Morgunblaðið - 25.09.2003, Blaðsíða 51

Morgunblaðið - 25.09.2003, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. SEPTEMBER 2003 51 Nýr og betriHverfisgötu  551 9000 www.regnboginn.is Sýnd kl. 5.30 og 10.30. B.i.12 Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. B.i. 16 ára. SV MBL ZOMBIE- SKONROKK FM 90.9  HK DV  Kvikmyndir.com Sýnd kl. 8. B.i. 14. Sýnd kl. 8 og 10.30. B.i. 12 ára. Sýnd kl. 6. Ísl. tal. Fór bei nt á toppinn í USA! Þeir eru mættir aftur! Frá ofur framleiðandanum Jerry Bruckheimer. i i f ! f f l i i . Sýnd kl. 5.30 og 8.30. B.i. 16 ára. www.laugarasbio.is Sýnd kl. 8 og 10.15. Sýnd kl. 6. Með ísl. tali. Sýnd kl. 6. Með ísl. tali Tilb. 400 kr. Fór beint á toppinn í USA! Þeir eru mættir aftur! Frá ofur framleiðandanum Jerry Bruckheimer. Sýnd kl. 6 og 9. B.i. 16 ára Sérhver maður, sérhver kona/ sérhver kynþáttur, sérhver þjóð/allt ber að þessum sama brunni/heilagri ást. Þannig syngur Sting í titillagi ný- útkominnar plötu sinnar Sacred Love sem er hans sjöunda hljóðvers- sólóplata. Eins og þessar línur gefa til kynna þá er Sting á andlega svið- inu að þessu sinni – sem oft áður reyndar. Segist hafa fengið innblást- urinn þegar hann hélt litla lokaða tónleika í bakgarði eins af sjö heim- ilum sínum, í sveitasælunni í Tosc- ana-héraðinu á Ítalíu. „Þegar ég áttaði mig á því hversu persónulegar þessar tónleika- aðstæður voru fékk ég bakþanka. En það var of seint. Fólk var komið hvaðanæva að og ég lét mig hafa það. Samt fann ég þyrfti á meðferð að halda, þurfti að endurskoða við- horf mitt til lífsins og tónlistarinnar. Svo rann upp fyrir mér að við erum öll tengd saman af sömu orku, Bandaríkjamenn, Englendingar og íbúar Mið-Austurlanda. Nafn plöt- unnar er svarið.“ Ástin er sem sagt svarið við öllum gátum lífsins og um það fjallar Sting á plötu sinni öðru fremur. Þó áréttar hann að hér séu ekki á ferð klisjukenndir ástar- söngvar; „ég elska þig/þú elskar mig/við elskum hvort annað.“ Hann segir nefnilega þessar yfirlýsingar hafa misst mjög marks. Að þær séu misnotaðar. Ofnotaðar. Bæði í söng- textum og lífinu. „Fólk áttar sig ekki á hvaða ábyrgð fylgir slíkri yfirlýs- ingu.“ Tilgerðarlegt? Sannarlega. En Sting er fyrstur til að viðurkenna það að hann sé tilgerðarlegur, og gerði það í nýlegu viðtali við The Sunday Times. „Hvað er að því að vera tilgerðarlegur. Til þess að áorka einhverju í lífinu verður mað- ur fyrst að þykjast geta gert það. Fyrst þóttist ég vera tónlistarmaður en varð það síðan smám saman. Einu sinni þóttist ég vera orðinn fullorð- inn og fullorðnaðist svo smám sam- an. Einu sinni þóttist ég vera pabbi og varð svo pabbi.“ Sting hljóðritaði Sacred Love á síðustu dögunum fyrir stríðið í Írak og hann segir plötuna bera þess merki enda sé eitt megininntakið ákall um að við sýnum náunganum meira umburðarlyndi. Líkt og á síðustu plötu, Brand New Day, þá vann Sting mjög náið með hljómborðsleikara sínum og forritara Kipper. Meðal annarra sem aðstoða Sting á plötunni eru Mary J. Blige, sem syngur með hon- um lagið „Whenever I Say Your Name“. „Sem söngkona þá er Mary í mínum huga arftaki Arethu Frankl- in og því þurfti ég aldeilis að leggja á mig til að ná hennar standard.“ Aðrir sem eiga innlegg á þessari 12 laga plötu eru raga tónlistarmað- urinn Anoushka Shankar, dóttir Ravi Shankar og þar með hálfsystir Noruh Jones, flamenkógítaristinn Vincent Amigo og meðspilarar hans til margra ára gítaristinn Dominic Miller, hljómborðsleikarinn Jason Rebello, trompetleikarinn Chris Botti og trommarinn Manu Katche. Fyrst smáskífan af Sacred Love heitir „Send Your Love“. Sting held- ur í heimsreisu snemma á næsta ári og innan skamms kemur út sjálfs- ævisaga hans The Book of My Life. Ljósmynd/Paolo Roversi Sting verður 52 ára gamall næstkomandi þriðjudag. Heilagur Sting skarpi@mbl.is DAMIEN RICE – O Blessunarlega er það enn svo að á hverju ári kemur út þessi eina plata með listamanni sem maður þekkti ekki fyrir ári en þakkar Guði fyrir að skuli vera kom- inn til sögunnar. Himnasending ársins 2003 er Damien nokkur Rice, liðlega þrítugur Íri sem þegar hefur slegið í gegn í heimalandinu með þessari fyrstu plötu sinni. Hann var í sveitinni Juniper en þegar hún hætti fylltist hann vonleysi vippaði gítarnum á öxl- ina og þvældist á puttanum um Suð- ur-Evrópu. Að tveimur árum liðnum sneri hann til baka og sendi út um allar trissur spólu með lögum sem fæðst höfðu á flakkinu. Þvílíkt lán að David Arnold, kvik- myndatónskáld (Bond-myndirnar síðustu) og samstarfsmaður lista- manna á borð við Björk, skuli hafa fengið í hendurnar eitt eintakanna og kveikt á perunni. Hann var heldur ekkert að tvínóna við hlutina, húrraði Rice í hljóðver, eða réttara sagt lét hann hafa næga aura til að hann gæti komið sér upp sínu eigin farhljóðveri og áður en varði varð O tilbúinn, tíu laga frum- raun sem kemst eins nærri því að vera fullkomin og frumraunum er fært. Hvert og eitt einasta lag er snilld út af fyrir sig, svo innilega ljúfsárt, of- urvært, samið frá hjartanu af frábær- lega færum flytjendum, en á plötunni nýtur Rice aðstoðar sveitar sem held- ur hópinn á tónleikaferðum hans. Nái hann að fylgja þessu eftir og gera betur þá er hér tvímælalaust kominn fram á sjónarsviðið arftaki Van Morrisons. Rifjið bara upp hvernig var að upp- lifa Astral Weeks í fyrsta sinn.  Erlend tónlist Skarphéðinn Guðmundsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.