Morgunblaðið - 07.09.2003, Blaðsíða 23
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7. SEPTEMBER 2003 23
FORELDRAR Gabriels Bunch
eru af kynslóð blómabarna sem leit á
menntun og fyrirhyggju sem leiðindi
og smáborgara-
hátt. Ljúfa lífið í
tónlistarbransan-
um heillaði og
Rex, faðir Gabr-
iels, lék á gítar
með hinum fræga
Lester Jones og
móðirin saumaði
búninga og sam-
kvæmisklæðnað á
hljómsveitina,
umboðsmennina og aðdáendurna. En
brátt hallaði undan fæti og Rex gerð-
ist atvinnulaus pöbbaröltari í skítug-
um gallabuxum, vonlaus draumóra-
maður og mamman varð beisk og
árásargjörn. Og svo fór með fleiri af
þessari kynslóð frelsis og ástar:
„Flestir voru hinsvegar á atvinnu-
leysisbótum, í meðferð, angandi af
auðnuleysi eða að deyja úr vonbrigð-
um“ (20). Dag einn flytur pabbinn út
af heimilinu og veröldin fer á annan
endann. Það kemur í hlut Gabriels,
15 ára unglings, að koma vitinu fyrir
foreldra sína og sameina fjölskyld-
una á ný. Þetta er efni nýrrar skáld-
sögu bresk-pakistanska rithöfundar-
ins Hanifs Kureishi, Náðargáfu
Gabriels.
Sagan gerist í norðurhluta Lond-
on, fjölþjóðlegri borg sundurgerðar
og stéttamunar. Í hverfi Gabriels eru
glæsilegir veitingastaðir innan um
dópgreni; þar búa morðingjar jafnt
sem fölir uppar með þroskaðan kaffi-
smekk; og sumir vegfarendur dragn-
ast með innkaupakörfur í leit að rusli
sem hugsanlega má koma í verð (14–
15). Gabriel, erkiengillinn, axlar
ábyrgðina á brottfluttum föður sín-
um og boðar honum fagnaðarerindið.
Í skemmtilega hvunndagslegri at-
burðarás sögunnar raðast brotin
saman, heimurinn verður nýr og
betri og það er náðargáfu Gabriels að
þakka. Titill sögunnar er reyndar tví-
ræðari á ensku en íslensku, Gabriels
gift merkir gáfa Gabriels en einnig
hæfileiki eða gjöf. Poppgoðið Lester
gefur Gabriel mynd eftir sig og sú
gjöf gegnir veigamiklu hlutverki í
sögunni, ekki síst eftir að Gabriel
tekst að líkja nákvæmlega eftir henni
og spurningar vakna um muninn á
raunverulegri list og eftirlíkingu,
raunverulegum listamönnum og mis-
heppnuðum. Náðargáfa Gabriels
felst í fjörugu ímyndunarafli hans og
sköpunargáfu og í bókarlok er ávæn-
ingur um að hann verði einn af hinum
raunverulegu, skapandi listamönn-
um.
Persónur sögunnar eru fremur
breyskt fólk og misheppnað, nema
Gabriel sem er óvenju þroskaður
unglingur. Rex er trúverðugur skip-
brotsmaður að bíða eftir frægðinni
sem aldrei kemur. Mamman er í
kreppu miðaldra konu sem finnst
hún hafa kastað lífi sínu á glæ og þrá-
ir að vinna upp glataðan tíma. Upp-
gjörið þeirra á milli, eftir langa og
stormasama sambúð, kallast á við
uppgjör hugsjóna hippakynslóðar-
innar. Rex segir t.a.m. við son sinn:
„Ég veit að ég veit mínu viti. Gallinn
er sá að ég sólundaði því öllu í nei-
kvæða orku. Ég vildi rífa allt í tætlur.
Á sjöunda áratugnum vildu menn
gefa skít í allt, ekki síst „venjulegt“
líf. Menn kölluðu það uppreisnar-
girni. En í rauninni var ég bara kald-
hæðinn og ég vildi óska að raunin
hefði verið önnur“ (160). Munurinn á
þeim feðgum Rex og Gabriel er sá að
sonurinn hefur þann hæfileika (eða
náðargjöf) að láta drauma sína ræt-
ast en pabbinn hefur ekki dug til að
finna hæfileikum sínum farveg. Í
sögunni rekast gamlar hugsjónir og
úrelt lífsmynstur foreldranna á hug-
myndir og drifkraft nýrrar kynslóð-
ar. Brostnar vonir birtast við hlið
frægðar og velgengni, hippalífi er
stillt upp andspænis smáborgaralegu
lífi – án snobbs eða sleggjudóma.
Frásagnarháttur sögunnar er fjar-
lægur og hlutlaus, sagan líður hægt
áfram og atburðir hennar endur-
spegla daglegt líf úthverfanna. Gabr-
iel er mikið í mun að raða brotum
saman og hafa stjórn á umheiminum
og draumur hans er að verða kvik-
myndagerðarmaður: „Þetta voru
einu töfrarnir sem Gabriel kærði sig
um, sameiginlegur draumur sem
fólst í því að breyta sögum í myndir.
Brátt myndu myndirnar safnast
saman á filmunni; innan tíðar gætu
aðrir séð það sem hann hafði haft í
kollinum undanfarna mánuði og
hann yrði ekki lengur einn á báti“
(202). Náðargáfa Gabriels er bjart-
sýn saga í svartnætti sínu, tilfinn-
ingasöm í hráslaga borgarlífsins.
Hún er reyndar afslappaðri og trú-
verðugri á frummálinu, þýðing Jóns
Karls Helgasonar er svolítið sér-
viskuleg á köflum. En ekki missa af
Kurseishi á bókmenntahátíðinni, þar
gefst einstakt tækifæri til að sjá hann
og fleiri höfunda á heimsmælikvarða
í eigin persónu.
Gabríel erkiengill
BÆKUR
Skáldsaga
eftir Hanif Kureishi (höfund Náinna
kynna). Jón Karl Helgason þýddi. 202
bls. Bjartur 2003.
NÁÐARGÁFA GABRIELS
Steinunn Inga Óttarsdóttir
Hanif Kureishi
Í EDEN í Hveragerði stendur yfir
málverkasýning Gunnþórs Guð-
mundssonar. Þar sýnir Gunnþór 52
myndir, 35 í akrýl og 17 í pastel
krít. Langflestar eru myndirnar
málaðar á þessu ári eða 2002. Um
helmingur myndanna er landslags-
myndir, aðrar fyrirmyndir úr nátt-
úrunni með ýmsu ívafi og nokkrar
eru hugarflug listamannsins.
Gunnþór hóf að mála árið 1999
og er þetta hans sjötta sýning.
Hann hefur einnig fengist við rit-
störf og sent frá sér fimm bækur,
sem að meginefni eru ljóð, spak-
mæli og nokkrar stuttar frásagnir.
Sýningin stendur til 14. sept-
ember.
Stemmur í Eden
NÚ er vetrarstarf kóranna og söng-
skólanna að hefjast og er ýmislegt í
boði.
Óperukór Hafnarfjarðar
Vetrarstarf Óperukórs Hafnar-
fjarðar hefst á mánudag. Kórstjóri
er Elín Ósk Óskarsdóttir óperu-
söngkona.
Æfingar verða á mánudagskvöld-
um í Hásölum Hafnarfirði og stefnt
er á stór verkefni næsta söngár,
þ.á m. söngferð til Austur-Evrópu,
Vínarkvöld, jólasöng og vortónleika-
röð.
Óperukórinn getur bætt við sig
góðu söngfólki í allar raddir.
Söngsetur Estherar Helgu
Innritun er hafin í Söngsetur
Estherar Helgu. Í boði er m.a. tólf
vikna hópnámskeið fyrir byrjendur
sem hefjast 16. sept. nk. Einnig er í
boði framhaldsnámskeið sem kallast
Regnbogakórinn og Dægurkórinn,
sem er fyrir lengra komna, en inn-
tökupróf eru inn í þann kór.
Kynning á vetrarstarfi hópanna
verður á mánudag kl. 19.
Dagskráin samanstendur m.a. af
þjóðlegum sönglögum frá ýmsum
heimshornum, jólasöngvum og létt-
um gospelsöngvum.
Önninni lýkur með tónleikum þar
sem allir hóparnir taka þátt.
Skólastjóri og aðalkennari skól-
ans er Esther Helga Guðmundsdótt-
ir og meðleikari er Katalin Lörinz.
Nýstofnaður barna-
og unglingakór
Nýstofnaður barna- og unglinga-
kór Breiðholts er að hefja vetrar-
starfið. Æfingar verða í samkomu-
húsi Seljaskóla einu sinni í viku og
verður fyrsta æfingin 18. septem-
ber.
Kórinn er ætlaður börnum og
unglingum á grunnskólaaldri og fá
kórfélagar tilsögn í nótnalestri
ásamt söngæfingum og flottum lög-
um. Fyrirhugað er að heimsækja
nágrannasveitarfélögin um jólin og
verður söngur kórsins tekinn upp á
geisladisk fyrir jólin. Á vormisseri
verður farið í lengra söngferðalag og
í febrúar verður farið í æfingabúðir
yfir helgi. Kórinn verður í samstarfi
við fleiri kóra bæði á höfuðborgar-
svæðinu og úti á landi.
Kórstjóri er Gróa Hreinsdóttir.
Kvennakór Kópavogs
Kvennakór Kópavogs er að hefja
starfsemi sína eftir sumarfrí. Fyrsta
æfingin verður á mánudag kl. 20 og
verða æfingar í hátíðarsal Digranes-
skóla. Kórstjóri er Natalía Chow.
Kórinn einskorðar sig ekki við
Kópavog og eru allar konur vel-
komnar. Laus pláss eru í kórnum í
vetur.
Fjölbreytt söngnámskeið í boði
FÉLAGSMENN Íslenskrar grafík-
ur hafa undanfarin 3 ár tekið þátt í
sýningarverkefni sem skammstafað
er GÍF og stendur fyrir Grænland,
Ísland og Færeyjar og var sýning í
einu landanna á árs fresti. Félagar í
Íslenskri grafík opnuðu sýningu í
Listasafni Færeyja í Þórshöfn í gær,
laugardag og taka 19 félagar þátt í
sýningunni.
Markmiðið með sýningunni er að
efla samstarfið og koma á samskipt-
um við færeyska myndlistamenn
sem ráða yfir góðu faglegu grafík-
verkstæði í Listasafninu í Þórshöfn.
28. september 2003.
Íslensk grafík rekur sýningarsal í
Tryggvagötu 17.
Tó-tó í Norræna húsinu
Karin Kjølbro, forstöðumaður
Norræna hússins í Færeyjum opnaði
sýningu Tó-tó kl. 14 í gær, laugar-
dag. Tó-tó er nafnið á textíllistakon-
unum Önnu Þóru Karlsdóttur og
Guðrúnu Gunnarsdóttur.
Íslenskir lista-
menn í Þórshöfn