Morgunblaðið - 07.09.2003, Page 46
FÓLK Í FRÉTTUM
46 SUNNUDAGUR 7. SEPTEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
P
URE, sem nú er sýnd á
Breskum bíódögum,
fjallar um ungan dreng
sem reynir á örvænting-
arfullan en þó einarðan
hátt að bjarga móður sinni frá því að
verða heróínfíkn að bráð. Myndin,
sem borin er uppi af kornungum leik-
urum (Harry Eden, Keira Knightl-
ey) er sterk og raunsæisleg mynd
sem gerir tilraun til að varpa ljósi á
ömurleika þann sem fátækari þegnar
samfélagsins þurfa að lifa við. Um
leið veltir myndin upp hugmyndinni
um hvað það er að vera mannlegur
og hversu sterk og hugrökk mann-
skepnan getur verið, þrátt fyrir
kaldranalegt og ógnandi umhverfi.
Leikstjórinn, Gillies MacKinnon,
hóf leikstjórnarferil sinn við lok ní-
unda áratugarins og hefur verið
nokkuð mikilvirkur síðan, bæði í
sjónvarpi og svo á hvíta tjaldinu.
Aldrei auðvelt að
gera myndir
Hvað segirðu, ertu í Rúmeníu
núna?
„Já, ég er að taka upp nýja mynd
(Gunpowder, Treason and Plot).“
Þú segir mér kannski stuttlega frá
vinnunni við Hrein?
„Já, þú segir það. Ég verð nú bara
að viðurkenna það að ég er kominn
svo mikið á bólakaf í þetta nýja verk-
efni að ég er næstum búinn að
gleyma þessu! En sjáum til ... mynd-
in kom í raun mjög skyndilega upp í
hendurnar á mér og ég hreifst þegar
af sögunni. Sagan er í raun fyrst og
fremst saga af litlum strák og hetju-
dáðum hans. Hvernig hann reynir að
bjarga mömmu sinni án þess að geta
það í rauninni af því að hann er svo
lítill. Mér fannst þessi hugmynd
mjög spennandi.“
Þú ert þarna að takast á við vanda
eiturlyfjafíkninnar semsagt?
„Já og nei. Ég sá þetta reyndar
meira sem mynd um barn sem er að
reyna að bjarga móður sinni. Vanda-
málið hefði alveg eins getað verið
eitthvað annað en eiturlyf.“
Nú starfaðir þú áður fyrr sem
kennari og hefur unnið eitthvað með
unglingum, er það ekki?
„Jú, það er rétt. Ég vann á stræt-
um Lundúnaborgar með vandræða-
unglingum og fékk þann veruleika
beint í æð að heita má.“
Þannig að þú nýtir þér þá reynslu
væntanlega?
„Algerlega.“
Reyndist þér vegna þessa auðvelt
að gera Hrein eða ...
„Nei, ég get ekki sagt það. Það er
aldrei auðvelt að gera myndir, hver
og ein býr yfir ótal vandamálum sem
þarf að greiða úr. Tímaáætlunin
gengur aldrei upp og svo framvegis.
En ég sá að það var eitthvað alveg
sérstakt við hann Harry (Eden, aðal-
leikarann). Það var frábært að vinna
með honum og einkar auðvelt að leik-
stýra honum.“
Lýtur það ekki nokkuð sérstökum
lögmálum að vinna með svona ung-
um leikurum?
„Ég hef gert það oft áður reyndar.
Kannski vegna allrar vinnu minnar
áður með ungu fólki.“
Svo er hún Keira Knightley þarna
sem virðist vera að slá algerlega í
gegn um þessar mundir? (Hún leikur
eitt af aðalhlutverkunum í Sjóræn-
ingjar Karíbahafsins og fór einnig
með hlutverk í Gerðu eins og Beck-
ham (Bend It Like Beckham).
„Jú, jú. Hún var mjög ung þegar
hún lék í myndinni. Aðeins sextán
ára. Já, það er allt að verða vitlaust í
kringum hana en hún á alveg inni-
stæðu fyrir því. Hún er mjög hæfi-
leikarík og klár.“
Með Molly á bak við eyrað
Molly Parker er kannski sú þekkt-
asta í Hrein?
„Já, ég sá hana í Kysst (Kissed,
1996) fyrir nokkrum árum á Tor-
onto-kvikmyndahátíðinni. Þannig að
ég var með hana lengi vel á bak við
eyrað. Og ég sá hana vel fyrir mér í
þessu hlutverki.“
Nú hefur Hrein fengið slatta af
verðlaunum (fékk m.a. tvenn á hátíð-
inni í Berlín í ár). Hvaða merkingu
hafa verðlaun fyrir leikara og kvik-
myndagerðarmenn?
„Ja, ... (hikar) ... ég hef nú gert
nokkrar myndir og fengið eitthvað af
verðlaunum. Eftir nokkra stund
hættir þetta að hrína á mann. Verð-
laun eru auðvitað ekki málið, aðal-
málið er að gera almennilega mynd
og vonandi að fá sem flesta til að sjá
hana.“
Er það sanngjarnt af mér að slá
því fram að þú hafir byrjað í brans-
anum fremur seint?
„Já, það er alveg rétt hjá þér. Ég
starfaði sem kennari, æskulýðs-
fulltrúi og myndasöguteiknari áður
en ég ákvað að gera þetta að starfi
mínu.“
Og núna gerir þú ca eina mynd á
ári eða svo?
„Já, u.þ.b. Það er nú líka svo, að
þegar maður byrjar svona seint, þá
hefur maður ekki efni á að klúðra
neinu (hlær).“
En svona að lokum, hvernig er
þetta verkefni sem þú ert að vinna að
núna?
„Hún er í tveimur hlutum og er
sjónvarpsmynd. Fyrsti hlutinn
fjallar um Maríu Skotadrottningu og
gerist því á sautjándu öld. Síðari
hlutinn segir svo frá afdrifum sonar
hennar, James. Myndin verður
frumsýnd næsta vor á BBC 2. Þetta
er sögulegt drama, fullt af bardög-
um, hestum og svona. Ansi frábrugð-
ið Hrein verð ég að segja. Robert
Carlyle fer með hlutverk James.“
Jæja, fleira var það ekki. Ég bið
bara að heilsa til Rúmeníu ...
„Takk fyrir það. Og gangi ykkur
vel með hátíðina.“
Gillies MacKinnon er leikstjóri Pure
Gillies MacKinnon hóf að leikstýra tiltölulega seint á æviskeiðinu en
snarar nú út að meðaltali einni mynd á ári. Arnar Eggert Thoroddsen
ræddi við þennan fyrrverandi kennara um nýjustu mynd hans, Pure.
Gillies MacKinnon.
arnart@mbl.is
Beint
í æð Hinn ungi og bráð-efnilegi Harry Eden er í
aðalhlutverki í Hrein.
GAGNASAFN MORGUNBLAÐSINS
mbl.is
Stóra svið
LÍNA LANGSOKKUR e. Astrid Lindgren
Aðalæfing fö 12/9 kl 13 - kr. 1.000
Forsýning lau 13/9 kl 14 - UPPSELT
FRUMSÝNING su 14/9 kl 14 - UPPSELT
Lau 20/9 kl 14 - UPPSELT,
Su 21/9 kl 14. Lau 27/9 kl 14, Su 28/9 kl 14,
Lau 4/10 kl 14, Su 5/10 kl 14.
ÖFUGU MEGIN UPPÍ e. Derek Benfield
Lau 13/9 kl 20, Lau 20/9 kl 20.
RÓMEÓ OG JÚLÍA e. Shakespeare
í samstarfi við VESTURPORT og ÍD
Í kvöld kl 20 - UPPSELT,
Lau 13/9 kl 20.
Allra síðustu sýningar
Nýja sviðið
KVETCH e. Steven Berkoff
Í samstarfi við Á SENUNNI
Mi 10/9 kl 20 - UPPSELT,
Fi 11/9 kl 20 - UPPSELT,
Fö 12/9 kl 20 - UPPSELT.
Síðustu sýningar
NÚTÍMADANSHÁTÍÐ - Sex danshöfundar
frumflytja sex sólódansa
Í kvöld kl 20,
Lau 13/9 kl 20,
Su 14/9 kl 20.
Aðeins þessar sýningar
Litla sviðið
Miðasala: 568 8000
Miðasalan er opin kl. 13-18 og fram að sýningu sýningardaga. Sími miðasölu opnar kl. 10 virka daga.
Fax 5680383 midasala@borgarleikhus.is
Sala áskriftarkorta og afsláttarkorta stendur yfir
Sex sýningar: Þrjár á Stóra sviði, og þrjár aðrar að eigin vali. kr. 9.900
Tíumiðakort: Notkun að eigin vali kr. 16.900
Komið á kortið: Fjórir miðar á Nýja svið/Litla svið. Kr. 6.400
VERTU MEÐ Í VETUR
IÐNÓ
fim, 18. sept kl. 21,
sun, 21. sept kl. 21,
fim, 25. sept kl. 21.
föst, 26. sept kl. 21.
Gríman 2003
„BESTA LEIKSÝNING ÁRSINS,“
að mati áhorfenda
Félagsheimilið Hnífsdal,Ísafirði
lau 13. sept kl. 21. Örfá sæti
Miðasölusími í IÐNÓ 562 9700
og sellofon@mmedia.is