Morgunblaðið - 01.08.2003, Síða 52
52 FÖSTUDAGUR 1. ÁGÚST 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Sýnd kl. 8.
Sýnd kl. 6, 8 og 10. B.i. 12ára
with english subtitles
Sýnd kl. 6. Ensk. texti
Fyndnasta Woody Allen
myndin til þessa.
Sjáið hvernig meistarinn
leikstýrir stórmynd frá
Hollywood blindandi.
Sýnd kl. 5.50 og 10.. B i. 12
JOHN TRAVOLTA OG SAMUEL JACKSON I FYRSTA
SINN SAMAN SIÐAN PULP FICTION
Í ÞESSARI MÖGNUÐU SPENNUMYND.
I
I I I I
Í I .
Sýnd kl. 6, 8 og 10. B i. 16.
ERIC
BANA
JENNIFER
CONNELLY
NICK
NOLTE
„Líklegast best heppnasta
ofurhetjumynd allra tíma!
Sá græni rokkar.“
B.Ö.S. Fréttablaðið
í l
j ll í !
i .
. . . l i
GH
KVIKMYNDIR.COM
"Besta hasarmynd
sumarsins það
sem af er"
t r
r i
f r"
SG. DV
SG. DVÓ.H.T Rás2
KVIKMYNDIR.IS
Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.10. Með ísl tali
Sýnd
meðíslensku tali.
Hinir galvösku Gaulverjar, Ástríkur og
Steinríkur eru mættir aftur til leiks í
frábærri mynd fyrir alla fjölskylduna.
Og sem fyrr vantar ekki kraftinn í þá.
KRINGLAN
Sýnd kl. 6, 8, 10.10.
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 4, 6, 8, 10.10.
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 5.45, 8.30 og 10.10. B.i.12 ára.
AKUREYRI
Sýnd kl. 8 og 10.
Í sumar skaltu
sleppa útilegunni.
Frábær spennuhrollur sem sýnir að það getur reynst
dýrkeypt að taka ranga beygju.
FRUMSÝNING
Stranglega bönnuð börnun innan 16 ára.
„Líklegast best heppnasta
ofurhetjumynd allra tíma!
Sá græni rokkar.“
B.Ö.S. Fréttablaðið
í l
j ll í !
i .
. . . l i
GH
KVIKMYNDIR.COM
"Besta hasarmynd
sumarsins það
sem af er"
SG. DVÓ.H.T Rás2
SG. DV
KVIKMYNDIR.IS
NÝ SJÓNVARPSSTÖÐ, SkjárTveir,
mun hefja útsendingar með haustinu.
Að stöðinni stendur Íslenska Sjón-
varpsfélagið sem rekur þegar Skjá-
Einn.
SkjárTveir verður áskriftarstöð
sem fyrst um sinn verður dreift gegn-
um breiðbandskerfi Símans og munu
áskrifendur nota sömu myndlykla og
þegar eru notaðir hjá Símanum.
Helgi Hermannsson er dagskrár-
stjóri Sjónvarpsfélagsins og er þessa
dagana í óða önn að skipuleggja dag-
skrá nýju sjónvarpsstöðvarinnar:
„SkjárEinn hefur verið hvað sterk-
astur á mánudögum, þriðjudögum og
fimmtudögum. Það er þá sem stöðin
hefur fengið hvað mest áhorf.
SkjárTveir mun að sumu leyti bæta
upp SkjáEinn og leggja ekki hvað síst
áherslu á hina fjóra daga vikunnar.
Sá sem gerist áskrifandi getur því
gengið að sjö frábærum sjónvarps-
kvöldum á viku.“
Góðkunningjarnir
fara hvergi
Helgi segir þó að góðkunningjar
áhorfenda muni líklega flestir halda
kyrru fyrir á SkjáEinum: „Það er
ekki búið að taka lokaákvörðun um
það en ef einhverjir flutningar verða
þá verður það í mjög litlum mæli.“ Að
sögn Helga er feykinóg af öðrum góð-
um sjónvarpsþáttum en þeim sem
þegar eru komnir á SkjáEinn. Meðal
vinsælustu dagksrárliða hingað til
hafa verið Survivor, The Practice,
CSI, Malcom in the Middle og Every-
body Loves Raymond: „Við erum
auðvitað konungar amerískra sjón-
varpssería,“ segir Helgi og hlær þeg-
ar blaðamaður segist ekki vita um
margar amerískar þáttaraðir sem
enn eigi eftir að taka til sýninga hér á
landi. „Það er framleitt mjög mikið af
efni þar á hverju ári. En svo er meira
til af sjónvarpsefni en bara það sem
kemur frá Bandaríkjunum. Við höf-
um verið að víkka sjóndeildarhring-
inn í leit að efni fyrir SkjáTvo.“ Hann
nefnir í þeim efnum Noreg og Dan-
mörku. Blaðamaður spyr um Bret-
land en Helgi segir algengan þann
vanda við þær þáttaraðir sem þaðan
koma að margar þeirra eru stuttar og
skammlífar, 6 til 10 þættir hver og
ganga oft aðeins nokkur ár. Það er
mikill kostnaður því samfara að
kynna sjónvarpsáhorfendum nýtt
efni og að sama skapi vandræði tengd
auglýsingatekjum, ólíkt amerískum
þáttaröðum sem eru að staðaldri 22
þættir að lengd
og ganga margar
ár fram af ári.
Family Guy
meðal nýrra
þátta
Helgi segir að
svo stöddu ekki
hægt að upplýsa
um hvaða þættir
verði á Skjá-
Tveimur en
treystir sér þó til
að uppljóstra að
meðal þáttanna
verði teikni-
myndaserían
Family Guy sem
þegar á stóran
hóp aðdáenda hér
á landi. Einnig er
á honum að heyra
að kvikmyndum
verði gert hærra
undir höfði á
SkjáTveimur en
verið hefur á
SkjáEinum.
Að auki segir Helgi ýmsar hug-
myndir uppi um íslenska dagskrár-
gerð en ekki er enn búið að fastsetja
neitt hvað það varðar. Þó dagskrár-
gerð með því sniði sem tíðkast hér á
landi sé með ódýrara móti þá er engu
að síður allt að sjö sinnum dýrara að
gera einn íslenskan þátt en að kaupa
útlenskan.
Endanleg dagskrá og fyrirkomu-
lag SkjásTveggja mun annars ekki
liggja fyrir í nánari smáatriðum fyrr
en nær dregur næstu mánaðamótum.
Líklega hefjast útsendingar ekki fyrr
en að tveimur mánuðum liðnum.
Úr þættinum Everybody Loves Raymond. Helgi Her-
mannsson segir að SkjárEinn muni ekki missa sína vin-
sælustu þætti til SkjásTveggja.
asgeiri@mbl.is
Meðal nýrra þátta á
SkjáTveimur verð-
ur ameríska teikni-
myndaserían
Family Guy.
Púlsinn tekinn á væntanlegri sjónvarpsstöð
Hvað verður á
SkjáTveimur?
ÞAÐ þarf stórkostlega blöndu af
hugrekki og heimsku að gefa út
plötu með titlinum Chocolate Fact-
ory þegar þú ert í miðjum réttar-
höldum, ásakaður
um vafasamar kyn-
lífsathafnir með
barnungum stúlk-
um. Með tilliti til
þessa er sannar-
lega ekki af honum
R. okkar Kelly skafið.
Yfirbragð þessa nýjasta verks
Kellys er viðkvæmt og letilegt. Flest
lögin bera með sér rólega og silki-
mjúka stemningu sem er næsta per-
vertísk (úpps!) í blautum, súkkilaði-
kenndum mjúkheitunum. Fram-
reiðslan er svo að sjálfsögðu fumlaus
og fagmannleg.
Hipp-hopp gárar létt undir R og
B-inu og Marvin Gaye, Michael
Jackson og fleiri sígildir, stimamjúk-
ir, blakkir sálarsöngvarar koma upp
í hugann þegar maður röltir um
Súkkulaðiverksmiðjuna. Metnaður
R. Kellys virðist vera sá að búa til
samtímasálartónlist, sem er í senn
sígild og tímalaus fremur en að hann
sé að elta ólar við tískustraumana.
Þær fyrirætlanir hans fara bara
nokkuð langt á þessari plötu og er
það tvímælalaust einn af kostum
hennar. Og þó að mörg laganna
hljómi tilgerðarleg og hol er það síst
einhver akkilesarhæll í tilfelli Kellys.
R. Kelly heldur því sjó á tónlist-
arsviðinu en ég læt ósagt um önnur.
Tónlist
Súkku-
laðigrís
R. Kelly
Chocolate Factory
Jive/Virgin
R og B-kóngurinn lætur ekki deigan síga.
Arnar Eggert Thoroddsen
…Cyndi Lauper
(„Girls Just Want
to Have Fun“ m.a.)
hefur undirritað
samning við Epic
og ætlar að gefa út
plötuna Naked
City bráðlega. Lauper var í tónleika-
ferðalagi með Cher í fyrra en slæst
nú í för með sjálfum kjöthleifinum,
Meat Loaf.
…Eminem ætlar að ljá Hrekkja-
brúðunum (Crank Yankers) rödd
sína í væntanlegum þætti. Þættirnir
ganga út á það að brúður hringja í
saklausa borgara og gera í þeim at.
Eminem ku vera mikill aðdáandi
þáttanna …Strokes eru nú staddir í
Japan en um helgina munu þeir hefja
endurkomu sína til popplanda. Leika
þeir í Tókíó og Osaka ásamt Kings Of
Leon, Radiohead og Starsailor. Ný
plata er tilbúin en á meðal lagatitla
eru „Talk Way Too Much“, „The
Way It Is“, „I Can’t Win“ og „Meet
Me In The Bathroom“ …Rokktröllið
Andrew WK er
sömuleiðis tilbú-
inn með nýja
skífu, en hann átti
hina ógleym-
anlegu I Get Wet í
fyrra, sem meðal
annars innihélt partíslagara eins og
„Party Till You Puke“, „Party Hard“
og „It’s Time To Party“. Nýja platan
kemur út í september og heitir The
Wolf …Um 400 þúsund rokkaðdá-
endur söfnuðust saman í Downs-
viewgarðinum í Toronto í Kanada til
að hlýða á Rolling Stones og á ann-
an tug annarra heimsþekktra hljóm-
sveita. Tilgangur tónleikanna var
m.a. að örva atvinnulíf og ferðaþjón-
ustu á svæðinu sem lamaðist vegna
bráðalungnabólgufaraldursins fyrr á
þessu ári. Tónleikahaldararnir létu
einn dal af hverjum aðgangseyri
renna til baráttunnar gegn bráða-
lungnabólgu og Rolling Stones
ákváðu að láta helming af tekjum af
sölu bola og annarra minjagripa á
svæðinu renna til sama málstaðar.
POPPkorn