Morgunblaðið - 25.09.2003, Síða 32

Morgunblaðið - 25.09.2003, Síða 32
UMRÆÐAN 32 FIMMTUDAGUR 25. SEPTEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ E kki vildi betur til en að keðjan á hjólinu losnaði á planinu heima þ.a. ég tafð- ist talsvert við að brasa henni á. Hjólaði því á rosa- legu spani alla leið að brúnni, en kom samt 5 mínútum of sein, löð- ursveitt og másandi,“ skrifar Siv Friðleifsdóttir umhverf- isráðherra á heimasíðu sinni (www.siv.is) 17. september eftir að hafa hjólað frá Seltjarnarnesi að göngu- og hjólabrúnni yfir Kringlumýrarbraut í Fossvogi – til að afhjúpa leiðakort útivist- arstíga í Reykjavík. Þar var einn- ig Árni Þór Sigurðsson, forseti og formaður samgöngunefndar borgarinnar, reiðhjólalögreglan, auk helstu ráðamanna í gatnamálum og þeirra sem stóðu að Evr- ópsku sam- gönguvikunni. Samgönguvikan vakti mig til umhugsunar – eins og henni var ætlað að gera. Henni var líka ætlað að vekja athygli á hinum ýmsu hliðum borgarumferðar og var bíllausi dagurinn miðpunkt- urinn: „Í bæinn án bílsins á virk- um degi“. Reiðhjólið gæti verið miklu öfl- ugra í Reykjavík en það er – en hjólið hefur svo marga kosti um- fram bílinn það það hálfa væri nóg – og enginn myndi nenna að lesa upptalninguna – því allir þekkja hana. Sterkur vilji borg- arbúa til að draga úr notkun á einkabílum hefur mælst í könn- unum, svo spurningin er aðeins um aðferðir til að framkvæma viljann. Bifreið er snilld – en hún getur farið svolítið illa með fjárhag heimilisins. Hún er víst fjárfrek- asti pósturinn í bókhaldi margra heimila – slær jafnvel matarinn- kaupin út. Reykjavík er algjör bílaborg. Halda mætti að valdhafar sam- göngumála á 20. öldinni hafi verið með bílaumboð og átt ríkra hags- muna að gæta. Varla var gert ráð fyrir göngu- og hjólreiðastígum. En nú eru breyttir tímar og mig grunar að næsta kynslóð gæti hugsað sér að hjóla t.d. í vinnuna. Tveggja bíla heimilum fjölgaði ört á síðasta áratug – sérstaklega í úthverfum borgarinnar. Einnig fór að bera á þriggja bíla heim- ilum eftir að barnið náði bílprófs- aldri. Auðveldlega má hins vegar fækka fjölbílaheimilum – hér er ein lítil hugmynd: Hjón í Grafarvogi selja annan bílinn, kaupa tvö reiðhjól og fest- ingar fyrir þau á hinn bílinn sem eftir verður. Á morgnana þegar þau þurfa að drífa sig í vinnuna, sest annað við stýrið en hitt skell- ir hjólinu í festinguna og fær far áleiðis. Sá sem er á hjólinu er enga stund í vinnuna og getur auðveldlega bjargað sér ef eitt- hvað þarf að útrétta – einnig hjól- að heim eftir vinnu. Einum bíln- um færra! Þetta er barasta einföld hug- mynd. Enda er reiðhjólið einfald- ur og sígildur samgöngukostur sem mætir vel tveimur áhyggju- efnum mannkyns: Umhverfis- málum og heilbrigðismálum. Hjólið mengar ekki og hjólreiða- maðurinn er í betra sambandi við umhverfið sitt heldur en sá sem situr bak við stýrið. Hjólið styrk- ir stýrimanninn en bifreiðin dregur úr máttinn úr honum. Samgönguvikan var núna í september en annar mjög athygl- isverður viðburður var í ágúst – undir átakinu Ísland á iði (www.isisport.is). Á heimasíðu þess stendur að Íþrótta- og ólympíusamband Íslands vilji efla heilbrigði þjóðarinnar og hvetja landsmenn á öllum aldri til auk- innar hreyfingar. Í ágúst efldi Ísland á iði heilsu starfsmanna fyrirtækja með verkefninu ,,Hjólað í vinnuna“. Markmiðið var að vekja athygli á hjólreiðum sem heilsu- og um- hverfisvænum samgöngumáta. ,,Hjólað í vinnuna“ var keppni á milli fyrirtækja þar sem starfs- fólk var hvatt til að hvíla bílinn en hjóla þess í stað til og frá vinnu. Vonandi hafa einhverjir starfs- menn heillast af þessum hag- kvæma samgöngumáta – þeir bæði spara og eflast með því. En alls tóku 45 fyrirtæki og stofn- anir þátt með 71 lið innan sinna raða. Hjólreiðakapparnir voru samtals 533 og hjóluðu nærri 22 þúsund kílómetra, sem gera meira en 16 hringi umhverfis Ís- land. (http://hjolad.isisport.is). Hjólreiðar í borginni eru minna mál er margur hyggur. Oftast er ágætt veður – og næstu ár ríkir sennilega hlýindaskeið á landinu. Regnskúr er auðvelt að sigrast á með hlífðarfötum og ef það er of sterkur mótvindur má stytta leiðina með því að fara með hjólið í strætó. Þetta er allt fremur viðráðanlegt. Á vetrum er t.d. ágætt að skipta yfir á nagla- dekk – en á þeim er hjólið stöð- ugt í fljúgandi hálku. Hjálmurinn er þó höfuðmálið. Hjólreiðadagurinn er ekki lið- inn – og það missti enginn af hon- um. Við afhjúpun leiðakorts úti- stíga mætti góður hópur hjólreiðafólks – en kortið er þarna enn og kjörið að hjóla á staðinn til að skoða það. Kortið sýnir helstu stíga í Reykjavík og vegalengdir í km. Auk þess má finna hvar þjónustu af ýmsu tagi er að finna. Hægt er að velja sér leiðir og skipuleggja túra. Reiðhjólið er ekki aðeins fyrir borgarbúann heldur er það kjörið samgöngutæki á hálendi Íslands. Bæði er hægt að flytja þau áleiðis með festingunum á einkabílunum eða fara í rútu á valinn stað. Hjóla þá á milli skála eða tjald- stæða og taka svo langferða- bifreið heim aftur. Áhugasamir geta leitað að ferðasögum á Net- inu, t.d.: http://www.mmedia.is/ ~ifhk/ og einnig http://www.is- landia.is/nature/ og http:// www.islandia.is/lhm. Niðurstaðan er að kostirnir við hjólreiðar eru svo ótrúlegir að maður vill helst ekki tala um það. Aukakosturinn er að það verður einum bílnum færra á götunni. Reiðhjólið er sennilega orkunýtn- asta aðferðin til að ferðast á milli staða. Það er nánast sjálfbært samgöngutæki. Seljið ann- an bílinn! Tveggja bíla heimilum fjölgaði ört á síðasta áratug. Einnig fór að bera á þriggja bíla heimilum eftir að barnið náði bílprófsaldri. Auðveldlega má hins vegar fækka fjölbílaheimilum. VIÐHORF Eftir Gunnar Hersvein guhe@mbl.is UM ÞESSAR mundir eiga fé- lagar okkar í verkalýðshreyfing- unni í átökum við erlenda verk- taka á hálendinu. Við í farmennsk- unni könnumst við fingraförin. Á und- anförnum árum hefur Sjómanna- félag Reykjavíkur átt í linnulausri baráttu við innlendar og erlendar útgerðir um störf íslenskra far- manna. Hingað til hefur okkur tekist að halda sjó, íslenskar áætl- unarsiglingar Samskipa og Eim- skips eru mannaðar íslenskum áhöfnum – en baráttan stendur nú við Atlantsskip og stefnir í sigur innan tíðar. Impregilo býr til hverja söguna á fætur annarri sem í hvert sinn reynist vera skáldverk af verri endanum og reynir að teyma ís- lenska verkalýðshreyfingu á asna- eyrunum. Allt bitnar þetta síðan í fyrstu umferð á þeim ein- staklingum sem hafa látið plata sig til Íslands og þegar til lengri tíma er litið á íslensku launafólki. Íslensk stjórnvöld hafa hins vegar setið á svikráðum við ís- lenskt launafólk. Þær breytingar sem núverandi stjórnarflokkar stóðu að á Alþingi 1996 á vinnu- löggjöfinni hafa nánast dregið tennurnar úr forustu verkalýðs- hreyfingarinnar og sniðið ein- stökum verkalýðsfélögum þröngan stakk. Í dag er nánast ógerningur að grípa til stöðvunaraðgerða með lögmætum hætti þegar um samn- ingsbrot er að ræða og alfarið ómögulegt þegar um enga eigin félagsmenn er að ræða eins og á hálendinu, þar sem mikill meiri- hluti starfsmanna er erlendur og ekki félagar í íslenskum verka- lýðsfélögum. Það er því með ólík- indum að utanríkisráðherra og formaður Framsóknarflokksins skuli taka upp á því að hæla þessu fyrirtæki eftir að það er marg- sinnis orðið uppvíst af lygum og fölsunum í samskiptum sínum við íslensk verkalýðsfélög. Það er líka merkilegt að sjá að framsókn- arráðherrarnir sitja í súpunni. Heilbrigðisráðherrann og þing- maður kjördæmisins er um leið pólitískur yfirmaður þeirra eft- irlitsstofnana heilbrigðiskerfisins sem koma að heilbrigðismálum svæðisins, félagsmálaráðherrann fer með félagslegu málin eftir að forveri hans gekk vasklega fram í því að binda hendur verkalýðs- hreyfingarinnar til að verja sig og iðnaðarráðherrann, sem ber póli- tíska aðalábyrgð á stöðu mála í dag eftir alla aðkomu sína að ferl- inu. Umhverfisráðherrann hefur fengið á sig mikla gagnrýni fyrir aðild sína að þessari umdeildustu framkvæmd á Íslandi. Ein leið mætti e.t.v. vera í þessu tilviki að taka þessa erlendu einstaklinga inn í viðkomandi stéttarfélag og fá þar með réttinn til að koma fram fyrir þeirra hönd. En fyrst og síðast er það samstaða verkalýðshreyfing- arinnar sem mestu skiptir. Ef það tækist að ná svo sterklega saman í verkalýðshreyfingunni nú að hægt væri að stöðva allar framkvæmdir þar til búið er að ganga frá lausn þessara mála og knýja erlendu verktakana til að standa við skyld- ur sínar samkvæmt útboðinu væri mikið unnið. Sjómannafélag Reykjavíkur styður eindregið allar þær aðgerðir sem miða að því að styrkja íslenska verkalýðshreyf- ingu í baráttu sinni við að end- urheimta fyrri réttindi sín, þau réttindi sem enn eru grundvall- arstoð annarrar verkalýðshreyf- ingar á Norðurlöndum. Kárahnjúkar og farmennskan Eftir Jónas Garðarsson Höfundur er formaður Sjómanna- félags Reykjavíkur. NÚ stunda fleiri reykvískir nemendur tónlist- arnám en nokkru sinni. Árleg framlög borgarinnar til tónlistarskólanna eru álíka há og framlög til Borgarleikhúss, Sinfóníu, Listasafns Reykjavíkur, Árbæjarsafns og Listahátíðar til samans! Þau hafa borgarinnar stórhækkað á liðnum ár- um. Biðlistar reykvískra barna eftir að komast í tónlistarskóla hverfa. Grein Bergþóru Jónsdóttur í Mbl. sunnudag felur í sér mjög villandi lýsingu á stöðu Reykjavíkurborgar gagnvart tónlist- arskólunum. Samræmdar reglur Blaðamaðurinn skrifar: ,,Tónlistarskólarnir í borg- inni reka upp ramakvein vegna fyrirvaralítils nið- urskurðar borgarinnar …“. Greiðslur borgarinnar á nemanda hafa verið sam- ræmdar og hækka til sumra skóla, lækka til þeirra sem áður hafa borið meira úr býtum en aðrir. Þetta er samkvæmt áliti Samkeppnisstofnunar og tíma- bærri endurskoðun styrkjakerfis og átti margra ára aðdraganda. ,,Niðurskurður“ borgarinnar í ár felst í því að hún hættir að greiða með nemendum annarra sveitarfélaga. Vandséð réttlætið í að Jóna í Graf- arvogi sé með barn á biðlista eftir tónlistarnámi meðan borgin greiðir ríkulega með námi Jóns í Garðabæ. Borgin kaupir nú þjónustu af tónlist- arskólunum fyrir fleiri nemendur en nokkru sinni fyrr – aukningin er 500 í ár. Tónlistarskólarnir fá í reynd aukið fjármagn til að sinna fleiri nemendum því heildarkaup sveitarfélaga aukast og þeir geta grætt á öllu saman. Stóraukin framlög Blaðamaður skrifar: ,,Staðreyndin er … sú, að tón- listarskólarnir hafa ekki fengið aðrar hækkanir á framlögum frá borginni en nemur auknum kostnaði vegna kjarasamnings tónlistarkennara.“ Rangt. Framlög borgarinnar til tónlistarnáms hafa hækkað um 92% að raungildi á rúmum áratug, meðan íbúa- fjölgun á aldrinum 0–20 ára hefur verið rúm 4%. Framlög borgarinnar eru 546 milljónir í ár, en voru 30 mkr. hærri í fyrra, enda hættir borgin nú að greiða fyrir öll landsins börn. Hækkun framlaga frá árinu 2001 til 2003 er úr um 384 milljónum króna í tæplega 550 – eða 43% hækkun. Hún helgast vissu- lega mikið af launahækkun kennara (sem var nauð- synleg) og kemur tónlistarskólum til góða. Ánægð- ari kennarar, betri starfskraftar. Nú kaupa sveitarfélögin einnig aukna þjónustu af tónlistar- skólakennurum, m.a. í formi faglegra starfa undir verkstjórn skólastjóra. Þetta góða átak skilar miklu í tónlistarnámið. Fjölgun í tónlistarnámi Blaðamaður skrifar: ,,Staðreyndin er sú að þeim kennslustundum sem greitt er með er ekki að fjölga, þeim fækkar.“ Rangt. Reykvískum nem- endum í tónlistarnámi fjölgar úr rúmlega 2.100 í 2.650 í ár. Kennslustundafjölgun er að líkindum um 16.000 klukkustundir á ári og ættu því biðlistar að styttast verulega eða jafnvel hverfa. Þá er skrifað: ,,Niðurskurðurinn á framlögum til tónlistarskólanna nemur víða svipaðri upphæð og borgin sparaði með því að greiða ekki með utan- borgarbörnum, sums staðar hærri upphæð, eins og hjá Tónmenntaskóla Reykjavíkur sem horfðist í augu við 30% niðurskurð“. ,,Niðurskurður“ borg- arinnar var engin 30% heldur lækka framlög um 5% á milli tveggja ára – sem bæði eru metár í fram- lögum – vegna þess að nú hætta greiðslur með utanborgarbörnum. Skoðun á Tónmenntaskólanum sýnir að ekki var 30% niðurskurður heldur 17%, sem leiðir af samræmdri úthlutun og er til marks um hve vel skólinn var haldinn miðað við aðra. Það er ekki á ábyrgð borgarinnar ef skólar hækka á skólagjöld og mættu skólanefndir kalla eftir gögn- um vegna þess. Nú gerir borgin þjónustusamninga við fleiri skóla en áður, vegna jafnræðisskyldu og fækkar nem- endum um að meðaltali 7% hjá þeim skólum sem áð- ur höfðu samning vegna innkomu nýrra, en framlög á hvern nemanda hækka eða lækka eftir atvikum. Margir skólar geta fagnað, en athugun á einstökum skólum sem kvarta leiðir í ljós að herða þarf eftirlit, enda rúmur hálfur milljarður í húfi. Framhaldsnámið Tónlistarskólinn í Reykjavík skaðast við að æðra nám í tónlist flyst til Listaháskólans. Reykjavík- urborg hefur leitast við að draga úr högginu. Þann- ig eru framlög borgarinnar í ár áætluð um 77 m.kr. og greiðir borgin þá allt upp í 650 þ.kr. með nem- endum sem lengst eru komnir í námi. Það nám ætti hugsanlega að fara fram í Listaháskóla Íslands og greiðast af ríkinu ef litið er heildstætt á málin. Rekstur bókasafns skólans á skv. lögum að greið- ast af skólagjöldum, en ekki af sveitarfélaginu og spurning hvort það eigi ekki að flytjast í Listahá- skóla Íslands, en það er mál sem borgin metur ekki, frekar en hvort skólagjöld standi undir rekstri þess. Blaðamaður þekkir ekki lagaramma. Þá áttar hann sig ekki á að tónlistarskólar, nemendur, kennarar og sveitarfélög í landinu hafa óskað eftir því að rík- ið axli ábyrgð á framhaldsnámi í tónlist og við- ræður hafnar. Á fundi formanns fræðsluráðs með skólastjórum tónlistarskólanna í nóvember í fyrra kom fram að borgin hygðist ekki hætta framlögum til þessa náms vegna reykvískra nemenda meðan málið er sótt til ríksins. Að gefa annað í skyn er hrein og klár villa. Hvers vegna er ekki fagnað? Skattborgarar í Reykjavík geta fagnað því að nú kaupum við gott nám fyrir fleiri reykvíska nem- endur en nokkru sinni. Skólanir starfa eftir gagn- særri og heiðarlegri reglum en áður. Fyrir liggur skýr vilji um að aðlögun verði í samráði við tónlist- arskólana og búið er að samþykkja það formlega í fræðsluráði. Fagna ber að loks hafa tekist form- legar viðræður við ríkið um tilhögun framhalds- náms. Og því, að það var eitt af fyrstu verkum nýs fræðsluráðs að skipa starfshóp um tónlistaruppeldi í skólum, enda ljóst að að tónmenntakennsla er mjög misjöfn í grunnskólum og verður tekið á því. Rangfærslur um tónlistar- skólana í Reykjavík Eftir Stefán Jón Hafstein Höfundur er formaður fræðsluráðs.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.