Morgunblaðið - 07.09.2003, Síða 9
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7. SEPTEMBER 2003 9
Verðlaunaðu þig með
nýjum Opel Vectra
Opel Vectra er bíllinn sem sameinar fullkomna tækni, nútímalega útlitshönnun, rými
og óvenju lipurð í akstri. Þýsk vandvirkni og nákvæmni tryggja gæði og öryggi sem
uppfylla ströngustu kröfur. Undir stýri lagar bíllinn sig að þínu aksturslagi, ekki öfugt.
Þetta finnur þú þegar þú prófar Opel Vectra. Loftkæling og framsæti sem hver og
einn stillir nákvæmlega að sínum þörfum, að ekki sé talað um hversu vel fer um
fólkið í aftursætinu veita að auki hámarks vellíðan í Opel Vectra.
Verð frá kr. 2.290.000
Opel Vectra
Einkaleiga 38.677 kr.á mánuði*
*Miðað við 36 mánaða samning
Hlaut gullna stýrið í Þýskalandi 2002
Sævarhöfða 2a · sími 525 9000 · bilheimar@bilheimar.is · www.bilheimar.is
Komdu, skoðaðu og
prófaðu Opel Vectra á
þýskum dögum, sölumenn
okkar taka vel á móti þér!
ÞÝ
SKI
R DAGA
R
1. - 6. S E P T E M
BE
R
F
í
t
o
n
F
I
0
0
7
7
6
3
PRENTSMIÐJAN Oddi er að
vinna annað verkið á þessu ári
fyrir Royal Hibernian Academy í
Dublin á Írlandi. Það sem gerir
verkefnið frábrugðið öðrum verk-
efnum Odda er að hönnun bók-
arinnar fer fram í Ameríku,
prentunin er á Íslandi og verk-
kaupinn er á Írlandi.
Barrie Cooke, a retrospective
er annað verkið sem Oddi prentar
fyrir Royal Hibernian Academy á
þessu ári. Bókin er 80 blaðsíður,
saumuð kilja sem stendur til að
gefa út fyrir sýningu írska lista-
mannsins Barrie Cooke í Dublin
10. september næstkomandi.
Barrie Cooke er fæddur í Eng-
landi 1931 en hefur búið á Írlandi
síðan 1953. Cooke er einstakur
náttúruunnandi og efnistökin nær
undantekningarlaust í náttúrunni.
Vill listamaðurinn vekja áhorf-
andann til vitundar um umgengni
okkar og ábyrgð gagnvart nátt-
úrunni.
Miklar kröfur gerðar
Hönnuður bókarinnar, Tamar
Burchill, er bresk og búsett í
Bandaríkjunum. Vegna fyrri við-
skipta við prentsmiðjuna var hún
ákveðin í að láta Odda prenta fyr-
ir sig þessa glæsilegu bók og setti
ekki fyrir sig að vinnan færi fram
í þremur löndum. „Það sannast í
þessu verkefni að gott samstarf,
traust, gæði og nútímatækni gera
það að verkum að landamæri
hverfa, vegalengdir styttast og
útkoman verður glæsilegur prent-
gripur,“ segir í fréttatilkynningu
frá Odda.
Bílafyrirtækið Nissan á Írlandi
er einn helsti styrktaraðili þess-
arar sýningar, undir heiti The
Nissan art project. Stór hluti
verka sem Oddi vinnur fyrir söfn
og listamenn erlendis frá eru
styrktarverkefni sem fjármögnuð
eru af fyrirtækjum og listunn-
endum. „Kröfurnar sem þessir að-
ilar gera eru miklar og skipta
gæði vinnslunar því oft meira
máli en staðsetning fyrirtækisins
á heimskortinu. Niðurstaðan er
ánægjuleg staðfesting á því að
Odda hefur tekist að koma sér á
kortið á erlendum markaði í há-
gæða prentun,“ segir í tilkynn-
ingu Odda.
Oddi prent-
ar írska bók
sem hönnuð
er í Ameríku
Mikil áhersla er lögð á vandaða
prentun á bók Barrie Cooke, en
bókin er skrifuð af Íra, hönnuð í
Ameríku og prentuð á Íslandi.
FULLTRÚAR Samiðnar, Sambands
iðnfélaga, áttu enga fundi í þessari
viku með ráðherrum félagsmála,
dóms-, og umhverfismála um aðbúnað
og eftirlit á virkjanasvæði Kára-
hnjúkavirkjunar. Þorbjörn Guð-
mundsson, framkvæmdastjóri Sam-
iðnar, segir að óskað hafi verið fyrst
eftir fundi með forsætisráðherra til að
kanna hvort stjórnvöld væru reiðubú-
in að mæta kostnaði við eftirlit sem
hlýst af virkjanaframkvæmdunum.
Forsætisráðherra hafi ekki séð
ástæðu til að ræða við fulltrúa Sam-
iðnar og vísað málinu til viðkomandi
fagráðherra. Fulltrúar Samiðnar ráð-
gera að ganga á fund félagsmálaráð-
herra á mánudag.
Að sögn Þorbjörns hafa engar ráð-
stafanir verið gerðar til að ríkisstofn-
anir á borð við heilbrigðiseftirlit og
Vinnueftirlitið geti tekið að sér þessi
viðbótarverkefni. „Þær sjá fram á
mikinn vanda og að þær muni fara
fram úr sínum fjárhagsáætlunum og
hins vegar eiga þær í erfiðleikum með
að þjónusta þetta svæði eins og þær
þurfa. Löggæslan er talandi dæmi um
þetta,“ segir Þorbjörn. Þá segir hann
að nauðsynlegt sé að ganga frá mál-
um við eftirlitsstofnanir sem snúi að
sveitarfélögunum, t.d. um brunaeftir-
lit og byggingareftirlit.
Fundur með félagsmála-
ráðherra á mánudag
Samiðn vill ræða eftirlitsskyldu við Kárahnjúkavirkjun
ATLANTSOLÍA hækkaði ekki olíu-
verðið um mánaðamótin eins og sam-
keppnisfélögin þrjú og segja tals-
menn félagsins að tilkoma þess hafi
hreyft við hinum félögunum sem sé
til mikilla hagsbóta fyrir stórnotend-
ur olíu á Íslandi en það sé umhugs-
unarefni hvers vegna bensínverð til
neytenda hafi ekki breyst að sama
skapi.
Í tilkynningu frá Atlantsolíu kem-
ur fram að verð samkeppnisaðila sé
það sama eða 41,30 kr. á lítra af bíla-
gasolíu og 30,90 kr. fyrir lítra af
skipagasolíu. Verð Atlantsolíu sé
hins vegar 39,09 kr. fyrir lítra af bíla-
gasolíu og 28,64 kr. fyrir lítra af
skipagasolíu. Bent er á að fyrir hálfu
ári, þegar hillt hafi undir að Atlants-
olía hæfi starfsemi sína, hafi lítri af
skipagasolíu kostað 36,60 kr., lítri af
bílagasolíu 47,30 kr. og lítri af 95 okt-
ana bensíni 100,80 kr. „Verðbreyt-
ingarnar á þeim tíma sem liðinn er
sýna lækkun á bílagasolíu um 12,7%
og skipagasolíu um 15,6%. Breyting
bensínverðsins er hins vegar óveru-
leg eða 0,7%.“ segir í fréttinni.
Óbreytt olíuverð
hjá Atlantsolíu