Morgunblaðið - 25.09.2003, Blaðsíða 47
ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. SEPTEMBER 2003 47
FÓLK
STARFSMENN í Kaplakrika
þurftu að raða upp auglýsingaskilt-
um á ný í síðari hálfleik FH gegn Sel-
fossi eftir að Guðmundur Pedersen
hornamaður liðsins og fyrirliði fór í
gegnum „múrinn“ eftir rimmu sína
við Guðmund Guðmundsson horna-
mann Selfoss.
GEIR Hallsteinsson og félagar
hans í Kaplakrika voru snöggir að
setja hlutina á réttan stað en oft á
tíðum munaði litlu að leikmenn
beggja liða færu í gegnum auglýs-
ingaskiltin á leið sinni utan vallar.
MICHAEL Owen er nú orðinn
markahæsti leikmaður Liverpool í
Evrópuleikjum frá upphafi. Í gær
skoraði hann eina mark liðsins í 1:1
jafntefli Liverpool við Olimpija í
Ljubliana í Slóveníu, en liðin áttust
við í UEFA-keppninni í knatt-
spyrnu. Þar með hefur Owen skorað
20 mörk fyrir Liverpool í Evrópu-
keppninni en gamla metið átti hann
ásamt Rush, 19 mörk.
PAUL Robinson, markvörður
Leeds, var hetja liðsins þegar það sló
Swindon út úr keppni í enska deilda-
bikarnum í gær að lokinni víta-
spyrnukeppni. Eftir að Leeds lenti
2:0 undir minnkaði Ian Harte mun-
inn þréttán mínútum fyrir leikslok.
Robinson brá sér í sóknina á síðustu
mínútu leiksins og náði að jafna með
marki með skalla. Þannig tryggði
hann framlengingu. Þrátt fyrir að
leikmenn Leeds væru einum manni
fleiri í framlengingunni tókst þeim
ekki að skora gegn 2. deildarliðinu.
Það var ekki fyrr en Robinson varði
vítaspyrnu eins leikmanna Swindon
í vítaspyrnukeppninni að Leeds gat
fagnað sigri.
„ÍSLENDINGARNIR þrír sem tóku
þátt í leiknum stóðu sig vel,“ sagði
Ásgeir Sigurvinsson, landsliðs-
þjálfari í knattspyrnu, í samtali við
Morgunblaðið í gærkvöldi eftir að
flautað hafði verið til leiksloka á
Manchester-Stadium þar sem hann
fylgdist með Íslendingunum þrem-
ur í Lokeren, Arnari Grétarssyni,
Arnari Þór Viðarssyni og Rúnari
Kristinssyni glíma ásamt félögum
sínum við Manchester City í fyrri
leik liðanna í UEFA-keppninni í
knattspyrnu. Rúnar skoraði annað
mark Lokeren í leiknum en liðið
tapaði, 3:2, og má að mati Ásgeirs
vel una við úrslitin.
Að sögn Ásgeirs léku Arnar Þór
og Arnar Grétarsson „djúpt“ á
miðjunni en Rúnar var einn í sókn-
inni. „Rúnar stóð sig vel í stöðu
sem hann á ekki að leika. Hann
fékk úr litlu að moða en gerði vel
þegar hann skoraði gott mark með
föstu skoti úr miðjum vítateignum
neðst í vinstra hornið,“ sagði Ás-
geir og kvaðst hafa verið ánægður
með það sem hann sá til Íslending-
anna þriggja. Fjórði íslenski leik-
maðurinn, Marel Baldvinsson, sat á
varamannabekk Lokeren allan
leikinn.
Arnar Grétarsson bjargaði á
línu í fyrri hálfleik og Arnar Þór
fékk gula spjaldið á síðustu mín-
útu.
Ásgeir Sigurvinsson
sá Rúnar skora
Reuters
Eitt af atvikunum á Old Trafford sem ekki eiga að sjást á knattspyrnuvelli. Kamerún-
maðurinn Lauren tekur Phil Neville, Man. Utd., hálstaki, og Ashley Cole á einnig eitt-
hvað vantalað við Neville. Arsenalmennirnir þurfa að svara fyrir þetta atvik og fleiri.
ÍSLENSKU kylfingarnir sem taka
þátt á úrtökumótinu fyrir evr-
ópsku mótaröðina á Five-Lakes
vellinum á Englandi léku allir
mjög vel á öðrum keppnisdegi í
gær.
Sigurpáll Geir Sveinsson lék
mjög vel eða á 5 höggum undir
pari vallar, 67 höggum, og er
Sigurpáll á samtals 7 höggum
undir pari en hann deildi efsta
sætinu þegar keppni lauk í gær.
Ólafur Már Sigurðsson, Birgir
Leifur Hafþórsson og Björgvin
Sigurbergsson léku allir undir
pari í gær líkt og Sigurpáll sem
fékk fimm fugla, einn örn og tvo
skolla á hringnum í gær.
Björgvin Sigurbergsson lék á 1
höggi undir pari í gær, og er
hann samtals 3 undir pari og er í
7.–9. sæti.
Ólafur Már Sigurðsson er í
10.–13. sæti en hann lék á 4
höggum undir pari í gær, 68
höggum, og er samtals 1 undir
pari.
Birgir Leifur Hafþórsson lék á
69 höggum í gær en hann var líkt
og Ólafur Már á þremur höggum
yfir pari í fyrradag, og er Birgir
því samtals á pari vallar. Íslands-
meistarinn er í 14.–18. sæti en
um 40 kylfingar komast áfram á
annað stig úrtökumótsins af þess-
um velli en keppt er á fimm völl-
um þessa dagana.
Sigurpáll
efstur
á Five-
Lakes
Fyrstu mínúturnar gáfu fyrirheitum framhaldið þegar leikmenn
keyrðu upp hraðann. Til að byrja með
réðu Eyjastúlkur
ferðinni en stöllur
þeirra úr Val voru
mjög einbeittar og
fljótar að jafna þegar
gestir þeirra slökuðu aðeins á klónni.
Alla Gorkorian var allt í öllu hjá ÍBV
en hjá Val skiptust leikmenn á um að
gera út um sóknirnar, átta leikmenn
skiptu á milli sín níu mörkum fyrri
hálfleiks.
Annað var uppi á teningnum eftir
hlé. Sem fyrr var hratt leikið en nú
var gert meira af því að skora og 18
mörk komu á fyrstu 12 mínútunum.
Valur stillti strengi sína betur, gerði
færri mistök og fékk bónus fyrir það
þegar næstum öll skot þeirra sluppu
innfyrir línuna. Valur náði best 28:22
en þá loks tóku Eyjastúlkur við sér,
minnkuðu muninn í 28:24 og tæpum
tveimur mínútum fyrir leikslok var
tveimur leikmönnum Vals vísað af
velli. ÍBV minnkaði muninn í 28:26 og
þrjátíu sekúndum fyrir leikslok fauk
þriðja Valsstúlkan auk þess að Anna
Yakova minnkaði muninn í eitt mark
úr vítakasti. Nú voru áhorfendur
komnir fremst á bríkina. Valsstúlkur
byrjuðu, héldu boltanum af skynsemi
og Elfa Björk Hreggviðsdóttir inn-
siglaði sigurinn.
Þungu fargi var af Guðríði Guð-
jónsdóttur þjálfara Vals létt eftir leik-
inn. „Vörnin var rosaleg góð fyrir hlé
en við skoruðum ekki nema níu mörk
og gerðum mjög mikið af mistökum í
sókninni. Í hálfleik var rætt um að
fækka þeim en þá varð vörnin slök.
Auðvitað var farið að fara um mig í
lokin en frábært að skora þremur
færri og ég er ánægð með stelpurn-
ar,“ sagði Guðríður. „Við leggjum upp
með að spila hratt enda með snöggar
og liprar stelpur. Við ætluðum líka að
spila af hörku og stelpurnar verða að
gjöra svo vel að standa sig en ég er
með stóran hóp og get leyft leikmönn-
um að hvíla sig. Við ætlum að vinna
hvern leik útaf fyrir sig og að búa til
sterkan heimavöll svo það var gaman
að fá þessa áhorfendur.“
Aðalsteinn Eyjólfsson, þjálfari
ÍBV, var ekki eins ánægður. „Við vor-
um yfirspiluð fyrstu tuttugu mínút-
urnar í síðari hálfleik þegar við
vinnum ekki bolta og lítið um varin
skot hjá okkur auk margra mistaka
við sendingar. Þá var ekki að sökum
að spyrja, við lendum sex mörkum
undir gegn góðu Valsliði og þessi
sprettur okkar í lokin dugði skammt,“
sagði þjálfarinn eftir leikinn. „Þetta
var döpur byrjun í fyrsta alvöruleik
okkar í vetur, vörnin var arfaslök og
lykilleikmenn brugðust á augnablik-
um þegar þeir áttu að standa sig. Eins
og sést á fjölda mistaka við sendingar
vorum við okkar helsti óvinur í dag og
við getum ekki annað en beðið afsök-
unar á leik okkar. Þessi úrslit sýna að
deildin verður svona sterk.“
Þrjár Valsstúlkur
gegn sex var nóg
ÞRJÁR á móti sex tókst Valsstúlkum að skora gegn ÍBV og tryggja
sér 29:27 í stórskemmtilegum leik að Hlíðarenda í gærkvöldi. Fyrri
hálfleikur var varnarleikur í hávegum hafður en eftir hlé brast stífl-
an, hraðinn jókst til muna enda skoruðu liðin samtals 38 mörk eftir
hlé. Uppskera Vals var í samræmi við kraft þeirra, hörku og líflega
sókn.
Stefán
Stefánsson
skrifar
ENSKA knattspyrnusambandið, FA, ákvað í
gær að kæra Arsenal, sex leikmenn liðsins og
tvo leikmenn Manchester United, fyrir ýmis
agabrot leikmanna liðanna í leik þeirra á Old
Trafford sl. sunnudag. Sambandið ákvað
þetta eftir að fara yfir skýrslu dómarans
Steve Bennett – og yfir myndband frá leikn-
um, sem sýnir leikmenn liðanna ganga of
langt í átökum og snertingum.
Leikmennirnir eru Patrick Vieira, Martin
Keown, Ashley Cole, Lauren, Ray Parlour og
Jens Lehmann hjá Arsenal, Ryan Giggs og
Cristiano Ronaldo hjá Manchester United.
Átök áttu sér stað inni á vellinum þegar leikur
stóð yfir og eftir að búið var að flauta hann af.
Fyrir utan leikmennina átta hefur Phil Neville
hjá United fengið aðvörun fyrir hegðun sína á
velli.
Leikmennirnir og liðin hafa tvær vikur til
að segja sitt álit á málinu.
Geta leikmennirnir átt yfir höfði sér fjár-
sektir og leikbann verði kæran tekin til
greina. Rætt hefur verið um að jafnvel komi
til greina að taka stig af Arsenal.
Átta leikmenn
kallaðir á teppið