Morgunblaðið - 07.09.2003, Page 50

Morgunblaðið - 07.09.2003, Page 50
50 SUNNUDAGUR 7. SEPTEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ Sýnd kl. 5.50. B.i.12. Ofurskutlan Angelina Jolie er mætt aftur öflugri en nokkru sinni fyrr í svakalegustu hasarmynd sumarsins! Sýnd kl. 8, 10 og 10. B.i.16. Fjölskyldumynd ársins! - FRUMSÝNING Sýnd kl. 2, 4 og 6. Með íslensku tali. Sýnd kl. 8 og 10. Með ensku tali  Skonrokk FM 90.9 TVÆR VIKUR Á TOPPNUM Í USA KRAFT SÝNIN G KL. 12 .. MEÐ ÍSLEN SKU OG EN SKU TALI Barnapössun hefur aldrei verið svona fyndin! Frábær skemmtun fyrir alla fjölskylduna. Mestu illmenni kvikmynda- sögunnar mætast í bardaga upp á líf og dauða. Sýnd kl. 4. Síðustu sýningar Sýnd kl. 2. Með íslensku tali. HUGSAÐU STÓRT EINI THX LÚXUSSALUR LANDSINS Tvær löggur. Tvöföld spenna. Tvöföld skemmtun. Miðasala opnar kl. 13.30 Sýnd kl. 8 og 10.30. B.i. 12 ára. Sýnd kl. 2, 4 og 6. Ísl. tal. J I M C A R R E Y Mestu illmenni kvikmynda- sögunnar mætast í bardaga upp á líf og dauða. TVÆR VIKUR Á TOPPNUM Í USA Miðaverð 500 kr. ATH. Eingöngu Sýnd í Lúxussal Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.15. B.i. 16.  Skonrokk FM 90.9 Fjölskyldumynd ársins! - FRUMSÝNING Sýnd kl. 2, 4, 6, 8 og 10 með íslensku tali. Sýnd kl. 2, 4, 6, 8 og 10 með ensku tali MEÐ ÍSLENS KU OG EN SKU TALI Barnapössun hefur aldrei verið svona fyndin! Frábær skemmtun fyrir alla fjölskylduna. kl. 3, 5.30, 8 og 10.20. Líf eða þannig (Life Or Something Like It) Gamanmynd Bandaríkin 2002. Skífan VHS/DVD. Ekki ætluð ungum börnum. (95 mín.) Leikstjórn Stephen Herek. Aðal- hlutverk Angelina Jolie, Edward Burns, Tony Shalhoub. GRUNNFORSENDA þess að maður laðist að bíómynd - tala nú ekki rómantískri gaman- mynd - hlýtur að vera sú að maður fái áhuga á söguhetjun- um, heillist að þeim, finni til með þeim og vilji hag þeirra sem bestan. Sé forsenda þessi ekki fyrir hendi þá er voðinn vís - eins og Líf eða þannig sýnir og sannar öðru fremur. Myndin fjallar um al- gjörlega óþolandi metnaðarfulla og yfirborðskennda fréttakonu sem fær þær fréttir að hún eigi viku eftir ólifað og ákveður þá fyrst að temja sér ný lífsgildi. Verst að hún verður ekkert áhugaverðari fyrir vikið, ekki frekar en fólkið sem hún um- gengst, ekki einu sinni nýi ást- maður hennar sem á að vera svo óendanlega sannur og áhuga- verður. Ekki hjálpa þau heldur til Angelina Jolie og Edward Burns því þau ná ekki að gæða persónurnar neinum sjarma og standa sig hreint út sagt illa, sér í lagi Burns, sem verður að teljast með leiðinlegri leikurum í dag. Skarphéðinn Guðmundsson Myndbönd Leiðindalíf ROKKSTRAUMAR liggjayfir Atlantshaf í báðar átt-ir; bandarísk rokksveithefur áhrif á breska sem hefur síðar áhrif vestur um haf og svo annan hring. Ágætt dæmi um slíkt er þegar The Ramones gerðu breska rokkara að pönkurum sem síðan skilaði sér aftur vestur um haf. Annað ágætt dæmi er banda- rísk hljómsveit sem gerði allt vit- laust í Bretlandi á síðasta ári, Black Rebel Motorcycle Club, en í tónlist hennar má heyra sterk áhrif frá bresku sveitinni The Jesus and Mary Chain sem aftur sótti inn- blástur til New York-sveitarinnar Velvet Underground. Black Rebel Motorcycle Club, sem kölluð verður BRMC héðan í frá, er fimm ára gömul sveit, byrjaði sem samvinnuverkefni þeirra Pet- ers Hayes og Roberts Turner, sem leika báðir á gítara og bassa og syngja. Áhugi þeirra á bresku ný- rokki leiddi þá saman 1995 en leiðir skildi um tíma þegar þeir gengu hvor í sína hljómsveitina. Þremur árum síðar tóku þeir upp þráðinn, tóku upp lög í æfingaskúr með trommuheila til að byrja með en fengu síðan trommuleikarann Nick Jago til að berja húðir með sér í hljómsveit sem hét The Elements framan af en varð síðan að Black Rebel Motorcycle Club eftir mót- orhjólagenginu í Brando-myndinni The Wild One. Fljótlega eftir það tóku þeir fé- lagar upp þrettán laga kynning- ardisk en engin útgáfa sýndi þeim áhuga, að því þeir segja sjálfir vegna þess að menn voru svo upp- teknir af að gera eitthvað gamalt að ekkert fyrirtæki vildi fá eitthvað nýtt. Þetta var 1998 og sveitin þá í San Francisco. Það var ekki fyrr en þeir félagar fluttu sig um set til Los Angeles að menn sperrtu eyrun og orðstírinn sem sveitin vann sér barst meðal annars til Bretlands þar sem Noel Gallagher Oasis-bóndi féll fyrir sveitinni og reyndi að gera við hana útgáfusamning. Hann átti þó ekki peninga á við útgáfurisana vestan hafs og austan og eftir kapp- hlaup stórfyrirtækja samdi BRMC við Virgin-útgáfuna. Meðal skilyrða sem þeir settu fyr- ir samningi var að þeir myndu sjálf- ir stýra upptökum á plötum sínum að öllu leyti og hafa neitunarvald í öllu sem snýr að útgáfu tónlistar- innar. Þeir láta líka verkin tala, neita öllum auglýsingatilboðum, deila kjörum með aðstoðarmönnum á tónleikum, fljúga á sama farrými og þeir og búa á sömu hótelum. Fyrsta breiðskífan, B.R.M.C., kom út snemma árs 2001 og vakti gríðarlega hrifningu eins og getið er. Svo vel var skífunni tekið reynd- ar að sveitin settist að þar um tíma og þar var nýja platan, Take Them On, On Your Own, tekin upp í tólf tíma lotum, frá sex að kvöldi til sex að morgni, til að tryggja rétt and- rúmsloft. Þeir taka tónlistina mjög alvar- lega sem tjáningarmiðil, segjast trúa á að hún geti breytt hugs- unarhætti fólks, en segjast einnig leggja sig fram um að ná til áheyr- enda, enda lagðist BRMC í ferðalög um leið og fyrsta platan kom út og hefur verið á ferðinni að segja sam- fellt síðan – til að sýna plötukaup- endum og áheyrendum þakklæti eins og þeir lýsa því sjálfir. Þeir félagar í BRMC eru ekki bara að minna á gömul gildi í rokk- inu, heldur eru þeir líka skemmti- lega pólitískir í textum eins og sjá má reyndar á heiti skífunnar (Take Them On, On Your Own minnir á frægt/alræmt svar Bush Banda- ríkjaforseta frá því í byrjun júlí). Á nýju skífunni er tónlistin þó heldur harðari, krafturinn meiri og meira í gangi almennt, sem ekki fellur öllum í geð ef marka má skrif gagnrýnenda víða um heim. Liðs- menn sveitarinnar segja það hafa verið meðvitaða ákvörðun að herða á taktinum, fara líka leið og var mörkuð í hröðu lögunum á fyrstu skífunni, en síðan var rólegri lögum skotið inn á milli til að róa menn niður. Samlíkingin við Jesus and Mary Chain kemur fyrir í nánast öllum umsögnum um sveitina en enn sem komið er taka þeir félagar henni létt, segja að hún hafi orðið til þess að þeir tóku að hlusta meira á sveit- ina en þeir höfðu áður gert og fyrir vikið hafi þeir fundið mikið af góðri tónlist. Tónlist á sunnudegi Árni Matthíasson Tónlist sem tjáningarmiðill Bandaríska rokksveitin Black Rebel Motorcycle Club liggur ekki á skoðunum sínum á nýrri breið- skífu, Take Them On, On Your Own, sem meðal annars er beint gegn hernaðarhyggju og spillingu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.