Morgunblaðið - 11.11.2003, Síða 6
FRÉTTIR
6 ÞRIÐJUDAGUR 11. NÓVEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Hugbúnaðarhús
Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími 545 1000 • Fax 545 1001
voru annars vegar orkuskorturinn og
hins vegar matarskorturinn.“
Eiður átti, auk þess að hitta full-
trúa stjórnvalda í Norður-Kóreu,
fundi með fulltrúum hjálparstofnana
sem eru að vinna í landinu, s.s. Mat-
vælastofnunar Sameinuðu þjóðanna
og Rauða krossins. „Þeir sögðu frá
því starfi sem þeirra stofnanir eru að
vinna og gátu þess jafnframt að
ástandið á landsbyggðinni væri
miklu erfiðara en í höfuðborginni.
Íbúar Norður-Kóreu eru um 22,4
milljónir og þar af búa tvær milljónir
í höfuðborginni.
Ég hafði sett fram ýmsar óskir,
m.a. um að komast út fyrir borgina,
en það var ekki hægt á þessum stutta
tíma. Þeir skipulögðu dagskrá fyrir
mig, sem ég raunar gerði at-
hugasemdir við og fékk breytt. Þeir
höfðu ekki gert ráð fyrir að ég hitti
fulltrúa hjálparstofnana en ég
breytti því og gat komið fundum á
með aðstoð góðra manna. Gerði ég
það í staðinn fyrir að heimsækja
„njósnaskipið Pueblo“ sem þeir sýna
gjarnan sendiherrum sem koma.“
Aðspurður hvernig Norður-Kórea
kæmi honum fyrir sjónir sagði hann
það áberandi hversu mikið væri af
gangandi fólki alls staðar og eins og í
öllum þróunarlöndum langar bið-
raðir á strætisvagnabiðstöðvum.
Farartæki væru einnig gömul miðað
við það sem menn væru vanir á Vest-
urlöndum og meirihluti strætisvagna
30–40 ára gamall. Þarna mætti þó
einnig sjá nýrri vagna frá Kína og
neðanjarðarlestakerfi sem ráðamenn
væru mjög stoltir af.
„Þetta er land sem á ekki einungis
við pólitíska erfiðleika að stríða held-
ur einnig gífurlega efnahagslega erf-
iðleika. Hluti af því eru mikil flóð sem
urðu fyrir átta árum og þeir hafa
ekki jafnað sig á. Það sem háir fólki
er skortur á prótíni. Aðaluppistaðan í
matnum er grjón, núðlur, kartöflur
og kál. Þegar ég var þarna var aðal-
uppskerutími kínakálsins. Maður sá
ótal vörubíla og önnur ökutæki hlað-
in af þessu káli. Það er skammtað,
um hundrað kíló á mann, sem á að
duga árið. Kálið er súrsað og geymist
fram undir sumar í þessari verkun
þeirra.“
Spurður um hvernig fulltrúar
Norður-Kóreu hefðu metið þær deil-
ur sem þeir hefðu átt í við önnur ríki
sagði Eiður að þeir legðu ríka
áherslu á fjandsamlega stefnu
Bandaríkjanna í sinn garð. „Þeir
töldu sig vera að verja hendur sínar
og ættu ekki annan kost vegna fjand-
samlegrar stefnu Bandaríkjanna.
Þeim lá mjög þungt orð til Banda-
ríkjamanna.“
Afhenti norður-kóreskum stjórnvöldum trúnaðarbréf sem sendiherra
Land sem á við
mikla erfið-
leika að stríða
EIÐUR Guðnason, sendiherra Ís-
lands í Kína, afhenti á fimmtudag í
síðustu viku King Yong Nam, forseta
forsætisnefndar
norður-kóreska
þjóðþingsins,
trúnaðarbréf sitt
sem sendiherra
með aðsetur í
Peking. Eiður
dvaldi fjóra daga í
Pyongyang, höf-
uðborg Norður-
Kóreu, og átti þar
viðræður við jafnt
fulltrúa stjórnvalda sem hjálp-
arstofnana.
Eiður sagði að erfitt væri að leggja
mat á ástandið í landinu eftir svona
stutta dvöl. „Það leynir sér hins veg-
ar ekki að þetta land á við mjög mikla
erfiðleika að stríða. Þeir fóru heldur
ekkert dult með það sjálfir og ræddu
þau mál mjög opinskátt. Norður-
Kórea býr við mikinn orkuskort sem
leyndi sér ekki. Rafmagn fór öðru
hverju af og maður sá að hlutar borg-
arinnar voru myrkvaðir. Þessi orku-
skortur leiðir líka til að þeir geta ekki
framleitt tilbúinn áburð í þeim mæli
sem þyrfti. Þau vandamál sem voru
efst á baugi fyrir utan pólitísku málin
Eiður Guðnason,
sendiherra.
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur
hefur dæmt Reykjagarð hf. til að
greiða Móum 16 milljónir króna
með dráttarvöxtum frá í nóvem-
ber í fyrra fyrir kjúklingaslátrun.
Málavextir eru þeir að í ágúst
2001 tóku Móar að sér slátrun á
kjúklingum fyrir Reykjagarð þar
sem sláturhúsi síðarnefnda fyrir-
tækisins á Hellu hafði verið lokað.
Enginn samningur var gerður um
slátrunina annar en munnlegt
samkomulag um verð.
Starfsfólk Reykjagarðs hafði
aðstöðu til að vinna kjötið, vigta
það og pakka og til vörutiltektar,
og án afskipta starfsfólks Móa.
Starfsfólk Reykjagarðs hafði ekki
verið á launaskrá hjá Móum fyrr
en í desember, að þetta starfsfólk
var sett á launaskrá hjá Móum.
Reykjagarður mótmælti ekki
rúmlega 16 milljóna reikningi
Móa fyrir afnot af sláturhúsinu en
sendi hins vegar Móum síðar rúm-
lega 15 milljóna kröfu vegna óeðli-
legrar rýrnunar á kjúklingi. Þótti
dóminum sem Reykjagarði hefði
ekki tekist að sýna fram á rétt-
mæti þeirrar kröfu og var hún því
ekki tekin til greina.
Logi Guðbrandsson héraðs-
dómari dæmdi málið. Lögmaður
Móa var Örn Höskuldsson hrl. og
lögmaður Reykjagarðs Stefán
Þór Ingimarsson hdl.
Móum dæmdar
16 milljónir
frá Reykjagarði
Borvagnar og sprengiefni um göturnar
Egilsstöðum. Morgunblaðið.
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
Þessi var á leið inn að Kárahnjúkavirkjun, með stuttu kaffistoppi á Egilsstöðum.
ÞAÐ liggur við að venjulegar fjöl-
skyldubifreiðar séu að verða í
minnihluta á götum Egilsstaða. Um
þær aka daga og nætur vörubílar
og flutningabílar með endalausa
tengivagna, stórvirkar vinnuvélar,
tæki og tól og gáma í eftirdragi.
Jeppar virkjunarmanna eru eins og
gráir kettir kringum bygginga-
vöruverslanir, verktakaskrifstofur
og flugstöð og alls kyns sérstakir
flutningar, svo sem á sprengiefni
og borvögnum daglegt brauð. Hafa
tvær vatnslagnir undir vegum mol-
ast í sundur undanfarið vegna
þungaflutninga, önnur í miðbæ Eg-
ilsstaða og hin á Egilsstaðanesinu.
Segja má að það sé því ekkert
fréttnæmt við þennan þriggja arma
borvagn sem staðnæmdist í miðbæ
Egilsstaða á leið sinni í Kára-
hnjúkavirkjun á dögunum. Hann er
bara hluti af venjulegu götumynd-
inni.
SJÁLFSSTJÓRNARMÁL
Færeyinga eru við það að verða
pólitískt átakamál á Íslandi,
segir í frétt á heimasíðu Útvarp
Føroya.
„Ungir menn í Sjálfstæðis-
flokknum, flokki Davíðs Odds-
sonar forsætisráðherra, eru
farnir að birta stuðningsyfirlýs-
ingar við sjálfstæðisbaráttu
Færeyinga. Davíð Oddsson
vildi ekki styðja umsókn Fær-
eyinga að Norðurlandaráðinu á
ársfundi ráðsins í Ósló. Ungir
sjálfstæðismenn í Vestmanna-
eyjum voru fyrstir til að lýsa
stuðningi við færeyska frelsis-
baráttu. Og nú taka ungir sjálf-
stæðismenn á Akureyri undir
með Vestmannaeyingunum.“
Þá segir í fréttinni að Vinstri-
hreyfingin - grænt framboð
hafi stutt dyggilegast við bakið
á sjálfstæðisbaráttu Færey-
inga en Vörður, félag ungra
sjálfstæðismanna á Akureyri,
segi aftur á móti að frelsisbar-
átta Færeyinga sé ekki „sósíal-
istísk eign“ stjórnarandstöð-
unnar á Íslandi né vopn hennar
gegn ríkisstjórninni.
Sjálfsstjórnarmál
Færeyinga
Stuðningur
ungra sjálf-
stæðis-
manna vek-
ur athygli
LÖGREGLAN í Reykjavík lauk
tæplega vikulöngu umferðarátaki í
Breiðholti á föstudag og var sérstak-
lega á varðbergi gagnvart hraðakstri
og kærði sex ökumenn vegna þess.
Einnig sá lögregla ástæðu til að
gera 10 athugasemdir þar sem bif-
reiðum hafði verið lagt ólöglega auk
þess sem númer voru klippt af 6 öku-
tækjum vegna tryggingarmála. Veð-
ur hamlaði lögreglunni nokkuð því
búnaður lögreglu var talsvert upp-
tekinn vegna 92 umferðaróhappa
sem urðu á umræddu tímabili frá 3.
til 7. nóvember.
Í gær hófst síðan næsta umferð-
arátak lögreglunnar og beinir hún
sjónum sínum að Bústaðahverfi fram
á föstudag. Fylgst verður með hrað-
akstri, ljósanotkun og notkun á al-
mennum öryggisbúnaði ökutækja.
Umferðarátak
í Breiðholti
Sex kærðir
fyrir hrað-
akstur
IÐGJÖLD til séreignalífeyris-
sparnaðar launafólks námu 14,2
milljörðum króna á árinu 2002 og
jukust um 46% frá árinu áður 2001
þegar þau numu 9,7 milljörðum
króna.
Af þessum rúmu 14 milljörðum
kr. í iðgjöld fóru 6,2 milljarðar kr.
til lífeyrissjóða sem starfað hafa
sem séreignalífeyrissjóðir í gegnum
tíðina, 2,3 milljarðar kr. fóru til sér-
eignadeilda annarra lífeyrissjóða og
5,7 milljarðar króna til annarra
vörsluaðila séreignalífeyrissparnað-
ar eins og banka og sparisjóða.
Heildarséreignasparnaður í land-
inu í vörslu lífeyrisjóða og annarra
aðila sem hafa leyfi til að taka á
móti honum nam tæpum 59 millj-
örðum kr. í árslok 2002.
14,2 millj-
arðar kr. í
séreignalíf-
eyrissparnað