Morgunblaðið - 25.09.2003, Síða 22
Tilboðsverð í einn dag
Bónus | verður með útsölu á kjúklingi í dag,
fimmtudaginn 25. september. Tilboðið gildir
einungis einn dag og verður kíló af frosnum
kjúklingi frá Ísfugli á 249 krónur. Á morgun,
föstudag, verður svínakjötsútsala í Bónusi, að
sögn Guðmundar Marteinssonar framkvæmda-
stjóra. Kjötið er frá Stjörnugrísi og verður
kílóið af svínakótelettum á 459 krónur, kíló af
svínasnitseli og -gúllasi verður á 659 krónur,
kíló af svínahakki með beini á 298 krónur og
svínahnakki verður á 399 krónur kílóið. Einnig
verður gefinn afsláttur af Knorr kjúklingapott-
réttum, svo fleiri dæmi séu tekin. Þá er kílóið af
1. flokks súpukjöti úr haustslátrun 2003 á 299
krónur næstu mánuði, segir Guðmundur.
Tilboð á kjúklingaleggjum
11–11 | er með tilboð á ferskum kjúklinga-
leggjum frá Móum frá deginum í dag til 1. októ-
ber. Kostar kíló af leggjum 399 krónur í stað
499 króna. Bacon-bunkar frá Bautabúri eru
með afslætti og kostar kílóið 749 krónur (áður
999 krónur). Þá er tilboð á Royal korma sósu
frá Tilda, kostar krukkan 269 krónur (áður 359
krónur). Einnig eru Tilda basmati hrísgrjón á
179 krónur í stað 239 króna og skyr.is, 175 g
með ávöxtum, á 75 krónur (áður 99 krónur).
Loks er fetaostur með kryddblöndu á 279 krón-
ur krukkan (áður 349 krónur).
Nautahakk og -gúllas
Fjarðarkaup | gefa afslátt af nautahakki og
nautagúllasi frá Kjötbankanum um helgina.
Tilboðið gildir 18.–20. september og kostar kíló
af nautahakki 699 krónur kílóið (var 998 krón-
ur) og kíló af nautagúllasi 898 krónur (var 1.389
krónur). Einnig verður afsláttur af ýsu í raspi
frá Norðanfiski, en kílóið af henni kostar 639
krónur (var 968 krónur). Um helgina verður
líka kynning á fiski frá Norðanfiski í versl-
uninni og á hrísmjólk frá Emmess, að sögn
Gísla Sigurbergssonar verðlagsstjóra. Auk
þess verður kynning á léttsósum frá Salathús-
inu, svo fleira sé nefnt.
Kjúklingavængir á 99 krónur
Hagkaup | Amerískum dögum lýkur nú á
sunnudag segir Sigurður Reynaldsson, inn-
kaupastjóri matvöru. „Aðaltilboð helgarinnar
er 600 gramma pakki af frosnum kjúklinga-
vængjum á 99 krónur. Á sama tíma verður af-
sláttur af buffaló-sósu sem notuð er í mariner-
ingu og steikingu á ameríska vísu. Nýjar
tegundir af innfluttum bandarískum pokasalöt-
um hafa verið kynntar á 299 krónur pokinn.
Jafnframt stendur yfir kynning á þremur gerð-
um af Hershey’s-súkkulaðidropum sem kosta
449 krónur pakkinn.
Við verðum einnig með svokallað nautaat,
sem er allt að 40% afsláttur af nautakjöti, sem
hefur selst brjálæðislega vel að undanförnu,“
segir hann.
„Um er að ræða UN-piparsteik á 1.399 krón-
ur kílóið (áður 2.049 krónur) og UN roast beef
á 1.399 krónur (áður 1.999 krónur).“
Lausfrystir kalkúnaleggir eru á 199 krónur
kílóið (áður 598 krónur) og heill, frosinn
kalkúnn á 669 krónur (áður 859 krónur), segir
hann ennfremur.
„Fyrir krakkana erum við með frumsýningu
á tveimur nýjum gerðum af Cheerios, annars
vegar með jarðarberjum og hins vegar með
jarðarberjum, bláberjum og hindberjum. Tveir
311 g pakkar kosta 599 krónur. Þá má nefna
30% afslátt af Ben&Jerry’s ís sem nú er á 518
krónur.“
Um helgina verður jafnframt kynning á nýj-
um gerðum af Samsölu beyglum og auk þess
verður kynning á nýrri vöru frá Chicago Town,
fylltum frosnum hálfmánum með pepperóní og
mexíkóblöndu. Einnig verður kynning á
buffaló-kjúklingavængjum, segir Sigurður.
Bananar á 99 krónur
Krónan | Aðaltilboð vikuna 25. september til 1.
október er frosið lambalæri á 598 krónur kílóið.
Kjötið er úr haustslátrun 2003, segir Bjarki
Jakobsson, innkaupastjóri Krónunnar. Einnig
má nefna tilboð á vörum úr Náttúrulínu, allt að
20% afslátt að hans sögn, og er þar um að ræða
kartöflumús, maís, matarolíu, hrísgrjón og
smábrauð. Aukatilboð í verslun Krónunnar á
Bíldshöfða er kíló af Del Monte banönum á 99
krónur. Auk þess verða 15 stykki af ungaeggj-
um frá Nesbúi seld á 129 krónur uppi á Bílds-
höfða, að sögn Bjarka. Loks má nefna afslátt af
hangiframparti með beini frá Goða. Verður
kílóið á 549 krónur (áður 699 krónur). Kjötið er
í pokum, sem Bjarki segir ódýrari pakkningu
en tíðkist alla jafna.
Klakapokar á tíkall
Nettó | Helsta tilboðið vikuna 25. september til
1. október er á frosnu lambalæri og kostar kíl-
óið 699 krónur (áður 1.122 krónur). Ítölsk ofn-
steik er á 1.007 krónur kílóið (áður 1.438 krón-
ur) og Chupa sleikjó, 20 stykki í poka, á 99
krónur (áður 199 krónur), svo dæmi séu tekin.
Elías Þór Þorvarðarson verslunarstjóri segir
að Nettó í Mjódd fagni fimm ára afmæli um
þessar mundir og verða ýmis tilboð í Mjódd-
inni um helgina af því tilefni. „Polaretti frysti-
pokar fyrir klaka, 10 stykki, verða til að mynda
á 10 krónur.
Einnig verða þrjár Tony’s pítsur saman í
pakka á 399 krónur í stað 699 króna. Ýmislegt
húllumhæ verður líka í búðinni. Við munum
reyna að byggja stærsta kexhús í heimi þegar
Bretinn Már Goldengay reynir að búa til fimm
metra hátt líkan af Hallgrímskirkju úr Frón-
kexi. Allir viðskiptavinir fá tertu og gos og
heppnir viðskiptavinir bíómiða. Þá verða ýmsir
vinningar í boði,“ segir Elías.
Svínagúllas og -snitsel
Nóatún | Afsláttur af svínakjöti til 1. október.
Kíló af svínagúllasi úr kjötborði verður á 699
krónur (áður 1.199 krónur) og kíló af svína-
snitseli úr kjötborði á 799 krónur (áður 1.299).
Sælkerabollur og grísasnitsel úr Nagga-línunni
frá Norðlenska verða einnig á tilboðsverði.
Fleiri vörur verða seldar með afslætti þessa
viku, svo sem Celestial sítrónute og Celestial
Earl Grey te, sem kostar 199 krónur pakkinn í
stað 309 króna, og gagnast vel í hálsbólgu, segir
Sólmundur Oddsson, markaðs- og innkaupa-
stjóri Nóatúns. Afsláttarvörur fyrir skólafólk
eru Trópí í hálfslítra umbúðum. Einnig Blá-
toppur og Límónutoppur í 1,5 lítra umbúðum,
sem kosta 99 krónur í stað 169 króna. Einnig
verður afsláttur af Toro vörum að hans sögn.
„Loks má nefna læri og hrygg úr kjötborði,
allt úr haustslátrun 2003. Lambalæri verður á
799 krónur kílóið (áður 1.089 krónur) og kíló-
verð á hrygg 899 krónur (áður 1.148 krónur),“
segir Sólmundur.
Pítsur og lamb
Samkaup/Úrval | Aðaltilboð 25.–30. sept-
ember er á frosnu lambalæri og er kílóið á 669
krónur (áður 1.122 krónur). Kryddað nauta-
innralæri er á 1.490 krónur kílóið (áður 1.997
krónur), svo fleiri dæmi séu tekin. Friðrik Sig-
þórsson, starfsmaður Samkaupa á Akureyri,
segir að Fyrirtakspítsur verði á kynningarverði
í Samkaupum og Úrvali. Um er að ræða marg-
arítu-pítsu, og pítsu með pepperóní og skinku og
kosta þær 399 krónur í stað 499 áður. Þá verður
kíló af jonagold eplum á 99 krónur í stað 139 og
kíló af gulri melónu á 119 krónur í stað 149
króna.
Þriðja lambakjötsvikan
Spar | Ingvi Guðmundsson kaupmaður er með
tilboð á lambakjöti nú þriðju helgina í röð og
kveðst hafa lækkað verð á lambakótilettum og
lambalærissneiðum enn frekar. Kostar kíló af
lambalærissneiðum, 1. flokkur, nú 898 krónur
(áður 1.198 krónur) og kíló af lambakótilettum
828 krónur (áður 1.098). Um er að ræða ferskt
lamb úr haustslátrun 2003. Einnig er afsláttur
af melónum í versluninni en tilboðin gilda til 29.
september. Sinalco appelsín, 2 sinnum tveir
lítrar, kostar 191 krónu (áður 382 krónur) og
sama magn af Sinalco cola hið sama. Þá verður
kynning um helgina á kartöflusalati og grill-
sósum frá Salathúsinu, segir Ingvi ennfremur.
Enn meira svínakjöt
Þín verslun | vekur athygli á svínakjötsútsölu
um helgina. Tilboðin gilda til 1. október og er
svínabógur til að mynda á 198 krónur kílóið,
svínakótilettur á 549 krónur kílóið og rifjasteik á
198 krónur kílóið, að sögn Jóhönnu Eysteins-
dóttur skrifstofustjóra. Þá má nefna tilboð á
sælkerasteik frá Borgarnes kjötvörum, sem
kostar nú 1.035 krónur (áður 1.294 krónur).
Einnig eru í versluninni tilboð á kaffi og kexi um
helgina og spaghettíi og spaghettísósu, að henn-
ar sögn. | neytendur@mbl.is
HELGARINNKAUP | Kjötmeti af öllu tagi á lækkuðu verði er þungamiðjan í tilboðum matvöruverslana
Útsala á kjúklingi og svíni
Amerískir dagar, nautaat og afmæli er meðal þess
sem er á döfinni í verslunum um helgina. Matarkynn-
ingar verða víða og einnig verður reynt að byggja
stærsta kökuhús heims úr Frónkexi.
Morgunblaðið/Þorkell
Fjöldi nýjunga er kynntur á „amerískum dögum“ sem lýkur um helgina.
DAGLEGT LÍF
22 FIMMTUDAGUR 25. SEPTEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
FRÆIÐ nefnist ný 80 fermetra verslun í Fjarðarkaupumsem sérhæfir sig í heilsuvörum. Verslunin er á af-mörkuðu svæði og flokkast því undir skilgreininguna
„búð í búð“. Í Fræinu er að finna um það bil 1.000 vöruliði og
var búðin opnuð á 30 ára afmæli Fjarðarkaupa fyrir fáeinum
dögum. „Ætli við séum ekki elsta fyrirtækið með sömu kenni-
tölu í þessari grein,“ segir Gísli Sigurbergsson, verðlagsstjóri
Fjarðarkaupa.
Móttökur viðskiptavina hafa verið góðar, en í Fræinu er
„öll flóran“ í heilsubúðarvörum, segir Gísli ennfremur.
„Við höfum sett upp aðstöðu fyrir lífræna frystivöru, kæli-
vöru og ferskt grænmeti og erum auk þess með lífrænt rækt-
aða þurrvöru, vítamín, fæðubótarefni og vörur fyrir sykur-
sjúka,“ segir hann.
Áhugi á umhverfismálum
Framboð á lífrænum vörum og heilsuvörum hefur verið í
stöðugri uppbyggingu í Fjarðarkaupum síðastliðin tvö ár og
byrjaði smátt, í einu hillubili á kaupmannamáli, sem fljótlega
varð að þremur.
„Salan varð strax ótrúlega mikil úr þessu litla plássi,“ segir
Gísli, en upphaf þess að Fjarðarkaup hófu sölu á heilsubúðar-
vörum fyrir tveimur árum má rekja til aukins áhuga á um-
hverfismálum.
„Sveinn bróðir minn varð þátttakandi í verkefninu Vist-
vernd í verki hjá Landvernd og frétti þannig af Rúnari í
Yggdrasil og hans starfi,“ segir Gísli ennfremur.
Vörurnar í Fræinu eru frá Yggdrasil, Heilsu ehf. og frá
Heilsuhorninu á Akureyri og hefur Rúnar Sigurkarlsson,
annar eigandi Yggdrasils, verið Fjarðarkaupsmönnum innan
handar með uppsetningu verslunarinnar.
Undirbúningur hefur staðið yfir í hálft ár og mun Gíslína
Sigurgunnarsdóttir hafa umsjón með rekstri Fræsins. Á döf-
inni er að setja upp sérstaka hillu með lífrænum brauðum frá
Grímsbæ innan tíðar, segir Gíslína. Einnig stendur til að veita
fólki ráðgjöf um heilsuvörur og vítamín í versluninni á aug-
lýstum tímum í hverri viku. Auk þess er aðstaða fyrir kynn-
ingar í einu horninu, sem nýtt verður með reglulegu millibili
að hennar sögn.
Heilsubúðin í búðinni er þar sem áður var sjálfsafgreiðsla
með heita rétti í Fjarðarkaupum og segir kaupmaðurinn að sú
þjónusta hafi ekki gengið sem skyldi.
„Við höfum hins vegar mikla trú á Fræinu,“ segir Gísli Sig-
urbergsson að síðustu.
KAUPMAÐURINN
Öll flóran í heilsuvörum og búð í búð
Morgunblaðið/Ásdís
Gísli Sigurbergsson verðlagsstjóri hefur mikla trú á Fræinu.