Morgunblaðið - 25.09.2003, Page 47

Morgunblaðið - 25.09.2003, Page 47
ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. SEPTEMBER 2003 47 FÓLK  STARFSMENN í Kaplakrika þurftu að raða upp auglýsingaskilt- um á ný í síðari hálfleik FH gegn Sel- fossi eftir að Guðmundur Pedersen hornamaður liðsins og fyrirliði fór í gegnum „múrinn“ eftir rimmu sína við Guðmund Guðmundsson horna- mann Selfoss.  GEIR Hallsteinsson og félagar hans í Kaplakrika voru snöggir að setja hlutina á réttan stað en oft á tíðum munaði litlu að leikmenn beggja liða færu í gegnum auglýs- ingaskiltin á leið sinni utan vallar.  MICHAEL Owen er nú orðinn markahæsti leikmaður Liverpool í Evrópuleikjum frá upphafi. Í gær skoraði hann eina mark liðsins í 1:1 jafntefli Liverpool við Olimpija í Ljubliana í Slóveníu, en liðin áttust við í UEFA-keppninni í knatt- spyrnu. Þar með hefur Owen skorað 20 mörk fyrir Liverpool í Evrópu- keppninni en gamla metið átti hann ásamt Rush, 19 mörk.  PAUL Robinson, markvörður Leeds, var hetja liðsins þegar það sló Swindon út úr keppni í enska deilda- bikarnum í gær að lokinni víta- spyrnukeppni. Eftir að Leeds lenti 2:0 undir minnkaði Ian Harte mun- inn þréttán mínútum fyrir leikslok. Robinson brá sér í sóknina á síðustu mínútu leiksins og náði að jafna með marki með skalla. Þannig tryggði hann framlengingu. Þrátt fyrir að leikmenn Leeds væru einum manni fleiri í framlengingunni tókst þeim ekki að skora gegn 2. deildarliðinu. Það var ekki fyrr en Robinson varði vítaspyrnu eins leikmanna Swindon í vítaspyrnukeppninni að Leeds gat fagnað sigri. „ÍSLENDINGARNIR þrír sem tóku þátt í leiknum stóðu sig vel,“ sagði Ásgeir Sigurvinsson, landsliðs- þjálfari í knattspyrnu, í samtali við Morgunblaðið í gærkvöldi eftir að flautað hafði verið til leiksloka á Manchester-Stadium þar sem hann fylgdist með Íslendingunum þrem- ur í Lokeren, Arnari Grétarssyni, Arnari Þór Viðarssyni og Rúnari Kristinssyni glíma ásamt félögum sínum við Manchester City í fyrri leik liðanna í UEFA-keppninni í knattspyrnu. Rúnar skoraði annað mark Lokeren í leiknum en liðið tapaði, 3:2, og má að mati Ásgeirs vel una við úrslitin. Að sögn Ásgeirs léku Arnar Þór og Arnar Grétarsson „djúpt“ á miðjunni en Rúnar var einn í sókn- inni. „Rúnar stóð sig vel í stöðu sem hann á ekki að leika. Hann fékk úr litlu að moða en gerði vel þegar hann skoraði gott mark með föstu skoti úr miðjum vítateignum neðst í vinstra hornið,“ sagði Ás- geir og kvaðst hafa verið ánægður með það sem hann sá til Íslending- anna þriggja. Fjórði íslenski leik- maðurinn, Marel Baldvinsson, sat á varamannabekk Lokeren allan leikinn. Arnar Grétarsson bjargaði á línu í fyrri hálfleik og Arnar Þór fékk gula spjaldið á síðustu mín- útu. Ásgeir Sigurvinsson sá Rúnar skora Reuters Eitt af atvikunum á Old Trafford sem ekki eiga að sjást á knattspyrnuvelli. Kamerún- maðurinn Lauren tekur Phil Neville, Man. Utd., hálstaki, og Ashley Cole á einnig eitt- hvað vantalað við Neville. Arsenalmennirnir þurfa að svara fyrir þetta atvik og fleiri. ÍSLENSKU kylfingarnir sem taka þátt á úrtökumótinu fyrir evr- ópsku mótaröðina á Five-Lakes vellinum á Englandi léku allir mjög vel á öðrum keppnisdegi í gær. Sigurpáll Geir Sveinsson lék mjög vel eða á 5 höggum undir pari vallar, 67 höggum, og er Sigurpáll á samtals 7 höggum undir pari en hann deildi efsta sætinu þegar keppni lauk í gær. Ólafur Már Sigurðsson, Birgir Leifur Hafþórsson og Björgvin Sigurbergsson léku allir undir pari í gær líkt og Sigurpáll sem fékk fimm fugla, einn örn og tvo skolla á hringnum í gær. Björgvin Sigurbergsson lék á 1 höggi undir pari í gær, og er hann samtals 3 undir pari og er í 7.–9. sæti. Ólafur Már Sigurðsson er í 10.–13. sæti en hann lék á 4 höggum undir pari í gær, 68 höggum, og er samtals 1 undir pari. Birgir Leifur Hafþórsson lék á 69 höggum í gær en hann var líkt og Ólafur Már á þremur höggum yfir pari í fyrradag, og er Birgir því samtals á pari vallar. Íslands- meistarinn er í 14.–18. sæti en um 40 kylfingar komast áfram á annað stig úrtökumótsins af þess- um velli en keppt er á fimm völl- um þessa dagana. Sigurpáll efstur á Five- Lakes Fyrstu mínúturnar gáfu fyrirheitum framhaldið þegar leikmenn keyrðu upp hraðann. Til að byrja með réðu Eyjastúlkur ferðinni en stöllur þeirra úr Val voru mjög einbeittar og fljótar að jafna þegar gestir þeirra slökuðu aðeins á klónni. Alla Gorkorian var allt í öllu hjá ÍBV en hjá Val skiptust leikmenn á um að gera út um sóknirnar, átta leikmenn skiptu á milli sín níu mörkum fyrri hálfleiks. Annað var uppi á teningnum eftir hlé. Sem fyrr var hratt leikið en nú var gert meira af því að skora og 18 mörk komu á fyrstu 12 mínútunum. Valur stillti strengi sína betur, gerði færri mistök og fékk bónus fyrir það þegar næstum öll skot þeirra sluppu innfyrir línuna. Valur náði best 28:22 en þá loks tóku Eyjastúlkur við sér, minnkuðu muninn í 28:24 og tæpum tveimur mínútum fyrir leikslok var tveimur leikmönnum Vals vísað af velli. ÍBV minnkaði muninn í 28:26 og þrjátíu sekúndum fyrir leikslok fauk þriðja Valsstúlkan auk þess að Anna Yakova minnkaði muninn í eitt mark úr vítakasti. Nú voru áhorfendur komnir fremst á bríkina. Valsstúlkur byrjuðu, héldu boltanum af skynsemi og Elfa Björk Hreggviðsdóttir inn- siglaði sigurinn. Þungu fargi var af Guðríði Guð- jónsdóttur þjálfara Vals létt eftir leik- inn. „Vörnin var rosaleg góð fyrir hlé en við skoruðum ekki nema níu mörk og gerðum mjög mikið af mistökum í sókninni. Í hálfleik var rætt um að fækka þeim en þá varð vörnin slök. Auðvitað var farið að fara um mig í lokin en frábært að skora þremur færri og ég er ánægð með stelpurn- ar,“ sagði Guðríður. „Við leggjum upp með að spila hratt enda með snöggar og liprar stelpur. Við ætluðum líka að spila af hörku og stelpurnar verða að gjöra svo vel að standa sig en ég er með stóran hóp og get leyft leikmönn- um að hvíla sig. Við ætlum að vinna hvern leik útaf fyrir sig og að búa til sterkan heimavöll svo það var gaman að fá þessa áhorfendur.“ Aðalsteinn Eyjólfsson, þjálfari ÍBV, var ekki eins ánægður. „Við vor- um yfirspiluð fyrstu tuttugu mínút- urnar í síðari hálfleik þegar við vinnum ekki bolta og lítið um varin skot hjá okkur auk margra mistaka við sendingar. Þá var ekki að sökum að spyrja, við lendum sex mörkum undir gegn góðu Valsliði og þessi sprettur okkar í lokin dugði skammt,“ sagði þjálfarinn eftir leikinn. „Þetta var döpur byrjun í fyrsta alvöruleik okkar í vetur, vörnin var arfaslök og lykilleikmenn brugðust á augnablik- um þegar þeir áttu að standa sig. Eins og sést á fjölda mistaka við sendingar vorum við okkar helsti óvinur í dag og við getum ekki annað en beðið afsök- unar á leik okkar. Þessi úrslit sýna að deildin verður svona sterk.“ Þrjár Valsstúlkur gegn sex var nóg ÞRJÁR á móti sex tókst Valsstúlkum að skora gegn ÍBV og tryggja sér 29:27 í stórskemmtilegum leik að Hlíðarenda í gærkvöldi. Fyrri hálfleikur var varnarleikur í hávegum hafður en eftir hlé brast stífl- an, hraðinn jókst til muna enda skoruðu liðin samtals 38 mörk eftir hlé. Uppskera Vals var í samræmi við kraft þeirra, hörku og líflega sókn. Stefán Stefánsson skrifar ENSKA knattspyrnusambandið, FA, ákvað í gær að kæra Arsenal, sex leikmenn liðsins og tvo leikmenn Manchester United, fyrir ýmis agabrot leikmanna liðanna í leik þeirra á Old Trafford sl. sunnudag. Sambandið ákvað þetta eftir að fara yfir skýrslu dómarans Steve Bennett – og yfir myndband frá leikn- um, sem sýnir leikmenn liðanna ganga of langt í átökum og snertingum. Leikmennirnir eru Patrick Vieira, Martin Keown, Ashley Cole, Lauren, Ray Parlour og Jens Lehmann hjá Arsenal, Ryan Giggs og Cristiano Ronaldo hjá Manchester United. Átök áttu sér stað inni á vellinum þegar leikur stóð yfir og eftir að búið var að flauta hann af. Fyrir utan leikmennina átta hefur Phil Neville hjá United fengið aðvörun fyrir hegðun sína á velli. Leikmennirnir og liðin hafa tvær vikur til að segja sitt álit á málinu. Geta leikmennirnir átt yfir höfði sér fjár- sektir og leikbann verði kæran tekin til greina. Rætt hefur verið um að jafnvel komi til greina að taka stig af Arsenal. Átta leikmenn kallaðir á teppið

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.