Morgunblaðið - 04.10.2003, Qupperneq 65

Morgunblaðið - 04.10.2003, Qupperneq 65
FÓLK Í FRÉTTUM MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. OKTÓBER 2003 65 Þessi gamli góði Opið 21.00-01.00 virka daga og 21.00-05.30 um helgar Grensásvegi 7, sími 517 3535 Nýtt dansatriði SÖNG- og leikkonan Courtney Love var lögð inn á spítala á fimmtudag vegna gruns um að hafa tekið of stór- an skammt af eit- urlyfjum. Lög- regla hafði fyrr sama dag tekið hana höndum þar sem hún hafði brotið fjórar rúð- ur á heimili vinar síns á Los Angel- es-svæðinu. Þeg- ar lögregla kom á vettvang stóð Love, 39 ára gömul, fyrir utan heimilið. Hún var tekin höndum, en sleppt. Love á yfir höfði sér sekt vegna vímuefn- anotkunar. Klukkustund síðar var Love flutt á sjúkrahús, en hún hafði fundist fyrir utan annað heimili, að sögn an- anova.com. Hún var útskrifuð af sjúkrahúsinu sama dag. Love er stofnandi hljómsveitarinnar Hole. Hún er jafnframt þekkt fyrir sam- band sitt við Kurt Cobain, liðsmann hljómsveitarinnar Nirvana. Love hefur áður komist í kast við lögin vegna eiturlyfjaneyslu. Hún var flutt á sjúkrahús þegar hún tók of stóran skammt á hóteli árið 1994. Síðar fór hún í meðferð, en þegar hún var út- skrifuð komst Love að því að Cobain hafði framið sjálfsmorð. Nafn hennar var einnig dregið fram í dagsljósið í fyrra þegar Jules Lus- man, læknir í Beverly Hills, var sviptur lækningaleyfi fyrir að ávísa ávanabindandi lyfjum til frægra ein- staklinga gegn greiðslu. Hún hefur einnig viðurkennt að hafa tekið inn heróín á meðan hún var barnshafandi. Þá vakti hún athygli fyrir ólæti í farþegavél á Heathrow- flugvelli fyrr á árinu …Ástralska leikkonan Nicole Kidman er sögn hafa gengið út úr sýningarsal þegar hún sá fyrst endanlega útgáfu á nýj- ustu mynd sinni, Dogville, sem leik- stýrt var af Dananum Lars Von Trier. Ástæðan er sú að henni var brugðið þegar nauðgunaratriði í kvikmynd- inni var sýnt. Í Dogville leikur Kid- man konu sem flýr undan mafíunni á fjórða áratug 20. aldar. Sögupersónan leitar hælis í smábæ í Koloradó. Þar er hún misnotuð kyn- ferðislega, en uppsker litla samúð bæjarbúa, sem telja að hún hafi dreg- ið nauðgarann á tálar. Í kjölfarið verður hún fyrir ítrekuðum árásum annarra karlmanna í bænum. Kidman segir að sér hafi þótt erfitt að horfa áfram á atriðin þar sem stór skjár og hljóð hafi magnað aðstæð- urnar sem voru fyrir hendi. „Ég sat þarna, horfði og hugsaði, þetta er ein- faldlega of opinskátt,“ segir Kidman, að því er fram kemur á ananova.com. Þá segir að Kidman hafi fengið mar- bletti og verið hart leikin eftir atriði þar sem karlmaður (Stellan Skars- gard) nauðgar sögupersónunni. FÓLK Ífréttum RADIOHEAD var valin besta rokk- hljómsveit heims, þriðja árið í röð, á árlegri verðlaunahátíð breska tón- listarblaðsins Q í gærkvöldi. Hljóm- sveitin, sem nýlega gaf út plötuna Hail to the Thief, bar sigurorð af Coldplay, Foo Fighters, Red Hot Chili Peppers og Blur en það voru lesendur Q sem réðu úrslitum í val- inu. Radiohead gaf lítið fyrir verð- launin, mætti ekki til hátíðarinnar og sendi myndband í staðinn. Það var hljóðlaust en á því var texti þar sem stóð: „Ömurlegt!“ og síðan: „Radiohead talar ekki við Q“. Það kom á óvart að Coldplay, sem hafði fengið flestar tilnefn- ingar: Sem besta hljómsveitin, fyrir besta lagið („Clocks“), besta mynd- bandið („Scientist“) og fyrir bestu sviðsframkomuna, fékk engin verð- laun. Hljómsveitin mætti ekki held- ur til hátíðarinnar. Bandaríska söngkonan Christina Aguilera skrapp til Lundúna frá Bandaríkjunum til að taka við verð- launum fyrir lagið „Dirrty“, sem valið var besta smáskífan. „Það var kominn tími til að „Dirrty“ fengi smáást. Ég þakka Q fyrir að viðurkenna konuna sem þorði að gera þetta myndband og naut hverrar mínútu,“ sagði hún og vísaði til myndbandsins við lagið sem þykir mjög djarft. „Gay Bar“ með Electric Six var valið besta myndbandið og plata Blur, Think Tank, var valin besta platan. The Cure fékk verðlaun fyr- ir þau áhrif sem hljómsveitin hefur haft og Duran Duran fékk sérstök verðlaun fyrir ævistarf. Q-verðlaunin afhent Radiohead best í heimi AP Christina Aguilera er stolt af því að vera óhrein. TOPP 20 mbl.is
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.