Morgunblaðið - 07.09.2003, Síða 42
Vina leitað
ÉG heiti Eldbjörg Brun og
var au-pair stúlka hjá Frið-
riki og Bergljótu á Kambs-
vegi 23 í Reykjavík frá
haustinu 1960 til vors 1961.
Heimferð mín varð með
öðrum hætti en til stóð í
upphafi en nú, eftir öll þessi
ár, er ekkert sem mig lang-
ar meira til en að hafa upp á
fjölskyldunni á Kambsveg-
inum, sem reyndist mér svo
vel og Lilju vinkonu minni
sem rataði með mér inn um
dyr hamingjunnar en end-
uðu síðan með miklum
raunum.
Nú bý ég í bæ sem heitir
Dröbak og er rétt sunnan
við Ósló. Mig langar að
heimsækja Ísland aftur,
sem fyrst, og vildi þá mjög
gjarnan hitta mína gömlu
vini. Þess vegna vona ég
að þið sendið mér línu eða
gerið vart við ykkur á ann-
an hátt ef þið lesið þessar
línur.
Kveðja,
Eldbjörg Brun,
Osloveien 45 C,
1440 Dröbak, Norge.
Sími: 0047 2221 6111,
farsími: 0047 9903 0996.
Eiga bændur bágt?
ÉG hef stundum verið að
væla yfir því með sjálfri
mér hvað bændur sem
framleiða kindakjöt eigi
bágt. En hluta af þessu
vandamáli eiga þeir sjálfir.
Kjötið sem þeir framleiða
fáum við í leiðindapokum
og svo er einnig verið að
sýna sláturhúsamyndir á
hverju hausti. Finnst mér
að markaðssetja megi kjöt-
ið betur, t.d. í skemmtilegri
pakkningum.
Einnig finnst mér synd
að vita ekki hvaðan kjötið
er upprunnið, ég vil frekar
kjöt af kindum sem hafa
verið á fjöllum en af kind-
um sem eru við vegarkant-
inn allt sumarið.
Svo er kindakjötið
óheyrilega dýrt, og nýtist
illa vegna mikilla beina og
mikillar fitu.
Vitað er að sú kynslóð
sem er að alast upp er að
mestu alin upp á svínakjöti
og kjúklingakjöti og verður
líklega aldrei að kinda-
kjötsneytendum.
Elísabet.
Dýrahald
Kettlingur í óskilum
ÞESSI fallegi kettlingur
sem fannst á Seltjarnarnesi
leitar að eiganda sínum eða
að góðu heimili sem getur
tekið hann að sér. Hann er
4-5 mánaða gamall og mjög
blíður og góður, greinilega
vel vaninn heimilisköttur.
Hafa má samband í síma
562 1972 eða ná í hann í
Kattholt, Stangarhyl 2, á
þriðjudag eða fimmtudag
milli kl 14 og 16:30. Sími
þar 567 2909.
Tapað/fundið
Karlmannsúr týndist
KARLMANNSÚR, gyllt
Raymond Weil með brúnni
ól, týndist sunnudaginn 31.
ágúst. Hugsanlega í grennd
við Melabúðina og Vestur-
bæjarlaug eða í sumarbú-
staðalandinu á Efri-Reykj-
um í Biskupstungum eða í
Brekkuskógi. Finnandi vin-
samlega hringi í síma
899 7778 eða 551 0563 á
kvöldin. Fundarlaun.
Óskilamunir á
Hlemmi
MIKIÐ af óskilamunum er
í miðasölunni á Hlemmi.
Þar eru m.a. myndavélar,
gleraugu, alls konar veski
og skóladót. Fólk sem gæti
átt muni þarna hafi sam-
band í miðasöluna þar sem
er opin kl. 8-20 á virkum
dögum, kl. 12-20 um helgar.
Hulstur með gler-
augum í óskilum
GLERAUGNAHULSTUR
með gleraugum í fannst á
Leifsgötu. Upplýsingar í
síma 552 5136.
Sími og lyf týndust
GSM-sími og lyf týndust úr
bíl við Bónus í Tindaseli sl.
fimmtudag. Eigandi
lyfjanna þarfnast þeirra
sárlega. Þeir sem gætu gef-
ið upplýsingar hafi sam-
band í síma 587 8686.
Íþróttaskór teknir
í misgripum
ÍÞRÓTTASKÓR nr. 41
voru teknir í misgripum í
Laugardalshöllinni sl.
þriðjudag. Upplýsingar í
síma 568 2384.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 Netfang velvakandi@mbl.is
DAGBÓK
42 SUNNUDAGUR 7. SEPTEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍM-
AR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111.
Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329,
fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, aug-
lýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115.
NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100
kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Skipin
Reykjavíkurhöfn:
Freri og Brúarfoss
koma í dag.
Hafnarfjarðarhöfn:
Eridan fer í dag.
Mannamót
Félagsstarf aldraðra
Garðabæ. Kvenfélag
Garðabæjar býður í ár-
lega haustferð mið-
vikudaginn 10. sept-
ember. Lagt af stað frá
Kirkjulundi kl. 13.30
með rútu eitthvað út í
haustið. Boðið verður í
kaffihlaðborð í Garða-
holti á eftir. Skráning
hjá FAG og í Garða-
bergi fyrir 9. sept-
ember. Athugið að opið
hús í Holtsbúð 10. sept-
ember fellur niður.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði
Glæsibæ. Dansleikur í
kvöld kl. 20. Caprí-tríó
leikur fyrir dansi.
Skrifstofa félagsins er í
Faxafeni 12 sími.
588 2111.
Félag eldri borgara,
Hafnarfirði, Hraunseli,
Flatahrauni 3. Haust-
ferð miðvikudaginn 24.
september farið verður
frá Hraunseli kl. 10.
Áætlað er að fara um
Krísuvík, Stranda-
kirkju, Sólheima í
Grímsnesi og Þingvöll
Leiðsögumaður Sig-
urbjörg Karlsdóttir.
Skráning og upplýs-
ingar í Hraunseli sími
555 0142.
Félagsstarfið Furu-
gerði 1. Á morgun,
mánudag, kl. 13, byrjar
leikfimin. Leiðbein-
andi, Margrét Bjarna-
dóttir. Námskeið í
smíði og útskurði hefst
n.k. fimmtudag. Nán-
ari uppl. í s. 553-6040.
Kristniboðsfélag
karla. Fundur verður í
Kristniboðssalnum
Háaleitisbraut 58-60,
mánudaginn 8. sept-
ember kl. 20. Allir karl-
menn velkomnir.
Garðakórinn, kór eldri
borgar í Garðabæ,
byrjar æfingar mánu-
daginn, 8. september
kl. 17.30 í Kirkjulundi.
Vonast er eftir góðri
mætingu og nýjum
meðlimum.
ITC Harpa. Fundur
verður þriðjudaginn 9.
september, kl.19 á
þriðju hæð í Borgatúni
22. Gestir velkomnir.
Kvenfélag Bústaða-
sóknar . Haustferðin
verður farin sunnudag-
inn 21. september.
Farið verður frá Bú-
staðakirkju kl. 12.30,
og er ferðinni heitið í
Borgarfjörð. Kven-
félagskonur hvattar til
að fjölmenna. Þátttaka
tilkynnist í síma
553 4594 Ingibjörg;
897 5094 Erla og 553
3675 Stella.
Skátamiðstöðin
Hraunbæ 123. Mánu-
daginn 8. september
kl. 12 er boðað til end-
urfunda skáta.
Boðið verður upp á
súpu, brauð og áleggs-
borð. Endurfundirnir
verða annan mánudag
í hverjum mánuði.
Minningarkort
Minningarkort Lands-
samtaka hjartasjúkl-
inga fást á eftirtöldum
stöðum á Norðurlandi:
Blómabúðin Bæj-
arblómið, Húnabraut
4, Blönduós, s. 452
4643 Blóma- og gjafa-
búðin, Hólavegi 22,
Sauðárkróki, s. 453
5253 Blómaskúrinn,
Kirkjuvegi 14b, Ólafs-
firði, s. 466 2700 Haf-
dís Kristjánsdóttir,
Ólafsvegi 30, Ólafs-
firði, s. 466 2260
Blómabúðin Ilex,
Hafnarbraut 7, Dalvík,
s. 466 1212 Bókabúð
Jónasar, Hafnarstræti
108, Akureyri, 462
2685 Bókabúðin
Möppudýrið, Sunnu-
hlíð 12c, Akureyri, s.
462 6368 Penninn Bók-
val, Hafnarstræti 91-
93, Akureyri, s. 461
5050 Blómabúðin Ak-
ur, Kaupangi, Mýr-
arvegi, Akureyri, s.
462 4800 Blómabúðin
Tamara, Garðarsbraut
62, Húsavík, s. 464
1565 Bókaverslun Þór-
arins Stefánssonar,
Garðarsbraut 9, Húsa-
vík, s. 464 1234, Skúli
Jónsson, Reykjaheið-
arvegi 2, Húsavík, s.
464 1178 Skúli Þór
Jónsson, Boðagerði 6,
Kópasker, s. 465 2144
Rannveigar H. Ólafs-
dóttur, Hólavegi 3, 650
Laugum, s. 464 3181.
Minningarkort Lands-
samtaka hjartasjúkl-
inga fást á eftirtöldum
stöðum á Aust-
fjörðum. Birgir Hall-
varðsson, Botnahlíð
14, Seyðisfirði, s. 472
-1173 Blómabær, Mið-
vangi, Egilsstöðum, s.
471 -2230 Nesbær ehf,
Egilsbraut 5, 740 Nes-
kaupstaður, s. 477
-1115 Gréta Friðriks-
dóttir, Brekkugötu 13,
Reyðarfirði, s. 474
-1177 Aðalheiður Ingi-
mundardóttir, Bleiks-
árhlíð 57, Eskifirði, s.
476- 1223 María Ósk-
arsdóttir, Hlíðargötu
26, Fáskrúðsfirði, s.
475- 1273 Sigríður
Magnúsdóttir, Heið-
mörk 11, Stöðv-
arfjörður, s. 475-8854.
Samtök lungnasjúk-
linga. Minningarkort
eru afgreidd á skrif-
stofu félagsins í Suð-
urgötu 10 (bakhúsi) 2.
hæð, s. 552-2154.
Skrifstofan er opin
miðvikud. og föstud.
kl. 16–18 en utan skrif-
stofutíma er símsvari.
Einnig er hægt að
hringja í síma 861-
6880 og 586-1088.
Gíró- og kred-
itkortaþjónusta.
Í dag er sunnudagur 7. sept-
ember, 250. dagur ársins 2003.
Orð dagsins: Og þótt þér elskið
þá, sem yður elska, hvaða þökk
eigið þér fyrir það? Syndarar
elska þá líka, sem þá elska.
(Lk. 6, 32.)
Sé vel að verki staðiðog góður árangur
næst, finnst okkur gjarn-
an, að niðurstaðan sé
sjálfsögð og liggi jafnvel
einfaldlega í hlutarins
eðli,“ sagði Björn Bjarna-
son, dómsmálaráðherra,
á fimm ára afmæli Há-
skólans í Reykjavík á
fimmtudaginn. „En ekk-
ert er sjálfsagt, góðir
áheyrendur, og síst af
öllu, að ríkisvaldið, svo
að ekki sé talað um sveit-
arfélög, semji við einka-
aðila um skólarekstur.
Í borgarstjórn Reykja-
víkur er eindregin and-
staða hjá meirihlutanum
við að fjölga einkarekn-
um grunnskólum. Í Hafn-
arfirði lagði nýr meiri-
hluti í bæjarstjórn til
atlögu við einkarekinn
grunnskóla. Í Garðabæ
fann minnihluti bæj-
arstjórnar tillögu um
einkarekinn grunnskóla
flest til foráttu.
Þá er ekki heldur sjálf-
sagt, að einkarekinn há-
skóli nái á fimm árum
sama góða árangri og
Háskólinn í Reykjavík,“
sagði Björn.
Á fimm árum hefurspáin um góð áhrif
Háskólans í Reykjavík á
allt háskólastigið ræst.
„Raunar hefur breyt-
ingin orðið meiri en
nokkurn grunaði. Við-
horfin um að ríkið geri
ekki nóg fyrir ríkishá-
skóla eða nemendur
þeirra eru enn við lýði og
verða jafnlengi og fjár-
hagslegt sjálfstæði þeirra
er ekki aukið enn frekar.
Hnígur allt til þeirrar
áttar á alþjóðavísu, að
háskólar í ríkisviðjum
telji sér farsælast að
losna við þær.
Ef ekki hefði tekist að
skjóta lögmætum stoðum
undir starfsemi einka-
rekinna háskóla á Ís-
landi, væri ríkisrekið há-
skólanám í landinu
rislægra en það er um
þessar mundir. Á því er
enginn vafi og þarf ég
ekki annað en líta á mína
gömlu deild, lagadeild
Háskóla Íslands, til að sjá
þess merki.
Samkeppni milli skóla áað hafa að markmiði
að bæta kennslu, auka
menntun og færni og búa
nemendur sífellt betur
undir að takast á við ögr-
andi verkefni í krafti
þekkingar sinnar.
Ég stefni að því að
endurflytja nú á komandi
þingi frumvarp forvera
míns um réttindi laga-
nema við aðra háskóla en
Háskóla Íslands. Deilan
um það mál er ljóslifandi
í hugum okkar og minnir
enn á, að ekkert er sjálf-
sagt, jafnvel ekki að
nemendur í góðum há-
skóla fái nám sitt við-
urkennt til réttinda að
lögum,“ sagði Björn í
ræðu sinni.
Þróunin hefur orðið sú,segir Björn, að fjöldi
nemenda í öllum háskól-
um landins hafi farið
langt fram úr áætlunum
og vakning hafi orðið í
þágu menntunar, rann-
sókna og vísinda.
STAKSTEINAR
Ekki sjálfsagt að ríkis-
valdið semji við einka-
aðila um skólastarf
Víkverji skrifar...
VÍKVERJI hefur lagt land undirfót í sumar, ferðast mikið innan-
lands – síðast um Austurland. Aust-
firðirnir eru alltaf töfrum slungnir
og Héraðið, sem umvefur Lagarfljót,
er ein af perlum Íslands. Víkverji
hefur ekki frekar en aðrir lands-
menn komist hjá að fylgjast með um-
ræðum og deilum um virkjun við
Kárahnjúka á undanförnum árum og
hefur Víkverji verið hlutlaus í þeim
umræðum, enda vissi hann ekkert
frekar en flestir Austfirðingar og
aðrir landsmenn hvað Kárahnjúkar
voru, áður en hugmyndir vöknuðu
um að reisa stíflur við hnjúkana –
stífla Jökulsá á Brú. Kárahnjúkar
voru ekki merktir á gamla landa-
kortið, sem Víkverji á, en á það nýja
er búið að setja nafn Kárahnjúka
vestan við Búrfell.
x x x
EKKI gat Víkverji látið það spyrj-ast um sig, að hann hefði ekki
farið upp að Kárahnjúkum, þegar
hann dvaldist í sumarhúsi á næstu
grösum við hið umdeilda landsvæði.
Víkverji fór á svæðið og einnig annað
umdeilt svæði – Eyjabakka. Ekki
hefði hann viljað sleppa ferðinni,
enda er sjón sögu ríkari. Ekki
skemmdi það að Landsvirkjun hefur
kappkostað að tryggja fólki sem
bestan aðgang að upplýsingum um
starfsemi fyrirtækisins í sambandi
við virkjunina. Landsvirkjun er með
gestastofuna í Végarði í Fljótsdal,
þar sem fólk fær góða innsýn í virkj-
unarframkvæmdirnar, hvað hægt er
að gera á svæðinu og skoða, göngu-
leiðir, allt sem markvert er að skoða í
Fljótsdal og uppi á hálendinu. Einn-
ig eru kort uppi á Sandfelli, útsýn-
issvæði fyrir ferðamenn, sem sýna
hvernig svæðið mun breytast. Tind-
urinn á Sandfelli verður eyja í lóninu.
Þá hefur Landsvirkjun gefið út
kort með gönguleiðum, slóðum og
vegum á virkjunarstað og nær-
svæðum. Það er auðvelt fyrir fólk að
komast að Kárahnjúkum. Lands-
virkjun er að ljúka við að leggja nýj-
an veg – um 50 km með bundnu slit-
lagi – úr Fljótsdal upp að Kára-
hnjúkum. Nú þurfa menn ekki að
ferðast um á fjallabílum til að fara
upp á Vesturöræfi og sjá hinn tign-
arlega fjallahring norðan Vatnajök-
uls, eins og Snæfell, Dyngjufjöll og
sjálfa drottningu allra fjalla, Herðu-
breið.
x x x
ÍSLENDINGAR og erlendir ferða-menn eiga eftir fjölmenna að
Kárahnjúkum á komandi árum.
Stíflurnar og lónið, sem á eftir að
myndast ofan á sandauðninni á öræf-
unum, á eftir að verða mikið aðdrátt-
arafl fyrir ferðamenn – og staðurinn
á eftir að verða einn fjölsóttasti
ferðamannastaður Íslands. Lónið
gæti jafnvel komið í veg fyrir að
landið fjúki burt og að rykmistur of-
an af hálendinu leggist yfir stóran
hluta Austfjarða í suðvestanátt, eins
og í síðastliðinni viku.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Herðubreið.
LÁRÉTT
1 draugagangur, 8 djarft,
9 munirnir, 10 sætta sig
við, 11 pabbi, 13 byggja,
15 uxann, 18 búa til, 21
stefna, 22 brotsjór, 23
skynfærið, 24 dýflissan.
LÓÐRÉTT
2 geðvonskan, 3 reiði, 4
lýkur, 5 gladdi, 6 ósæmi-
leg, 7 skriðdýr, 12 grein-
ir, 14 tré, 15 þyngdarein-
ing, 16 dýrin, 17 á næstu
grösum, 18 syllu, 19
flangsist upp á, 20 tóma.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU
Lárétt: 1 aftur, 4 þenur, 7 napur, 8 ásinn, 9 tel, 11 inna,
13 tali, 14 kenna, 15 haga, 17 klár, 20 æða, 22 púður, 23
púkum, 24 agann, 25 reika.
Lóðrétt: 1 agnúi, 2 túpan, 3 rýrt, 4 þjál, 5 neita, 6 rengi,
10 efnuð, 12 aka, 13 tak, 15 hoppa, 16 gyðja, 18 lokki, 19
remma, 20 ærin, 21 apar.
Krossgáta 6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
Hver vill taka okkur?
VEGNA sérstakra aðstæðna vantar þessi systkini
gott heimili. Upplýsingar í síma 699 7090 og
534 1107.