Morgunblaðið - 25.09.2003, Side 51
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. SEPTEMBER 2003 51
Nýr og betriHverfisgötu 551 9000
www.regnboginn.is
Sýnd kl. 5.30 og 10.30. B.i.12 Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. B.i. 16 ára.
SV MBL
ZOMBIE- SKONROKK
FM 90.9
HK DV
Kvikmyndir.com
Sýnd kl. 8. B.i. 14.
Sýnd kl. 8 og 10.30. B.i. 12 ára.
Sýnd kl. 6. Ísl. tal.
Fór bei
nt á
toppinn
í
USA!
Þeir eru mættir aftur! Frá ofur
framleiðandanum Jerry Bruckheimer.
i i f ! f
f l i i .
Sýnd kl. 5.30 og 8.30. B.i. 16 ára.
www.laugarasbio.is
Sýnd kl. 8 og 10.15. Sýnd kl. 6. Með ísl. tali.
Sýnd kl. 6.
Með ísl. tali Tilb. 400 kr.
Fór beint
á
toppinn í
USA!
Þeir eru mættir aftur! Frá
ofur framleiðandanum
Jerry Bruckheimer.
Sýnd kl. 6 og 9. B.i. 16 ára
Sérhver maður, sérhver kona/
sérhver kynþáttur, sérhver þjóð/allt
ber að þessum sama brunni/heilagri
ást.
Þannig syngur Sting í titillagi ný-
útkominnar plötu sinnar Sacred
Love sem er hans sjöunda hljóðvers-
sólóplata. Eins og þessar línur gefa
til kynna þá er Sting á andlega svið-
inu að þessu sinni – sem oft áður
reyndar. Segist hafa fengið innblást-
urinn þegar hann hélt litla lokaða
tónleika í bakgarði eins af sjö heim-
ilum sínum, í sveitasælunni í Tosc-
ana-héraðinu á Ítalíu.
„Þegar ég áttaði mig á því hversu
persónulegar þessar tónleika-
aðstæður voru fékk ég bakþanka.
En það var of seint. Fólk var komið
hvaðanæva að og ég lét mig hafa
það. Samt fann ég þyrfti á meðferð
að halda, þurfti að endurskoða við-
horf mitt til lífsins og tónlistarinnar.
Svo rann upp fyrir mér að við erum
öll tengd saman af sömu orku,
Bandaríkjamenn, Englendingar og
íbúar Mið-Austurlanda. Nafn plöt-
unnar er svarið.“ Ástin er sem sagt
svarið við öllum gátum lífsins og um
það fjallar Sting á plötu sinni öðru
fremur. Þó áréttar hann að hér séu
ekki á ferð klisjukenndir ástar-
söngvar; „ég elska þig/þú elskar
mig/við elskum hvort annað.“ Hann
segir nefnilega þessar yfirlýsingar
hafa misst mjög marks. Að þær séu
misnotaðar. Ofnotaðar. Bæði í söng-
textum og lífinu. „Fólk áttar sig ekki
á hvaða ábyrgð fylgir slíkri yfirlýs-
ingu.“
Tilgerðarlegt? Sannarlega. En
Sting er fyrstur til að viðurkenna
það að hann sé tilgerðarlegur, og
gerði það í nýlegu viðtali við The
Sunday Times. „Hvað er að því að
vera tilgerðarlegur. Til þess að
áorka einhverju í lífinu verður mað-
ur fyrst að þykjast geta gert það.
Fyrst þóttist ég vera tónlistarmaður
en varð það síðan smám saman. Einu
sinni þóttist ég vera orðinn fullorð-
inn og fullorðnaðist svo smám sam-
an. Einu sinni þóttist ég vera pabbi
og varð svo pabbi.“
Sting hljóðritaði Sacred Love á
síðustu dögunum fyrir stríðið í Írak
og hann segir plötuna bera þess
merki enda sé eitt megininntakið
ákall um að við sýnum náunganum
meira umburðarlyndi.
Líkt og á síðustu plötu, Brand
New Day, þá vann Sting mjög náið
með hljómborðsleikara sínum og
forritara Kipper. Meðal annarra
sem aðstoða Sting á plötunni eru
Mary J. Blige, sem syngur með hon-
um lagið „Whenever I Say Your
Name“. „Sem söngkona þá er Mary í
mínum huga arftaki Arethu Frankl-
in og því þurfti ég aldeilis að leggja
á mig til að ná hennar standard.“
Aðrir sem eiga innlegg á þessari 12
laga plötu eru raga tónlistarmað-
urinn Anoushka Shankar, dóttir
Ravi Shankar og þar með hálfsystir
Noruh Jones, flamenkógítaristinn
Vincent Amigo og meðspilarar hans
til margra ára gítaristinn Dominic
Miller, hljómborðsleikarinn Jason
Rebello, trompetleikarinn Chris
Botti og trommarinn Manu Katche.
Fyrst smáskífan af Sacred Love
heitir „Send Your Love“. Sting held-
ur í heimsreisu snemma á næsta ári
og innan skamms kemur út sjálfs-
ævisaga hans The Book of My Life.
Ljósmynd/Paolo Roversi
Sting verður 52 ára gamall næstkomandi þriðjudag.
Heilagur Sting
skarpi@mbl.is
DAMIEN RICE – O
Blessunarlega er
það enn svo að á
hverju ári kemur
út þessi eina plata
með listamanni
sem maður þekkti
ekki fyrir ári en
þakkar Guði fyrir að skuli vera kom-
inn til sögunnar.
Himnasending ársins 2003 er
Damien nokkur Rice, liðlega þrítugur
Íri sem þegar hefur slegið í gegn í
heimalandinu með þessari fyrstu
plötu sinni. Hann var í sveitinni
Juniper en þegar hún hætti fylltist
hann vonleysi vippaði gítarnum á öxl-
ina og þvældist á puttanum um Suð-
ur-Evrópu.
Að tveimur árum liðnum sneri
hann til baka og sendi út um allar
trissur spólu með lögum sem fæðst
höfðu á flakkinu.
Þvílíkt lán að David Arnold, kvik-
myndatónskáld (Bond-myndirnar
síðustu) og samstarfsmaður lista-
manna á borð við Björk, skuli hafa
fengið í hendurnar eitt eintakanna og
kveikt á perunni.
Hann var heldur ekkert að tvínóna
við hlutina, húrraði Rice í hljóðver,
eða réttara sagt lét hann hafa næga
aura til að hann gæti komið sér upp
sínu eigin farhljóðveri og áður en
varði varð O tilbúinn, tíu laga frum-
raun sem kemst eins nærri því að
vera fullkomin og frumraunum er
fært.
Hvert og eitt einasta lag er snilld út
af fyrir sig, svo innilega ljúfsárt, of-
urvært, samið frá hjartanu af frábær-
lega færum flytjendum, en á plötunni
nýtur Rice aðstoðar sveitar sem held-
ur hópinn á tónleikaferðum hans.
Nái hann að fylgja þessu eftir og
gera betur þá er hér tvímælalaust
kominn fram á sjónarsviðið arftaki
Van Morrisons.
Rifjið bara upp hvernig var að upp-
lifa Astral Weeks í fyrsta sinn.
Erlend tónlist
Skarphéðinn Guðmundsson