Morgunblaðið - 30.12.2003, Blaðsíða 50
50 ÞRIÐJUDAGUR 30. DESEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
HUGSAÐU STÓRTMiðasala opnar kl. 11.30
Sýnd kl. 12.
Sýnd kl. 12, 2, 4 og 6. Með íslensku tali.
Sýnd kl. 8 og 11. B.i. 14.
Pow
er-
sýni
ng
kl. 11
og12
ámið
nætt
i
Sýnd kl. 12, 2, 3, 4, 6, 7, 8, 10 og powersýningar kl. 11 og 12 á miðnætti
Kvikmyndir.com
„Ein besta jólamynd
sem sést hefur...“
Hjörleifur Pálsson,
Kvikmyndir.comkl. 12, 4, 8 og 12 á miðnætti
EINI THX LÚXUSSALUR LANDSINS
EPÓ kvikmyndir.com
„Besta ævintýramynd allra
tíma.“HJ MBL
ÞÞ FBL
„VÁ. Stórfengleg
mynd.“
Yfir 30.000 gestir á 3 dögum!
Sýnd kl. 2. Með ísl. tali.
Sýnd kl. 2, 4, 6, 8, 10 og kraftsýning kl. 12.
Kvikmyndir.com
KRAFT
SÝNIN
G
KL. 12
Will Ferrell
EPÓ kvikmyndir.com
„Besta ævintýramynd allra
tíma.“
HJ MBL
ÞÞ FBL
„VÁ. Stórfengleg
mynd.“
Yfir 30.000 gestir á 3 dögum!
ÞÓ AÐ hugsanlega kannist
fáir við raftónlistartvíeykið
Einóma þarf ekki annað en
að slá nafnið inn í Google til
að sjá að það er vel þekkt
utan landsteinanna. Það
sem meira er; ef menn fara
síðan að lesa síðurnar sem
koma upp rekast þeir býsna
oft á mjög jákvæða dóma
um plötuna Undir feilnót-
um, sem kom út á síðasta
ári, og svo nýja plötu þeirra
félaga, Milli tónverka, sem
kemur út um þessar mund-
ir.
Unnið í flæðinu
Einóma, sem er skipað
þeim Steindóri Kristins-
syni og Bjarna Þór Gunn-
arssyni, gefur út tónlist
sína á vegum þess virta raftónlistarfyrirtækis
Vertical Form, en sú útgáfa kom þannig til að
kunningi þeirra Bjarna og Steindórs, tónlist-
armaðurinn Darrell Fitton, sem kallar sig Bola,
var hér á ferð og fékk þá að gjöf prufuupptökur.
Er Bola spilaði síðan prufudiskinn fyrir vin sinn
sem er plötuútgefandi hreifst sá síðarnefndi svo
að hann setti sig í samband við þá Einóma-pilta
og vildi fá að gefa út með þeim smáskífu með
einu laganna af prufunni. „Við vorum til í það,“
segir Bjarni, „en hann bað okkur um eitt nýtt
lag til viðbótar. Þegar við svo sendum honum
þrjú ný lög og buðum honum að velja úr vildi
hann endilega gefa þau öll út, þeir bættu við
fleiri lögum af prufunni og þar var Undir feil-
nótum komin og við komnir með plötusamning.“
Bjarni segir það ekki hafa nein eiginleg áhrif
á þá félaga að komast á samning. Þeir hafa úr
eitthvað meiru að spila, sem hann segir að séu í
raun smáaurar, en þeir vinna tónlistina á líkan
hátt og áður. Hvað Milli tónverka varðar þá var
vinnan við sjálfa plötuna reyndar nokkuð frá-
brugðin því þegar tónlistin á Undir feilnótum
varð til, platan er unnin á mun lengri tíma. „Við
unnum að Milli tónverka frá í febrúar 2002 þar
til við skiluðum plötunni í sumar. Það tók okkur
mun lengri tíma en áður vegna þess að við vild-
um leggja meiri rækt við hljóðin, finna okkar
hljóm og líka tók það okkur langan tíma að
vinna í flæðinu á plötunni, taktflæðinu. Það er
svo mikið af smáatriðum í þessu taktflæði að
það var mun seinlegra að vinna það en það sem
við gerðum áður. Við vildum að tónlistin hljóm-
aði vel eins og á Undir feilnótum en nú án þess
að á plötunni væri nokkuð sem menn hefðu
heyrt áður. Á síðustu plötu mátti kannski heyra
sumstaðar undir hvaða áhrifum við vorum.“
Jákvæðir dómar
Ýmsir hafa haft orð á því að platan nýja væri
ákveðnari og stefnan skýrari og Bjarni tekur
undir það, segir að þeir séu nú að koma frá sér
nákvæmlega því sem þeir vildu, það hafi bara
kostað svo mikla vinnu. Erlendir dómar um
plötuna nýju hafa verið jákvæðir upp til hópa og
Bjarni segist lesa þá ef hann kemst í þá þó að
hann reyni vitanlega að láta þá ekki hafa áhrif á
sig. „Það er þó alltaf gaman að upplifa það að
menn kunni að meta það sem maður er að gera,
ekki síst þegar við höfum lagt eins mikla vinnu í
verkið og raun ber vitni.“
Næst á dagskrá Einóma er að setja saman
smáskífu til að fylgja stóru plötunni eftir en
vinna við það hefur beðið í haust þar sem Stein-
dór hefur dvalið erlendis. Stefnt er að því að
gefa út smáskífuna næsta vor og þá með ein-
hverjum nýjum lögum en svo stendur líka til að
fá einhverja til að endurvinna lög af plötunni,
spáð verður í það á næstu vikum. Ekkert er ljóst
með tónleika ytra en skýrist væntanlega þegar
líða tekur á næsta ár.
Því er svo við þetta að bæta að plata Einóma,
Milli tónverka, fæst í 12 tónum á Skólavörðu-
stíg.
Milli tónverka Einóma
Bjarni Þór Gunnarsson og Steindór Kristinsson, liðsmenn Einóma
ÞRÖSTUR Leó Gunnarsson stendur einn á
sviðinu í 110 mínútur og lætur dæluna ganga
um allt sem viðkemur karlmennskunni og
samskiptum kynjanna í gamanleiknum Bless
fress sem leikfélagið 3 Sagas Entertainment
frumsýndi á laugardag í Loftkastalanum.
Í gamanleiknum leikur Þröstur Leó Þröst,
eða Dösta, ráðlausan karlmann sem þarf að
komast að því hvers vegna konan yfirgaf
hann fyrir tveimur vikum. Eina sem hann veit
er að það hefur eitthvað með köttinn hennar
að gera.
Þannig svipar stykkinu svolítið til Hellisbú-
ans sem sýndur var fyrir fullu húsi oftar en
flest annað í sögu íslensks leikhúss en leik-
stjóri verkanna er einmitt sá sami, Sigurður
Sigurjónsson leikari og stofnhluthafi í Spaug-
stofunni. Höfundurinn er Robert Dubac en
Hallgrímur Helgason hefur þýtt og staðfært
grínið.
Þröstur Leó fór hamförum á frumsýning-
unni, framkallaði ófá hlátrasköllin og fékk
mikið lófatak fyrir í lok sýningar ásamt öðr-
um aðstandendum.
Næstu sýningar á Bless fress eru laug-
ardaginn 3. janúar og sunnudaginn 11. jan-
úar.
Bless fress frumsýnt í Loftkastalanum
Morgunblaðið/Eggert
Fjölskylda og vinir aðstandenda gamanleiksins Bless fress, mættu að sjálfsögðu á frumsýn-
inguna í Loftkastalanum á laugardag: Reimar Pétursson, Björg Vigfúsdóttir, Vigfús Þór
Árnason, Þórunn Vigfúsdóttir, Sif Gröndal, Bjarni Haukur Þórsson og Hrefna Ólafsdóttir.
Karlmennska
og kötturinn
Morgunblaðið/Eggert
Karlmennirnir á bak við Bless fress: Hall-
grímur Helgason, Sigurður Sigurjónsson,
Þröstur Leo Gunnarsson og Úlfur Grönvöld.
Morgunblaðið/Eggert
Liðlega helmingur frumsýningargesta er
karlmenn, þeirra meðal Árni Þór og Erpur.