Morgunblaðið - 15.11.2003, Page 40
DAGLEGT LÍF
40 LAUGARDAGUR 15. NÓVEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
kringlunni & faxafeni
www.tk. is O P I Ð S U N N U D A G
Faxafeni 13 - 16
Kringlunni 13 - 17
Tvær búðir fullar af vandaðri vöru á góðu verði
Í F U L L U F J Ö R I
áður verð kr. 2990.-
verð nú
Jólavörur - Dúkar
Handklæði - Sængurföt
Rúmteppi - Tilboðsstell
Kertastjakar - Speglar
Mikið úrval af glösum
Hnífapör - Bollar
og margt, margt fleira!
DÚNDURT I LBOÐ
A
FS
LÁ
TT
U
R
m
eðan
birgðirendast
Colostrum
FRÁ
RNA og DNA
H
á
g
æ
ð
a
fra
m
le
ið
sla
-fyrir útlitið
Nr. 1 í Ameríku
NÝ SENDING
Seltjarnarnesi, sími 561 1680
Kringlunni, sími 588 1680.
iðunn
tískuverslun
Buxur
Um 200 nemendur og kennararfrá þrjátíu Evrópulöndumhittust í Brussel í vikunni,
þ. á m. sex frá Grunnskólanum í
Ólafsvík. Tilgangurinn var að sýna
samstarfsverkefni og sjá önnur sem
hafa verið unnin þvert á landamæri
innan menntaáætlunar Evrópusam-
bandsins.
Menntaáætlun Evrópusambands-
ins 2000–2006 er kölluð Sókrates eftir
heimspekingnum fræga. Innan henn-
ar er Comenius-áætlunin sem nefnd
er eftir tékkneska guðfræðingnum,
heimspekingnum og uppeldisfröm-
uðinum Amos Comenius sem var uppi
á 17. öld. Hann var sannfærður um að
með menntun gæti maðurinn nýtt
hæfileika sína til fulls. Comenius snýr
að leik-, grunn- og framhalds-
skólastiginu og markmiðið er að
styrkja samstarf á milli evrópskra
skóla, m.a. með samstarfsverkefnum
um hvaðeina á sviði lista, vísinda, um-
hverfismála, sögu o.fl.
Sinfónía tungumálanna
Nikolaus Van der Pas er yfirmaður
stjórnardeildarinnar sem fer með
menntamál undir framkvæmdastjórn
ESB. Hann setti Comeniusarvikuna í
Brussel og sagði við það tækifæri að
algengt væri að berjast við hið
óþekkta. „Að vera öðruvísi, tala annað
tungumál eða að eiga aðra sögu eru
oft ástæður fyrir ágreiningi.“ Van der
Pas fræddi börnin um að Evrópusam-
bandið hafi verið stofnað að lokinni
seinni heimsstyrjöld til að binda enda
á ágreining Evrópuríkja, og að landa-
mæri skiptu nú æ
minna máli. Hann bað
börnin um að spreyta
sig á öðrum tungumálum en sínu eig-
in og sagði að þegar öll tungumálin
kæmu saman væri það eins og sin-
fónía. „Og hvert og eitt okkar spilar á
hljóðfæri ólíkt því næsta. En þegar
við spilum saman verður til yndisleg
tónlist. Þannig byggjum við Evrópu.“
Ráðstefnan í Brussel sem nú var
haldin í annað skipti var tileinkuð
grunnskólastiginu en takmörkuð við
10–12 ára börn og þar voru til sýnis
verkefni sem þeir skólar sem valdir
voru frá hverju landi höfðu unnið að
síðustu tvö ár í samstarfi við tvo eða
fleiri skóla í öðrum löndum.
Um tíu þúsund skólar víðs vegar í
Evrópu tóku þátt í Comenius-
verkefnum af einhverju tagi skólaárið
2002–2003 og á hverju ári fá um
fimmtíu íslensk verkefni styrk. Alls
eru veittar 56 milljónir evra eða um
fimm milljarðar íslenskra króna til
samstarfsverkefna skóla á ári.
Að leiðast yfir landamæri
Það var stíf dagskrá sem beið
barnanna og kennaranna sem komu
til Brussel frá öllum aðildarríkjum
ESB, EES-ríkjunum og að auki frá
þeim ríkjum sem eru á leið inn í ESB.
Þeim var skipt í hópa sem unnu svo
saman að ýmsum verkefnum alla dag-
ana. Þriðjudaginn 11. nóvember var
5.000 blöðrum sleppt á Jean Rey-
torginu á sama tíma og blöðrum var
sleppt í fleiri Evrópulöndum sem tákn
um frið, samstöðu og vináttu óháð
landamærum. Á blöðrurnar höfðu
nemendur og kennarar skrifað skila-
boð á ýmsum tungumálum en inni-
haldið var svipað þar sem beðið var
um frið, skilning, gott líf og vináttu.
Viviane Reding frá Lúxemborg fer
með mennta- og menningarmál í
Framkvæmdastjórn Evrópusam-
bandsins. Hún las nokkur skilaboð af
blöðrum nemenda áður
en þeim var sleppt og
ávarpaði viðstadda.
Hún sagði að menntun
væri grunnurinn að
„Evrópufjölskyldunni“
og menntamál væri sá
málaflokkur ESB sem
næði út fyrir raðir aðild-
arríkjanna, enda væri það mikilvægt
upp á framtíðina. „Við viljum að börn í
allri Evrópu rétti hvert öðru hönd og
leiðist yfir landamærin, svo það verði
engin landamæri. Að börn geti skilið
hvert annað, unnið saman, leikið sér
saman og verið vinir.“
Á síðum Daglegs lífs verður næstu
daga fjallað nánar um ferð íslenska
hópsins, verkefni og vinnusmiðjur.
MENNTUN| Comenius-samstarfsverkefni tengja saman skóla í Evrópu
Börnin byggja Evrópu
Morgunblaðið/Steingerður
Leiðst yfir landamæri: Viviane Reding sem fer með menntamálin í fram-
kvæmdastjórn ESB leiðir saman tvo drengi sem hittust í fyrsta skipti í
Brussel. Guðmundur Garðarsson 12 ára frá Ólafsvík er sá til hægri.
Blöðrur á loft: 5.000
blöðrum var sleppt í
loftið í blíðviðri í
Brussel sl. þriðjudag.
TENGLAR
..............................................
http://www.ask.hi.is
http://europa.eu.int/comm/
education/programmes/socrates/
comenius/index_en.html
steingerdur@mbl.is
Að vera öðruvísi,
tala annað tungu-
mál eða að eiga
aðra sögu eru oft
ástæður fyrir
ágreiningi.
Íslendingar í Brussel: Grunnskólanemarnir Guðmundur, Snædís, Sunna og
Davíð munda sig til þess að gefa blöðrunum lausan tauminn á Jean Rey-
torginu, þar sem 5.000 slíkum var sleppt á sama tíma.