fann fjölskyldufaðirinn, sem sat við
stýrið, tvö samliggjandi bílastæði þar
sem hann hugðist leggja jeppanum
og tjaldvagninum. Með tjaldvagninn í
eftirdragi náði hann hins vegar ekki
beygjunni inn í stæðið og varð að fara
út og reyna að halda á tjaldvagninum
til að rétta hann af. Tilburðirnir vöktu
talsverða kátínu viðskiptavina
Kringlunnar, annarra en þeirra sem
ekki komust út af bílastæðinu vegna
þess að tjaldvagninn teppti ökuleið-
ina. Víkverji ráðleggur tjaldvagna-
eigendum að skilja vagninn eftir
heima áður en reynt er að leggja við
fjölsóttar verzlunarmiðstöðvar.
Morgunblaðið/Kristinn
Helgarleyfi?
SAMKVÆMT reglugerð
um leyfi afplánunarfanga
til dvalar utan fangelsis,
lagagrein nr. 719/1995, 2.
kafli, 24. og 25. gr., segir:
„24. gr. Ekki er heimilt
að veita fanga leyfi til dval-
ar utan fangelsis sam-
kvæmt þessum kafla fyrr
en fanginn hefur verið í
samfelldri afplánun 1⁄3 hluta
refsitímans, að meðtalinni
gæsluvarðhaldsvist og
verður afplánun að hafa
staðið samfellt yfir í 1 ár að
frátalinni gæsluvarðhalds-
vistinni. 25. gr. Leyfi til
dvalar utan fangelsis sam-
kvæmt þessum kafla skulu
vera 14 klukkustundir að
hámarki og er fanganum
heimilt að dvelja utan fang-
elsis samkvæmt leyfinu frá
kl. 8.00 til kl. 22.00 að kvöldi
þess sama dags, og skal
taka þetta fram í skírteini
því er greinir í 1. mgr. 21.
gr.“
Lögin eru skýr, þau eru
sett til að farið sé eftir þeim
og samkvæmt þessum lög-
um verður fangi að hafa af-
plánað a.m.k. eitt ár áður
en dagsleyfi fæst. Fjöl-
miðlar hafa talað um að
Árni Johnsen fái helgar-
leyfi til að stjórna fjölda-
söng á þjóðhátíð í Vest-
mannaeyjum. Það er
ekkert til sem heitir helg-
arleyfi. Fangelsismála-
stofnun hefur, með réttu,
synjað Árna um leyfi til að
fara á þjóðhátíð til að
skemmta sér og öðrum.
Árni biður því flokksbróður
sinn Björn Bjarnason
dómsmálaráðherra að leyfa
sér að fara.
Ég skora á Björn
Bjarnason að fara eftir lög-
um sem ráðuneyti hans
starfar eftir og synja Árna
um þessa beiðni. Næg er
spillingin í þjóðfélaginu
þótt ekki bætist við að fangi
fái leyfi til að fara á útihátíð
bara af því að hann heitir
Árni Johnsen.
221275-5439.
Tapað/fundið
Hjól hvarf
FIMMTUDAGINN 24. júlí
sl. hvarf splunkunýtt reið-
hjól, sem stóð fyrir utan
leikskólann Bæjarból í
Garðabæ. Hjólið er af teg-
undinni Jamis og var keypt
í Nanoq í júní sl. Það er
skærgult á litinn. Ef ein-
hver hefur séð hjólið vin-
samlegast hafið samband í
síma 862 2365.
Úr fannst
FYRIR u.þ.b. mánuði síðan
fannst úr hjá Húsdýragarð-
inum. Á úrið er ritað nafnið
María. Upplýsingar í síma
557 3538 eða 699 0687.
Dýrahald
Kassavanir kettlingar
fást gefins
FJÓRIR gullfallegir,
þriggja mánaða gamlir
kettlingar, þar af ein svört
læða, fást gefins. Upplýs-
ingar í síma 698 9329 eftir
kl. 17.
Læða
fæst gefins
FIMM mánaða gömul,
brúnbröndótt læða fæst
gefins á gott heimili. Hún
er að sögn kunnugra blíð og
góð og fæst gefins vegna
óviðráðanlegra orsaka.
Upplýsingar fást hjá Pál-
ínu, í síma 866 8255.
Freyja óskar
eftir heimili
EINS ÁRS gömul svört
læða fæst gefins vegna
flutninga. Hún er eyrna-
merkt, geld og gríðarlega
falleg. Kassi og búr fylgja
með. Upplýsingar í síma
845 3805.
Lara er týnd
LARA er lítil læða, grá að
lit og þunnhærð við gagn-
augun. Hún er afar hænd
að fólki og mannelsk. Lara
er til heimilis að Þverholti
30 í Reykjavík. Þeir sem
hafa upplýsingar um hvar
Lara er niðurkomin eru
vinsamlegast beðnir um að
láta vita í síma 823 9349.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 Netfang velvakandi@mbl.is
Morgunblaðið/Sverrir
LÁRÉTT
1 mergð, 4 væskil, 7 rot-
in, 8 dylur, 9 fiður, 11
eyðimörk, 13 ósoðni, 14
urr, 15 brumhnappur, 17
reiðir, 20 sterk löngun,
22 ginna, 23 haggar, 24
orðasenna, 25 pjatla.
LÓÐRÉTT
1 berast með vindi, 2 dá-
in, 3 slór, 4 Freyjuheiti, 5
skaut, 6 tré, 10 rándýr,
12 ferskur, 13 lík, 15 trjá-
stofn, 16 starfrækjum, 18
asna, 19 vera óstöðugur,
20 þunn grastorfa, 21
viðauki.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU
Lárétt: 1 handahófs, 8 suddi, 9 losna, 10 gól, 11 rýrna,
13 tuska, 15 fress, 18 uggar, 21 kyn, 22 róaði, 23 neiti, 24
himnaríki.
Lóðrétt: 2 aldar, 3 deiga, 4 hollt, 5 fúsks, 6 ósar, 7 bana,
12 nes, 14 ugg, 15 ferð, 16 efaði, 17 skinn, 18 unnir, 19
grikk, 20 reið.
Krossgáta
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16