Morgunblaðið - 07.09.2003, Page 27
vinna en slík verk búa engu síður
og raunar oftar en ekki yfir
ómældum þokka, gefa á stundum
drjúgar upplýsingar um vinnu-
brögð gerendanna.
Hér vil ég einkum nefna til sög-
unnar hið merkilega og yndis-
þokkafulla verk hins rússnesk-am-
eríska Alexanders Archipenkos;
Flatur bolur, frá 1914 sem form-
rænt séð upplýsir margt um þróun
rýmislistar. Gera listamanninn að
eins konar samnefnara fram-
kvæmdarinnar, enda mun hann
hér á landi minnst þekktur af fyrr-
nefndum listamönnum.
Archipenko, sem var fæddur í
Kiev, höfuðborg Úkraníu 1887 og
lést í New York 1965, telst einn af
helstu áhrifavöldum róttækra nú-
hugmynda í rýmislist alla síðustu
öld. Hann var með þriggja ára
nám í listaskóla í heimaborg sinni í
farteskinu (1902-05), upphaflega í
málun en síðan höggmyndalist, þá
hann hélt til Moskvu hvar hann
vann sjálfstætt og tók þátt í sam-
sýningum. Bar þarnæst að í París
1908, á svipuðum tíma og Const-
antin Brancusi og Ossip Zadkine
(lærimeistara Gerðar Helgadótt-
ur). Innritaði sig í Akademíuna en
þoldi ekki við nema í tvær vikur,
hvarf þá vonsvikinn á braut fullur
fyrirlitningar á þeim íhaldsömu
vinnubrögðum er þar voru við lýði.
Hóf sjálfstæðar rannsóknir í söfn-
um aðallega Louvre, þar höfðuðu
einkum til hans höggmyndir
Egypta, Assiríumanna og Grikkja,
sem og frumgotnesk verk. Má
greinilega marka af hinni einföldu
og yfirmáta formhreinu styttu,
samþjappaðri mjúkri og ávalri út-
færslunni, svo og hinni miklu rým-
iskennd sem er meginveigur heild-
arinnar. Og þótt telja megi þessa
litlu styttu með frumverkum mód-
ernismans í höggmyndalist, og
vinnubrögðin sem slík ættu eftir
að hafa ómæld áhrif á framvind-
una, ber hún um leið í sér þúsunda
ára sögu.
Ári eftir að Archipenko kom til
Parísar og hann hafði komið sér
fyrir á Montparnasse, kynntist
hann Fernand Léger, og varð um
leið fyrir áhrifum af hugmynda-
fræði kúbismans. Árið 1910 hóf
hann að sýna verk sín í óháða saln-
um, Salon des Indépendants, opn-
aði eigin skóla 1912 og hélt einka-
sýningu í Folkwang-Museum,
Essen í Þýskalandi. Var þá kom-
inn í innsta hring félagsskaps rót-
tækra Parísarlistamanna, Section
d’ Or, en aðrir meðlimir voru til að
mynda Picasso, Braque, Gris, Lég-
er, Delaunay og Duchamp. Ekki
leiðum að líkjast og óhætt segja að
hér komi fram lögmálið um mik-
ilvægi þess að vera á réttum stað á
réttum tíma, sannaðist einnig á
fleiri löndum hans svo sem Chagall
og Zadkine.
Það sem máli skiptir og sýningin
á þátt í að undirstrika, er að þrátt
fyrir allar hugmyndafræðilegar
umbyltingar um eðli og umtak
rýmis á síðustu öld breytist grunn-
urinn aldrei. Lögmálin um umtak-
ið og rýmið allt um kring í heild
sinni voru mönnum hugleikin frá
fyrstu tíð, kemur jafnt fram í
höggmyndalist sem arkitektúr.
Samræmið og algjörleikinn var
hér meginveigurinn, að hver ein-
ing félli að markaðri heild, hvort
heldur í næsta nágrenni eða lands-
lagi.
Meginbyltingin á tuttugustu öld
fólst í því að yfirfæra rýmið inn í
sjálft umtakið, fyrirferðina handa
á milli, sem kemur kannski best
fram í verkum Henry Moores. En
hringleikahús eins og Kolossseum
í Róm og mörg atriði í bygging-
arlist til forna eru einnig lifandi
dæmi um opið rými, þótt ekki sé í
afmörkuðu umtaki höggmyndar,
þar liggur hundurinn grafinn.
Kannski má orða það svo, að út-
hverft umtak verði innhverft, eitt-
hvað í líkingu við að í stað þess að
styðjast fullkomlega við hið sýni-
lega viðfang, hlutlæga ásýnd og yf-
irborð er að auganu snýr, þrengi
viðkomandi sér inn í kjarna þess.
Geri lifun sína úthverfa og öðrum
sýnilega, innsæi sitt á hið hlut-
vakta úthverft, svipað og opinber-
ast í expressjónismanum, úthverfu
innsæi.
Í besta falli má hafa þessa
þanka til hliðsjónar við skoðun
sýningarinnar, Meistarar forms-
ins, á Sigurjónssafni. Aðalatriðið
er þó að menn nálgist hana, enn-
fremur að hver og einn meðtaki og
njóti verkanna í samræmi við
geðslag sitt og eðlisgreind.
Bragi Ásgeirsson
Morgunblaðið/Bragi Ásgeirsson
Liggjandi kona: Henri Laurens, 1921.
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7. SEPTEMBER 2003 27
m
TÍMARITUMMAT&VÍN27062003
Næsta tölublað af tímaritinu m,
sem fjallar um mat og vín, fylgir Morgunblaðinu
laugardaginn 13. september nk.
Stærð tímaritsins er 25x36.
Pantanafrestur auglýsinga er til
þriðjudagsins 9. september kl. 16.
Hafðu samband við
auglýsingadeild
Morgunblaðsins
í síma 569 1111
eða á augl@mbl.is
Auglýsendur!
13 9 Í A IT UM A Í
Mánudaginn 8. september verður aðkeyrslu að höfuðstöðvum
Orkuveitu Reykjavíkur Bæjarhálsi lokað vegna gatnagerðaframkvæmda.
Aðkeyrslan verður opnuð á ný þriðjudaginn 16. september.
Viðskiptavinum er bent á aðkomu að höfuðstöðvum
Orkuveitunnar um Réttarháls.
ORKUVEITA REYKJAVÍKUR
zetor
NÝ AÐKOMA