Morgunblaðið - 18.12.2003, Síða 27
AUSTURLAND
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. DESEMBER 2003 27
Á HÁDEGI í dag kemur skip Sam-
skipa, M/s Heereborg, til hafnar á
Reyðarfirði með stærsta bor sem
nokkru sinni hefur verið fluttur til
landsins. Hann er um 600 tonn og
120 metra langur og var síðast not-
aður til að bora göng undir Queens í
New York. Næsta verkefni borsins
er heilborun um 50 km langra
ganga í Kárahnjúkavirkjun. Borinn
er einn af þremur slíkum sem not-
aðir verða við virkjunarfram-
kvæmdirnar, en hinir koma síðar í
vetur. Hver þessara bora kosta 1,2
milljarða króna.
Ekið að næturþeli inn
að virkjunarsvæðinu
Uppskipun borsins hefst um leið
og landfestar M/s Heereborg hafa
verið treystar og áformað er að
hefja flutning á einstökum hlutum
borsins inn að virkjanasvæðinu í
nótt.
Heildarþyngd borsins og fylgi-
hluta er alls um 600 tonn og þyngsti
hluturinn, sjálf borkrónan, er um
127 tonn. Til að auðvelda flutning
borkrónunnar verður hún tekin í
sundur. Vegur þá þyngsti einstaki
hluturinn í þessum flutningum um
75 tonn.
Það er Sigla, stórflutningadeild
Samskipa, sem hefur umsjón með
flutningi borsins til landsins og sér
einnig um að koma honum frá Reyð-
arfirði á virkjanasvæðið við Kára-
hnjúka. Verður m.a. notast við sér-
styrktan flutningavagn. Vera kann
að grípa þurfi til sérstakra aðgerða
sums staðar á leiðinni, s.s. á Egils-
stöðum, til að flutningalestin komist
leiðar sinnar. Gera þarf sérstakar
ráðstafanir á nokkrum stöðum á
leiðinni úr Reyðarfirði upp í Glúm-
staðadal, einkum að laga beygjur á
vegum. Reiknað er með að flytja
borinn og fylgihluti í fjórum bíla-
lestum að næturþeli og útlit fyrir að
hver þeirra verði um 6–12 klst. á
leiðinni.
Gert er ráð fyrir að það taki um
tvo til þrjá mánuði að setja borinn
saman, en borinn verður settur sam-
an við aðgöng þrjú í Glúmstaðadal.
Hafist verður handa við borun
ganga í átt til Hálslóns í byrjun mars
2004.
Risabor í risaverkefnum
Robbins Main-Beam-borvélar eru
mjög fullkomnar. Stjórnandi borsins
getur fylgst með öllu sem gerist á
tölvuskjám og myndavélum, allt frá
borhausnum fremst til enda færi-
bandsins aftast, sem flytur jarðveg
út úr göngunum sem boruð eru á
losunarsvæðin. Bornum er hægt að
stýra á ferð en titringur í honum er í
lágmarki sem gerir borunina skil-
virkari. Stærð borsins er mikil en
lengd hverrar samstæðu er yfir 120
metrar þegar allt er talið. Matsalur
og verkstæðiseining eru hluti af
borvélasamstæðunum.
Bandaríska fyrirtækið Robbins
framleiðir þessa risavöxnu bora og
eru þeir notaðir til stærri verkefna
víða um heim. Má nefna Ermarsund-
sgöngin, göng vegna risastíflu í Les-
otho í Suður-Afríku og stíflugerðar í
Gulá í Kína, endurnýjun holræsa-
kerfis Hong Kong og neðanjarð-
arlestargöng í Brooklyn, NY.
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
120 metra langur og 600 tonn að þyngd: Verður fluttur á fjórum ækjum að næturþeli í Kárahnjúkavirkjun.
Borkrónan ein og sér vegur tæp 130 tonn. Hún verður tekin í sundur og
flutt að virkjuninni í hlutum.
Risabor skipað upp á
Reyðarfirði í dag
Ein af þremur Robbins Main-Beam-borvélum sem notaðar verða í Kárahnjúkavirkjun
SkjárEinn | Bæjaryfirvöld í
Fjarðabyggð hafa undanfarið ver-
ið í viðræðum við sjónvarpsstöðina
SkjáEinn um útsendingar í öllu
sveitarfélaginu, en þær hafa fram
að þessu aðeins náðst á Reyð-
arfirði. Munu útsendingar hefjast
á Norðfirði fyrir eða um helgina
og á Eskifirði innan fárra daga. Á
heimasíðu Fjarðabyggðar þakka
bæjaryfirvöld starfsmönnum
SkjásEins fyrir gott samstarf að
málinu.
Kvikmyndahús | Bíó Valaskjálf,
eina kvikmyndahúsið sem rekið
hefur verið undanfarin átta ár á
Egilsstöðum, er nú að renna sitt
skeið á enda. Nýir eigendur Vala-
skjálfar, þar sem kvikmyndahúsið
hefur verið til húsa, munu ætla að
nýta salinn í annað að loknum end-
urbótum. Komast Héraðsbúar því
trauðla í bíó eftir síðustu sýningu í
janúar, nema með því að sækja
kvikmyndahús nágrannabæjanna.
Lánsloforð | Íbúðalánasjóður
hefur úthlutað 4,6 milljörðum
króna í lánsloforð vegna uppbygg-
ingar leiguhúsnæðis til sveitarfé-
laga og fyrirtækja á Austurlandi.
Fjármagnið er tæpur helmingur
heildarúthlutunar sjóðsins þetta
árið og rennur í um 460 leiguíbúð-
ir.
Kárahnjúkavirkjun | Einn af
stóráföngum í gerð Kára-
hnjúkavirkjunar verður að veru-
leika í dag þegar Jöklu er hleypt í
hjáveitugöng. Mun hún renna þar
um meðan meginstífla Hálslóns
verður byggð.
Impregilo S.p.A. samdi við verk-
takafyrirtækið Arnarfell um gerð
hjáveituganganna við Fremri-
Kárahnjúk og hefur verið unnið
linnulítið við gangagerðina frá því
í sumar. Göngin eru vestanmegin í
gljúfurbarminum. Önnur göngin
eru 835 m og hin 752 m að lengd.
Jökla rennur um þau lengri meðan
Kárahnjúkastífla rís. Hin eru nk.
flóðagöng til að taka við yfirfalli í
flóðum. Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
Jökla í
hjáveitu-
göng í dag
FERÐASKRIFSTOFAN Terra
Nova-Sól missir að öllum líkindum
umboðsleyfi sitt til sölu á ferðum
með Norrænu í kjölfar kaupa
Heimsferða á ráðandi hlut í fyr-
irtækinu.
Eftir að Andri Már Ingólfsson,
forstjóri og eigandi Heimsferða,
keypti ráðandi hlut í ferðaskrif-
stofunni Terra Nova-Sól, hefur níu
starfsmönnum Terra Nova-Sól ver-
ið sagt upp, m.a. fjármálastjóra,
deildarstjóra Þýskalandsdeildar og
hópadeildar á utanlandssviði,
starfsfólki í svokallaðri úrvinnslu
og einum í bókhaldi. Í upphafi var
samkvæmt upplýsingum Morg-
unblaðsins ellefu manns sagt upp,
en tvær uppsagnir voru dregnar
til baka því ella hefði verið um
hópuppsagnir að ræða.
Áfall fyrir ferðaskrifstofuna
Terra Nova-Sól hefur undanfar-
iðselt ferðir með ferjunni Norrænu
samkvæmt umboðssamningi frá
Norrænu ferðaskrifstofunni.
„Terra Nova hefur selt fyrir
okkur miða síðustu tvö árin en ég
á síður von á því að það haldi
áfram,“ sagði Jónas Hallgrímsson,
framkvæmdastjóri Austfars á
Seyðisfirði, inntur eftir þessu.
„Það er breytt eignaraðild og
breyttur rekstur á Terra Nova og
við þekkjum ekkert til þeirra að-
ila.“
Samkvæmt upplýsingum Morg-
unblaðsins yrði þetta nokkurt áfall
fyrir ferðaskrifstofuna, þar sem
bókanir í ferjuna gengu vel og
skiptu nokkru fyrir afkomu fyr-
irtækisins.
Missir umboðsleyfi
vegna breytinga á
eignarhaldi
Kárahnjúkavirkjun | Tafir hafa orðið
á að koma fullnægjandi brunavörnum
á laggirnar í búðum Kárahnjúkavirkj-
unar og hafa Brunavarnir á Héraði
lýst þungum áhyggjum af stöðu mála.
Impregilo S.p.A. hefur nú sent frá sér
tilkynningu vegna málsins. Segir m.a.
í henni að þegar hafist var handa við
byggingu virkjunarinnar hafi komið í
ljós að minna vatn fannst en gert var
ráð fyrir og nægði ekki til að uppfylla
skilyrði Brunamálastofnunar um eld-
varnir. Í framhaldi af því var lagt til
að Impregilo fengi að nota svokallaða
sjálfbæra, færanlega froðueiningu
(mobile foam unit) og var það sam-
þykkt af Brunamálastofnun síðari
hluta nóvembermánaðar sl. Er bún-
aðurinn væntanlegur til landsins eftir
um fimm vikur og verður notaður í
búðum Aðganga 1, 2 og 3.
Þá hefur Impregilo gert samning
við Öryggismiðstöð Íslands um upp-
setningu og umsjón með öflugu
brunaviðvörunarkerfi. Í þeim búnaði
eru um 2.000 skynjarar ásamt jaðar-
búnaði og lýtur hann stöðlum Bruna-
málastofnunar sem og Evrópustað-
alsins EM54. Búnaðurinn hefur verið
settur upp í tæplega 100 byggingar
við Kárahnjúka, en þær byggingar
sem enn hafa ekki fengið endanlegan
búnað eru með bráðabirgðakerfi. Við-
bragðstími kerfisins eru örfáar sek-
úndur og vöktun fer fram í stjórnstöð
Öryggismiðstöðvar Íslands 24 tíma
sólarhringsins, alla daga ársins, segir
í fréttatilkynningunni.
Hugað að
brunavörnum