Morgunblaðið - 25.09.2003, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 25.09.2003, Qupperneq 22
Tilboðsverð í einn dag Bónus | verður með útsölu á kjúklingi í dag, fimmtudaginn 25. september. Tilboðið gildir einungis einn dag og verður kíló af frosnum kjúklingi frá Ísfugli á 249 krónur. Á morgun, föstudag, verður svínakjötsútsala í Bónusi, að sögn Guðmundar Marteinssonar framkvæmda- stjóra. Kjötið er frá Stjörnugrísi og verður kílóið af svínakótelettum á 459 krónur, kíló af svínasnitseli og -gúllasi verður á 659 krónur, kíló af svínahakki með beini á 298 krónur og svínahnakki verður á 399 krónur kílóið. Einnig verður gefinn afsláttur af Knorr kjúklingapott- réttum, svo fleiri dæmi séu tekin. Þá er kílóið af 1. flokks súpukjöti úr haustslátrun 2003 á 299 krónur næstu mánuði, segir Guðmundur. Tilboð á kjúklingaleggjum 11–11 | er með tilboð á ferskum kjúklinga- leggjum frá Móum frá deginum í dag til 1. októ- ber. Kostar kíló af leggjum 399 krónur í stað 499 króna. Bacon-bunkar frá Bautabúri eru með afslætti og kostar kílóið 749 krónur (áður 999 krónur). Þá er tilboð á Royal korma sósu frá Tilda, kostar krukkan 269 krónur (áður 359 krónur). Einnig eru Tilda basmati hrísgrjón á 179 krónur í stað 239 króna og skyr.is, 175 g með ávöxtum, á 75 krónur (áður 99 krónur). Loks er fetaostur með kryddblöndu á 279 krón- ur krukkan (áður 349 krónur). Nautahakk og -gúllas Fjarðarkaup | gefa afslátt af nautahakki og nautagúllasi frá Kjötbankanum um helgina. Tilboðið gildir 18.–20. september og kostar kíló af nautahakki 699 krónur kílóið (var 998 krón- ur) og kíló af nautagúllasi 898 krónur (var 1.389 krónur). Einnig verður afsláttur af ýsu í raspi frá Norðanfiski, en kílóið af henni kostar 639 krónur (var 968 krónur). Um helgina verður líka kynning á fiski frá Norðanfiski í versl- uninni og á hrísmjólk frá Emmess, að sögn Gísla Sigurbergssonar verðlagsstjóra. Auk þess verður kynning á léttsósum frá Salathús- inu, svo fleira sé nefnt. Kjúklingavængir á 99 krónur Hagkaup | Amerískum dögum lýkur nú á sunnudag segir Sigurður Reynaldsson, inn- kaupastjóri matvöru. „Aðaltilboð helgarinnar er 600 gramma pakki af frosnum kjúklinga- vængjum á 99 krónur. Á sama tíma verður af- sláttur af buffaló-sósu sem notuð er í mariner- ingu og steikingu á ameríska vísu. Nýjar tegundir af innfluttum bandarískum pokasalöt- um hafa verið kynntar á 299 krónur pokinn. Jafnframt stendur yfir kynning á þremur gerð- um af Hershey’s-súkkulaðidropum sem kosta 449 krónur pakkinn. Við verðum einnig með svokallað nautaat, sem er allt að 40% afsláttur af nautakjöti, sem hefur selst brjálæðislega vel að undanförnu,“ segir hann. „Um er að ræða UN-piparsteik á 1.399 krón- ur kílóið (áður 2.049 krónur) og UN roast beef á 1.399 krónur (áður 1.999 krónur).“ Lausfrystir kalkúnaleggir eru á 199 krónur kílóið (áður 598 krónur) og heill, frosinn kalkúnn á 669 krónur (áður 859 krónur), segir hann ennfremur. „Fyrir krakkana erum við með frumsýningu á tveimur nýjum gerðum af Cheerios, annars vegar með jarðarberjum og hins vegar með jarðarberjum, bláberjum og hindberjum. Tveir 311 g pakkar kosta 599 krónur. Þá má nefna 30% afslátt af Ben&Jerry’s ís sem nú er á 518 krónur.“ Um helgina verður jafnframt kynning á nýj- um gerðum af Samsölu beyglum og auk þess verður kynning á nýrri vöru frá Chicago Town, fylltum frosnum hálfmánum með pepperóní og mexíkóblöndu. Einnig verður kynning á buffaló-kjúklingavængjum, segir Sigurður. Bananar á 99 krónur Krónan | Aðaltilboð vikuna 25. september til 1. október er frosið lambalæri á 598 krónur kílóið. Kjötið er úr haustslátrun 2003, segir Bjarki Jakobsson, innkaupastjóri Krónunnar. Einnig má nefna tilboð á vörum úr Náttúrulínu, allt að 20% afslátt að hans sögn, og er þar um að ræða kartöflumús, maís, matarolíu, hrísgrjón og smábrauð. Aukatilboð í verslun Krónunnar á Bíldshöfða er kíló af Del Monte banönum á 99 krónur. Auk þess verða 15 stykki af ungaeggj- um frá Nesbúi seld á 129 krónur uppi á Bílds- höfða, að sögn Bjarka. Loks má nefna afslátt af hangiframparti með beini frá Goða. Verður kílóið á 549 krónur (áður 699 krónur). Kjötið er í pokum, sem Bjarki segir ódýrari pakkningu en tíðkist alla jafna. Klakapokar á tíkall Nettó | Helsta tilboðið vikuna 25. september til 1. október er á frosnu lambalæri og kostar kíl- óið 699 krónur (áður 1.122 krónur). Ítölsk ofn- steik er á 1.007 krónur kílóið (áður 1.438 krón- ur) og Chupa sleikjó, 20 stykki í poka, á 99 krónur (áður 199 krónur), svo dæmi séu tekin. Elías Þór Þorvarðarson verslunarstjóri segir að Nettó í Mjódd fagni fimm ára afmæli um þessar mundir og verða ýmis tilboð í Mjódd- inni um helgina af því tilefni. „Polaretti frysti- pokar fyrir klaka, 10 stykki, verða til að mynda á 10 krónur. Einnig verða þrjár Tony’s pítsur saman í pakka á 399 krónur í stað 699 króna. Ýmislegt húllumhæ verður líka í búðinni. Við munum reyna að byggja stærsta kexhús í heimi þegar Bretinn Már Goldengay reynir að búa til fimm metra hátt líkan af Hallgrímskirkju úr Frón- kexi. Allir viðskiptavinir fá tertu og gos og heppnir viðskiptavinir bíómiða. Þá verða ýmsir vinningar í boði,“ segir Elías. Svínagúllas og -snitsel Nóatún | Afsláttur af svínakjöti til 1. október. Kíló af svínagúllasi úr kjötborði verður á 699 krónur (áður 1.199 krónur) og kíló af svína- snitseli úr kjötborði á 799 krónur (áður 1.299). Sælkerabollur og grísasnitsel úr Nagga-línunni frá Norðlenska verða einnig á tilboðsverði. Fleiri vörur verða seldar með afslætti þessa viku, svo sem Celestial sítrónute og Celestial Earl Grey te, sem kostar 199 krónur pakkinn í stað 309 króna, og gagnast vel í hálsbólgu, segir Sólmundur Oddsson, markaðs- og innkaupa- stjóri Nóatúns. Afsláttarvörur fyrir skólafólk eru Trópí í hálfslítra umbúðum. Einnig Blá- toppur og Límónutoppur í 1,5 lítra umbúðum, sem kosta 99 krónur í stað 169 króna. Einnig verður afsláttur af Toro vörum að hans sögn. „Loks má nefna læri og hrygg úr kjötborði, allt úr haustslátrun 2003. Lambalæri verður á 799 krónur kílóið (áður 1.089 krónur) og kíló- verð á hrygg 899 krónur (áður 1.148 krónur),“ segir Sólmundur. Pítsur og lamb Samkaup/Úrval | Aðaltilboð 25.–30. sept- ember er á frosnu lambalæri og er kílóið á 669 krónur (áður 1.122 krónur). Kryddað nauta- innralæri er á 1.490 krónur kílóið (áður 1.997 krónur), svo fleiri dæmi séu tekin. Friðrik Sig- þórsson, starfsmaður Samkaupa á Akureyri, segir að Fyrirtakspítsur verði á kynningarverði í Samkaupum og Úrvali. Um er að ræða marg- arítu-pítsu, og pítsu með pepperóní og skinku og kosta þær 399 krónur í stað 499 áður. Þá verður kíló af jonagold eplum á 99 krónur í stað 139 og kíló af gulri melónu á 119 krónur í stað 149 króna. Þriðja lambakjötsvikan Spar | Ingvi Guðmundsson kaupmaður er með tilboð á lambakjöti nú þriðju helgina í röð og kveðst hafa lækkað verð á lambakótilettum og lambalærissneiðum enn frekar. Kostar kíló af lambalærissneiðum, 1. flokkur, nú 898 krónur (áður 1.198 krónur) og kíló af lambakótilettum 828 krónur (áður 1.098). Um er að ræða ferskt lamb úr haustslátrun 2003. Einnig er afsláttur af melónum í versluninni en tilboðin gilda til 29. september. Sinalco appelsín, 2 sinnum tveir lítrar, kostar 191 krónu (áður 382 krónur) og sama magn af Sinalco cola hið sama. Þá verður kynning um helgina á kartöflusalati og grill- sósum frá Salathúsinu, segir Ingvi ennfremur. Enn meira svínakjöt Þín verslun | vekur athygli á svínakjötsútsölu um helgina. Tilboðin gilda til 1. október og er svínabógur til að mynda á 198 krónur kílóið, svínakótilettur á 549 krónur kílóið og rifjasteik á 198 krónur kílóið, að sögn Jóhönnu Eysteins- dóttur skrifstofustjóra. Þá má nefna tilboð á sælkerasteik frá Borgarnes kjötvörum, sem kostar nú 1.035 krónur (áður 1.294 krónur). Einnig eru í versluninni tilboð á kaffi og kexi um helgina og spaghettíi og spaghettísósu, að henn- ar sögn. | neytendur@mbl.is  HELGARINNKAUP | Kjötmeti af öllu tagi á lækkuðu verði er þungamiðjan í tilboðum matvöruverslana Útsala á kjúklingi og svíni Amerískir dagar, nautaat og afmæli er meðal þess sem er á döfinni í verslunum um helgina. Matarkynn- ingar verða víða og einnig verður reynt að byggja stærsta kökuhús heims úr Frónkexi. Morgunblaðið/Þorkell Fjöldi nýjunga er kynntur á „amerískum dögum“ sem lýkur um helgina. DAGLEGT LÍF 22 FIMMTUDAGUR 25. SEPTEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ FRÆIÐ nefnist ný 80 fermetra verslun í Fjarðarkaupumsem sérhæfir sig í heilsuvörum. Verslunin er á af-mörkuðu svæði og flokkast því undir skilgreininguna „búð í búð“. Í Fræinu er að finna um það bil 1.000 vöruliði og var búðin opnuð á 30 ára afmæli Fjarðarkaupa fyrir fáeinum dögum. „Ætli við séum ekki elsta fyrirtækið með sömu kenni- tölu í þessari grein,“ segir Gísli Sigurbergsson, verðlagsstjóri Fjarðarkaupa. Móttökur viðskiptavina hafa verið góðar, en í Fræinu er „öll flóran“ í heilsubúðarvörum, segir Gísli ennfremur. „Við höfum sett upp aðstöðu fyrir lífræna frystivöru, kæli- vöru og ferskt grænmeti og erum auk þess með lífrænt rækt- aða þurrvöru, vítamín, fæðubótarefni og vörur fyrir sykur- sjúka,“ segir hann. Áhugi á umhverfismálum Framboð á lífrænum vörum og heilsuvörum hefur verið í stöðugri uppbyggingu í Fjarðarkaupum síðastliðin tvö ár og byrjaði smátt, í einu hillubili á kaupmannamáli, sem fljótlega varð að þremur. „Salan varð strax ótrúlega mikil úr þessu litla plássi,“ segir Gísli, en upphaf þess að Fjarðarkaup hófu sölu á heilsubúðar- vörum fyrir tveimur árum má rekja til aukins áhuga á um- hverfismálum. „Sveinn bróðir minn varð þátttakandi í verkefninu Vist- vernd í verki hjá Landvernd og frétti þannig af Rúnari í Yggdrasil og hans starfi,“ segir Gísli ennfremur. Vörurnar í Fræinu eru frá Yggdrasil, Heilsu ehf. og frá Heilsuhorninu á Akureyri og hefur Rúnar Sigurkarlsson, annar eigandi Yggdrasils, verið Fjarðarkaupsmönnum innan handar með uppsetningu verslunarinnar. Undirbúningur hefur staðið yfir í hálft ár og mun Gíslína Sigurgunnarsdóttir hafa umsjón með rekstri Fræsins. Á döf- inni er að setja upp sérstaka hillu með lífrænum brauðum frá Grímsbæ innan tíðar, segir Gíslína. Einnig stendur til að veita fólki ráðgjöf um heilsuvörur og vítamín í versluninni á aug- lýstum tímum í hverri viku. Auk þess er aðstaða fyrir kynn- ingar í einu horninu, sem nýtt verður með reglulegu millibili að hennar sögn. Heilsubúðin í búðinni er þar sem áður var sjálfsafgreiðsla með heita rétti í Fjarðarkaupum og segir kaupmaðurinn að sú þjónusta hafi ekki gengið sem skyldi. „Við höfum hins vegar mikla trú á Fræinu,“ segir Gísli Sig- urbergsson að síðustu.  KAUPMAÐURINN Öll flóran í heilsuvörum og búð í búð Morgunblaðið/Ásdís Gísli Sigurbergsson verðlagsstjóri hefur mikla trú á Fræinu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.