Morgunblaðið - 30.12.2003, Síða 4
Morgunblaðið/Sverrir
Bílstjórar á minni bílum lentu í vandræðum í lélegri færð í gær.
TALSVERÐAR tafir urðu í umferð-
inni á höfuðborgarsvæðinu í gær,
en hríðarbylur geisaði fram undir
hádegi og skóf mikið í skafla á
gatnamótum, hringtorgum og bíla-
stæðum.
Bílar voru stopp víða um borgina
í gær og ollu þeir talsverðum töfum
þar sem þeir sátu fastir á götunum
og töfðu auk þess snjómokstur.
Ekki var mikið um óhöpp af völdum
kyrrstæðra bíla og segir Lögreglan
í Reykjavík fjölda slysa eins og á
meðaldegi. Lögreglumenn vildu
ekki meina að bílar væru verr búnir
nú en áður, færð hafi spillst fljótt og
ekki orðið verri í langan tíma.
Björgunarsveitir Slysavarn-
arfélagsins Landsbjargar voru kall-
aðar út um kl. 11 í gærmorgunn að
beiðni lögreglu til að aðstoða bíla
sem sátu fastir víða á höfuðborg-
arsvæðinu. Alls voru 84 björg-
unarsveitarmenn á 29 björg-
unarjeppum að hjálpa fólki sem
ekki komst leiðar sinnar.
Valgeir Elíasson, upplýsinga-
fulltrúi Landsbjargar, segir að
mest hafi verið um hjálparbeiðnir
frá ökumönnum í efri hverfum
borgarinnar, og áætlar hann að
hjálparsveitarmenn hafi komið
rúmlega 200 bílstjórum til aðstoðar.
Nokkuð var um að bílar festust á
Hellisheiði og hjálpuðu björg-
unarsveitarmenn á vel búnum jepp-
um fólki sem komst ekki leiðar
sinnar niður af heiðinni, og gekk
greiðlega að losa bílana að sögn
lögreglu.
Færð á Vesturlandi og Snæfells-
nesi var almennt ágæt, og ekki
margir á ferð þegar veðrið var sem
verst, samkvæmt upplýsingum frá
lögreglu.
Mikil ófærð og umferðartafir á götum höfuðborgarsvæðisins í gær eftir talsverða snjókomu
Björgunarsveitarmenn komu rúmlega 200 ökumönnum til hjálpar í slæmri færð í gær.
Tugir björgunarsveitar-
manna til aðstoðar
Margir skildu bílana eftir heima og notuðust við strætisvagna til að komast leiðar sinnar.
FRÉTTIR
4 ÞRIÐJUDAGUR 30. DESEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
ALLIR sjúkrabílar hjá Slökkvi-
liði höfuðborgarsvæðisins voru
settir á keðjur í gær. Nokkur ár
eru síðan tilefni var til þess síð-
ast en ófærðin á höfuðborgar-
svæðinu í gær krafðist tafar-
lausra úrlausna.
Slökkviliðið á fimm fjórhjóla-
drifna sjúkrabíla og sjö bíla með
afturhjóladrifi sem allir voru
settir á keðjur þar sem mjög erf-
iðlega gekk að komast að heim-
ilum þar sem sjúklingar biðu.
Í a.m.k. einu bráðatilviki skap-
aðist hætta þegar afturhjóladrif-
inn sjúkraflutningabíll komst
alls ekki á leiðarenda og þurfti
fjórhjóladrifinn neyðarbíll að
annast flutning á sjúkrahús.
Einkum voru það sjúkraflutning-
ar vegna veikinda sem mæddu á
sjúkraliðinu í gær en slysatilvik
voru vart teljanleg að sögn vakt-
stjóra.
Strætisvagnaumferð gekk
fremur illa í gær og voru það
vanbúnir bílar sem stöðvast
höfðu á götum sem töfðu stræt-
isvagna auk sjálfrar ófærðarinn-
ar sem ríkti í gær. Þó var reynt
eftir fremsta megni að halda
strætisvagnaleiðum opnum.
Annir hjá leigubílstjórum
Leigubílastöðvarnar fengu líka
sinn skerf af annríki því upp úr
kl. 9.30 kom sprenging í leigu-
bílapöntunum. Hjá Hreyfli Bæj-
arleiðum var gríðarlegt álag og
voru bílar pantaðir út um alla
borg. Kalla þurfti út aukalið til
að svara símanum og var aðeins
farið að draga úr hringingum
upp úr kl. 14.
Ekki hafði starfsfólkið hjá
BSR það náðugt heldur, illa
gekk að sinna pöntunum og van-
búnir bílar út um alla borg töfðu
umferð mikið. Einnig tafði það
þjónustuna að lítið var skafið af
götum borgarinnar vegna
dimmra élja
Keðjur settar
á sjúkrabílana
KAUPFÉLAG Borgfirðinga svf.
segir að félagið og dótturfélag
þess, KB Borgarnesi ehf., hafi
einkarétt á vörumerkinu KB og
hefur það nú falið lögmanni sínum
að gæta hagsmuna félagsins gagn-
vart Kaupþingi Búnaðarbanka sem
hefur tekið upp skammstöfunina
KB í auglýsingum og kynningum
og hyggst breyta nafni bankans í
KB banka.
Í tilkynningu kaupfélagsins segir
að vörumerkið sé hluti af heiti fé-
lagsins og kaupfélagið hafi allt frá
stofnun fyrir hundrað árum, 4. jan-
úar 1904, notað umrætt vörumerki
til styttingar á heiti sínu. Þá er á
það bent að skammstöfunin KB sé í
merki kaupfélagsins og ennfremur
sé vörumerkið notað sem forskeyti
um ýmsar rekstrareiningar innan
félagsins. Notkun Kaupfélags
Borgfirðinga svf. hafi því skapað
félaginu ótvíræðan vörumerkjarétt
á vörumerkinu KB samkvæmt
vörumerkjalögum. Þá komi
skammstöfunin KB fyrir í slóð að
heimasíðu Kaupfélags Borgfirð-
inga svf.: www.kb.is.
Opna undir nýju heiti
á 100 ára afmælinu
Guðsteinn Einarsson, kaup-
félagsstjóri, segir að í vor hafi
bankinn falast eftir því að fá lénið
kb.is keypt en ekki hafi náðst lend-
ing í því máli og síðan hafi engar
viðræður farið fram. „Okkur fannst
og finnst enn að staðreyndin sé sú
að þeir hefðu getað fundið sér
frumlegra nafn en að taka upp
þetta heiti. Okkar lögmenn meta
það þannig að á grundvelli þess að
við séum búnir að nota nafnið með
þessum hætti svona lengi sé þessi
réttur til staðar. Okkur finnst að
okkur vegið og þetta líka mjög leið-
inleg tímasetning að daginn sem
bankinn verður opnaður undir
þessu nafni verðum við að halda
upp á 100 ára afmæli kaupfélagsins
með stórveislu í Borgarnesi. Þann-
ig að þetta er líka tilfinningamál,“
segir Guðsteinn.
KB ekki í
vörumerkjaskrá
KB banki vísar gagnrýni Kaup-
félags Borgfirðinga um misnotkun
á vörumerki alfarið á bug. Í yfirlýs-
ingu frá Kaupþingi Búnaðarbanka
segir að bankinn telji sig í fullum
rétti til að notast við heitið KB
banki enda sé vörumerkið KB ekki
skráð í vörumerkjaskrá.
„Vandlega var farið yfir málið af
lögfræðingum bankans og leitað
ráða hjá sérfræðingum í vöru-
merkjarétti. Samhljóða álit þeirra
er að KB banki sé í fullum rétti til
að nota heitið. Þess má geta að nú
þegar eru skráð og starfandi önnur
félög með heitinu KB, sem eru
ótengd rekstri Kaupfélags Borg-
firðinga. Starfsemi þessara félaga
sem og Kaupfélags Borgfirðinga er
mjög ólík starfsemi bankans og því
fæst ekki séð að ruglingshætta
skapist. Bankinn harmar því þessi
viðbrögð Kaupfélags Borgfirð-
inga,“ segir í yfirlýsingu bankans.
Hafa notað vörumerk-
ið KB í heila öld
Kaupfélag Borgfirðinga mótmælir nafninu KB banki
UNGIR jafnaðarmenn, ungliða-
hreyfing Samfylkingarinnar, fá
ekki aðgang að lista yfir stofn-
fjáreigendur í Sparisjóði
Reykjavíkur og nágrennis
(SPRON). Ungir jafnaðarmenn
höfðu beðið embættis- og stjórn-
málamenn í röðum stofnfjáreig-
enda í SPRON að afsala sér og
skila öllum hugsanlegum gróða
af sölu SPRON umfram eðlilega
vexti og verðbætur og jafnframt
fóru þeir fram að fá aðgang að
lista yfir stofnfjáreigendur.
Rætt á stjórnarfundi
Guðmundur Hauksson, spari-
sjóðsstjóri, segir málið hafa ver-
ið rætt á stjórnarfundi í SPRON
í gær. „Í samþykktum SPRON
er kveðið á um að allir stofnfjár-
eigendur hafi aðgang að þeirri
skrá sem geymir nöfn stofnfjár-
eigenda en aðrir eru ekki til-
greindir þannig að þetta liggur
alveg ljóst fyrir. Ef menn horfa
til annarra laga eins og um
hlutafélög fá þeir einir aðgang
að slíkum upplýsingum sem eru
hluthafar og svo opinberir aðil-
ar. Þetta á einnig við um
SPRON. En ef stofnfjáreigend-
ur koma hingað geta þeir að
sjálfsögðu fengið að sjá þessa
skrá en hún er ekki opin al-
menningi,“ segir Guðmundur.
Aðeins stofn-
fjáreigendur
hafa aðgang
að listanum
EKKI er inni í myndinni að annar að-
ili en Kaupþing Búnaðarbanki eignist
hlut sjálfseignarsjóðs SPRON þegar
sparisjóðnum
verður breytt í
hlutafélag og
breytir engu þótt
hærra tilboð
kynni að koma
fram á síðustu
stundu þar sem
SPRON er bund-
inn af samkomu-
lagi því sem hann
hefur gert við Kaupþing Búnaðar-
banka.
„Við höfum gefið út viljayfirlýsingu
um þetta samstarf við Kaupþing Bún-
aðarbanka,“ segir Jón G. Tómasson,
stjórnarformaður SPRON.
Jón segir menn hafa leitað til við-
skiptabankanna í þeim tilgangi að fá
að vita hvernig þeir sæju fyrir sér
samstarf eða breytingu á eignarhaldi
SPRON. Í ljósi þeirra hugmynda sem
viðskiptabankarnir þrír hafi síðan
lagt fram fyrir stjórn SPRON hafi
hún valið Kaupþing Búnaðarbanka
sem hún hafi talið hagstæðasta kost-
inn fyrir SPRON, bæði að því er
snerti verð og starfsemi. „Það má
segja að við höfum þannig lokað
dæminu fyrirfram,“ segir Jón G.
Tómasson.
SPRON
bundið af
viljayfir-
lýsingu
Jón G. Tómasson