Morgunblaðið - 10.09.2003, Qupperneq 8
FRÉTTIR
8 MIÐVIKUDAGUR 10. SEPTEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
„Bragð er að þá belja finnur“ – kossaflensinu er lokið.
Geðheilsa eldra fólks
Lyf eru ekki
lausn við leiða
GEÐHEILSA eldrilandsmanna erefni þemamánað-
ar Geðræktar þetta árið.
Geðrækt (www.ged.is) er
samstarfsverkefni Land-
læknisembættisins, geð-
sviðs Landspítala, Heilsu-
gæslunnar í Reykjavík og
Geðhjálpar. Meðal mark-
miða Geðræktar er að efla
umræðu um geðheilsu
landsmanna, auka for-
varnir og fræðslu um geð-
sjúkdóma og geðheil-
brigði, draga úr
fordómum og bæta líðan
almennings. Að sögn
Dóru Guðrúnar Guð-
mundsdóttur, verkefnis-
stjóra, hafa verkefni Geð-
ræktar undanfarin ár
beint athyglinni að
ákveðnum aldurshópi og nú er
komið að eldri borgurum.
„Við höfum fengið ýmsa til liðs
við okkur við undirbúninginn, svo
sem Félag eldri borgara í Reykja-
vík, Félagsþjónustuna, Félagsstarf
Gerðubergs, Geðhjálp, Landlækn-
isembættið, Landsamband eldri
borgara, Rauða kross Íslands,
Tryggingastofnun, Þjóðkirkjuna,
Öldrunarsvið LSH og Öldrunarráð
Íslands. Við höfum unnið eftir leið-
beiningum frá Alþjóða heilbrigðis-
málastofnuninni (WHO). Þar er
lögð áhersla á að opna umræðuna
um geðheilsu eldra fólks og hvern-
ig megi bæta hana.“
– Hvað ógnar helst geðheilsu
eldri borgaranna?
„Að komast á efri ár veldur
ákveðnu álagi. Það eru mikil við-
brigði að hætta að vinna og að
þurfa að finna sér nýtt hlutverk. Þá
er mikilvægt að iðjuleysið nái ekki
yfirhöndinni og að fólk finni sér
eitthvað að gera. Sumir fá sér létt-
ari vinnu, fara í sjálfboðastörf eða
njóta þess að geta stundað áhuga-
málin af fullum krafti.“
– Veldur skipting þjóðfélagsins í
aldurshópa vanda?
„Ég held að það sé ekki gott að
skipta kynslóðunum jafn mikið upp
og nú tíðkast. Það þarf að efla
tengslin milli aldurshópa. Við mun-
um m.a. kynna verkefni þar sem
unnið hefur verið að því að tengja
kynslóðir saman. Í félagsstarfi
Gerðubergs hefur fólk á öllum
aldri t.d. unnið saman að trjárækt
og spilað félagsvist. Þeir eldri
miðla þeim yngri af reynslu sinni
og í sumum tilvikum hafa börnin
kennt þeim eldri á tölvur.“
– Yfirskrift mánaðarins er að lyf
séu ekki lausn við leiða.
„Já, ef leiði gerir vart við sig er
lausnin ekki fólgin í lyfjum. Það er
miklu betra að finna sér eitthvað að
gera til að vinna bug á leiðanum.
Kvíði og þunglyndi er annars eðlis
og mikilvægt að bregðast rétt við.
Ef kvíði og þunglyndi sækja á þá á
fólk á öllum aldri að leita sér lausn-
ar.“
– Er mikilvægt að eiga áhuga-
mál þegar aldurinn færist yfir?
„Já, alveg tvímælalaust. Við
hvetjum fólk til að hafa eitthvað
fyrir stafni og áhuga-
málin skipta þar miklu
máli. Margir hafa ekki
tök á að finna sér annað
starf þegar þeir hætta
að vinna, en það er ým-
islegt hægt að sýsla.“
– Getur þú nefnt dæmi?
„Ég get ímyndað mér að aðstoð
eldra fólks yrði víða vel þegin, t.d. í
skólaathvörfum. Það þyrfti ekki að
taka vinnu frá öðrum. Það er fullt
af börnum sem þurfa á umönnun
og aðstoð að halda.“
– Hvernig er dagskrá þemamán-
aðarins?
„Við ætlum að vera með fjóra
hádegisverðarfundi í Grensás-
kirkju. Sá fyrsti er í dag og verða
fundirnir síðan næstu þrjá mið-
vikudaga, allir á sama tíma, kl.
12.30–13.30. Í dag fjallar Pálína
Jónsdóttir um hvernig eldri borg-
arar geta verið virkir, fundið sér
nýja iðju og rækt áhugamál. Val-
gerður Snæland Jónsdóttir mun
fræða um hláturjóga, hún kennir
fólki að auka hláturinn í lífinu því
hláturinn lengir lífið. Þá mun Guð-
rún Halldórsdóttir segja frá
áhugaverðum námskeiðum Náms-
flokka Reykjavíkur. Loks mun
Vinabandið, hljómsveit eldri borg-
ara í Breiðholtinu, slá á létta
strengi.
Fundurinn 17. september mun
fjalla um hvort þunglyndi og kvíði
séu eðlilegir fylgifiskar efri áranna,
en svo er ekki. Þetta eru vandamál
sem þarf að taka á hjá eldra fólki
eins og því yngra. Tilhneigingin
hefur verið að leysa þennan vanda
með lyfjagjöf í stað meðferðar.
Lyfin geta oft hjálpað fólki tíma-
bundið, en það er nauðsynlegt að
huga einnig að félagslegum þáttum
og bjóða annars konar meðferð
samhliða.
Þriðji fundurinn, 24. september,
mun fjalla um geðraskanir á efri
árum. Fólk sem átt hefur við geð-
röskun að stríða alla ævi er oft sett
á heimili fyrir eldra fólk án þess að
fá meðhöndlun við hæfi. Þeir sem
glíma við geðraskanir þurfa áfram
aðstoð þótt þeir eldist.
Á síðasta fundinum, 1. október,
verður fjallað um mikilvægi þess
að við hlúum að þeim
sem okkur þykir vænt
um. Sigfinnur Þorleifs-
son sjúkrahúsprestur
mun fjalla um það að
eiga aldraða foreldra og
Guðrún Jónsdóttir, forstöðumaður
í Gerðubergi, kynnir hvernig hægt
er að tengja saman kynslóðir í fé-
lagsstarfi. Þá verður kynning á
íþróttastarfi meðal aldraðra.
Það eru allir – á öllum aldri – vel-
komnir á þessa fundi. Það verður
boðið upp á súpu, brauð og kaffi á
500 krónur. Geðheilsa eldri lands-
manna varðar alla, því við vonumst
öll til að ná háum aldri.“
Dóra Guðrún Guðmundsdóttir
Dóra Guðrún Guðmundsdóttir
hefur lagt stund á guðfræði og
lauk BA-gráðu í sálfræði frá Há-
skóla Íslands árið 2000. Hún hóf
störf hjá Geðrækt í febrúar 2001
og hefur verið verkefnastjóri
þess verkefnis frá júlí 2002. Í
starfi sínu hjá Geðrækt hefur
hún haldið fyrirlestra og nám-
skeið um geðrækt fyrir skóla,
fyrirtæki, félagasamtök og stofn-
anir víða um landið og tekið þátt
í alþjóðlegum verkefnum á sviði
geðræktar. Hún er gift Bóasi
Valdórssyni og eiga þau Rósu
Maríu, 3 ára.
Iðjuleysið
má ekki ná
yfirhöndinni
Úrval-Úts‡n
Lágmúla 4: 585 4000 • Hlí›asmára: 585 4100 • Keflavík: 420 6000
Akureyri: 460 0600 • Selfossi: 482 1666 og hjá umbo›smönnum um land allt. www.urvalutsyn.is
65.970 kr.*
* Innifali›: Flug, flugvallarskattar, gisting í viku,
fer›ir til og frá flugvelli og íslensk fararstjórn.
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
U
RV
2
21
85
9
/0
3
Fallegt 4 stjörnu hótel sem slegi› hefur ærlega í gegn í sumar.
Hóteli› stendur vi› ströndina í Platanias. Herbergi eru loftkæld
og me› öllum nútíma flægindum. Hálft fæ›i innifali›.
Hausttilbo›
Tveir fyrir einn
sta›greitt á mann m.v. tvo
í íbú› í 7 nætur á Ikaros.
41.745 kr.*
Líti› fjölskyldureki› íbú›ahótel: stórar og rúmgó›ar íbú›ir
me› einu og tveimur svefnherbergjum. Lítil sundlaug og
stutt á ströndina.
Ikaros 15., 22. og 29. september
Hótel Porto Platanias
sta›greitt m.v. 2 í tvíb‡li í 7 nætur me› hálfu fæ›i.