Morgunblaðið - 25.09.2003, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 25.09.2003, Blaðsíða 26
Nína Magnúsdóttir fjallar um op út frá ýmsum hliðum. Myndbands- verkin stela senunni. KRISTINN Pálmason er á fleygi- ferð í málverkinu þessa dagana. Í þessari sýningu líkt og í sýningum síðustu ára, reynir hann á þolmörk miðilsins. Slík vinnubrögð eru sér- staklega spennandi og til eftir- breytni. Til þess þarf kjark og sjálfs- traust því sýningar eins og þessi eru ekki auðmeltar fyrir almenning. Sýn- ingin er þó langt því frá sett upp sem einhver gáta eða þraut sem einungis þaulvanir nútímalistunnendur geta ráðið. Sýningin er í eðli sínu einföld og falleg og býr yfir góðu jafnvægi. Eitt verk tengist öðru og myndar heild, og eins og listamaðurinn segir sjálfur á meðfylgjandi blaði vill hann að áhorfendur verði hluti af verkinu. Sú tilætlan hefur tekist. Á sýningu sinni á sama stað fyrir ári var Kristinn enn að mestu að vinna innan ramma hins hefðbundna málverks, þ.e. hann málaði á flöt, t.d. striga og spegil, sem síðan var hengdur á vegginn. Nú er Kristinn kominn skrefinu lengra. Hann er að mestu hættur að vinna á striga, og vinnur beint inn í galleríið, á glugga, veggi, spegil o.s.frv. Kristinn fetar þar með sömu braut og t.d. Tumi Magnússon hefur farið en hann hefur þróast frá því að vinna á striga og yf- ir í það að vinna beint inn í rýmið. Enn fremur má minna á verk Ívars Valgarðssonar og hvernig hann vinn- ur með liti beint inn í rými. T.d. er eitt verka Kristins, þar sem hann dregur veggmálningu gallerísins yfir spegil, skyld verki Ívars þar sem hann málaði lit á vegg og dró síðan vegglit gallerísins yfir eina umferð og fléttar þannig rýmið og verkið saman í eina heild. Listamennirnir þrír vinna þó allir á sínum ólíku for- sendum. Á efri hæð hefur listamaðurinn málað rauðan lit á gluggann sem hef- ur sterk áhrif á innra rýmið og á stóra vegginn hefur hann lagt grófan striga að veggnum, úðað á hann lit og notað hann þannig sem skapalón. Eftir situr strigaáferð búin til með svörtum og silfruðum lit. Á einum vegg er lítill spegill, tekinn af gömlu skítugu klósetti, en á speglavegginn í stigaganginum hefur hann borið glært akrýlkýtti. Í litla herberginu uppi eru tvö örmálverk; lit úðað beint á vegg. Niðri kveður við dálítið annan tón. Í fremra rými er silfurúðað fíkustré, Blómauppstilling eins og verkið heit- ir, og fyrir dyrnar inn í innra her- bergið hefur verið strengdur strigi og það sem fyrir innan er er eins kon- ar þrívítt málverk og innsetning, eft- ir því hvernig litið er á það, og ber tit- ilinn Búr. Málaður spegill, blátt ljós og eitthvert ólögulegt kvikindi á gólf- inu. Samanlagt gera þessi atriði sem hér hafa verið talin upp sýninguna jafn vel heppnaða og raun ber vitni. Samstilling verka inni í rýminu geng- ur fullkomlega upp og ekkert er of eða van. Opið Opið heitir sýning Nínu Magnús- dóttur í Galleríi Kling & Bang á Laugavegi. Sýningin er þemasýning þar sem fjallað er um hugtakið Op frá ýmsum hliðum og koma þar við sögu kynferðislegar skírskotanir, læknisfræðilegar og hversdagslegar. Tvö verk eru frekust á athygli sýn- ingargestsins og hafa mest áhrif á hann, með mismunandi hætti þó. Við innganginn í salinn er upptaka af manneskju (listamanninum) að því er virðist í fullnægingarham. Mynda- vélinni er beint að höfði sem stynur í sífellu með hálfopinn munninn og fara stunurnar stigvaxandi. Hitt verkið, sem mörgum gæti þótt erfitt að horfa á, er upptaka af tannaðgerð á listamanninum þar sem borum, hnífum, prjónum og tilheyrandi er beitt. Læknirinn gatar tennur lista- mannsins og við horfum ofaní kok á listamanninum, tvö op í það minnsta hér í einu verki. Þar við hliðina er mynd af mann- eskju að þrífa klósettskál að innan og þar blasir við manni op, í skemmti- legri andstæðu við myndina af tann- aðgerðinni. Á veggnum er ljósmyndir af ýms- um götum og opum sem þjóna þeim tilgangi frekar en hitt að vera upp- fylling inn í þemað. Myndirnar hafa ekki sterkt fagufræðilegt gildi hver og ein. Í sjálfu sér segja myndbands- verkin allt sem segja þarf og eru senuþjófar sýningarinnar. Í inngangi að sýningunni skrifar Snorri Ásmundsson myndlistarmað- ur um gægjuþörfina og segir sögu af Picasso að hafa samfarir við stúlku í gegnum op á girðingu. Hann veltir einnig upp þeirri spurningu af hverju Nína er svona áhugasöm um göt, ver- andi kvenkyns og á þar við að strákar hafi hingað til haft á því nánast einkarétt að vera með göt á heilan- um. Það er rétt hjá Snorra, op og göt eru nokkuð sem karlmenn hafa heillast af í gegnum tíðina. Op er líka tákn um byrjun eða upphaf, það táknar ókannaðar slóðir og vekur þannig spurningar í stað þess að svara þeim. Þannig er sýning Nínu opin í alla enda, ef hægt er að nota þá lýsingu. Ferill Nínu er að hefjast, hún er að ganga inn um dyr og opnar sig fyrir áhorfendum. Myndbands- verk Nínu eru áhugaverð og per- sónuleg og gefa góð fyrirheit um það sem á eftir kemur. Big Bird Það er frekar nöturlegur raun- veruleiki sem birtist í verki Elínar Hansdóttur í Galleríi Dvergi, ekki síst í ljósi þeirra tíma sem við lifum á þegar stöðugt berast fregnir af sprengjuárásum og hryðjuverkum. Nútímamaðurinn í upplýsingasam- félaginu sem í raun getur ekki gert sér í hugarlund hvað þessir atburðir eru hryllilegir, verður smám saman firringunni að bráð. Sýning Elínar hefur reyndar sak- leysilegt yfirbrag. Gleðileg tónlist úr barnasjónvarpsþáttunum Sesame Street tekur á móti sýningargestum og gólfin eru öll máluð í björtum gul- um lit, sama lit og fuglinn risavaxni Big Bird úr Sesame Street sem sýn- ingin heitir eftir. Maður á svo sem ekki von á neinu slæmu. Það er ekki fyrr en maður sest niður við lítið borð í miðju galleríinu, flóðlýstur með tveimur flúorperum eins og maður sé í miðri yfirheyrslu, og fer að fletta sakleysislegu gulu hefti, að andrúms- loftið breytist. Í heftinu, sem tekið er af íslenskri heimasíðu, eru uppskrift- ir að því hvernig á að búa til ýmsar banvænar sprengjur og miðað við uppskriftirnar er það í raun skelfi- lega auðvelt. Rörasprengjur, bensín- sprengjur, hraðbrennandi og hæg- brennandi kveikiþræðir og upp- lýsingar um hvar hægt er að kaupa efnið fyrir sprengjugerðina. Allt er þetta þarna saman komið. Verk Elínar er þannig í beinni samræðu við umræðu dagsins í dag, og sýnir hvernig myndlistarmenn geta tekið beina afstöðu, tekið þátt í umræðunni á hverjum tíma og end- urspeglað samtíma sinn. Verkið fær mann til að hugsa um eigið öryggi eða óöryggi. Erum við í raun eins óhult hér norður í hafi og við höfum haldið. Getur ekki alveg eins verið að einhver sitji í litlu dimmu herbergi og föndri við að búa til vopn sem gætu drepið fjölda manns. En hvernig tengist barnafígúran Big Bird sprengjugerð. Jú, eins og kom fram í samtali við listamanninn hér í Morgunblaðinu, var það nýlega í fréttum að Bandaríkjaher notaði lag úr barnaþættinum Sesame Street til að pynta stríðsfanga. Þar sagði einnig að múslimar hefðu hald- ið því fram að þátturinn væri áróð- ursmaskína fyrir kapítalisma og am- erísk gildi og hefðu bannað þættina. Verk Elínar snýst um samtímann, firringu, fjölmiðla og frjálst flæði upplýsinga. Hún nær taki á áhorf- andanum með óvæntum hætti og gerir okkur meðvituð um ábyrgð okkar í þessum heimi. Áfram Kristinn Pálmason umbreytir rýminu í málverk og lætur áhorfandann verða hluta af verkinu. Í kjallara úti í bæ gætu einstak- lingar verið að búa til banvænar sprengjur. MYNDLIST Gallerí Skuggi Sýningunni er lokið. INNSETNING, MÁLVERK KRISTINN PÁLMASON Þóroddur Bjarnason Gallerí Kling & Bang Opið fimmtudaga til sunnudaga frá kl. 14–18. Til 28. ágúst. MYNDBAND, LJÓSMYNDIR NÍNA MAGNÚSDÓTTIR Gallerí Dvergur Opið frá fimmtudegi til sunnudags kl. 17–19. Til 4. október. INNSETNING ELÍN HANSDÓTTIR Morgunblaðið/Jim Smart LISTIR 26 FIMMTUDAGUR 25. SEPTEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ RÚSSNESK tónlist hefur að nokkru búið við sams konar jað- arstöðu og spönsk og balkönsk tón- list, gagnvart evrópskri tónlistar- hefð. Hvað varðar rússneska tónlist eru sérkennin svo sterk að þau verk sem náð hafa til Vesturlanda voru að meira og minna leyti að- hæfð vestrænum smekk. Muss- orsgskí náði til Vesturlanda þegar Korsakov hafði umritað sum verka hans og Myndir á sýningu, varð mjög vinsælt þegar Ravel hafði fært það í hljómsveitarbúning. Á tímum Ráðstjónarríkjanna var list- skapendum neitað um að taka þátt í þróun hugmyndanna, sem gengu eins og sviptivindur um Vestur- Evrópu og Bandaríkin. Í módernismanum var lögð áhersla á að alþjóðavæða tónferlið, sem að því leyti til tókst að þjóðleg sérkenni hurfu en mistökin upp- götvuðust þegar ljóst var að tónmál margra varð meira og minna óað- greinanlegt og ópersónulegt. Í róm- antíkinni varð markmiðið tilfinn- ingaþrunginn frumleiki, í mód- ernismanum varð slíkt fyrirlitlegt og nýjungin gerð að markmiði en í póstmódernismanum varð mark- miðið sambland alls, þar sem allt er leyfilegt, er aftur leiddi af sér leit, sem enn hefur ekki verið séð fyrir endann á. Að setja listskapendum markmið, bæði með pólitískum tilskipunum og eða fræðilegum liststefnulegum kenningum, er hættulegt. Vestur- landabúar eru aldir upp í víðfeðmi hugmyndanna, þar sem verk sem byggjast á hinu fjarstæða og óskilj- anlega og verk sem eru merkt hinu venjubundna og skiljanlega standa hlið við hlið. Þetta hugmyndafrelsi í lissköpun er eitt af aðalsmerkjum vestrænnar menningar. Þegar listáþjáninni var létt af Austur-Evópubúum, vaknaði áhugi manna á Vesturlöndum á að heyra þá tónlist sem samin var undir leið- sögn yfirvalda og sérstaklega hversu tónskáldum hafði tekist að sniðganga boðin og bönnin að ein- hverju leyti. Margt sérkennilegt hefur komið í ljós og merkilegt hversu mannskepnunni tekst að komast af, við hin erfiðustu skil- yrði. Á kammertónleikum í Iðnó sl. föstudag mátti heyra rússneska tónlist, sem að nokkru fellur undir þá hugmyndafræðilegu sérstöðu, sem rússneskt listafólk bjó við og hófust tónleikarnir á tríói, æsku- verki eftir Aram Khatsjatúrían en hann var einn þeirra sem voru skammaðir af yfirvöldum 1948. Annar höfundurinn á efnisskrá tón- leikanna var Stravinskí, sem slapp frá Sovét fyrir byltingu og blómstr- aði í listfrelsi Parísar en eftir hann var flutt tríóútfærsla á fimm þátt- um (af 11) úr leikhúsverkinu, Saga hermannsins, þriðja verkið Trio, er eftir Ustvolskaju (1919), er var um tíma nemandi Shostakovitsj og tók í arf listóhamingju hans en tónleik- unum lauk með svítu, eftir Arutj- uian, sem var þægur og gegn sovét- þegn í tónlist sinni. Flytjendur voru Birna Helga- dóttir á píanó, Freyja Gunnlaugs- dóttir á klarinettur og Una Svein- bjarnardóttir á fiðlu og var leikur þeirra hreint út sagt frábær, bæði hvað varðaði samspil og sérframlag hvers og eins flytjanda, sem allar eru frábærir hljóðfæraleikarar. Bæði Una og Freyja hafa fyrr hald- ið tónleika hér heima og vakið at- hygli fyrir frábæran leik en hvað undirritaður man, þá er Birna ný á tónleikapalli hérlendis en hún er að ljúka námi í Finnlandi og þar fer sannarlega efnilegur píanóleikari. Sérstaka athygli vakti tónverk Ustvolskaju (1919), sem leikur sér að ýmsum dramatískum tónmynd- um og var leikur Gorki Park-tríós- ins mjög áhrifamikill, þó að síðasti kaflinn, Energico, hefði mátt vera ögn hraðari og þar með villtari. Sem hvíldarmillispil las Gunn- laugur Ástgeirsson upp þýðingar á rússneskum kvæðum og gerði það með töluverðum tilþrifum, einkum þýðingu Geirs Kristjánssonar á kvæði eftir Mayakovskí. Hljómgun- in í Iðnó er einkar góð og ætti húsið að henta vel fyrir kammertónlist þó að það sé helst til viðkvæmt fyrir vindum, sem heyrðist í fíngerðu ýli í miklu gluggakerfi suðurhliðarinn- ar og einnig að hitabreytingar ut- andyra eiga þar gott aðgengi. Þrátt fyrir þetta voru tónleikar Gorky Park-tríósins sérlega ánægjulegir, einkum fyrir verk Ustvolskaju og frábæran flutning allra verkanna, sem að nokkru spannaði sérstæða listsögu Sovétríkjanna þar sem reynt var að hemja þróun hug- myndanna í listsköpun, nokkuð sem listfræðingar og annað utanlistar- fólk hefur reynt en ávallt mistekist vegna þess að hugmynd er ekki hægt að kyrrsetja eða binda á stall, því hún ber í sér framvindusæði sköpunarinnar og getur af sér nýja hugmynd og að hefta þetta flæði er það sama og að banna fólki að hugsa. Framvinda sköpunarinnarTÓNLISTIðnó Tríó Gorki Park flutti rússneska kammertónlist eftir Khatsjatúrían, Stravinskí, Ustvolskaju og Arutjunian Föstudagurinn 19. september 2003. KAMMERTÓNLEIKAR Jón Ásgeirsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.