Morgunblaðið - 25.09.2003, Síða 36
MINNINGAR
36 FIMMTUDAGUR 25. SEPTEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Hún Salla er fallin
frá. Við erum minnt
óþyrmilega á hverful-
leik lífsins þegar góðri
og traustri vinkonu í blóma lífsins er
kippt á braut, nánast fyrirvaralaust
úr þessu jarðríki. Tíminn stöðvast
augnablik og allt verður óskiljanlegt.
SALÓME JÓNA
JÓNSDÓTTIR
✝ Salóme JónaJónsdóttir fædd-
ist á Flateyri 24. nóv-
ember 1940. Hún lést
á Landspítalanum
við Hringbraut 3.
september síðastlið-
inn og var útför
hennar gerð frá
Fossvogskirkju 11.
september.
Hver er tilgangurinn?
Það er dýrmætt að eiga
góða vini. Að kynnast
Söllu og vera með henni
var lærdómsríkt. Heim-
sókn til ykkar vestur í
fyrrasumar var notaleg
og við fundum hlýjuna
frá ykkur umvefja okk-
ur. Þessi ferð er okkur
hjónunum ógleymanleg.
Fáum við seint fullþakk-
að forsjóninni að hún
varð að veruleika. Eða
Kanaríeyjaferðirnar
sem við fórum saman.
Þær gleymast seint. Þær voru mikið
ykkur Grétari að þakka ferðirnar
okkar þangað. Þið þekktuð orðið allt
svo vel þarna. Það var alveg ótrúlegt,
alla staði, götur og verslanir, allt
þekkti Salla með nöfnum. Erla var oft
ofarlega í huga Söllu, samband þeirra
var mjög náið. Meðan Erla barðist við
erfið veikindi stóð Salla eins og klett-
ur með henni allan tímann sem hún
var að komast yfir þau. Það kom líka
fljótt í ljós þegar Salla veiktist og
þurfti mikið aðstoð og hjálp, fyrst
heima og síðan á sjúkrahúsi, hverja
hún átti að. Dugnaði þeirra Grétars
og Erlu verður ekki lýst með orðum.
Elsku Grétar, Erla og allir ástvinir.
Megi Guð vera með ykkur öllum.
Við kveðjum Söllu með söknuði og
trega. Hvíl í friði.
Hver minning dýrmæt perla að liðnum
lífsins degi,
hin ljúfu og hljóðu kynni af alhug þakka hér.
Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem gleymist
eigi,
og gæfa var það öllum, er fengu að kynnast
þér.
(Ingibjörg Sig.)
Margrét.
Nú er Jón í Syðri-
Gegnishólum fallinn frá
að loknu löngu ævi-
starfi. Mér er hann
minnisstæður fyrir
margra hluta sakir og
alltaf að góðu. Þegar ég var að alast
upp í Bæjarhreppnum eftir miðja síð-
ustu öld var Jón í Syðri einn af mátt-
arstólpum sveitarinnar. Stöndugur
bóndi með gott bú, var í hreppsnefnd
og sinnti ýmsum þarfaverkum innan
sveitar.
Hann gat verið hrjúfur á ytra borði
og datt ekki í hug að hefla orðbragð
sitt eftir því hvort viðmælendur voru
bændur úr sveitinni eða fínar frúr úr
Reykjavík.
Hitt fundu allir að undir yfirborð-
inu sló hlýtt hjarta sem hafði samúð
með minni máttar og Jón var sérstak-
lega nærfærinn við börn og málleys-
ingja. Hann var félagslyndur, ræðinn
og fylgdist vel með þjóðmálum. Marg-
ir sóttu hann heim og nutu gestrisni
hans. Marga sem víða höfðu farið
undraði víðsýni bóndans í Flóanum
sem ekki hleypti heimdraganum
nema á vertíð eða til fjalla. Heil-
JÓN
SIGURÐSSON
✝ Jón Sigurðssonfæddist á Berg-
stöðum í Biskups-
tungum 7. maí 1912.
Hann lést á Sjúkra-
húsi Suðurlands 31.
ágúst síðastliðinn og
var útför hans gerð
frá Gaulverjabæjar-
kirkju 6. september.
steyptar lífsskoðanir
hans, oft sagðar í meitl-
uðum setningum, höfðu
vægi í samræðum og
menn tóku mark á Jóni í
Gegnishólum.
Hann var annálaður
hestamaður og átti góða
hesta. Jón var hagleiks-
maður og enginn í sveit-
inni smíðaði betri skeif-
ur. Sóst var eftir honum
sem járningamanni.
Faðir minn lýsti eitt
sinn þrem mönnum í
Flóanum sem fengust
við járningar þannig:
„Einn er fljótur en hroðvirkur, annar
járnar vel en er lengi, en Jón í Gegn-
ishólum járnar bæði fljótt og vel.“
Þannig voru öll hans störf. Þau léku í
höndum hans og vinnuþrek hans var
mikið. Enginn tók jafn þétt í hendi
manns og Jón þegar heilsast var og
þannig var hann allur. Sterkur,
traustur, hreinn og beinn.
Jón var fyrsti maður sem veitti
mér brennivín. Þá var ég ellefu ára.
Ekki var það vegna þess að hann
vildi halda víni að börnum. Hitt var
að ég var á ferð ríðandi með fjall-
mönnum heimleiðis úr Dælarétt.
Veður var hryssingslegt og gekk á
með skúrum. Fjallmenn voru kennd-
ir og skemmtu sér vel. Jónsi var sá
eini sem veitti því athygli að ég skalf
af kulda: „Fáðu þér einn sopa, það
hlýjar þér og drepur engan,“ sagði
hann og rétti mér pelann. Mér fun-
hitnaði og svo sá Jón til þess að
hlynnt væri að mér þegar við komum
til bæja.
Faðir minn og Jón voru miklir vinir.
Þeir voru sem næst jafnaldra og sátu
báðir í hreppsnefndinni. Samferða
voru þeir oft á afréttinn í fjárleitir þeg-
ar haustaði og það voru þeirra gleði-
stundir. Það skynjaði ungur drengur
þegar þeir komu aftur heim og rifjaðar
voru upp stundirnar á fjöllum. Þá var
slegið á létta strengi og stundum sagð-
ar mergjaðar sögur. Jón var glaðsinna
og andlit hans ljómaði þegar skemmti-
leg atvik voru rifjuð upp. Hann sagði
vel frá og glettnin blikaði í augum þeg-
ar kímilegu atriðin bar á góma.
Þegar byggt var íbúðarhús heima á
Hóli árið 1960 yfir okkar stóru fjöl-
skyldu komu sveitungarnir og réttu
hjálparhönd eins og þeirra var von og
vísa. Lítið munu flestir hafa tekið fyr-
ir þann greiða. Fáir komu þó oftar en
Jón í Gegnishólum og mörgum stund-
um var hann hjá okkur við smíðar.
Hitt veit ég að aldrei hefði honum
dottið í hug að taka neitt fyrir sína
vinnu. Hjálpsemin var honum í blóð
borin og hann kom til aðstoðar sæi
hann þess þörf.
Þegar faðir minn lést af slysförum
fyrir réttum 40 árum og móðir mín
stóð uppi ekkja með átta ung börn
kom Jón í Gegnishólum færandi
hendi og það munaði um hans aðstoð.
Slíkt gleymist ekki. Líklega kynni
Jón mér litlar þakkir fyrir að nefna
þetta því góðverk sín vann hann svo
fæstir vissu. Engan mann vissi ég jafn
lausan við hégómaskap eða frásneidd-
an því að ganga í augu fólks og hann.
Þessi fátæklegu skrif eiga að flytja
síðbúið þakklæti fyrir viðkynningu og
velgjörðir Jóns í Gegnishólum. Bless-
uð sé minning hans.
Jón M. Ívarsson frá
Vorsabæjarhóli.
Hjartkær vinur okk-
ar er fallinn frá, vinur
sem dró fram það besta
í fari fólks. Hann vildi
öllum vel og hugsaði
um náungann. Við
kynntumst Stefáni, eða
Stebba Aspar eins og hann var alltaf
kallaður hjá okkur, fyrir einum 15
árum. Þá var Tommi að byrja í golf-
inu og kynntist honum þar, það tókst
strax á meðal okkar mikill vinskap-
ur, vinskapur sem efldist með hverju
árinu sem leið. Við áttum margar
gleðistundirnar saman og hann hafði
alltaf svo góð áhrif á okkur. Á seinni
árum voru farnar hinar árlegu golf-
ferðir suður, það var orðin nokkurs
konar hefð. Þá voru gjarnan spilaðir
vellir sem ekki voru alltaf í alfaraleið
STEFÁN B.
ASPAR
✝ Stefán B. Asparskipstjóri fædd-
ist á Akureyri 3. júlí
1944. Hann lést á
heimili sínu 1. sept-
ember síðastliðinn
og var útför hans
gerð frá Akureyrar-
kirkju 9. september.
því Stebbi var mikill
náttúruunnandi og
hafði yndi af því að
skoða eitthvað nýtt og
kynnast landinu.
Stebbi lagði mikla rækt
við dætur sínar og gaf
sér ávallt mikinn tíma
til að vera með þeim,
líka þegar farið var í
golfferðirnar. Hann
kom oft og borðaði með
okkur og um áramótin
var farin að myndast sú
hefð að hann kæmi í
mat til okkar og eyddi
með okkur kvöldinu.
Þetta voru ógleymanlegar stundir,
börnin okkar, þau Ísak og Kristín,
hlökkuðu svo til að hann kæmi og
hlupu ávallt í fangið á honum þegar
hann birtist í dyrunum. Hann kom
aldrei tómhentur því góða skapið var
alltaf með. Hann gaf sér mikinn tíma
fyrir börnin þegar hann kom, sat
með þau í fanginu, kenndi þeim vís-
ur, sagði þeim sögur eða las fyrir
þau. Það ríkti alltaf svo mikil gleði á
heimilinu þegar hann var hjá okkur.
Heima hjá honum voru börnin okkar
ávallt velkomin og sóttu þau mikið í
að fara til hans. Þau fóru oft með
pabba sínum þegar þeir félagarnir
voru að horfa á golf eða fótbolta í
sjónvarpinu sem voru ófá skipti.
Stebbi var svo sannarlega barnakall.
Það var alveg dásamlegt að sjá þeg-
ar hann var að leika við þau, hann
hafði svo gott lag á þeim. Það er því
óhætt að segja að Stebbi Aspar skilji
eftir sig fótspor hjá okkur. Hann
gerði það besta úr öllu og kvartaði
aldrei. Elsku Stebbi Aspar, við sökn-
um þín sárt en þú munt lifa hjá okk-
ur í minningunni.
Elsku Sóley, Fanney, Aðalheiður,
Rósa, systkini Stefáns og fjölskyld-
ur, megi guð styrkja ykkur í sorginni
og vaka yfir ykkur.
Alltaf skaltu hafa hönd
og hjarta mitt þér nærri,
saman binda okkur bönd,
byggð á návist kærri.
Alltaf skaltu eiga mig
og eiga skjól í fangi.
Blíðast skal ég bera þig
svo ei bugist á lífsins gangi.
Þinn æ vinur vita skalt
og vermir þig mitt hjarta.
Úr djúpi sálar dreg ég allt
daga ljúfa og bjarta.
Kveðjur.
Tómas, Gréta, Ísak og Kristín.
Elsku eiginkona mín, móðir, tengdamóðir og amma,
ÞURÍÐUR SALÓME GUÐMUNDSDÓTTIR
frá Akri, Hvolhreppi,
til heimilis á Öldubakka 15,
Hvolsvelli,
lést á Landspítalanum við Hringbraut aðfaranótt fimmtudagsins
18. september.
Útför hennar verður gerð frá Stórólfshvolskirkju laugardaginn
27. september kl. 14.00.
Bjarni Heiðar Þorsteinsson,
Guðmundur Páll,
Hrafnhildur Elísabet, Jón Trausti
og barnabörn.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir og tengda-
faðir,
SIGURBERG ÞÓRARINSSON,
Langagerði 106,
verður jarðsunginn frá Bústaðakirkju föstu-
daginn 26. september kl. 13.30.
Fyrir hönd vandamanna,
Ingigerður Steindórsdóttir,
Jórunn Sigurbergsdóttir, Pálmi Ólafsson.
Innilegar þakkir til allra þeirra, sem sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát og útför
móður minnar, tengdamóður, ömmu og lang-
ömmu,
ÞORBJARGAR VALDIMARSDÓTTUR,
Selfossi.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Ljósheima á
Selfossi fyrir góða umönnun.
Gunnar Guðmundsson, Áslaug Helgadóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir
og afi,
HÖRÐUR GUÐMUNDSSON
fyrrv. aðalgjaldkeri
Tryggingastofnunar ríkisins,
Fornhaga 11,
Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Neskirkju föstudaginn
26. september kl. 13.30.
Þeim, sem vilja minnast hans, er bent á líknarfélög.
Kristrún Guðnadóttir,
Guðni Harðarson, Helga Fagerer Harðarson,
Grétar Hrafn Harðarson, Sigurlína Magnúsdóttir,
Sverrir Harðarson, Salbjörg Óskarsdóttir,
Sólrún Harðardóttir, Skúli Skúlason,
Elva, Lilja, Styrmir, Björk og Arnheiður.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
INGI RAGNAR B. BJÖRNSSON,
Miðleiti 5,
Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni föstu-
daginn 26. september kl. 13.30.
Jóna Aldís Sæmundsdóttir,
Charlotta Ingadóttir, Sigurgeir Þórarinsson,
Snorri Ingason,
Sæunn Lilja Ingadóttir, Garðar Ragnvaldsson
og barnabörn.
ANNA BRYNJÓLFSDÓTTIR
áður húsfreyja að Gilsbakka,
Hvítársíðu,
er látin.
Jarðarförin auglýst síðar.
Vandamenn.