Morgunblaðið - 01.08.2003, Qupperneq 48
FÓLK Í FRÉTTUM
48 FÖSTUDAGUR 1. ÁGÚST 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Heill á húfi
(Intacto)
Spennumynd
Spánn 2001. Myndform VHS/DVD. Bönn-
uð innan 16 ára. (107 mín.) Leikstjórn
Juan Carlos Fresnadillo. Aðalhlutverk
Leonardo Sbaraglia, Eusebio Poncela,
Max von Sydow.
Í HEIMI Intacto, eftir hinn unga
og efnilega Spánverja Fresnadillo,
þá er lán eitthvað sem maður fær
sem guðsgjöf – fyrir einskæra
heppni. En láninu er hægt að glata
eins auðveldlega og það er áunnið,
hægt að láta svipta sig því, stela því
og jafnvel selja það. Myndin fjallar
um nokkra einstaklinga sem hlotið
hafa þessa blessun,
að vera yfirnátt-
úrulega lánsamir,
eða skulum við
segja bölvun því á
milli þeirra ríkir
hatrömm og lífs-
hættuleg rimma
um það hver þeirra
sé lánsamastur,
svona keppni í heppni. Sá voldugasti,
aldursforsetinn, lifði af ofsóknir nas-
ista. Einn komst lífs af úr þotuslysi,
annar lenti í jarðskjálfta og lifði. Og
lánið er orðið að fíkn þeirra, rétt eins
og fjárhættuspilið.
Þetta er einstaklega frumleg og
áhugaverð mynd, þótt vissulega sé
hún erfið áhorfs. Hún er hæggeng
mjög, á stundum hreint óþarflega
flókin og snjöll. Það breytir því þó
ekki að hún er mikið sjónarspil og
stemmingin sem Fresnadillo nær að
skapa dásamlega seiðandi og fram-
andleg. Myndbönd
Keppni um
heppni
Skarphéðinn Guðmundsson
EGYPSKA drottningin Kleópatra
er sannfærð um ágæti þjóðar sinn-
ar. Hún heldur því fram að sá
glæsileiki sem einkenndi Egypta-
land á tímum faraóanna sé enn til
staðar. Til þess að sanna það veðjar
hún við rómverska keisarann, Júl-
íus Sesar, um að hún geti byggt
honum nýja höll á einungis þremur
mánuðum. Þar sem allir bygg-
ingameistarar Kleópötru eru ann-
aðhvort önnum kafnir eða hæfi-
leikalausir fellur hið vandasama
verk í skaut Fríhendis. Hann á að
byggja höllina og þekja hana gulli,
að öðrum kosti verður honum kast-
að fyrir krókódíla. Fríhendis setur
sig í samband við Sjóðrík, gamlan
vin sinn, sem kann þá list öðrum
fremur að brugga galdramjöð sem
gefur hverjum þeim sem hann
kneyfar yfirnáttúrulega krafta.
Sjóðríkur fellst á að aðstoða Frí-
hendis og þeir kunnu kappar, Ást-
ríkur og Steinríkur, slást í för með
honum til Egyptalands. Þegar Júl-
íus Sesar fréttir af velgengni Frí-
hendiss við hallarbygginguna, send-
ir hann sveitir sínar á vettvang til
þess að hindra framgang verksins.
Hann hefur þó ekki gert ráð fyrir
þeirri hindrun sem þeir Ástríkur og
Steinríkur eru.
Vafasamt veðmál
Sambíóin og Háskólabíó
frumsýna kvikmyndina
Astérix & Obelix: Mission
Cléopâtre (Ástríkur og
Kleópatra) Leikstjórn:
Alain Chabat. Aðal-
hlutverk: Gérard De-
pardieu, Christian Clav-
ier, Jamel Debbouze,
Monica Bellucci og Alain
Chabat.
Íslensk talsetning: Þór-
hallur Sigurðsson, Jó-
hann Sigurðarson, Atli
Rafn Sigurðarson, Örn
Árnason og Jóhanna
Vigdís Arnardóttir. Leik-
stjórn: Sigurður Sigurjónsson.
Það er oft glatt á hjalla í Gaulverjabæ.
SAM Phillips mun að eilífu verða skráður í rokk-
sögubækurnar, ekki fyrir tónlist sína heldur þá tónlist
sem hann veitti brautargengi. Á sjötta áratugnum rak
Phillips hljóðver í Memphis, sem kallaðist Sun, og upp-
götvaði hann þar og fóstraði tónlistarmenn eins og Elv-
is Presley, Johnny Cash, Carl Perkins, Jerry Lee Lew-
is, Charlie Rich og Roy Orbison. Phillips lést á miðviku-
dagskvöldið, áttræður að aldri. Engar tilkynningar
hafa enn borist um dánarorsök.
Á árunum 1954 til 1958 vann Phillips ötullega að út-
breiðslu þess sem kallað er „rockabilly“, stefnu sem var
forveri rokksins. Hrátt og hratt rokkabillíið steyptist
yfir hinn íhaldssama sveitatónlistarheim sem varð aldr-
ei samur í kjölfarið. Bæði hvítir og svartir tónlistar-
menn hljóðrituðu hjá Phillips og komu þeir frá suður-
ríkjum Bandaríkjanna, fylkjum eins og Tennessee,
Mississippi og Arkansas. Phillips var óþreytandi í við-
leitni sinni til að vekja athygli á svörtum listamönnum í
borgum sem lágu utan við heimasvæði þeirra.
Það má kalla það nútímagoðsögn er Elvis Presley
gekk feiminn inn í Sun hljóðverið árið 1954 í þeim til-
gangi að taka upp eina plötu – sem pressuð var á staðn-
um – og gefa mömmu sinni. Hugðist hann syngja sálm
en Phillips taldi hann á að syngja hið fjöruga „That’s
All Right, Mama“ í staðinn. Á bakhliðinni var rokkuð
útgáfa Presleys á blágraslaginu „Blue Moon of Ken-
tucky“. Plata þessi er varðveitt og telst í dag verðmæt-
asta hljómplata heims.
Sun-hljóðverið varð aldrei meira en stökkpallur og
flestir skjólstæðinga Phillips fluttu sig um set til Nash-
ville þar sem var að finna betri hljóðver og starfsvænna
umhverfi. Phillips varð hins vegar eftir í Memphis og
áframseldi samninginn sem hann hafði gert við Presley
til RCA árið 1955
fyrir 35.000 dollara.
Stuttu síðar kom út
fyrsti smellurinn á
vegum Sun, „Blue
Suede Shoes“, flutt
af Carl Perkins.
Síðustu ár hefur
Sun hljóðverið verið
vinsæll viðkomu-
staður ferðalanga,
þar sem gefur að líta
upprunaleg upp-
tökutæki, hljóðnema
og annað það sem
hinar óþekktu stór-
stjörnur notuðust
við í upphafi ferils
síns.
Sam Phillips 1923–2003
Rokkgoðsögn öll
Sam Phillips ásamt Steven Tyler, söngspíru Aerosmith.
Phillips ásamt Presley.
BORGARSKJALASAFN REYKJAVÍKUR
www.rvk.is/borgarskjalasafn
Sími 563 1770
Hver var Lárus?
Sýning um Lárus Sigurbjörnsson,
skjala- og minjavörð Reykjavíkurbæjar
1954-1968 á 3. hæð, Tryggvagötu 15.
Opin alla virka daga kl. 10-16.
Aðgangur ókeypis.
Minjasafn Reykjavíkur
Árbæjarsafn - Viðey
www.arbaejarsafn.is - s: 577 1111
ÁRBÆJARSAFN:
Opið alla verslunarmannahelgina
frá kl. 10-18
Hestadagur sunnudag
Leikföng og leikir mánudag
Ljúffengar veitingar í Dillonshúsi
VIÐEY:
Ganga þriðjudag kl. 19.30
Upplýsingar um leiðsögn í Viðey
í símum 568 0535 og 693 1440
Minjasafn Orkuveitu Reykjavíkur
sími 567 9009
Sjáið einu talandi eldavél landsins!
Opið 13-17 alla daga.
Ljósmyndasafn Reykjavíkur
www.ljosmyndasafnreykjavikur.is
Frumefnin Fimm -
Ferðadagbækur Claire Xuan
24. maí - 1. sept. 2003.
Tekið er á móti hópum eftir samkomulagi,
nánari upplýsingar í síma 563 1790.
Afgreiðsla og skrifstofa opin virka daga
frá 10-16. Opnunartími sýninga virka daga
12-19 og 13-17 um helgar.
Aðgangur ókeypis.
www.listasafnreykjavikur.is
sími 590 1200
HAFNARHÚS, 10-17
Smekkleysa í 16 ár, Alþjóðleg
samtímalist á Íslandi, Erró - Stríð
Leiðsögn alla sunnud. kl. 15.00
KJARVALSSTAÐIR, 10-17
Íslensk samtímaljósmyndun,
Kjarval
Leiðsögn alla sunnud. kl. 15.00
ÁSMUNDARSAFN, 10-16
Ásmundur Sveinsson - Nútímamaðurinn
Menningarmiðstöðin Gerðuberg.
Sími 575 7700. Gerðubergi 3-5, 111 Rvík
Lokað vegna sumarleyfa starfsmanna.
Opnum aftur 12. ágúst.
Fjölbreytt dagskrá framundan.
www.gerduberg.is
s. 563 1717
Upplýsingar um afgreiðslutíma
s. 552 7545
BÆKUR Í FRÍIÐ
til að lesa úti í sólinni eða inni
í rigningunni.
Hugmyndir að sumarlestri á heimasíðu
Borgarbókasafns
www.borgarbokasafn.is
Date
þriðjudaginn 5. ágúst - örfá sæti laus
fimmtudaginn 7. ágúst - örfá sæti laus
SÍÐUSTU SÝNINGAR!
www.date.is
Sumarkvöld við orgelið
2. ágúst kl. 12:
Giorgio Parolini orgel.
3. ágúst kl. 20:
Giorgio Parolini leikur verk m.a.
eftir Bach, Reger,
Widor og Vierne.
Ain´t Misbehavin´
the Fats Waller Musical Show
Frumsýning fös. 8. ágúst kl. 20. - örfá sæti laus
2. sýning laugardaginn 9. ágúst kl. 20.
3. sýning sunnudaginn 10. ágúst kl. 20.
4. sýning mánudaginn 11. ágúst kl. 20.
Miðasala í Loftkastalanum
opin alla virka daga frá 15 - 18.
Sími 552 3000 • loftkastalinn@simnet.is
21. SÝNING MIÐVIKUDAGUR 20/8 - KL. 20 UPPSELT
22. SÝNING FIMMTUDAGINN 21/8 - KL. 20 UPPSELT
23. SÝNING LAUGARDAGINN 23/8 - KL. 16 UPPSELT
24. SÝNING LAUGARDAGINN 23/8 - KL. 20 UPPSELT
25. SÝNING FÖSTUDAGINN 29/8 - KL. 20 ÖRFÆA SÆTI LAUS
26. SÝNING LAUGARDAGINN 30/8 - KL. 16 ÖRFÁ SÆTI LAUS
27. SÝNING LAUGARDAGINN 30/8 - KL. 20 ÖRFÁ SÆTI LAUS
28. SÝNING SUNNUDAGINN 31/8 - KL. 16 LAUS SÆTI
29. SÝNING SUNNUDAGINN 31/8 - KL. 20 LAUS SÆTI
MIÐASALA LOKUÐ FRÁ 2. ÁGÚST TIL OG MEÐ 5. ÁGÚST
Moggabúðin
Íþróttataska, aðeins 2.400 kr.