Morgunblaðið - 07.09.2003, Qupperneq 36
MINNINGAR
36 SUNNUDAGUR 7. SEPTEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
✝ Sigríður DóraÁrnadóttir fædd-
ist í Reykjavík 6. jan-
úar 1931. Hún lést á
líknardeild Landspít-
alans í Kópavogi 10.
ágúst síðastliðinn.
Foreldrar hennar
eru Árni Guðmunds-
son vélstjóri, f. 3.2.
1904, d. 1988, og
Margrét Sigurðar-
dóttir, f. 19.10. 1902,
til heimilis á Hrafn-
istu í Hafnarfirði.
Sigríður Dóra ólst
upp í Reykjavík og
bjó þar alla tíð. Hún var elst af
fimm systkina, hin eru: Guðveig, f.
1932, maki Kristján Ragnarsson,
Árni Grétar, f. 1934, Gunnar Jón,
f. 1940, maki Jó-
hanna Sigurðardótt-
ir, og Rannveig, f.
1940, maki Victor
Melsted.
Sigríður Dóra
giftist Markúsi Páls-
syni, f. 1926, d. 1974.
Dóttir hennar og
Árna Reynis Hálf-
dánarsonar er Mar-
grét, f. 30.5. 1952,
dætur hennar eru
Sigríður Lára, f.
29.4. 1972, og
Harpa, f.12.1. 1980.
Eftirlifandi sam-
býlismaður Sigríðar Dóru er Ás-
grímur Aðalsteinsson, f. 1932.
Útför Sigríðar Dóru var gerð í
kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Elsku amma. Mig langar með
örfáum orðum að kveðja þig og
þakka þér fyrir allar stundirnar
sem við áttum saman.
Það er ótrúlegt að hugsa til þess
að þú sért farin. Að þú sért ekki
lengur í Melgerðinu. En ég veit að
þér líður vel núna. Það er samt svo
sárt að missa þig en ég reyni að
hugsa um að þú hefur það miklu
betra núna. En ég er samt eig-
ingjörn og sakna þín sárt. Ég veit
að þú fylgist með mér og hjálpar
pabba við að vaka yfir mér. Við
munum hittast aftur þegar rétti
tíminn kemur.
Ég sendi þér kæra kveðju,
nú komin er lífsins nótt.
Þig umvefji blessun og bænir,
ég bið að þú sofir rótt.
Þó svíði sorg mitt hjarta,
þá sælt er að vita af því.
Þú laus ert úr veikinda viðjum,
þín veröld er björt á ný.
Ég þakka þau ár sem ég átti,
þá auðnu að hafa þig hér.
Og það er svo margs að minnast,
svo margt sem um hug minn fer.
Þó þú sért horfin úr heimi,
ég hitti þig ekki um hríð.
Þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sig.)
Bless elsku amma mín.
Þín
Harpa „Dóra“.
Elsku besta amma.
Með söknuði kveðjum við þig í
hinsta sinn. Ástarþakkir fyrir vin-
áttuna, væntumþykjuna og blíðuna
sem við ávallt mættum hjá þér.
Takk fyrir allar góðu stundirnar
sem geymast að eilífu í hjarta okk-
ar. Þín er sárt saknað.
Ég kveð þig, hugann heillar minning
blíð
hjartans þakkir fyrir liðna tíð
lifðu sæl á ljóssins friðar strönd,
leiðir sjálfur Drottinn þig við hönd.
(Guðrún Jóhannsdóttir.)
Hvíl í friði.
Ástarkveðja,
Sigríður Lára og Ívar Dór.
Kveðja okkar til þín, elsku Sigga
systir.
Þar sem englarnir syngja sefur þú
sefur í djúpinu væra.
Við hin sem lifum í trú
á að ljósið bjarta skæra
veki þig með sól að morgni
veki þig með sól að morgni.
Farðu í friði vinur minn kær
faðirinn mun þig geyma.
Um aldur og ævi þú verður mér nær
aldrei ég skal þér gleyma.
Svo vöknum við með sól að morgni
svo vöknum við með sól að morgni.
(Bubbi Morthens.)
Þínar
Hildur, Birna og Guðbjörg.
SIGRÍÐUR DÓRA
ÁRNADÓTTIR
Blómastofa Friðfinns,
Suðurlandsbraut 10,
sími 553 1099, fax 568 4499.
Opið til kl. 19 öll kvöld
Kransar • Krossar • Kistuskreytingar
ÚTFARARSTOFA
HAFNARFJARÐAR
Flatahrauni 5A, sími 565 5892
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Símar 581 3300 - 896 8242
Allan sólarhringinn - Áratuga reynsla
Suðurhlíð 35 — Fossvogi — www.utforin.is
Sverrir Olsen,
útfararstjóri.
Sverrir Einarsson,
útfararstjóri.
Kistur - Krossar
Prestur - Kirkja
Kistulagning
Blóm - Fáni
Val á sálmum
Tónlistarfólk
Sálmaskrá
Tilk. í fjölmiðla
Erfisdrykkja
Gestabók
Legstaður
Flutningur kistu á
Komum heim til aðstandenda ef óskað er
Bryndís Valbjarnardóttir,
útfararstjóri.
milli landa og
landshluta
Landsbyggðar-
þjónusta
Baldur Frederiksen,
útfararstjóri.
Útfararþjónustan ehf.
Stofnuð 1990
Rúnar Geirmundsson
Útfararstjóri
Sími 5679110, 8938638
Heimasíða okkar er
www.utfarir.is
Þar eru upplýsingar um
allt er lýtur að útför:
- Söngfólk og kórar
- Erfidrykkja
- Aðstoð við skrif
minningargreina
- Panta kross og frágang á leiði
!"#$$
%&&'''(
( LEGSTEINAR
Mikið úrval af legsteinum
og fylgihlutum
Sendum myndalista
MOSAIK
Hamarshöfði 4, 110 Reykjavík, sími 587 1960
Marmari
Granít
Blágrýti
Gabbró
Líparít
Villa systir mín hefði
orðið 65 ára 2. septem-
ber sl., en hún lést
skyndilega 12. desem-
VILHELMÍNA
STEINUNN
ELÍSDÓTTIR
✝ VilhelmínaSteinunn Elís-
dóttir fæddist á
Brunnastöðum á
Vatnsleysuströnd 2.
september 1938. Hún
lést á heimili sínu á
Akranesi 12. desem-
ber 2001 og var útför
hennar gerð frá
Akraneskirkju 19.
desember 2001.
ber 2001. Ég var lengi
að átta mig á að hún
væri farin og kæmi
ekki aftur. Daginn áður
var hún hin hressasta
að fara í vinnuna, kíkti
við í kaffisopa eins og
hún gerði svo oft. En
lífið er hverfult. Villa
var mjög snyrtileg,
enda sýndi heimili
hennar það, alltaf
hreint og fínt. Hún var
hjálpsöm og bar um-
hyggju fyrir öðrum,
alltaf til staðar fyrir
börnin sín og barna-
börnin. Þau nutu mik-
illar aðstoðar og hlýju og ekki taldi
hún það eftir sér að skreppa til
Hveragerðis þegar hún átti frí til að
létta undir með þríburunum sem nú
sakna ömmu Villu mikið, eins og
reyndar við gerum öll.
Ég veit að Nonni hefur tekið á
móti þér Villa mín. Hann lést líka
snögglega á jóladag fyrir 20 árum.
Eins og Lína sagði: „Hann hefur vilj-
að fá þig núna.“
Takk fyrir ánægjulegar samveru-
stundir Villa mín. Guð geymi þig.
Þín systir
Guðrún Margrét
(Gunna Magga).
Amma í Skálholtsvík
hefur nú yfirgefið okk-
ur. Fréttirnar komu
ekki á óvart. Rétt áður
en ég flutti til Bandaríkjanna fór ég
til hennar og kvaddi. Mér var ljóst
þá að líklega yrði þetta okkar hinsta
kveðja.
Amma var stór partur af mínu
lífi. Á hverju sumri fór ég norður í
sveitina mína og dvaldi þar eins
lengi og ég gat. Eftirvæntingin var
mikil og það virtist taka endalausan
tíma að komast norður. Loksins
þegar komið var á áfangastað tók
amma hlýlega á móti manni með
hlaðborð, bæði mat og kökur svo
allir fengju eitthvað við sitt hæfi.
Ömmu þótti nefnilega afskaplega
gaman að gefa manni að borða, sér-
staklega eitthvað sem manni fannst
gott. Á sérstökum dekurdögum
voru kjötbollur og ís í eftirrétt.
Amma gerði nefnilega heimsins
bestu kjötbollur. Þar sem ég vissi
að ísinn var sérstaklega keyptur
fyrir mig vildi ég gera ömmu til
hæfis. Henni fannst gaman gefa
manni að borða, ef manni þótti eitt-
hvað gott þá át maður mikið, svona
í þakklætisskyni. Ég kláraði því í
það minnsta líter af ís á hverjum
sunnudegi, bara svona til að styrkja
SIGRÍÐUR
SVEINBJÖRNS-
DÓTTIR
✝ Sigríður Svein-björnsdóttir
fæddist á Snorra-
stöðum í Laugardal í
Árnessýslu 12. júní
1908. Hún lést á
Sjúkrahúsinu á
Hvammstanga 27.
ágúst síðastliðinn og
var útför hennar
gerð frá Prestbakka-
kirkju 4. september.
hana í að gefa mér
meiri ís næsta sunnu-
dag.
Þrátt fyrir nokkuð
háan aldur tóku amma
og afi á móti okkur
Burkna hvert einasta
sumar. Við vorum ekki
auðveld í uppeldi, slóg-
umst daglega og rif-
umst. Þrátt fyrir það
tóku þau við okkur
sumar eftir sumar og
stundum í vetrarfríum
líka. Amma naut þess
að stjana í kringum
okkur. Við reyndar
sáum um uppvaskið eftir matinn og
þrifum einu sinni í viku en það var
allt og sumt. Þar sem mér fannst
skemmtilegra að vinna úti við vildi
amma leyfa mér að njóta þess.
Einnig var hafður sérstakur matur
fyrir okkur systkini ef henni þótti
líklegt að við myndum ekki vilja
matinn. Svo keypti hún alltaf Coco
Puffs fyrir morgunmatinn. Í raun
vorum við agalega spilltir krakkar í
sveit.
Amma, afi og Dóri voru í mínum
huga órjúfanlegt þríeyki. Ég tel það
hafa verið alger forréttindi að alast
upp á heimili þeirra. Það var ekki
verið að keppast við lífsgæði á þeim
bænum, fólk bara naut líðandi
stundar. Vinna var mikils metin og
frá unga aldri fékk maður að taka
þátt í störfunum á bænum. Við
Burkni höfðum oft mikið gaman af
því að sitja við matarborðið og
hlæja að öllum þeim misskilningi
sem átti sér stað á milli þeirra
þriggja. Bræðurnir höfðu mjög svo
skerta heyrn og amma hafði það
hlutverk að flytja orð á milli þeirra
bræðra, en hún sat á milli þeirra.