Morgunblaðið - 01.08.2003, Page 53
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. ÁGÚST 2003 53
AKUREYRI
Sýnd kl. 6.
KRINGLAN
Sýnd kl. 3.45, 5.50, 8 og 10.10.
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 3.45, 5.50 og 8.
AKUREYRI
Sýnd kl. 6.
KRINGLAN
Sýnd kl. 3.45, 5.50.
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 3.45, 5.50.
KEFLAVÍK
Sýnd kl. 8 og 10.15. B.i. 14 ára.
KEFLAVÍK
Sýnd kl. 6.
KEFLAVÍK
Sýnd kl. 6.
Það er erfitt að falla inn í hópinn þegar
þú skerð þig svona hrikalega úr
Rómantísk gamanmynd með Amanda Bynes og
ColinFirth (Bridget Jones´s Diary)
JOHN TRAVOLTA OG
SAMUEL JACKSON
I FYRSTA SINN SAMAN
SIÐAN PULP FICTION
Í ÞESSARI MÖGNUÐU
SPENNUMYND.
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 8. b.I. 12 ára.
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 10.10. B.i. 12.
YFIR 42.000 GESTIR!
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 4.
KRINGLAN
Sýnd kl. 4.
FRUMSÝNING
AKUREYRI
Sýnd kl. 8 og 10. B.i. 16 ára.
EINNIG SÝND Í LÚXUS VIP Í ÁLFABAKKA KL. 8 OG 10.10. B.I. 16 ÁRA
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10.10. B.i. 16 ára.
KEFLAVÍK
Sýnd kl. 8 og 10. B.i. 16 ára.
SG. DVÓ.H.T Rás2 SG. DV
KRINGLAN
Sýnd kl. 10.10.
KRINGLAN
Sýnd kl. 8.
Hinir galvösku Gaulverjar, Ástríkur og
Steinríkur eru mættir aftur til leiks í
frábærri mynd fyrir alla fjölskylduna.
Og sem fyrr vantar ekki kraftinn í þá.
Sýnd
meðíslensku tali.
FRAMUNDAN er mesta ferðahelgi
ársins. Ekki eru þó allir sem kunna
við sig í mollulegu tjaldi innan um
skorkvikindi, fjarri örbylgjuofnum
og myndbandstækjum. Þeir sem
ekki kæra sig um útilegur samein-
uðust fyrsta sinni fyrir ári og héldu
hátíðlegan Innipúkann í Iðnó. Nú á
að endurtaka leikinn og er Grímur
Atlason einn af skipuleggjendum
uppákomunnar enda innipúki í húð
og hár: „Allir innipúkar eiga sér
sameiginlega sögu um að hafa pruf-
að að fara á útihátíð eða út á þjóð-
vegi landsins um verslunarmanna-
helgi. Mín reynsla er þannig að ég
fór í Húsafell 1987 og kom þaðan
rófubeinsbrotinn. Ég hafði verið í
móki alla helgina og með lungna-
kvef. Eftir þetta þurfti ég að liggja á
maganum í heila viku og mundi ekki
neitt eftir útilegunni. Ég man bara
að það var kalt, ég eyddi fullt af pen-
ingum og át pensilín í tvær vikur.
Þetta er sameiginleg reynsla inni-
púka. Innipúkinn hefur áttað sig á
að þetta er ekki hemja og ef maður
ætlar að njóta tónlistar þá gerir
maður það í Reykjavík því það er
besti staðurinn til að vera á.“
Svo hljóðar Innipúkaávarpið, sem
Grímur þylur af stakri innlifun.
Verður jafnvel grillað
Vegleg dagskrá verður í Iðnó á
laugardag og hefst kl. 17. Lovers
Without Lovers, Hudson Wayne,
Innvortis, Mugison, Egill Sæbjörns-
son, Rúnk, Dr. Gunni, Botnleðja og
Trabant munu spila en inn á milli
þeyta lunknir plötusnúðar skífur.
Dagskráin stendur því langt fram á
nótt.
„Það verður ýmislegt gert,“ segir
Grímur. „Nú er útlit fyrir að veð-
urguðirnir muni leika við gesti og
það verður jafnvel grillað. Þetta
verður staður til að vera á. Menn
geta komið og farið og dagskráin er
auglýst svo fólk veit hvað er að ger-
ast hverju sinni. Svo verður sér-
stakur hátíðarmatseðill í boði á veit-
ingastaðnum Tjarnarbakkanum.“
Grímur leggur áherslu á að dag-
skráin sé vönduð allt kvöldið: „Þetta
er ekki bara innantómt kjaftæði
milli 5 og 9 heldur athyglisverð at-
riði, eitthvað sem er vel þess virði að
sjá.“ Tónlistin framan af verður þó í
rólegri kantinum en eftir því sem
nær líður miðnætti segir Grímur að
stemningin verði rifin upp í meiri
dans.
Upphitun í 12 tónum
Til að taka forskot á sæluna verð-
ur Innipúkahátíð í verslun 12 tóna
við Skólavörðustíg í dag, föstudag.
Það sama var gert í fyrra og munu
þar nokkrir innipúkar stíga á stokk
og skemmta gestum og gangandi.
Þeir tónleikar hefjast um kl. 16 og er
þar von á Rúnki og hljómsveit Dr.
Gunna.
Grímur segir sölu ganga vel. Upp-
selt hafi orðið á síðasta Innipúka en
nú gangi salan enn hraðar og því
ekki seinna vænna fyrir innipúka
bæjarins að tryggja sér miða.
Tónlistarveislan Innipúkinn haldin aðra verslunarmannahelgina í röð
Innipúkar allra landa sameinist!
Morgunblaðið/Kristinn
Þétt skipuð dagskrá vandaðra tón-
listaratriða verður á Innipúkanum í
ár. Þessi mynd er tekin af síðasta
Innipúka og er ekki annað að
greina en ágætis hátíðarstemmning
hafi verið á staðnum.
Innipúkinn verður í Iðnó á laug-
ardag frá 17 til 04. Miðaverð er
kr. 1.800 í forsölu en 2.200 við
innganginn.
Forskot á Innipúkann verður hjá
12 tónum á föstudag og hefst
kl. 16.
asgeiri@mbl.is