Morgunblaðið - 26.09.2003, Síða 14
ERLENT
14 FÖSTUDAGUR 26. SEPTEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
LÖGFRÆÐINGUR fjölskyldu
breska vopnasérfræðingsins Davids
Kellys sakaði í gær bresku stjórnina
um að hafa misnotað vald sitt gróf-
lega og Geoff Hoon varnarmálaráð-
herra um að hafa logið að nefndinni
sem rannsakar tildrög þess að
vopnasérfræðingurinn fyrirfór sér.
Lögfræðingurinn, Jeremy Gomp-
ertz, flutti lokayfirlýsingu sína fyrir
rannsóknarnefndinni í gær og sagði
að breska stjórnin ætti einkum sök
á dauða Kellys þar sem hún hefði
notað hann sem „peð í pólitískri
baráttu hennar við BBC“.
Lík Kellys fannst í júlí eftir að
breska varnarmálaráðuneytið stað-
festi að hann væri heimildarmað-
urinn á bak við ásakanir breska rík-
isútvarpsins um að stjórnin hefði
vísvitandi látið ýkja hættuna af
vopnum Íraka í skýrslu sem birt var
fyrir ári.
Lögfræðingur Kelly-fjölskyld-
unnar sagði að hún vildi fyrst og
fremst að rannsóknarnefndin af-
hjúpaði „tvískinnung“ og „kerfis-
bundnar ávirðingar“ stjórnarinnar í
málinu. „Aldrei aftur ætti starfs-
maður hennar að njóta jafnlítils
stuðnings á slíkum hættutímum,“
sagði hann.
Gompertz sakaði stjórnina um að
hafa af ásettu ráði nefnt Kelly sem
heimildarmanninn á bak við ásak-
anir BBC þótt vopnasérfræðingur-
inn hefði haldið því fram á þeim
tíma að ekki hefði verið haft rétt
eftir honum. „Þannig misnotaði hún
vald sitt gróflega og verðskuldar
þyngstu mögulegu fordæmingu.“
Lögfræðingurinn sagði að stjórn-
in hefði hvorki beðist afsökunar né
viðurkennt misgerðir sínar öfugt við
BBC sem hefði verið „tilbúið að við-
urkenna mistök sín og taka gagn-
rýni“.
Lögfræðingurinn sagði að út-
drættir úr dagbók Alastairs Camp-
bells, fyrrverandi fjölmiðlaráðgjafa
Tony Blairs forsætisráðherra,
leiddu í ljós að Hoon varnarmála-
ráðherra hefði logið að nefndinni
þegar hann hefði neitað því að
stjórnin hefði af ásettu ráði nefnt
Kelly sem heimildarmann BBC.
„Útdrættirnir leiða reyndar í ljós að
Hoon studdi ákaft þá tillögu að nafn
Kellys yrði gert opinbert í þessu
sambandi.“
Átti ekki rétt á nafnleynd
Lögfræðingur stjórnarinnar, Jon-
athan Sumption, sagði að afstaða
Kelly-fjölskyldunnar í málinu væri
„algerlega óréttlætanleg“. „Þau
ganga út frá því sem gefnu að Kelly
hafi átt rétt á því að nafni heimild-
armannsins yrði leynt – en það er
rangt. Í stjórnarskránni er ekkert
ákvæði um að opinberir starfsmenn
eigi rétt á nafnleynd.“
Vinsældir Blairs hafa snarminnk-
að frá því að rannsóknin á máli Kel-
lys hófst og um 60% Breta eru nú
óánægð með frammistöðu hans í
embætti forsætisráðherra ef marka
má skoðanakönnun sem dagblaðið
Guardian birti í gær.
Hoon varnarmálaráð-
herra sakaður um lygar
Reuters
Jeremy Gompertz, lögfræðingur fjölskyldu Davids Kellys.
Fjölskylda Kellys
kennir stjórninni
um dauða hans
London. AFP.
SJÓNVARPSKAPPRÆÐUR fimm
helstu frambjóðendanna í rík-
isstjórakosningunum í Kaliforníu
leystust fljótlega upp í hróp og köll
í fyrrakvöld og varð umsjónarmað-
urinn hvað eftir annað að þagga
niður í frambjóðendunum fimm og
minna þá á að halda sig við efnið.
Þetta voru einu opinberu kapp-
ræðurnar sem kvikmyndaleik-
arinn og repúblíkaninn Arnold
Schwarzenegger hefur fallist á að
taka þátt í, og hlaut hann sinn
skammt af aðdróttunum keppi-
nauta sinna, sem m.a. sökuðu hann
um að hafa stutt tilraun, fyrir níu
árum, til að koma á lögum sem
hefðu komið í veg fyrir að börn
ólöglegra innflytjenda nytu op-
inberrar þjónustu.
Demókratinn Cruz Bustamente
var átalinn fyrir að hafa þegið
milljónir dollara frá spilavítum, og
sett var ofan í við repúblíkanann
Tom McClintock fyrir að fara
rangt með staðreyndir um efna-
hagsmál. Arianna Huffington, sem
er óháður frambjóðandi, hlaut
bágt fyrir að hafa greitt litla sem
enga skatta.
Orðasennan á milli Schwarzen-
eggers og Huffingtons náði há-
marki þegar sá fyrrnefndi greip
fram í fyrir Huffington og hún
sagði: „Svona kemurðu fram við
konur, við þekkjum það.“
Schwarzenegger svaraði: „Ég man
það núna að ég get boðið þér hlut-
verk sem hentar þér vel í [kvik-
myndinni] Tortímandinn 4.“
Áheyrendur í sjónvarpssal
hlógu, en umsjónarmaður kapp-
ræðnanna setti ofan í við
Schwarzenegger fyrir þessi orð.
AP
Frambjóðendurnir Arnold Schwarzenegger, Tom McClintock, Peter Camejo, stjórnandinn Stan Statham, Arianna Huffington og Cruz Bustamante.
Hróp og köll í sjónvarpskappræðum
AKILA al-Hashimi, ein þriggja
kvenna í svonefndu framkvæmdaráði
Íraks, lést í gærmorgun af sárum sem
hún hlaut þegar skotárás var gerð á
hana fyrir fimm dögum. Til stóð að
hún sæti allsherjarþing Sameinuðu
þjóðanna, sem sett var á þriðjudag í
New York, en búist var við að hún
yrði skipuð sendiherra Íraks hjá SÞ.
Al-Hashimi starfaði í utanríkis-
ráðuneyti Íraks í stjórnartíð Saddams
Husseins, fyrrum forseta landsins, og
var eini embættismaðurinn úr þeirri
stjórn sem skipaður var í 25 manna
framkvæmdaráð er Bandaríkin komu
á fót í Írak. Skipan hennar var um-
deild, enda starfaði hún á sínum tíma
náið með Tariq Aziz, aðstoðarforsæt-
isráðherra, og ferðaðist oft með hon-
um til útlanda í embættiserindum.
Hún stjórnaði áætluninni um matvæli
fyrir olíu í utanríkisráðuneytinu, en
samkvæmt þeirri áætlun heimiluðu
SÞ Írak að nota hagnað af olíusölu til
að kaupa matvæli og lyf.
Al-Hashimi var lögfræðingur og
lauk einnig doktorsprófi í frönskum
bókmenntum. Hún leit á sig sem bar-
áttumann fyrir réttindum kvenna í
Írak.
Sex menn sátu fyrir bílalest hennar
nærri heimili hennar í Bagdad um
liðna helgi og hófu ákafa skothríð er
bifreið al-Hashimi fór hjá.
Með dauða al-Hashimi hafa tveir
þekktir Írakar verið myrtir að því er
talið er vegna samstarfs við hernáms-
lið Bandaríkjamana.
Framkvæmdaráð Íraks
Al-Hashimi
látin
Bagdad. AFP.
PER Olof Svensson, sem sænska
lögreglan hafði í haldi í viku, grun-
aðan um morðið á utanríkisráðherra
landsins, sagði í viðtali sem birtist í
gær, að hann væri að hugleiða að
kæra fjölmiðla og sænsk yfirvöld
vegna þess sem hann hafi orðið að
þola.
Öllum grun var létt af Svensson á
miðvikudaginn, en hann sagði enn-
fremur í viðtalinu, sem birtist í
blaðinu Expressen, að hann vonaði
að maðurinn sem nú er grunaður
yrði ekki látinn ganga í gegnum það
sama, og lýsti reynslu sinni sem
„súrrealískri“.
„Ég sagði við sjálfan mig, þetta
getur ekki verið satt. Halda þeir
virkilega að ég sé maðurinn á þess-
um myndum?“ sagði Svensson eftir
að hann var látinn laus. Hann var
handtekinn 16. september, fimm
dögum eftir að Lindt lést af
hnífstungusárum er hún hlaut degi
áður, þegar hún var í verslun í
Stokkhólmi.
Sum sænsk dagblöð sögðu að
Svensson hefði verið handtekinn
samkvæmt ábendingu frá föður
hans, eftir að lögreglan birti mynd
úr innanhússmyndbandsvél í NK-
stórversluninni þar sem Lindt varð
fyrir árásinni.
„Þú líkist þeim grunaða,“ sagði
lögreglumaðurinn sem handtók
Svensson við hann. Farið var með
hann inn í lögreglubíl og hrópuðu
lögregluþjónarnir að þeir hefðu náð
þeim sem leitað var að. „Hávaxinn
lögreglumaður í einkennisbúningi
ýtti mér inn í lögreglubílinn og
sagði: Morðingjaskítur!“
Svensson fór ennfremur ófögrum
orðum um „hýenublaðamenn“ sem
greint hefðu frá handtökunni og
dregið nafn sitt í svaðið í dagblöð-
unum sem fangaverðirnir lásu. Að
sögn lögmanns Svenssons kann
hann að fara fram á 100 til 500 þús-
und sænskar krónur, eða eina til
fimm milljónir íslenskra króna, í
bætur frá tilteknum dagblöðum,
auk þess að krefjast bóta frá
sænska ríkinu fyrir ólöglega hand-
töku.
Hann getur þó aðeins vænst þess
að fá sem svarar 50 þúsund íslensk-
um krónum í bætur frá hinu op-
inbera fyrir að hafa verið hnepptur
saklaus í varðhald.
Hugleiðir kæru á
hendur fjölmiðlum
og sænska ríkinu
Stokkhólmi. AFP.
VEGNA fréttar um lokun
spjallrása MSN sem birtist á
síðum þessum í gær skal tekið
fram að ekki mun standa til að
loka MSN Messenger heldur
MSN Chat.
MSN Messenger er mun
meira notaður hérlendis en inn-
an þess kerfis skiptast notend-
ur á skilaboðum á lokuðum eða
afmörkuðum svæðum. Í MSN
Messenger, sem á ensku kallast
„peer to peer“ eða „maður á
mann“, býr fólk til svæði sem
það ræður hverjir komast inn á.
MSN Chat svipar meira til irk-
isins svokallaða þar sem fólk
fer inn á opnar (miðlægar)
spjallrásir og hver sem er
kemst inn á.
Deilt er um ákvörðun Micro-
soft að loka spjallrásunum.
Fram kemur í fréttum erlendra
miðla að meira hangi á spýtunni
hjá fyrirtækinu en að koma í
veg fyrir misnotkun spjallrás-
anna, m.a. að þær skili litlum
sem engum arði. Sömu aðilar
benda á að samkeppnisaðilar
Microsoft, þ.á m. AOL, Yahoo
og Freeserve (í Bretlandi) hafi
ekki uppi áform um að loka sín-
um spjallrásum þannig að óvíst
sé að lokun spjallrása Microsoft
skili tilætluðum árangri. Fólk
rói þá einfaldlega á önnur mið.
MSN Chat
lokað