Morgunblaðið - 30.12.2003, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 30.12.2003, Blaðsíða 27
UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. DESEMBER 2003 27 RANNSÓKNIR hafa sýnt að fag- lega rekin símameðferð fyrir fólk sem vill hætta að reykja stenst sam- anburð við persónu- lega meðferð hjá heil- brigðisstarfsfólki á heilbrigðisstofnun. Í löndum þar sem reyk- símar eru hvað lengst komnir (t.d. Svíþjóð) sýna rannsóknir að þjónustan er mik- ilvægur stuðningur við tóbaksvarnastarf heilsugæslunnar. Í Sví- þjóð, eins og á Íslandi, er það skrifað í lög að heilsugæslunni beri að bjóða reykjandi skjólstæðingum upp á aðstoð við að hætta. Fyrstu nið- urstöður nýrrar rannsóknar í Sví- þjóð sýna að innra tóbaksvarnastarf heilsugæslunnar styrkist ef læknar og hjúkrunarfræðingar vísa á reyk- síma sem fyrstu lausn og einbeita sér að því að hjálpa þeim sem þurfa á meiri stuðningi að halda en hægt er að veita gegnum síma. Þótt enn sé nokkuð langt í land með að íslenski reyksíminn „Ráðgjöf í reykbindindi“ (RÍR) hafi hlutfallslega sama fjár- hagslegt bolmagn og sænski reyksíminn bendir athugun á ár- angri RÍR til þess að þjónustan standi fylli- lega undir væntingum. Íslenski reyksíminn Ein aðferð sem oft er notuð til að meta ár- angur af meðferð gegn reykingum er að meta hlutfall þeirra sem eru reyklausir u.þ.b. ári eftir að meðferð hefst (eða lýkur). Erlendar rannsóknir sýna að í besta falli eru rúmlega þrír af tíu reyklausir ári eftir fyrsta sam- tal við faglega rekna reyksíma. Nið- urstöður athugunar meðal skjól- stæðinga íslenska reyksímans benda til að tæplega þrír af tíu skjólstæð- ingum séu reyklausir 14–16 mán- uðum eftir fyrsta samtal. Til sam- anburðar má geta þess að tæplega einn af tíu þeirra sem reyna að hætta að reykja án aðstoðar er reyk- laus ári síðar. Önnur aðferð til að meta árangur tiltekinnar starfsemi í heilbrigð- iskerfinu er að reikna út áætlaðan kostnað við að auka lífslíkur um eitt ár (cost per life years saved). Sam- anburður á fimm hundruð þáttum í heilbrigðiskerfinu (life-saving int- erventions) í Bandaríkjunum sýndi að „klínískar tóbaksvarnir“ (stuðn- ingur við reykingafólk sem vill hætta að reykja) eru meðal ódýrustu aðgerða heilbrigðiskerfisins ef mið- að er við kostnað við að auka lífs- líkur um eitt ár. „Kostnaður unnins lífárs“ (KUL) vegna stuðnings við reykingafólk reyndist vera á bilinu 990–2.900 dollarar eftir því hvaða hópur var skoðaður. Til sam- anburðar má geta þess að KUL vegna skimunar á háum blóðþrýst- ingi mældist á bilinu 5.000–87.000 dollarar, KUL vegna röntgenleitar að brjóstakrabbameini var á bilinu 810–190.000 dollarar og KUL vegna meðferðar með beta-blokkurum eft- ir hjartaáfall var á bilinu 360–17.000 dollarar. Hafa þarf í huga að ofan- greindir KUL-útreikningar eru frá 1995 og hafa ekki verið framreikn- aðir til 2003. Útreikningar á KUL sænska reyksímanns (Sluta röka linjen) árið 2002 framreiknaðir til 2003 sýna tölur á bilinu 300–317 doll- arar. Fáar (ef nokkrar) aðrar lífs- sparandi aðgerðir heilbrigðiskerf- isins geta státað af sambærilegum tölum. Einfaldara mat á hagkvæmni meðferðar gegn reykingum er að áætla kostnað vegna hvers reyk- lauss (cost per quitter). Útreikn- ingar sænska reyksímans sýna að kostnaður vegna hvers reyklauss var um ríflega 80.000 íslenskar krón- ur á árinu 2002. Samanlagður kostn- aður við rekstur RÍR árið 2002 var 3.000.000 krónur. Þótt aðeins sé mið- að við að fjórði hver hætti að reykja er áætlaður kostnaður fyrir hvern reyklausan um það bil 30.000 ís- lenskar krónur hjá RÍR. Þótt auð- velt sé að berja sér á brjóst og státa af frábærri kostnaðarhagkvæmni ber að hafa það í huga að kostnaður vegna markvissrar kynningar á starfseminni innan sænska heil- brigðiskerfisins, kostnaður vegna tölvuvæðingar á sjúkraskýrslum sem tryggir samfellu í meðferð óháðs meðferðaraðila, kostnaður vegna símenntunar og handleiðslu starfsfólks og kostnaður vegna ár- angursmats og gæðaþróunar er verulegur hluti af kostnaði sænska reyksímans. Þessir kostnaðarliðir eru ekki inni í útreikningum á kostn- aðarhagkvæmni RÍR, einfaldlega vegna þess að engir peningar eru til að sinna þessum mikilvægu þáttum. Fagleg ráðgjöf við uppbyggingu og rekstur RÍR hefur fram að þessu verið í höndum starfsfólks sænska reyksímans sem eins konar þróun- araðstoð án þess að farið hafi verið fram á greiðslur fyrir. Það er því ljóst að starfsaðstæður hjúkr- unarfræðinga íslenska reyksímans eru á engan hátt sambærilegar við starfsaðstæður sænskra starfs- félaga þeirra og úr þessu verður að bæta ef tryggja á framtíð reyksím- ans. Í raun eru niðurstöður mínar þær að eðlilegur kostnaður fyrir hvern reyklausan sé nær 80.000 ís- lenskra króna og við það verði að miða í framtíðinni. Lokaorð og ályktanir Athuganir benda sterklega til þess að íslenski reyksíminn „Ráðgjöf í reykbindindi – 800-6030“ standist fyllilega samanburð við bestu reyk- síma erlendis hvað árangur varðar. Miðað við þær niðurstöður sem nú liggja fyrir og samanburð við er- lendar rannsóknir er líklegt að fá ef nokkur meðferðarúrræði íslensku heilbrigðisþjónustunnar séu jafn kostnaðarlega hagkvæm og þjón- usta íslenska reyksímans jafnvel þótt þjónustunni verði tryggt eðli- legt rekstrarfjármagn. Símanúmer 800-6030 – hagkvæmasta þjónusta heilbrigðiskerfisins? Ásgeir R. Helgason skrifar um tóbaksvarnastarf ’Innra tóbaksvarna-starf heilsugæslunnar styrkist ef læknar og hjúkrunarfræðingar vísa á reyksíma sem fyrstu lausn. ‘ Höfundur er dósent í heilsusálfræði og forvarnafaraldsfræði í Svíþjóð. MIKLAR umræður hafa spunn- ist vegna bókar Hannesar Hólm- steins Gissurarsonar um ævi Hall- dórs Laxness. Heimildanotkun Hannesar orkar þar verulega tvímælis en verður ekki gerð að umtalsefni hér. Hins vegar vil ég leiðrétta nokkrar missagnir í bókinni sem tengjast bernskuslóðum Hall- dórs í Mosfellssveit. Klukkan í fjós- haugnum Höfundur teflir því fram sem sagnfræðilegri staðreynd að hin forna klukka Mosfellskirkju hafi verið varðveitt um langa hríð í fjóshaugnum á Hrísbrú eftir nið- urrif kirkjunnar árið 1888, sjá bls. 26. Þetta er alrangt og virðist vera byggt á skáldskap úr Innansveit- arkroniku eftir Halldór Laxness. Kirkjuklukkan skipaði þvert á móti sinn virðingarsess á Hrísbrú og var hringt í sáluhliðinu að Mosfelli þegar greftrað var á staðnum á meðan þar var kirkjulaust. Klukk- unni var síðan komið fyrir í Mos- fellskirkju við vígslu hennar árið 1965. Hér stóð bær… Nokkrar staðfræðivillur um Mos- fellssveit hafa slæðst inn í bókina. Á blaðsíðu 23 eru Æsustaðir í Mos- fellsdal sagðir vera undir Helga- felli, sem er alrangt, bærinn stend- ur undir Æsustaðafjalli. Höfundur nefnir Kálfakot í Mosfellssveit og getur þess að það hafi verið vestan við Helgafell (bls. 144). Hið rétta er að Kálfakot stóð sunnan við Úlfarsfell en nafni bæjarins var breytt í Úlfarsá á 3. áratugi 20. aldar. Þá er einnig meinleg villa á blaðsíðu 158 þar sem sagt er að Varmá sé á Kjalarnesi en hún fell- ur þvert í gegnum Mosfellsbæ. Hallbjörn og hreppstjórinn Einn af vinum Hall- dórs Laxness var Hallbjörn Hall- dórsson prentari, ættaður frá Bringum í Mosfellsdal. Hann kem- ur nokkuð við sögu í bókinni en í myndatexta er hann rangnefndur Hallbjörn Hjartarson sem er allt annar maður á öðrum stað og tíma. Hreppstjóri Mosfellinga á fyrri hluta 20. aldar er nefndur á bls. 126. Hann hét Björn Bjarnarson og bjó í Grafarholti en sagður Björnsson í bókinni. Faðir hans hét vissulega Björn en Björn hreppstjóri notaði ævinlega hina fornu eignarfallsmynd: Bjarn- arson. Í nafnaskrá bókarinnar er Birni í Grafarholti skellt saman við annan Björn sem var viðstaddur þegar Stefán frá Hvítadal var bisk- upaður árið 1924. Birni í Graf- arholti hefur sennilega seint komið til hugar að fylgjast með kaþólskri athöfn vestur í Landakoti, honum þótti trúarbrölt þeirra skáld- bræðra heldur hjákátlegt og orti af þessu tilefni: Laxnesingur léttı́ af sér Lútherssiðarstakki; Hvítdælingur einnig er orðinn páfakrakki. Athöfn varla virðist slík verðug um að blaðra, maður þó, sem fer úr flík, fari spjör í aðra. Hannes og Halldór Bjarki Bjarnason skrifar um ævisögu Halldórs Laxness ’HeimildanotkunHannesar orkar þar verulega tvímælis en verður ekki gerð að um- talsefni hér. Hins vegar vil ég leiðrétta nokkrar missagnir í bókinni sem tengjast bernskuslóðum Halldórs í Mosfells- sveit.‘ Höfundur býr í Mosfellsdal og stund- ar ritstörf og kennslu. Vöggusæn gur vöggusett PÓSTSENDUM Skólavörðustíg 21  sími 551 4050  Reykjavík Síðumúla 34 - sími 568 6076 Ýmislegt áhugavert fyrir safnara Jólahappdrætti Útdráttur 24. desember 2003 Ford Focus C-MAX, 2.370.000 kr. Bifrei› e›a grei›sla upp í íbú›, 1.000.000 kr. Úttekt hjá fer›askrifstofu e›a verslun, 100.000 kr. 8550 121997 Vinningar Krabbameins- félagsins B ir t án á b yr g ð ar Byrja› ver›ur a› grei›a út vinninga 8. janúar nk. 60 1279 4966 5650 6581 7855 10005 10860 11001 11531 12629 13282 13625 14344 14723 15034 15706 16974 18113 18297 18920 19862 19967 21131 21380 22431 22770 23787 23990 24418 25170 25941 26222 26422 27480 27971 28101 29504 29560 29695 32173 32454 32966 34774 35316 36151 36190 36592 38427 38599 42733 46930 47028 47631 48978 49125 49184 50647 51448 52945 54960 55673 56969 57346 59697 60148 61995 63369 63471 63501 63556 65014 65431 65728 66122 67127 67275 70206 70480 71770 72484 73304 73833 76414 77024 78411 78622 84681 85710 85744 86814 87015 87920 88013 88539 89187 91121 93059 93797 94711 95010 95282 95366 95964 97518 98451 99381 99886 101269 101673 102270 102345 102894 103394 103833 103921 104624 105062 105416 106087 106258 107422 108372 108875 112593 112874 112989 113439 113470 113651 113998 115824 116321 116548 120869 123028 123675 124245 125441 126536 127079 129628 130187 131141 131917 133398 134174 134599 Handhafar vinningsmi›a framvísi fleim á skrifstofu Krabbameinsfélagsins a› Skógarhlí› 8, sími 540 1900. Krabbameinsfélagi› flakkar landsmönnum veittan stu›ning
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.